Hoppa yfir valmynd
K%C3%A6runefnd%20%C3%BAtbo%C3%B0sm%C3%A1la

Mál nr. 17/2017. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála:

Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 7. september 2017

í máli nr. 17/2017:

Deilir Tækniþjónusta ehf.

gegn

Orku náttúrunnar

Vélsmiðjunni Altak ehf.

og

Stál og suðu ehf.

Með kæru 4. ágúst 2017 kærir Deili Tækniþjónusta ehf. ákvörðun Orku náttúrunnar um val á tilboðum Vélsmiðjunnar Altaks ehf. og Stál og suðu ehf. í útboðinu „ONRS-2017-10 Stálmíði og lagnir“. Kærandi krefst þess að ákvörðun um val tilboðs verði felld úr gildi og að lagt verði fyrir varnaraðila að taka nýja ákvörðun að þessu leyti. Hafi komist á samningur á grundvelli ákvörðunarinnar er þess krafist að nefndin láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda. Þá er gerð krafa um málskostnað. Af hálfu varnaraðila er þess krafist að öllum kröfum kæranda verði hafnað. Kæran barst innan lögboðins biðtíma samkvæmt 86. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup og leiddi þannig til sjálfkrafa stöðvunar samningsgerðar samkvæmt 1. mgr. 107. gr. laganna. Í þessum þætti málsins tekur nefndin afstöðu til kröfu varnaraðila um afléttingu sjálfkrafa banns við samningsgerð samkvæmt 2. mgr. 107. gr. laga um opinber innkaup, en úrlausn málsins bíður að öðru leyti endanlegs úrskurðar.

            Í maí 2017 auglýsti varnaraðili útboð í stálsmíði og lagnir. Samkvæmt grein 1.1.9 í útboðsgögnum skyldi hæfi bjóðenda metið á grundvelli gagna sem þeir sendu með tilboðum sínum. Í grein 1.2.4 sagði að lægstbjóðandi, sem metinn yrði hæfur, yrði að leggja fram tilgreind gögn „á samningsstigi“. Meðal þeirra gagna var „Gæðakerfi verktaka, sambærilegt ISO 9001 og dæmi af eftirlits/úttektaráætlun verktaka“. Fimm fyrirtæki tóku þátt í útboðinu og voru tilboð opnuð 5. júlí 2017. Tilboð kæranda var fjórða hagstæðasta en tilboð Vélsmiðjunnar Altaks ehf. og Stáls og Suðu ehf. voru í öðru og þriðja sæti. Varnaraðili tilkynnti 31. júlí 2017 að ákveðið hefði verið að taka þeim tilboðum sem voru í fyrsta, öðru og þriðja sæti.

Kærandi telur að tilboð Vélsmiðjunnar Altaks ehf. og Stáls og suðu ehf. séu ógild enda uppfylli gæðakerfi þeirra ekki staðalinn ISO 9001 enda hafi fyrirtækin ekki fengið slíka vottun. Varnaraðili telur hins vegar ekki nauðsynlegt að fara fram á ISO 9001 vottun eða sambærilegt gæðakerfi til að meta hæfi bjóðenda. Fullnægjandi gæðakerfi þurfi þó að liggja fyrir á síðari stigum og mögulega geti hæfir bjóðendur útbúið slíkt kerfi í samvinnu við varnaraðila. Þá hafi öll fyrirtækin sem valin voru til samningsgerðar sent afrit af sínum gæðakerfum og varnaraðili hafi metið þau sambærileg ISO 9001 staðlinum.

Niðurstaða

Varnaraðili starfar við framleiðslu og sölu á raforku til almennings. Verður því að miða við að hann teljist til veitustofnunar sem falli undir reglugerð nr. 340/2017 um innkaup aðila sem annast vatnsveitu, orkuveitu, flutninga og póstþjónustu, sem innleiddi tilskipun Evrópusambandsins nr. 2014/25/EB um innkaup aðila sem annast vatnsveitu, orkuveitu, flutninga og póstþjónustu í íslenskan rétt („veitutilskipunin“). Með hinu kærða útboði stefndi varnaraðili að gerð verksamnings í skilningi 2. mgr. 5. gr. tilskipunarinnar. Reglugerðin gildir um innkaup á vöru, þjónustu eða verki er varðar starfsemi sem fellur undir reglugerðina þar sem áætlað verðmæti án virðisaukaskatts er jafnt eða meira en þær viðmiðunarfjárhæðir sem tilgreindar eru í 15. gr. reglugerðarinnar. Viðmiðunarfjárhæð nemur nú 805.486.000 krónum þegar um er að ræða verksamninga. Á opnunarfundi 5. júlí sl. var upplýst að kostnaðaráætlun fyrir verkið næmi rúmum 86 milljón krónum án virðisaukaskatts og öll tilboð væru undir 163 milljónum króna. Samkvæmt þessu er ljóst að framangreind innkaup náðu ekki viðmiðunarfjárhæð og voru því ekki útboðsskyld samkvæmt ákvæðum reglugerðar nr. 340/2017. Þá er ekki að finna í útboðsgögnum ótvíræða yfirlýsingu kaupanda þess efnis að um útboðið fari allt að einu eftir fyrrnefndri reglugerð.

Samkvæmt 2. mgr. 103. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup er hlutverk kærunefndar útboðsmála að leysa með skjótum og óhlutdrægum hætti úr kærum fyrirtækja vegna ætlaðra brota á lögunum og reglum settum samkvæmt þeim, þar á meðal innkaup opinberra aðila sem annast vatnsveitu, orkuveitu, flutninga og póstþjónustu. Hin kærðu innkaup féllu samkvæmt framansögðu ekki undir reglugerð nr. 340/2017 og fellur ágreiningur aðila því ekki undir valdsvið kærunefndar útboðsmála. Með hliðsjón af framangreindu telur nefndin, eins og málið liggur fyrir á þessu stigi, að ekki hafi verið leiddar verulegar líkur að því að brotið hafi verið gegn lögum um opinber innkaup við mat á tilboðum í hinu kærða útboði. Verður því fallist á kröfu varnaraðila um að aflétta stöðvun samningsgerðar samkvæmt 2. mgr. 107. gr., sbr. 1. mgr. 110. gr. laga um opinber innkaup.

Ákvörðunarorð:

Aflétt er stöðvun samningsgerðar Orku náttúrunnar við Vélsmiðjuna Altak ehf. og Stál og suðu ehf. í kjölfar útboðsins „ONRS-2017-10 Stálmíði og lagnir“.

                                                 Reykjavík, 7. september 2017.

                                                                                                Skúli Magnússon

                                                                                                Ásgerður Ragnarsdóttir

                                                                                                Stanley Pálsson


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum