Hoppa yfir valmynd
K%C3%A6runefnd%20%C3%BAtlendingam%C3%A1la

Nr. 111/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 23. febrúar 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 111/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU22120032

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 7. desember 2022 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fædd [...] og vera ríkisborgari Sómalíu (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 21. nóvember 2022, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hennar um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa henni frá landinu.

Kærandi krefst þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn hennar um alþjóðlega vernd á Íslandi til efnismeðferðar.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.      Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi 1. ágúst 2022. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum þann sama dag kom í ljós að fingraför hennar höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Grikklandi. Hinn 3. október 2022 var beiðni um upplýsingar um stöðu kæranda beint til yfirvalda í Grikklandi, sbr. 34. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá grískum yfirvöldum, dags. 5. október 2022, kom fram að kæranda hefði verið veitt réttarstaða flóttamanns þar í landi 12. apríl 2022 og hefði gilt dvalarleyfi til 11. apríl 2025. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 29. september 2022, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað 21. nóvember 2022 að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og að henni skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda 23. nóvember 2022 og kærði kærandi ákvörðunina 7. desember 2022 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 21. desember 2022.

III.      Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kæranda hafi verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi. Umsókn hennar um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Grikklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hún fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hún flutt til Grikklands.

IV.      Málsástæður og rök kæranda

Kærandi vísar til greinargerðar sinnar til Útlendingastofnunar og viðtals síns hjá stofnuninni hvað málavexti varðar. Kærandi greinir frá því að hún sé fædd í Sómalíu, sé ógift og barnlaus. Ástæðan fyrir því að hún hafi flúið Grikkland, þrátt fyrir að hafa fengið alþjóðlega vernd þar í landi, væri að hún hafi verið fórnalamb mansals þar í landi. Gerandi hennar hafi verið maður sem hún hafi kynnst á leið sinni frá Tyrklandi til Grikklands. Kærandi hafi talið sig geta treyst honum þar sem hann hafi verið fjölskyldumaður. Eftir að hann hafi sannfært hana um að treysta sér hafi hann áætlað að selja kæranda í vændi. Gerandi hennar hafi komið kæranda fyrir í húsnæði undir þeim formerkjum að hann væri að aðstoða hana við að koma undir sig fótunum í nýju landi. Kærandi hafi hins vegar komist fljótt að því að húsnæðið væri vændishús og hafi náð að koma sér út úr húsnæðinu til vinkvenna sinna. Gerandi kæranda hafi verið reiður yfir svikum hennar og reynt að sannfæra hana um að koma aftur og stunda vændi og krafðist þess að fá hluta greiðslna, þar sem hann væri að aðstoða hana. Kærandi sé ung kona sem hafi verið kennt að kynlíf utan hjónabands sé skömm og hún hafi því neitað að fara eftir fyrirmælum geranda hennar. Gerandi hennar hafi brugðist ókvæða við og hótað henni, meðal annars með því að tryggja að allir samlandar hennar myndu snúa við henni baki þar sem hún starfi við vændi. Í kjölfarið hafi kærandi orðið fyrir verulegu áreiti af hálfu karlmanna sem hafi viljað notfæra sér bága stöðu hennar. Verði kærandi send aftur til Grikklands sé ljóst að hún eigi sér enga viðreisnar von og eigi í hættu á að verða þolandi mansals. Kærandi sé í viðkvæmri stöðu og í jaðarhópi vegna trúar og kynþáttar. Það að samlandar hennar hafi snúið við henni bakinu sé áhyggjuefni og sýni hversu viðkvæm staða hennar sé. Þá hafi kærandi mátt þola kynfæralimlestingar og beri þess enn einkenni í dag.

Kærandi byggir á því að hún hafi mátt búa við gífurleg mannréttindabrot í Grikklandi og hafi ekki fengið þá þjónustu sem stjórnvöld segist tryggja og hafi tryggt með löggjöf. Kærandi sé þolandi mansals og hafi þurft að sofa á götum úti vegna húsnæðisskorts og skorts á aðstoð grískra yfirvalda. Þrátt fyrir að flóttamönnum séu veitt réttindi og vernd með grískri löggjöf hafi grísk yfirvöld ekki unnið í samræmi við löggjöfina. Heimildir samkvæmt alþjóða- og óháðum samtökum beri með sér að yfirvöld í Grikklandi hafi sent flóttafólk til baka án þess að taka málin til meðferðar, jafnvel í bátum sem þau hafi komið í, haldið flóttamönnum án aðgangs að vatni og mat og beitt ítrekuðu ofbeldi, bæði líkamlegu og andlegu. Þá hafi flóttamenn greint frá því að erfiðlega gangi að sækja gögn frá stjórnvöldum til þess að geta sótt um atvinnu, leigt húsnæði eða fengið heilbrigðisþjónustu. Kærandi hafi upphaflega dvalið í flóttamannabúðum en ekkert úrræði hafi tekið við eftir að hún hafi fengið alþjóðlega vernd. Kærandi hafi því dvalið á götunni. Kærandi sé við góða heilsu og hafi því ekki leitað eftir heilbrigðisþjónustu í Grikklandi. Ef hún hefði sótt sér slíka þjónustu hefði hún ekki fengið hana þar sem fjármagn grískra yfirvalda til heilbrigðisyfirvalda hafi verið takmarkað með þeim afleiðinum að litla þjónustu sé að fá. Þá hafi kærandi ekki fengið sérstaka fjárhagsaðstoð eftir að hún fékk dvalarleyfi í Grikklandi og hafi þurft að standa á eigin fótum. Kærandi hafi auk þess ekki fengið aðstoð við að finna sér atvinnu. Lækkun á fjármagni og skortur á starfsfólki hjá grískum yfirvöldum hafi leitt til þess að flóttamenn séu í mun veikari stöðu nú en áður. Bæði er varðar skráningar hjá yfirvöldum eða öðrum stofnunum, s.s. einkareknum, aðgengi að heilsuvernd, menntun, lögmannsaðstoð og annarskonar aðstoð.

Kærandi vísar til III. og IV. kafla laga um útlendinga, stjórnsýslulaga nr. 37/1993, handbókar Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um réttarstöðu flóttamanna, auk annarra leiðbeininga og viðmiða frá Flóttamannastofnun (UNHCR).

Kærandi vísar til umfjöllunar í ákvörðun Útlendingastofnunar um að þau atvik sem kærandi hafi lýst gefi ekki til kynna að kærandi eigi á hættu að verða fyrir alvarlegri mismunun eða að staða hennar komi til með að vera verulega síðri en almennings þar í landi í skilningi 32. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 54/2017, með síðari breytingum. Kærandi byggir á því að aðstæður hennar séu aðrar en hjá öðrum flóttamönnum, með tilliti til aðstoðar lögreglu og dómsvalds. Menningin í Grikklandi sé til þess fallin að taka ekki jafn hart á þeim refsiverðu brotum sem kærandi hafi orðið fyrir. Möguleikar hennar til að fá réttlæti framgengt gagnvart geranda hennar sé miklum erfileikum bundið. Það að senda kæranda til Grikklands sé að senda hana í aðstæður þar sem hún muni búa meðal aðila sem muni koma fram við hana eins og þeim sýnist enda sé hún vændiskona sem eigi ekkert betra skilið.

Að lokum vísar kærandi til þess að Útlendingastofnun beri að afla nauðsynlegra og aðgengilegra upplýsinga og rannsaka mál til þess að það teljist nægjanlega upplýst áður en ákvörðun er tekin, sbr. 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga og 10. gr. stjórnsýslulaga. Við málsmeðferð við ákvörðun um réttarstöðu flóttamanns, beri að leiða allar staðreyndir í ljós. Í handbók um réttarstöðu flóttamanna frá Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, sé það sérstaklega tekið fram í greinum 203-205 að umsækjandi eigi að njóta vafans. Ómögulegt sé fyrir kæranda að sanna öll atriði í máli sínu. Ef þess væri krafist fengju fáir stöðu flóttamanns. Því verði kærandi að njóta vafans þegar aflað hefur verið allra tiltækra sannana og þær hafa verið athugaðar. Með þessu sé lögð rík skylda á íslensk stjórnvöld til að rannsaka mál viðkomandi umsækjanda, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga. Í þessu máli hafi kærandi bent á fjölmörg mannréttindabrot sem hún telji sig hafa mátt þola af hálfu grískra stjórnvalda og þeirrar hættu sem sé yfirvofandi. Kærandi sé best til þess fallin að skýra frá hvers vegna hún vilji ekki fara til Grikklands og sömuleiðis verði af vitnisburði hennar best séð hvort hún sé að segja sannleikann eða ekki.

V.        Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Aðstæður kæranda

Kærandi er kona á [...] sem er stödd einsömul hér á landi. Við meðferð málsins greindi kærandi frá því að hún hafi farið í gegnum Tyrkland til Grikklands og dvalið þar í tæplega fjögur ár. Kærandi hafi hlotið alþjóðlega vernd þar í landi í apríl 2022. Kærandi hafi komið hingað til lands frá Hollandi og lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd í ágúst 2022. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hún hafi kynnst fjölskyldumanni sem hafi boðist til að aðstoða og vernda hana. Hann hafi brotið traust hennar og ætlað að selja hana í vændi en hún hafi komist undan. Kærandi greindi frá því að hún hafi ekki haft almannatrygginganúmer í Grikklandi og viti ekki hvort hún hafi haft skattnúmer þar í landi. Þá hafi kærandi ekki fengið húsnæði eða fjárhagsstuðning frá grískum yfirvöldum eftir að hún hafi hlotið alþjóðlega vernd. Kærandi hafi ekki haft atvinnuleyfi í Grikklandi en hún hafi starfað ólöglega á veitingastað. Kærandi greindi frá því að hafa fengið heilbrigðisþjónustu í Grikklandi. Kærandi hafi orðið fyrir fordómum í Grikklandi og óttist umræddan mann sem hafi reynt að selja hana í vændi. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hún fái höfuðverk og sé stressuð. Þá hafi hún orðið fyrir kynfæralimlestingum í heimaríki.

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins var kæranda veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi 12. apríl 2022 og hefur gilt dvalarleyfi þar í landi til 11. apríl 2025. Að mati kærunefndar telst sú vernd sem kærandi nýtur í Grikklandi virk alþjóðleg vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður í Grikklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2021 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 12. apríl 2022);
  • 2021 – Report on International Religious Freedom: Greece (United States Department of State, 2. júní 2022);
  • 2022 – Trafficking in Persons Report – Greece (United States Department of State, 20. júlí 2022);
  • Amnesty International Report 2021/22 – The State of the World’s Human Rights (Amnesty International, 29. mars 2022);

  • Annual report 2020 (The Greek Ombudsman Independent Authority, 31. desember 2020);
  • Asylum Information Database, Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, 30. maí 2022);
  • Beneficiaries of international protection in Greece – Access to documents and socio-economic rights (Refugee Support Aegean, 22. mars 2022);
  • Commissioner for Human Rights: Report of the Commissioner for Human Rights of the Council of Europe, Dunja Mijatovic, following her visit to Greece from 25 to 29 June 2018 (Council of Europe, 6. nóvember 2018);
  • EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017);

  • Freedom in the World 2021 – Greece (Freedom House, 26. febrúar 2021);
  • Greece as a Country of Asylum – UNHCR‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015);
  • Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017);
  • Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017);
  • Report on the Living Conditions of Beneficiaries of International Protection in Greece (Passerell, nóvember 2020);
  • Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017);

  • State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016);
  • Upplýsingar af vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal): https://e-justice.europa.eu;

  • Upplýsingar af vefsíðu Doctors of the World (https://mdmgreece.gr/);
  • Upplýsingar af vefsíðu RENATE samtakanna (http://www.renate-europe.net/contact-renate-in-greece, sótt 23. febrúar 2023);
  • Upplýsingasíða Refugee Info Greece (http://refugee.info/greece/, sótt 23. febrúar 2023) og
  • World Report 2023 – Events of 2022 (Human Rights Watch, 12. janúar 2023)

Af framangreindum gögnum verður ráðið að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur meðal annars bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagsástand í Grikklandi hafi haft á aðstæður einstaklinga sem hlotið hafi vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifa oft á jaðri samfélagsins og búi í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sambærilegan rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst jafnframt aðgangur að vinnumarkaði. Þá veita frjáls félagasamtök einstaklingum með alþjóðlega vernd aðstoð við að kynna sér réttindi sín í Grikklandi.

Samkvæmt skýrslum European Council on Refugees and Exciles (ECRE) frá maí 2022 og Passerell frá nóvember 2020 eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu með sömu skilyrðum og grískir ríkisborgarar, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum. Samkvæmt fyrrnefndri skýrslu hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins og hefur kostnaðarþátttaka almennings aukist við kaup á lyfjum og þjónustu. Þannig geti verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu þar í landi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Þetta eigi jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafi rétt til dvalar í ríkinu. Auk þess hafi útgáfa almannatrygginganúmera (AMKA) (áður nefnt kennitölur) falið í sér hindranir fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd við að afla sér heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt upplýsingasíðu Refugee Info Greece fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd og handhafa verndar í Grikklandi og sem veitir upplýsingar á grísku, arabísku, farsi, urdu, frönsku, lingala/bantu, norður-kúrdísku og ensku hafi allir umsækjendur um alþjóðlega vernd fengið svokallað AMKA eða almannatrygginganúmer sem veitti þeim m.a. aðgang að heilbrigðiskerfinu. Í janúar 2020 hafi skilyrði fyrir útgáfu almannatrygginganúmera breyst og fái umsækjendur um alþjóðlega vernd nú útgefin tímabundin almannatrygginga- og heilbrigðisþjónustunúmer (PAAYPA), meðan þeir sem hlotið hafa alþjóðlega vernd fái útgefið varanlegt almannatrygginganúmer. Þegar umsækjanda sé veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi verði almannatrygginga- og heilbrigðisþjónustunúmerið óvirkt mánuði eftir að viðkomandi hljóti dvalarleyfi. Einstaklingar geti þá í kjölfarið sótt um varanlegt almannatrygginganúmer í næstu þjónustumiðstöð. Til að sækja um slíkt númer þurfi einstaklingar að framvísa dvalarleyfi eða ferðaskilríkjum og staðfestingu á heimilisfangi. Til að fá varanlegt almannatrygginganúmer gefið út sé nægilegt að sýna fram á heimilisfang í búðum eða í gistiskýli. Þá segir á upplýsingasíðunni að samkvæmt gildandi löggjöf séu allir aðilar í hinum opinbera heilbrigðisgeira skyldugir til að veita öllum fyrstu hjálp þegar nauðsyn beri til. Eigi allir rétt á að leita til sjúkrahúsa og fá ókeypis læknisþjónustu og lyf sem þeir þarfnist þrátt fyrir að viðkomandi hafi hvorki PAAYPA eða AMKA númer. Á upplýsingasíðunni er unnt að eiga í samskiptum við þjónustufulltrúa á netspjalli í gegnum Facebook á áðurgreindum tungumálum. Á upplýsingasíðunni er einnig hægt að nálgast skjal á grísku sem hlaða má niður þar sem þessi réttur til þjónustu fyrir alla er útskýrður.

Í skýrslu ECRE kemur fram að aðgengi einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi að húsnæði sé háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með heimild til dvalar í Grikklandi. Fá gistiskýli séu í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði sé til staðar sem einungis sé ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt geti reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin sé mikil og dæmi séu um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum og yfirfullum íbúðum við mjög bágar aðstæður. Eigi þetta einnig við um einstaklinga sem hafi verið sendir aftur til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum. Þá hafi í mars 2020 verið gerðar breytingar á útlendingalöggjöfinni í Grikklandi sem kveði á um að þegar ákvörðun um að veita alþjóðlega vernd liggi fyrir skuli draga úr fjár- og húsnæðisstuðningi. Handhöfum alþjóðlegrar verndar sem dvelji í úrræðum innan hins svokallaða ESTIA kerfi eða öðrum úrræðum, þar með talið hótelum og íbúðum, sé skylt að yfirgefa þau innan 30 daga eftir að hafa hlotið alþjóðlega vernd. Þó séu undantekningar frá þessari reglu, sérstaklega þegar um sé að ræða fólk sem glími við alvarlegan heilsubrest. Í skýrslu Passerell kemur fram að félagasamtök bjóði upp á gistiúrræði fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi en langur biðlisti sé eftir plássi þar og barnafjölskyldur og einstaklingar í viðkvæmri stöðu gangi fyrir.

Þá kemur fram í skýrslu ECRE að einstaklingar með alþjóðlega vernd eigi sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar. Þær félagslegu bætur sem í boði séu í Grikklandi séu t.d. bætur fyrir fjölskyldur en skilyrði fyrir slíkum bótum sé að sýnt sé fram á fimm ára óslitna og varanlega búsetu í Grikklandi. Þá veiti grísk yfirvöld einstaklingum, m.a. handhöfum alþjóðlegrar verndar, sem búi undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna, svokallaðan KEA styrk. Samkvæmt upplýsingasíðu fyrir flóttafólk þurfa einstaklingar sem hyggist nýta sér úrræðið að uppfylla ýmis skilyrði; þeir þurfi m.a. að hafa almannatrygginganúmer, skattnúmer (AFM), gilt dvalarleyfi og bankareikning. Þá þurfi þeir að leggja fram ýmis gögn, m.a. framvísa leigusamningi í þeim tilvikum þegar þeir búi í leiguhúsnæði og í tilviki heimilislausra einstaklinga þurfi þeir að framvísa vottorði um heimilisleysi frá gistiskýlinu eða sveitarfélaginu þar sem þeir búi. Samkvæmt skýrslu ECRE er erfitt að uppfylla skilyrðin. Þá séu í reynd engir aðrir framfærslustyrkir en KEA í boði. Jafnframt séu engin sérúrræði til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. þolendur pyndinga. Þá sé félagsleg aðstoð ekki bundin við búsetu á tilteknum stað.

Samkvæmt skýrslum ECRE og Passerell hafa einstaklingar með alþjóðlega vernd aðgang að atvinnumarkaðnum með sömu skilyrðum og ríkisborgarar Grikklands. Ekki sé þörf á sérstöku atvinnuleyfi. Atvinnuleysi sé hins vegar mikið í landinu og samkeppni við grískumælandi einstaklinga og erfiðleikar við að fá skattnúmer (AFM) útgefið dragi úr atvinnumöguleikum handhafa alþjóðlegrar verndar. Þessir erfiðleikar við að sækja sér atvinnu hafi leitt til þess að einstaklingar reyni að afla sér tekna með óformlegum og jafnvel ólöglegum leiðum sem hindri þar með aðlögun þeirra að samfélaginu. Þeir einstaklingar sem ekki starfi innan hins hefðbundna atvinnumarkaðar hafi ekki aðgang að almannatryggingakerfinu og vinni sér ekki inn atvinnutengd réttindi, s.s. atvinnuleysisbætur. Mikill meirihluti einstaklinga með alþjóðlega vernd og umsækjendur um vernd reiði sig því á fjárhagsaðstoð og dreifingu matvæla og muna af hálfu stjórnvalda og mannúðarsamtaka til þess að uppfylla grunnþarfir sínar. Í skýrslu ECRE kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafi mætt erfiðleikum við að fá útgefið skattnúmer hjá grískum stjórnvöldum. Útgáfa skattnúmers sé grundvöllur þess að geta lifað og starfað löglega í Grikklandi og þess að einstaklingar geti sótt aðstoð og réttindi hjá grískum stjórnvöldum. Skattnúmerið sé forsenda þess að geta sótt um félagslega aðstoð, til að vinna hvort sem er sem starfsmaður hjá öðrum eða að hefja eigin rekstur, og til þess að gera samninga um leigu á húsnæði. Samkvæmt upplýsingasíðu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd þurfi einstaklingar sem hyggjast sækja um skattnúmer að framvísa ferðaskilríki eða dvalarleyfi og staðfestingu á heimilisfangi eða heimilisleysi. Umsóknarferlið fari einungis fram á grísku en umsækjendur geti leitað eftir aðstoð hjá endurskoðendum eða frjálsum félagasamtökum.

Vegna upplýsinga um þessa erfiðleika varðandi útgáfu skattnúmera sendi kærunefnd útlendingamála árið 2020 fyrirspurn til Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og óskaði eftir upplýsingum um hvort stofnuninni væri kunnugt um hindranir sem einstaklingar með alþjóðlega vernd í Grikklandi kunni að mæta við að verða sér úti um slíkt skattnúmer. Í svari Flóttamannastofnunnar, dags. 10. mars 2020, kemur m.a. fram að almennt þurfi að sækja um skattnúmerið í eigin persónu hjá viðeigandi stjórnvaldi, umsóknina þurfi að fylla út á grísku og sýna þurfi skilríki s.s. dvalarskírteini. Þá sé engin túlkaþjónusta í boði en öll málsmeðferðin, bæði skriflega umsóknin og samskipti við stjórnvöld, þurfi að fara fram á grísku. Starfsmenn grískra yfirvalda séu ekki skyldugir samkvæmt lögum til þess að tala ensku í störfum sínum eða vinna með gögn sem ekki séu skrifuð eða þýdd yfir á grísku. Niðurstaða umsóknar um skattnúmer sé því undir því komin að starfsmaðurinn sé viljugur til samvinnu og að umsækjandi um skattnúmer hafi grunn í ensku eða grísku. Þá kom fram í svari Flóttamannastofnunar að það væri mismunandi og oft misvísandi framkvæmd milli þeirra stjórnvalda sem sjái um útgáfu númeranna. Framkvæmdin færi í raun eftir því hversu vant starfsfólkið væri að þjónusta þennan hóp. Þá geti viðmót og vilji starfsmanna stjórnvaldsins haft áhrif á niðurstöðu varðandi útgáfu skattnúmers og þeir umsækjendur sem njóti aðstoðar frjálsra félagasamtaka eða lögmanna í umsóknarferlinu séu líklegri til þess að fá jákvætt svar við umsókn sinni. Þá hafi komið upp vandamál hjá þessum hópi varðandi það að tengja skattnúmer hjóna saman. Grísk skattayfirvöld hafi árið 2018, gefið út fyrirmæli um ítarlegri skoðun á skilríkjum erlendra umsækjenda um skattnúmer, sem hafi í kjölfarið leitt til þess að biðtími eftir niðurstöðu hafi lengst töluvert hjá þeim hópi. Flóttamannastofnun, gríski umboðsmaðurinn og frjáls félagasamtök hafi í kjölfarið ítrekað lýst yfir áhyggjum vegna þessa og því hafi grísk stjórnvöld brugðist við með breytingu á framkvæmd, en þó sé þörf á frekari aðgerðum til að bæta þetta ferli. Þá sé óvíst hver staðan sé varðandi þann málafjölda sem enn bíði afgreiðslu af þessum sökum.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2021 kemur fram að dæmi séu um að flóttafólk sé beitt ofbeldi, þ. á m. af hendi grísku lögreglunnar. Þá kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggi bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur séu ofbeldisbrot rannsökuð af grísku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsaki meint brot lögreglu. Af framangreindri skýrslu verður ráðið að ýmsir annmarkar séu á dómskerfi landsins en sjálfstæði dómstóla sé tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga. Þá kemur fram í framangreindri skýrslu að rómafólk og aðrir minnihlutahópar hafi orðið fyrir mismunun og fordómum í Grikklandi en gríska stjórnarskráin og þarlend lög leggi bann við slíkri mismunun. Þá kemur fram í vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að útlendingar í Grikklandi sem séu þolendur glæpa og tali hvorki né skilji grísku eigi rétt á túlkaþjónustu og upplýsingum um mál þeirra á tungumáli sem þeir skilji.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins um mansal frá árinu 2022 kemur fram að grísk yfirvöld hafi sýnt aukna viðleitni í baráttunni gegn mansali. Þetta lýsi sér m.a. í aukinni viðleitni yfirvalda til að lögsækja og sakfella gerendur í fleiri mansalsmálum en áður. Þá hafi verið gerðar breytingar á lögum um mansal og stöðluðum verklagsreglum breytt. Áhersla hafi verið lögð á aukna þjálfun viðbragðsaðila sem feli meðal annars í sér greiningar á þolendum mansals og að þekkja einkenni slíkra brota. Þá hafi grísk yfirvöld kveðið á um fjárhagslega hvata fyrir fyrirtæki til að ráða til sín viðkvæma einstaklinga í atvinnuleit, þ. á m. þolendur mansals. Skipaður hafi verið vinnuhópur til að einfalda málsmeðferð og gera þolendum auðveldara með að sækja sér skaðabætur og forvarnarstarf aukið til muna. Þrátt fyrir framangreint hafi það reynst erfiðleikum bundið í einhverjum tilvikum fyrir þolendur mansals að fá nauðsynlegan stuðning, m.a. vegna skorts á fjármunum og plássi vegna aukins álags meðan heimsfaraldur stóð yfir.

Stjórnvöld, í samvinnu við frjáls félagasamtök, veita þolendum mansals m.a. skjól, sálfélagslegan stuðning, heilbrigðisþjónustu, lögfræðiaðstoð og aðstoð við aðlögun að samfélaginu. Þrátt fyrir að stjórnvöld hafi greint frá og tekið ákvörðun um framangreinda aðstoð hafi skort fjármagn til að slík aðstoð geti gengið eftir að fullu. Tvær stofnanir, EKKA (National Social Solidarity Center) og GSFPGE (General Secretariat for Family Policy and Gender Equality) veiti þolendum mansals almennt skjól og stuðning og haldi úti fjölda athvarfa og ráðgjafarmiðstöðva. Þrátt fyrir það þurfi í einhverjum tilvikum að vísa þolendum frá vegna skorts á getu, fjármagni og plássi. Þá geta þolendur mansals jafnframt haft beint samband við sérfræðinga hjálparsamtakanna A21 í gegnum neyðarnúmer allan sólarhringinn á öllum tungumálum. Þar geta þolendur mansals m.a. fengið upplýsingar um hvert eigi að leita eftir viðeigandi aðstoð.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skuli taka hana til efnismeðferðar. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga verður því aðeins beitt ef stjórnvöld telja, á grundvelli hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar eftir því sem við á, að skilyrði þess séu uppfyllt. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. er til viðbótar þeirri vernd sem 3. mgr. 36. gr. veitir umsækjendum um alþjóðlega vernd.

Á grundvelli 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga setti ráðherra reglugerð nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, en með henni bættust tvær greinar, 32. gr. a og 32. gr. b, við reglugerðina. Í 32. gr. a reglugerðarinnar kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í ákvæðinu jafnframt talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar sem tilvikin eru talin upp í dæmaskyni geta aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu alvarleikastigi, haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður séu ekki sérstaklega undanskildar, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar.

Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar skal líta til þess hvort umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, svo sem ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Kærunefnd telur að orðalagið „muni eiga“ feli ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar. Orðalagið gerir þó kröfu um að tilteknar líkur verði að vera á alvarlegri mismunun, þ.e. að sýna verður fram á að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir en að ekki sé nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og umsækjandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst umsækjandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram á að verulegar ástæður séu til að ætla að umsækjandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og umsækjandi, verði fyrir slíkri meðferð.

Þá skal líta til þess hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Í reglugerðinni kemur fram að meðferð teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur sé átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en umsækjanda muni ekki standa hún til boða. Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi lítur kærunefnd m.a. til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem hann þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.

Samkvæmt 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar hefur heilsufar umsækjanda takmarkað vægi umfram það sem leiðir af 2. mgr. 32. gr. a, nema það teljist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið. Þá tekur 3. mgr. 32. gr. a af tvímæli um það að efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Slíkar aðstæður gætu þó fallið undir 3. mgr. 36. gr. nái þær því alvarleikastigi sem við á, sbr. umfjöllun hér í framhaldinu.

Kærandi er kona á [...]. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hún væri við ágæta líkamlega heilsu en hún fái höfuðverk. Þá glími hún við streitu. Auk þess hafi kærandi mátt þola kynfæralimlestingar í heimaríki og upplifi mikinn sársauka þegar hún fari á blæðingar. Í málinu liggur fyrir læknisvottorð frá Göngudeild sóttvarna, dags. 21. október 2022, þar sem fram kemur að læknisskoðun hafi farið fram í samræmi við ákvæði sóttvarnarlaga.

Kærunefnd tekur fram að kæranda var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun, 29. september 2022, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem kærandi telji hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hennar hjá Útlendingastofnun. Þá var kæranda, sem nýtur aðstoðar löglærðs talsmanns, jafnframt leiðbeint með tölvubréfi kærunefndar, dags. 7. desember 2022, um frekari framlagningu gagna í málinu. Engin frekari gögn bárust. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu telur kærunefnd að mál kæranda sé nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar kæranda og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður hennar. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar hennar geti haft áhrif á niðurstöðu málsins.

Kærunefnd telur að gögn málsins beri ekki með sér að heilsufar kæranda sé með þeim hætti að hún teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum sé aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, eins og segir í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Í því sambandi er sérstaklega vísað til þess að meðferð telst að jafnaði ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana, sbr. 2. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Að mati kærunefndar er heilsufar kæranda ekki þess eðlis að ástæða sé til að víkja frá þessari meginreglu. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi verður ráðið að kærandi hafi aðgang að grunnheilbrigðisþjónustu þar í landi en eins og áður hefur verið rakið eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi að lögum sambærilegan rétt á heilbrigðisþjónustu, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum, og ríkisborgarar Grikklands þó að þeir þurfi í einhverjum tilvikum að yfirstíga ákveðnar hindranir til að nýta rétt sinn. Telur kærunefnd því að aðstæður kæranda tengdar heilsufari séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá telur nefndin að heilbrigðisaðstæður kæranda geti ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa leitað til læknis í Grikklandi.

Kærandi hefur jafnframt borið fyrir sig að hafa ekki fengið félagslega framfærslu eða húsnæði í Grikklandi. Þá hafi hún ekki haft atvinnuleyfi en starfað ólöglega á veitingastað. Í framangreindum skýrslum og gögnum um aðstæður í Grikklandi kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd þar í landi hafi heimild til að stunda atvinnu, hafi aðgang að húsnæðismarkaðnum og eigi sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar þó að þeir þurfi í einhverjum tilvikum að yfirstíga ákveðnar hindranir til að sækja þá þjónustu, eins og áður sagði. Þótt skýrslur um aðstæður í Grikklandi bendi til þess að aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar þar séu um margt lakari en aðstæður þeirra hér á landi, m.a. m.t.t. inntaks félagslegrar aðstoðar og aðgangs að félagslegum húsnæðisúrræðum, er það mat nefndarinnar að almennar aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi séu ekki þess eðlis að þær, einar og sér, teljist til sérstakra ástæðna. Í því sambandi hefur nefndin jafnframt litið til þess sem fram kemur í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga að efnahagslegar ástæður geti ekki talist til sérstakra ástæðna. Þá er það mat kærunefndar að aðstæður kæranda séu ekki slíkar að hún geti ekki borið sig eftir þeirri þjónustu og aðstoð sem hún á að lögum rétt á og þarf á að halda í Grikklandi. Líkt og komið hefur fram eiga handhafar alþjóðlegar verndar í Grikklandi sem búa undir fátæktarmörkum m.a. rétt á fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna. Skilyrði fyrir styrknum er m.a. að framvísa leigusamningi eða í tilviki heimilislausra, vottorði um heimilisleysi frá gistiskýli eða sveitarfélagi.

Í úrskurðum kærunefndar frá 25. mars 2020 í málum nr. KNU19090042 og KNU20020034, KNU19110022 og KNU19110023 og KNU19110050 og KNU19110051 er fjallað um skattnúmer í Grikklandi. Skattnúmer er nauðsynlegt til þess að starfa löglega í landinu, sækja um félagslegar bætur og gera leigusamning um húsnæði. Það er því grunnforsenda þess að geta framfleytt sér löglega í Grikklandi. Í því máli sem hér er til meðferðar er kærandi að mestu heilbrigð og vinnufær. Kærandi hefur greint frá því að hún hafi ekki almannatrygginganúmer og viti ekki hvort hún hafi skattnúmer í Grikklandi. Kærunefnd telur ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar að kærandi sé fær um að sækja sér þá þjónustu sem hún þarf á að halda í viðtökuríki, þ. á m. sækja um almannatrygginga- og skattnúmer, þrátt fyrir þær aðgangshindranir sem geti verið til staðar.

Kærandi hefur jafnframt borið fyrir sig að hún hafi orðið fyrir fordómum og mismunun í Grikklandi. Kærunefnd telur ljóst af framangreindum gögnum að kærandi geti leitað ásjár grískra yfirvalda verði hún fyrir mismunun á grundvelli kynþáttar þar í landi. Þá greindi kærandi einnig frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hafa orðið fyrir hótunum og að hún óttist mann sem hafi reynt að selja hana í vændi. Af fyrirliggjandi gögnum má ráða að óttist kærandi um öryggi sitt geti hún leitað til lögregluyfirvalda eða annarra þar til bærra stjórnvalda sökum þess. Af fyrirliggjandi gögnum verður ráðið að grísk yfirvöld hafi á síðustu árum lagt áherslu á að draga úr tíðni mansals í landinu og auka stuðning við þolendur. Þá geta þolendur mansals haft beint samband við sérfræðinga í gegnum neyðarnúmer allan sólarhringinn á öllum tungumálum. Þá veita alþjóðleg hjálparsamtök þolendum mansals í Grikklandi ýmsa aðstoð, m.a. húsnæðis- og lögfræðiaðstoð.

Kærunefnd telur að gögn málsins beri ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, s.s. ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða að hún geti vænst þess að staða hennar, í ljósi sömu aðstæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærandi hefur ekki sýnt fram á að aðstæður hennar í viðtökuríki séu slíkar að önnur viðmið tengd alvarlegri mismunun, sambærileg þeim sem 32. gr. a reglugerðarinnar lýsir, leiði til þess að taka beri umsókn hennar til efnismeðferðar hér á landi.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæla með því að mál hennar verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun 29. september 2022 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hún lagði fram umsókn sína 1. ágúst 2022.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrárinnar.

Við túlkun 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga lítur kærunefnd til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu varðandi túlkun hans á 3. gr. sáttmálans. Þá hefur kærunefnd talið rétt að hafa hliðsjón af þeim meginreglum sem Evrópudómstóllinn setur fram í dómum sínum að því leyti sem þær eru til skýringar á alþjóðlegum skuldbindingum íslenska ríkisins og eru samhljóma þeim.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu er vísað til þeirrar meginreglu að með fyrirvara um alþjóðlegar skuldbindingar hafi ríki rétt til að stjórna hverjir ferðist yfir landamæri þeirra, hverjir dvelji á landsvæði þeirra og hvort útlendingi skuli vísað úr landi, sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli F.G. gegn Svíþjóð (nr. 43611/11) frá 23. mars 2016, 111. mgr., ákvörðun Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 65. mgr., og dóm í máli Üner gegn Hollandi (nr. 46410/99) frá 18. október 2006, 54. mgr. Dómstóllinn hefur engu að síður talið að flutningur einstaklings til annars ríkis geti leitt til brots á 3. gr. mannréttindasáttmálans ef viðkomandi einstaklingur geti á viðhlítandi hátt sýnt fram á að veruleg ástæða sé til að ætla, verði hann fluttur úr landi, að hann sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé andstæð 3. gr. sáttmálans, sbr. m.a. F.G. gegn Svíþjóð, 111. - 113. mgr. Í dómaframkvæmd dómstólsins er jafnframt byggt á því að annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans þurfi að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi (e. „must attain a minimum level of severity“ sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011, 219. mgr.) til að ákvörðun um brottvísun eða frávísun hans verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 219. mgr.

Mannréttindadómstóll Evrópu hefur talið ómannlega meðferð vera m.a. þá sem beitt er að yfirlögðu ráði, í margar klukkustundir í senn og veldur annað hvort líkamlegu tjóni eða alvarlegum andlegum eða líkamlegum þjáningum, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Kudła gegn Póllandi (nr. 30210/96) frá 26. október 2000, 92. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Þá hefur dómstóllinn talið meðferð vera vanvirðandi í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmálans þegar meðferðin niðurlægir eða lítillækkar einstakling, sýnir skort á virðingu fyrir eða gerir lítið úr mannlegri reisn hans, eða skapar ótta, angist eða vanmátt, sem er til þess fallinn að brjóta niður líkamlegt eða andlegt mótstöðuafl viðkomandi, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Pretty gegn Bretlandi (nr. 2346/02) frá 29. apríl 2002, 52. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Dómurinn hefur talið að þó að líta verði til þess hvort meðferðin sé veitt af ásetningi sé það ekki að öllu leyti útilokað að hún teljist brot á 3. gr. þó svo hafi ekki verið, sbr. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Peers gegn Grikklandi (nr. 28524/95) frá 19. apríl 2001, 74. mgr.

Í ákvörðun Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 70. mgr., kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við brottvísun eða frávísun frá aðildarríki nái ekki því alvarleikastigi að teljast vanvirðandi meðferð og brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóti alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem standi til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að teljast brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæli gegn endursendingu, sbr. 71. mgr. ákvörðunarinnar. Málið varðaði flutning einstæðrar móður með tvö ung börn sem voru með viðbótarvernd til Ítalíu og komst dómstóllinn einróma að þeirri niðurstöðu að málsástæður hennar um að flutningur til Ítalíu væri brot á 3., 8. og 13. gr. mannréttindasáttmálans væru bersýnilega tilhæfulausar og að mál hennar væri af þeim sökum ekki tækt til meðferðar. Um inntak „sérstaklega sannfærandi mannúðarástæðna“ vísast til dóms Mannréttindadómstóls Evrópu í máli N. gegn Bretlandi (nr. 26565/05), frá 27. maí 2008, 42. mgr., og Sufi og Elmi gegn Bretlandi (nr. 8319/07 og 11449/07) frá 28. nóvember 2011, 281.-292. mgr., en dómarnir setja háan þröskuld fyrir því að meðferð eða aðstæður teljist brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans.

Samkvæmt dómaframkvæmd Evrópudómstólsins eru lög Evrópusambandsins byggð á þeirri grundvallarforsendu að aðildarríki þess deila þeim sameiginlegu gildum sem Evrópusambandið byggist á. Sú forsenda leggur grunn að gagnkvæmu trausti um að þessi gildi séu viðurkennd, að lög Evrópusambandsins verði virt og að réttarkerfi aðildarríkjanna geti veitt sambærilega og virka vernd þeirra réttinda sem sáttmáli Evrópusambandsins um grundvallarréttindi mælir fyrir um, sbr. dóma Evrópudómstólsins í Jawo, C-163/17, frá 19. mars 2019, 80. mgr., Minister for Justice and Equality (Deficiencies in the system of justice), C-216/18 PPU, frá 25. júlí 2018, 35.-37. mgr., og Ibrahim o.fl. gegn Þýskalandi, C‑297/17, C‑318/17, C‑319/17 og C‑438/17, frá 30. apríl 2019, 83.-85. mgr.

Það er hins vegar ekki útilokað að viðtökuríki kunni að glíma við meiriháttar erfiðleika tengdum aðbúnaði flóttamanna sem gæti skapað verulega hættu á að umsækjandi sæti meðferð sem samrýmist ekki sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. t.d. dóm Evrópudómstólsins í máli N. S. o.fl., C-411/10 og C-493/1021, frá 21. desember 2011, 81. mgr. Af þeim sökum verður ekki byggt á því skilyrðislaust að aðildarríki Evrópusambandsins tryggi grundvallarmannréttindi, svo sem samkvæmt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. N. S. o.fl., 99., 100. og 105. mgr., og Ibrahim o.fl., 87. mgr. Evrópudómstóllinn hefur talið, m.a. í Jawo, 85. mgr., að ekki megi flytja umsækjanda um alþjóðlega vernd til viðtökuríkis ef veigamikil rök standa til þess að raunveruleg hætta sé á að hann sæti þar eða við flutninginn ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í skilningi 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi. Þeir annmarkar sem eru á meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd verða hins vegar að ná sérstaklega háu alvarleikastigi til að endursending teljist andstæð 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þessu alvarleikastigi er náð þegar sinnuleysi stjórnvalda viðtökuríkis hefur þær afleiðingar að einstaklingur sem að öllu leyti er háður stuðningi ríkisins, t.d. vegna sérstaklega viðkvæmrar stöðu, verður í slíkri stöðu sárafátæktar að hann geti ekki mætt grundvallarþörfum sínum, og sem grefur undan líkamlegri og andlegri heilsu hans eða setur hann í aðstöðu sem er ósamrýmanleg mannlegri reisn, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 252.-263. mgr., og Jawo, 92. og 95. mgr., og Ibrahim o.fl., 90. mgr.

Til að endursending geti talist brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu þarf að sýna fram á, með vísan til hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar, að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé ósamrýmanleg ákvæðinu, sbr. fyrri umfjöllun. Ekki er nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri meðferð, sbr. Vilvarajah o.fl. gegn Bretlandi (mál nr. 13163/87; 13164/87; 13165/87; 13447/87; 13448/87) frá 30. október 1991, 111. mgr., N. gegn Finnlandi (mál nr. 38885/02) frá 26. júlí 2005, 167. mgr., og NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008, 109.-110. mgr.

Með vísan til framangreindra viðmiða, umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í viðtökuríki og einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það niðurstaða kærunefndar að ekki hafi verið sýnt fram á að kærandi eigi á hættu meðferð sem gangi gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og flutningur hennar til viðtökuríkis leiðir því ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem kærandi nýtur alþjóðlegrar verndar í viðtökuríki telur kærunefnd jafnframt að tryggt sé að hún verði ekki send áfram til annars ríkis þar sem líf hennar eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Samkvæmt framansögðu verður mál kæranda ekki tekið til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Athugasemdir kæranda við ákvörðun Útlendingastofnunar

Svo sem fram hefur komið gerir kærandi ýmsar athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar, þ. á m. við umfjöllun stofnunarinnar um aðstæður þeirra sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi.

Í greinargerð kæranda er að finna umfjöllun sem bersýnilega á ekki við í máli kæranda og varðar mál annars umsækjanda. Af þeim sökum telur kærunefnd ekki ástæðu til að taka afstöðu til málsástæðna kæranda varðandi brot Útlendingastofnunar á 10. gr. stjórnsýslulaga og 23. gr. laga um útlendinga.

Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun að öðru leyti og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við hana.

Frávísun

Samkvæmt gögnum málsins kom kærandi hingað til lands 1. ágúst 2022 og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd þann sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hennar um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hún því ekki tilskilin leyfi til dvalar. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda bendir allt til þess að hún hafi verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hennar hófst hjá Útlendingastofnun.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Athygli kæranda er einnig vakin á því að Útlendingastofnun getur frestað framkvæmd ákvörðunar með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga vegna sérstakra aðstæðna útlendings eða vegna þess að ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.

Úrskurðarorð:

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

 

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

 

Þorsteinn Gunnarsson

 

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                            Sandra Hlíf Ocares

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum