Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 56/2014, úrskurður 30. júlí 2014

Mál nr. 56/2014
Eiginnafn: Hjaltalín

 Hinn 30. júlí 2014 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 56/2014 en erindið barst nefndinni sama dag:

Nafnið Hjaltalín er ættarnafn í íslensku máli. Nokkur dæmi eru einnig um að það hafi verið gefið sem eiginnafn, bæði á drengi og stúlkur. Með vísan til þess að eiginnafnið Hjaltalín (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Hjaltalíns, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996, um mannanöfn, er fallist á nafnið og skal það fært á mannanafnaskrá.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Hjaltalín (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá. 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum