Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 49/2015 úrskurður 29. júní 2015

Mál nr. 49/2015                     Eiginnafn:      Dylan


Hinn 29. júní 2015 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 49/2015 en erindið barst nefndinni 23. júní.

Til að hægt sé að samþykkja nýtt eiginnafn á mannanafnaskrá þarf öllum skilyrðum 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn að vera fullnægt. Skilyrðin eru þessi: (1) Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. (2) Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. (3) Nafnið skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess. Með almennum ritreglum íslensks máls er vísað til auglýsinga nr. 132/1974 og 261/1977, um íslenska stafsetningu.

Eiginnafnið Dylan fullnægir skilyrði (1) hér að ofan, Dylans.  Það uppfyllir einnig skilyrði (2) þar sem það brýtur ekki í bág við íslenskt málkerfi. Í íslensku hafa ýmis karlkyns eiginnöfn endinguna -an, sbr. Natan, Hálfdan, Kalman og Tristan. Í málinu reynir hins vegar á skilyrði (3) sé miðað við að nafnið sé borið fram að enskum hætti /dɪlən/ en þá væri „eðlileg íslensk stafsetning“ Dillan.  Mannanafnanefnd telur hins vegar að ekki sé hægt að gefa sér þær forsendur að framburður nafnsins verði þannig.

Ritháttur nafnsins Dylan (kk.) getur ekki talist í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls þar sem rittáknið y er ekki ritað í íslenskum orðum nema það styðjist við uppruna. Upphaflega táknaði y í íslensku hljóð sem var svipað y í dönsku og varð til við viss skilyrði. Það á ekki við um það nafn sem hér er sótt um. Í uppruna þess orðs er ekkert sem styður ritháttinn Dylan. Á nafnið er því aðeins heimilt að fallast ef umbeðinn ritháttur þess telst hefðaður samkvæmt lögum um mannanöfn.

Til stuðnings við mat á hefð í 5. og 6. gr. laga um mannanöfn hefur mannanafnanefnd stuðst við vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 19. janúar 2015, og byggðar eru á greinargerð með frumvarpi til laga um mannanöfn og eldri vinnulagsreglum. Er í reglunum byggt á því að hugtakið hefð í lögum um mannanöfn varði einkum erlend nöfn frá síðari öldum sem ekki hafa aðlagast ritreglum íslensks máls. Þau eru stundum nefnd ung tökunöfn og koma fyrst fram í íslensku máli 1703 þegar manntal var tekið fyrsta sinni. Vinnulagsreglurnar eru svohljóðandi:

1.   Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:

  1. Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;

  2. Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;

  3. Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;

  4. Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910 eða 1920;

  5. Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1920.

 

2.  Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.

 

3.  Tökunafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

 

Tekið skal fram að vinnulagsreglurnar eru mannafnanefnd til stuðnings við mat sitt, en ekki ráðandi um niðurstöðuna bendi önnur atriði engu að síður til þess að ritháttur nafns hafi hefðast. 

Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands bera sex drengir nafnið Dylan í þjóðskrá sem uppfylla skilyrði vinnulagsreglnanna og er sá elsti fæddur árið 2000. Nafnið kemur ekki fyrir í manntölum frá 1703–1920. Rithátturinn Dylan er því ekki hefðaður í skilningi 1. mgr. 5. gr. laga um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Dylan (kk.) er hafnað.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum