Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 47/2015 úrskurður 29. júní 2015

Mál nr. 47/2015                     Millinafn:       Þingey


Hinn 29. júní 2015 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 47/2015 en erindið barst nefndinni 10. júní.

Sótt er um millinafnið Þingey.

Skilyrði 6. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn þurfa að vera uppfyllt svo að mögulegt sé að samþykkja nýtt millinafn og færa það á mannanafnaskrá. Skilyrðin eru þessi: (1) Millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu. (2)  Nöfn, sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annaðhvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn. (3) Millinafn skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess. (4) Millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Nafnið Þingey er dregið af íslenskum orðstofni, er ritað í samræmi við almennar ritreglur almenns máls og er ekki þannig að það geti orðið nafnbera til ama. Endingin -ey er hins vegar einkenni kvenmannseiginnafna og uppfyllir nafnið því ekki skilyrði (2) um millinöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Þingey er hafnað.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum