Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20F%C3%A9lags%C3%BEj%C3%B3nusta%20og%20h%C3%BAsn%C3%A6%C3%B0ism%C3%A1l

Mál nr. 71/2020 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 71/2020

Fimmtudaginn 18. júní 2020

A

gegn

Seltjarnarnesbæ

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 5. febrúar 2020, kærði A til úrskurðarnefndar velferðarmála, ákvörðun Seltjarnarnesbæjar, dags. 3. febrúar 2020, um greiðslu fjárhagsaðstoðar.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um fjárhagsaðstoð hjá Seltjarnarnesbæ fyrir janúar 2020 á móti tekjum frá Greiðslustofu lífeyrissjóða. Umsókn kæranda var samþykkt og fékk hann greiðslu að fjárhæð 28.326 kr. þann 3. febrúar 2020.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 5. febrúar 2020. Með bréfi, dags. 11. febrúar 2020, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Seltjarnarnesbæjar vegna kærunnar ásamt málsgögnum. Sú beiðni var ítrekuð með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 11. mars 2020, og með símtali starfsmanns úrskurðarnefndarinnar 11. maí 2020. Greinargerð Seltjarnarnesbæjar barst 20. maí 2020 og var hún send kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 22. maí 2020. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hann sé ósáttur við styrk frá Seltjarnarnesbæ að fjárhæð 17.606 kr. Hann hafi fengið þær upplýsingar frá sveitarfélaginu að hann fái ekki hærri fjárhæð vegna greiðslna frá Greiðslustofu lífeyrissjóða.

III.  Sjónarmið Seltjarnarnesbæjar

Í greinargerð Seltjarnarnesbæjar kemur fram að kærandi hafi sótt um framfærslustyrk hjá sveitarfélaginu fyrir janúar 2020 á móti tekjum frá Greiðslustofu lífeyrissjóða. Framfærslukvarðinn fyrir janúar hafi verið 177.600 kr. Samkvæmt staðgreiðsluyfirliti hafi kærandi verið með 149.274 kr. frá Greiðslustofu lífeyrissjóða og því hafi hann fengið samþykktan styrk að fjárhæð 28.326 kr. Tekið er fram að við útreikning á rétti til fjárhagsaðstoðar sveitarfélaga sé alltaf miðað við heildarlaun en ekki útborguð laun. Þar sem skattur hafi verið tekinn af fjárhagsaðstoðinni hafi kærandi fengið greiddar 17.606 kr. inn á sinn reikning.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Seltjarnarnesbæjar um greiðslu fjárhagsaðstoðar til handa kæranda fyrir janúar 2020.

Markmið félagsþjónustu á vegum sveitarfélaga er að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi og stuðla að velferð íbúa á grundvelli samhjálpar, sbr. 1. mgr. 1. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga. Samkvæmt 2. mgr. 1. gr. laganna skal þess gætt við framkvæmd félagsþjónustunnar að hvetja einstaklinginn til ábyrgðar á sjálfum sér og öðrum, virða sjálfsákvörðunarrétt hans og styrkja hann til sjálfshjálpar. Með félagsþjónustu er átt við þjónustu, aðstoð og ráðgjöf, meðal annars í tengslum við fjárhagsaðstoð, sbr. 1. mgr. 2. gr. Í 1. mgr. 12. gr. laganna kemur fram að sveitarfélag skuli sjá um að veita íbúum þjónustu og aðstoð samkvæmt lögunum og jafnframt tryggja að þeir geti séð fyrir sér og sínum. Þá segir í 2. mgr. 12. gr. að aðstoð og þjónusta skuli jöfnum höndum vera til þess fallin að bæta úr vanda og koma í veg fyrir að einstaklingar og fjölskyldur komist í þá aðstöðu að geta ekki ráðið fram úr málum sínum sjálf. Í athugasemdum með ákvæði 12. gr. í frumvarpi til laga nr. 40/1991 kemur fram að skyldur sveitarfélaga miðist annars vegar við að veita þjónustu og aðstoð samkvæmt lögunum og hins vegar að tryggja að íbúar geti séð fyrir sér og fjölskyldum sínum.

Í VI. kafla laga nr. 40/1991 er kveðið á um fjárhagsaðstoð en í 19. gr. laganna kemur fram sú grundvallarregla að hverjum manni sé skylt að framfæra sjálfan sig, maka sinn og börn yngri en 18 ára. Samkvæmt 21. gr. laganna skal sveitarstjórn setja reglur um framkvæmd fjárhagsaðstoðar að fengnum tillögum félagsmálanefndar er metur þörf og ákveður fjárhagsaðstoð til einstaklinga í samræmi við reglur sveitarstjórnar, sbr. 2. mgr. sömu greinar. Lög nr. 40/1991 veita þannig sveitarfélögum ákveðið svigrúm til að meta sjálf, miðað við aðstæður á hverjum stað, hvers konar þjónustu þau vilja veita. Í samræmi við þetta og ákvæði stjórnarskrárinnar um sjálfstjórn sveitarfélaga er mat á þeirri nauðsyn að meginstefnu til lagt í hendur þeirrar sveitarstjórnar er þjónustuna veitir. Verður ekki við því mati hróflað af hálfu úrskurðarnefndar velferðarmála, enda byggist það á lögmætum sjónarmiðum og sé í samræmi við lög að öðru leyti.

Í 2. gr. reglna um fjárhagsaðstoð hjá Félagsþjónustu Seltjarnarnesbæjar er kveðið á um markmið og hlutverk fjárhagsaðstoðar. Þar kemur meðal annars fram í 1. mgr. að fjárhagsaðstoð sé veitt til framfærslu einstaklinga og fjölskyldna sem hafi ónógar tekjur og geti ekki séð sér og sínum farborða án aðstoðar. Fjárhagsaðstoð skuli veitt íbúum í tímabundnum erfiðleikum til að mæta grunnþörfum. Samkvæmt 6. mgr. 2. gr. reglnanna skal jafnan kanna til þrautar rétt umsækjanda til annarra greiðslna, þar með talið frá almannatryggingum, atvinnuleysistryggingum, lífeyrissjóðum og sjúkrasjóðum stéttarfélaga. Þá segir í 5. gr. reglnanna að fjárhagsaðstoð skuli að öðru jöfnu vera greidd einn mánuð í senn.

Í III. kafla reglnanna er kveðið á um rétt til fjárhagsaðstoðar. Þar segir í 9. gr. að við ákvörðun á fjárhagsaðstoð skuli grunnfjárþörf til framfærslu, sbr. 10. gr. reglnanna, lögð til grundvallar og frá henni dregnar heildartekjur, sbr. 12. gr. Samkvæmt 10. gr. tekur framfærslugrunnur mið af útgjöldum einstaklings, 18 ára eða eldri, vegna daglegs heimilishalds og miðast við grunnfjárhæð 177.600 kr. Í 12. gr. reglnanna kemur fram að allar tekjur umsækjanda, í þeim mánuði sem sótt er um og mánuðinum á undan, séu taldar með við mat á fjárþörf. Með tekjum sé átt við allar tekjur og greiðslur til umsækjanda, þ.e. allar innlendar og erlendar skattskyldar atvinnutekjur, allar greiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins nema greiðslur með börnum, greiðslur frá Sjúkratryggingum Íslands, úr lífeyrissjóðum og sjúkrasjóðum stéttarfélaga, atvinnuleysisbætur, greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, verktakagreiðslur, leigutekjur og svo framvegis og komi þær til frádráttar. Miða skuli við heildartekjur áður en tekjuskattur hafi verið dreginn frá.

Samkvæmt upplýsingum frá Seltjarnarnesbæ fékk kærandi greiðslu frá Greiðslustofu lífeyrissjóða í janúar 2020 að fjárhæð 149.274 kr. Upphæð fjárhagsaðstoðar til handa kæranda fyrir þann mánuð nam 28.326 kr. sem er í samræmi við reglur sveitarfélagsins. Með vísan til þess er hin kærða ákvörðun staðfest.

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Seltjarnarnesbæjar, dags. 3. febrúar 2020, um greiðslu fjárhagsaðstoðar til handa A er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

                                                                                                                                                                                             Kári Gunndórsson

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum