Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20Atvinnuleysistryggingar%20og%20vinnumarka%C3%B0sa%C3%B0ger%C3%B0ir

Nr. 288/2019 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 288/2019

Föstudaginn 27. september 2019

A

gegn

Vinnumálastofnun

 

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, móttekinni 9. júlí 2019, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 9. júlí 2019, um að fella niður bótarétt hans í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 1. mars 2019. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 24. maí 2019, var kæranda tilkynnt að stofnunin hefði undir höndum upplýsingar um að hann hefði starfað hjá B samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta og án þess að tilkynna það til stofnunarinnar. Kærandi var upplýstur um að brot gegn tilkynningarskyldu samkvæmt 3. mgr. 9. gr. og 35. gr. a. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gætu valdið viðurlögum samkvæmt 59. gr. eða 60. gr. laganna. Þá var kæranda veittur kostur á að skila skýringum innan sjö daga frá dagsetningu bréfsins. Skýringar bárust frá kæranda 27. maí 2019 og með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 9. júlí 2019, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði frá og með 9. júlí 2019 á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 sökum þess að hann lét hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar samkvæmt 14. gr. laganna.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 9. júlí 2019. Með bréfi, dags. 10. júlí 2019, óskaði úrskurðarnefndin eftir afriti af hinni kærðu ákvörðun sem barst úrskurðarnefndinni 11. júlí 2019. Með bréfi, dags. 11. júlí 2019, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 22. ágúst 2019 og með bréfi, dags. 23. ágúst 2019, var greinargerð Vinnumálastofnunar send kæranda til kynningar. Frekari athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hann hafi verið að vinna tvo daga launalaust og hafi ekki vitað að hann hafi þurft að láta vita af því í fyrra skiptið en hann hafi gert það í seinna skiptið. Kærandi hafi ekki fengið laun fyrir þessa daga. Hann hafi verið að vinna hjá [...] vegna þess að það hafi verið undirmannað. Kærandi sé núna kominn í fulla vinnu, en þætti gott að fá launin þá mánuði sem bótaréttur hans hafi verið felldur niður.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að lög um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna og sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum markaði þegar þeir verði atvinnulausir. Tilgangur laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafa fyrra starf sitt, tímabundna fjárhagsaðstoð í þrengingum sínum. Með lögunum sé verið að tryggja stöðu og öryggi fólks í atvinnuleysi. Því sé gert ráð fyrir að hinir tryggðu séu í virkri atvinnuleit þann tíma. Atvinnuleysistryggingar veiti hinum tryggðu fjárhagslegt úrræði í tímabundnu atvinnuleysi sínu. Í 13. gr. laganna séu talin upp almenn skilyrði fyrir atvinnuleysistryggingum launamanna.

Mál þetta varði þá ákvörðun Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta biðtíma vegna ótilkynntrar vinnu, sbr. 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Ákvæðið taki meðal annars til þess er einstaklingur lætur hjá líða að tilkynna um vinnu sína, til lengri eða skemmri tíma, án þess að upplýsa stofnunina um störf sín líkt og skylt sé samkvæmt 9. gr., 10. gr., 14. gr. og 35. gr. a. laganna. Komi fram að sá sem láti hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skuli sæta biðtíma og viðurlögum samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar.

Í 13. gr. laganna segi jafnframt að það sé skilyrði fyrir því að launamaður teljist vera tryggður í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar að hann sé í virkri atvinnuleit. Í 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar nr. 54/2006 sé að finna nánari útlistun á því hvað telst til virkrar atvinnuleitar. Ljóst sé að aðili sem starfi á vinnumarkaði geti hvorki talist vera án atvinnu eða í virkri atvinnuleit í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.

Á þeim sem fái greiðslur atvinnuleysistrygginga frá Vinnumálastofnun hvíli rík skylda til að sjá til þess að stofnunin hafi réttar upplýsingar um hagi viðkomandi. Í lögum um atvinnuleysistryggingar sé að finna ákvæði þar sem þessi skylda sé ítrekuð. Þannig segi í 3. mgr. 9. gr. laganna að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fái greiddar atvinnuleysistryggingar eða annað það sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, svo sem um tekjur sem hann fái fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan standi yfir eða ef atvinnuleit sé hætt.

Óumdeilt sé að kærandi hafi verið við vinnu þegar Vinnueftirlitið kom á starfsstöð hans í X 2019. Samkvæmt upplýsingum frá Vinnueftirlitinu hafi eftirlitsmenn verið staddir á C vegna vinnuslyss sem hafi átt sér stað þann X 2019. Kærandi hafi gefið upp að hann hafi verið við störf við fyrirtækið B. Kærandi hafi borið að tilkynna um störf sín í samræmi við ofangreind ákvæði óháð því hvort hann hafi þegið laun fyrir vinnu sína, enda geti hann ekki talist atvinnulaus þann tíma sem hann hafi sinnt störfum á almennum vinnumarkaði. Þar sem kærandi hafi haldið því fram að hann hafi verið við sjálfboðaliðastörf í umrætt sinn telji Vinnumálastofnun einnig rétt að benda á að í reglugerð nr. 1224/2015 sé meðal annars fjallað um þátttöku atvinnuleitenda í vinnumarkaðsaðgerðum. Í ákvæðinu segi að Vinnumálastofnun sé heimilt að gera sérstakan samning við frjáls félagasamtök um að atvinnuleitandi taki þátt í sjálfboðaliðastarfi, enda sé um að ræða vinnumarkaðsúrræði samkvæmt b-lið 12. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir. Augljóslega væri óþarft að mæla fyrir um undanþáguheimild reglugerðarinnar ef atvinnuleitendum væri almennt heimilt að ráða sig til starfa við sjálfboðaliðastörf samhliða því að þiggja greiðslur atvinnuleysistrygginga. Þá hafi kærandi ekki verið við störf hjá frjálsum félagasamtökum eða verið að starfa sem sjálfboðaliði í skilningi þess hugtaks þegar Vinnueftirlitið kom á starfsstöð hans. Þar sem kærandi hafi ekki tilkynnt um störf sín skuli hann sæta viðurlögum á grundvelli 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Ágreiningur máls þessa lýtur að ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður bótarétt kæranda í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Ákvæði 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 er svohljóðandi:

„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur … látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Ákvæðið ber meðal annars að túlka með hliðsjón af ákvæði 3. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006, en samkvæmt því skal sá sem telst tryggður á grundvelli laganna upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir. Í 2. mgr. 14. gr. laganna kemur einnig fram að hinn tryggði skuli tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti samkvæmt 1. mgr., án ástæðulausrar tafar. Þá er kveðið á um tilkynningarskyldu til Vinnumálastofnunar um tilfallandi vinnu hins tryggða í 35. gr. a laga nr. 54/2006, en ákvæðið er svohljóðandi:

„Þeim sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum ber að tilkynna til Vinnumálastofnunar með að minnsta kosti eins dags fyrirvara um tilfallandi vinnu sem hann tekur á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur skv. 32. eða 33. gr. eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum. Heimilt er þó að tilkynna samdægurs um tilfallandi vinnu enda sé um að ræða tilvik sem er þess eðlis að mati Vinnumálastofnunar að ekki var unnt að tilkynna um hina tilfallandi vinnu fyrr. Í tilkynningunni skulu meðal annars koma fram upplýsingar um hver vinnan er, um vinnustöðina og um lengd þess tíma sem hinni tilfallandi vinnu er ætlað að vara.“

Samkvæmt gögnum máls liggur fyrir staðfesting þess efnis að kærandi var staddur við vinnu hjá B þegar Vinnueftirlitið kom á starfsstöð vegna vinnuslyss þann X 2019 og ljóst er að hann tilkynnti ekki fyrir fram um vinnuna. Í ljósi upplýsingaskyldu 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga nr. 54/2006 verður fallist á það með Vinnumálastofnun að kærandi hafi brotið gegn skyldum sínum er hann tilkynnti ekki stofnuninni að hann hefði verið við vinnu fyrir B. Að því virtu bar Vinnumálastofnun að láta kæranda sæta viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 59. gr. laganna. Með vísan til þessa er hin kærða ákvörðun staðfest.

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 9. júlí 2019, um að fella niður bótarétt A, í tvo mánuði er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson

 

 

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum