Hoppa yfir valmynd
K%C3%A6runefnd%20%C3%BAtlendingam%C3%A1la

Nr. 414/2021 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 9. september 2021 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 414/2021

í stjórnsýslumáli nr. KNU21060048

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

 

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 22. júní 2021 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Palestínu (hér eftir nefndur kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 3. júní 2021, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Þess er aðallega krafist að ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda verði felld úr gildi og að lagt verði fyrir stofnunina að taka mál hans til meðferðar á ný, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Til vara er þess krafist að lagt verði fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn kæranda um alþjóðleg vernd til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.         Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 11. október 2020. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum þann 17. október 2020 kom í ljós að fingraför hans höfðu m.a. verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Grikklandi og að kærandi hafi hlotið alþjóðlega vernd þar í landi þann 1. júlí 2019. Við umsókn framvísaði kærandi grísku dvalarleyfisskírteini með gildistíma frá 2. júlí 2019 til 1. júlí 2022. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun, m.a. þann 5. nóvember 2020, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 1. febrúar 2020 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Þann 15. apríl 2021 var ákvörðun Útlendingastofnunar felld úr gildi og lagt fyrir stofnunina að taka mál kæranda til meðferðar á ný. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun, dags. 6. maí 2021, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Með ákvörðun, dags. 3. júní 2021, synjaði Útlendingastofnun öðru sinni að taka mál kæranda til efnismeðferðar. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 8. júní 2021. Var sú ákvörðun kærð til kærunefndar þann 22. júní 2021. Kærunefnd barst greinargerð kæranda þann 1. júlí 2021 ásamt fylgigögnum.

III.          Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kæranda hafi verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi. Umsókn hans um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Grikklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Grikklands.

IV.          Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda lýsir hann þeirri málsmeðferð sem hann hafi fengið hér á landi hjá bæði Útlendingastofnun og kærunefnd útlendingamála. Er varðar málavexti vísar kærandi til gagna málsins. Kærandi gerir kröfu um að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að lagt verði fyrir stofnunina að taka mál hans til meðferðar á ný. Krafan byggir á því að slíkir annmarkar hafi verið á málsmeðferð kæranda hjá Útlendingastofnun að rétt sé að ógilda ákvörðunina. Í úrskurði kærunefndar útlendingamála þann 15. apríl 2021 hafi verið komist að þeirri niðurstöðu að tilefni hafi verið til að afla upplýsinga um það hvort kærandi hafi verið með kennitölu og skattnúmer í Grikklandi. Vegna skorts á umræddum upplýsingum hafi rannsókn málsins verið áfátt. Kærandi hafi í kjölfar úrskurðar kærunefndar verið boðaður í framhaldsviðtal hjá Útlendingastofnun þar sem hann hafi verið spurður nánar út í heilsufar sitt og aðgengi að heilbrigðisþjónustu í Grikklandi, þ. á m. hvort hann hafi verið með skattnúmer og kennitölu þar í landi. Af hinni kærðu ákvörðun megi ráða að Útlendingastofnun hafi talið sig geta dregið nægilega skýrar ályktanir af framburði kæranda er varðar skattnúmer og kennitölu þrátt fyrir tiltekna óvissu er það varðar. Kærandi telji að Útlendingastofnun hafi átt að ganga úr skugga um framangreind atriði áður en ákvörðun var tekin, t.d. með því að boða kæranda í annað viðtal eða afla upplýsinga frá grískum yfirvöldum.

Í úrskurði kærunefndar þann 15. apríl 2021 hafi nefndin þá ekki talið sig vera í aðstöðu til að draga nægilega skýrar ályktanir af þeim læknisfræðilegu gögnum sem lágu fyrir í málinu hvað varðar veikindi kæranda og hvaða afleiðingar það myndi hafa í för með sér fengi kærandi ekki viðeigandi heilbrigðisþjónustu. Af úrskurði nefndarinnar megi álykta að þörf hafi verið á sérstöku mati sérfræðings svo unnt væri að leysa úr málinu. Að mati kæranda hafi Útlendingastofnun átt að eiga frumkvæði að því að óska eftir sérstöku mati sérfræðings á andlegri heilsu kæranda. Með hliðsjón af framangreindu sé það mat kæranda að rannsókn málsins hafi verið áfátt og ekki í samræmi við 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga og 10. gr. stjórnsýslulaga. Verulegir annmarkar hafi verið á málsmeðferð Útlendingastofnunar sem kunni að hafa haft áhrif á niðurstöðu í máli hans og af þeim sökum beri að fella hina kærðu ákvörðun úr gildi. Til þess að tryggja rétt kæranda á því að mál hans hljóti umfjöllun á tveimur stjórnsýslustigum sé jafnframt farið fram á að lagt verði fyrir Útlendingastofnun að taka málið til meðferðar á ný.

Varakrafa kæranda byggir á því að sérstakar ástæður séu fyrir hendi í máli kæranda sem mæli með því að mál hans hljóti efnismeðferð hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í viðtali hjá Útlendingastofnun hafi kærandi greint frá andlegri vanlíðan vegna síendurtekinna hugsana um tiltekna atburði í heimaríki auk þess að hafa áhyggjur af börnum sínum sem séu stödd í Palestínu. Kærandi hafi greint frá því að þjást af þunglyndi og kvíða. Kærandi hafi lagt fram heilbrigðisgögn frá heimaríki og Belgíu sem staðfesti að hann þjáist af þunglyndi og kvíða. Þá hafi kærandi lagt fram heilbrigðisgögn frá bráðamóttöku geðsviðs sem sýni að hann hafi leitað þangað í nokkur skipti vegna andlegrar vanlíðanar og að hann hafi lýst einkennum áfallastreituröskunar. Þá komi m.a. fram að mikilvægt sé að kærandi komist í viðeigandi þunglyndismeðferð og að hann fái jafnframt sálfræðiviðtöl. Sé litið til framburðar kæranda, framlagðra heilsufarsgagna og þeirra lyfja sem kærandi taki megi hæglega draga þá ályktun að kærandi glími við mikil og alvarleg veikindi og að þörf hans fyrir sérhæfða heilbrigðisþjónustu, s.s. þunglyndismeðferð og sálfræðiviðtöl sé mikil. Heimildir beri með sér að það geti verið vandkvæðum bundið fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi að sækja sér heilbrigðisþjónustu þar í landi, m.a. vegna strangra skilyrða fyrir útgáfu kennitalna (AMKA), sem sé forsenda þess að veittur sé aðgangur að heilbrigðiskerfi landsins. Af framburði kæranda í framhaldsviðtali hjá Útlendingastofnun verði ekki ráðið með vissu hvort að númerið sem hann hafi talað um sé skattnúmer og að mati kæranda megi leiða líkur að því að umrætt númer hafi ekki verið skattnúmer. Skattnúmer sé skilyrði fyrir útgáfu kennitölu og í ljósi þess að kærandi sé að öllum líkindum ekki með skattnúmer í Grikklandi verði jafnframt að teljast ólíklegt að hann hafi verið með kennitölu. Með hliðsjón af framangreindu séu litlar líkur á því að kærandi muni hafa greiðan aðgang að þeirri heilbrigðisþjónustu sem hann þarfnist í Grikklandi. Þá liggi ekki fyrir sérfræðilegt mat á því hvaða afleiðingar það muni hafa í för með sér fái kærandi ekki viðeigandi heilbrigðisþjónustu. Að framangreindu virtu þyki rétt að líta svo á að aðstæður kæranda, tengdar heilsufari hans, séu þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

V.           Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins var kæranda veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi þann 1. júlí 2019 og hefur hann gilt dvalarleyfi þar í landi til 1. júlí 2022. Að mati kærunefndar telst sú vernd sem kærandi nýtur í Grikklandi virk alþjóðleg vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður í Grikklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2020 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 30. mars 2021);
  • Amnesty International Report 2020/21 – Greece (Amnesty International, 7. apríl 2021);

  • Annual report 2019 – Executive Summary (The Greek Ombudsman Independent Authority, 31. desember 2019);
  • Asylum Information Database, Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, júní 2021);
  • Beneficiaries of international protection in Greece – Access to documents and socio-economic rights (Refugee Support Aegean, 22. mars 2021);
  • Commissioner for Human Rights: Report of the Commissioner for Human Rights of the Council of Europe, Dunja Mijatovic, following her visit to Greece from 25 to 29 June 2018 (Council of Europe, 6. nóvember 2018);
  • EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017);

  • Freedom in the World 2020 – Greece (Freedom House, 5. júní 2020);
  • Greece as a Country of Asylum – UNHCR‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015);
  • Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017);
  • Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017);
  • Report on the Living Conditions of Beneficiaries of International Protection in Greece (Passerell, nóvember 2020);
  • Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017);

  • State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016);
  • Upplýsingar af vefsíðu Doctors of the world (https://mdmgreece.gr/);
  • Upplýsingar af vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal): https://e-justice.europa.eu;
  • Upplýsingasíða Refugee Info Greece (http://refugee.info/greece/, sótt 9. september 2021);
  • Upplýsingasíða Johns Hopkins háskólans (https://coronavirus.jhu.edu/map.html, sótt 9. september 2021);
  • Upplýsingasíða Sóttvarnarstofnunar Evrópu (https://www.ecdc.europa.eu/en/cases-2019-ncov-eueea, sótt 9. september 2021) og
  • World Report 2021 – European Union (Human Rights Watch, 13. janúar 2021).

Af framangreindum gögnum verður ráðið að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur meðal annars bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagsástand í Grikklandi hafi haft á aðstæður einstaklinga sem hlotið hafi vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifa oft á jaðri samfélagsins og búi í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sambærilegan rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst jafnframt aðgangur að vinnumarkaði. Þá veita frjáls félagasamtök einstaklingum með alþjóðlega vernd aðstoð við að kynna sér réttindi sín í Grikklandi.

Samkvæmt skýrslu European Council on Refugees and Exciles (ECRE) frá því í júní 2021 eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu með sömu skilyrðum og grískir ríkisborgarar, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum. Samkvæmt fyrrnefndri skýrslu hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins og hefur kostnaðarþátttaka almennings aukist við kaup á lyfjum og þjónustu. Þannig geti verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu þar í landi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Þetta eigi jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafi rétt til dvalar í ríkinu. Auk þess hafi útgáfa almannatrygginganúmera (AMKA) (áður nefnt kennitölur) falið í sér hindranir fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd við að afla sér heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt upplýsingasíðu Refugee Info Greece fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd og handhafa verndar í Grikklandi og sem veitir upplýsingar á grísku, arabísku, farsi, urdu, frönsku, lingala/bantu, norður-kúrdísku og ensku hafi allir umsækjendur um alþjóðlega vernd fengið svokallað AMKA eða almannatrygginganúmer sem veitti þeim m.a. aðgang að heilbrigðiskerfinu. Í janúar 2020 hafi skilyrði fyrir útgáfu almannatrygginganúmera breyst og fái umsækjendur um alþjóðlega vernd nú útgefin tímabundin almannatrygginga- og heilbrigðisþjónustunúmer (PAAYPA), meðan þeir sem hlotið hafa alþjóðlega vernd fái útgefið varanlegt almannatrygginganúmer. Þegar umsækjanda sé veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi verði almannatrygginga- og heilbrigðisþjónustunúmerið óvirkt mánuði eftir að viðkomandi hljóti dvalarleyfi. Einstaklingar geti þá í kjölfarið sótt um varanlegt almannatrygginganúmer í næstu þjónustumiðstöð. Til að sækja um slíkt númer þurfi einstaklingar að framvísa dvalarleyfi eða ferðaskilríkjum og staðfestingu á heimilisfangi. Til að fá varanlegt almannatrygginganúmer gefið út sé nægilegt að sýna fram á heimilisfang í búðum eða í gistiskýli. Þá segir á upplýsingasíðunni að samkvæmt gildandi löggjöf séu allir aðilar í hinum opinbera heilbrigðisgeira skyldugir til að veita öllum fyrstu hjálp þegar nauðsyn beri til. Eigi allir rétt á að leita til sjúkrahúsa og fá ókeypis læknisþjónustu og lyf sem þeir þarfnist þrátt fyrir að viðkomandi hafi hvorki PAAYPA eða AMKA númer. Á upplýsingasíðunni er unnt að eiga í samskiptum við þjónustufulltrúa á netspjalli í gegnum Facebook á áðurgreindum tungumálum. Á upplýsingasíðunni er einnig hægt að nálgast skjal á grísku sem hlaða má niður þar sem þessi réttur til þjónustu fyrir alla er útskýrður.

Í skýrslu ECRE kemur fram að aðgengi einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi að húsnæði sé háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með heimild til dvalar í Grikklandi. Fá gistiskýli séu í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði sé til staðar sem einungis sé ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt geti reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin sé mikil og dæmi séu um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum og yfirfullum íbúðum við mjög bágar aðstæður. Eigi þetta einnig við um einstaklinga sem hafi verið sendir aftur til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum. Þá hafi í mars 2020 verið gerðar breytingar á útlendingalöggjöfinni í Grikklandi sem kveði á um að þegar ákvörðun um að veita alþjóðlega vernd liggi fyrir skuli draga úr fjár- og húsnæðisstuðningi. Handhöfum alþjóðlegrar verndar sem dvelji í úrræðum innan hins svokallaða ESTIA kerfi eða öðrum úrræðum, þar með talið hótelum og íbúðum, sé skylt að yfirgefa þau innan 30 daga eftir að hafa hlotið alþjóðlega vernd. Þó séu undantekningar frá þessari reglu, sérstaklega þegar um sé að ræða fólk sem glími við alvarlegan heilsubrest. Í skýrslu Passerell frá því í nóvember 2020 kemur fram að félagasamtök bjóði upp á gistiúrræði fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi en langur biðlisti sé eftir plássi þar og barnafjölskyldur og einstaklingar í viðkvæmri stöðu gangi fyrir.

Þá kemur fram í skýrslu ECRE að einstaklingar með alþjóðlega vernd eigi sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar. Erfiðleikar geti þó verið til staðar við að nálgast félagslegar bætur vegna ákveðinna kerfishindrana, m.a. þurfi einstaklingar sem hyggist sækja um félagslegar bætur að leggja fram ákveðin skjöl s.s. fæðingarvottorð, upplýsingar um fjölskyldustöðu og prófskírteini. Þá hafi einstaklingar fengið synjun á umsókn sinni frá opinberum starfsmönnum þvert á reglur um jafnræði í grískum lögum. Þær félagslegu bætur sem í boði séu í Grikklandi séu t.d. bætur fyrir fjölskyldur en skilyrði fyrir slíkum bótum sé að sýnt sé fram á fimm ára óslitna og varanlega búsetu í Grikklandi. Þá veiti grísk yfirvöld einstaklingum, m.a. handhöfum alþjóðlegrar verndar, sem búi undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna, svokallaðan KEA styrk. Þá séu í reynd engir aðrir framfærslustyrkir en KEA í boði. Jafnframt séu engin sérúrræði til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. þolendur pyndinga. Þá sé félagsleg aðstoð ekki bundin við búsetu á tilteknum stað.

Samkvæmt skýrslu ECRE hafa einstaklingar með alþjóðlega vernd aðgang að atvinnumarkaðnum með sömu skilyrðum og ríkisborgarar Grikklands. Ekki sé þörf á sérstöku atvinnuleyfi. Atvinnuleysi sé hins vegar mikið í landinu og samkeppni við grískumælandi einstaklinga og erfiðleikar við að fá skattnúmer (AFM) útgefið dragi úr atvinnumöguleikum handhafa alþjóðlegrar verndar. Þessir erfiðleikar við að sækja sér atvinnu hafi leitt til þess að einstaklingar reyni að afla sér tekna með óformlegum og jafnvel ólöglegum leiðum sem hindri þar með aðlögun þeirra að samfélaginu. Samkvæmt rannsókn frá árinu 2018 hafi meirihluti þeirra flóttamanna sem þá hafi verið starfandi verið í óskráðu starfi. Þeir einstaklingar sem ekki starfi innan hins hefðbundna atvinnumarkaðar hafi ekki aðgang að almannatryggingakerfinu og vinni sér ekki inn atvinnutengd réttindi, s.s. atvinnuleysisbætur. Mikill meirihluti einstaklinga með alþjóðlega vernd og umsækjendur um vernd reiði sig því á fjárhagsaðstoð og dreifingu matvæla og muna af hálfu stjórnvalda og mannúðarsamtaka til þess að uppfylla grunnþarfir sínar. Í skýrslu ECRE kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafi mætt erfiðleikum við að fá útgefið skattnúmer hjá grískum stjórnvöldum. Útgáfa skattnúmers sé grundvöllur þess að geta lifað og starfað löglega í Grikklandi og þess að einstaklingar geti sótt aðstoð og réttindi hjá grískum stjórnvöldum. Skattnúmerið sé forsenda þess að geta sótt um félagslega aðstoð, til að vinna hvort sem er sem starfsmaður hjá öðrum eða að hefja eigin rekstur, og til þess að gera samninga um leigu á húsnæði. Samkvæmt upplýsingasíðu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd þurfi einstaklingar sem hyggjast sækja um skattnúmer að framvísa ferðaskilríki eða dvalarleyfi og staðfestingu á heimilisfangi eða heimilisleysi. Umsóknarferlið fari einungis fram á grísku en umsækjendur geti leitað eftir aðstoð hjá endurskoðendum eða frjálsum félagasamtökum.

Vegna upplýsinga um þessa erfiðleika varðandi útgáfu skattnúmera sendi kærunefnd útlendingamála árið 2020 fyrirspurn til Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og óskaði eftir upplýsingum um hvort stofnuninni væri kunnugt um hindranir sem einstaklingar með alþjóðlega vernd í Grikklandi kunni að mæta við að verða sér úti um slíkt skattnúmer. Í svari Flóttamannastofnunnar, dags. 10. mars 2020, kemur m.a. fram að almennt þurfi að sækja um skattnúmerið í eigin persónu hjá viðeigandi stjórnvaldi, umsóknina þurfi að fylla út á grísku og sýna þurfi skilríki s.s. dvalarskírteini. Þá sé engin túlkaþjónusta í boði en öll málsmeðferðin, bæði skriflega umsóknin og samskipti við stjórnvöld, þurfi að fara fram á grísku. Starfsmenn grískra yfirvalda séu ekki skyldugir samkvæmt lögum til þess að tala ensku í störfum sínum eða vinna með gögn sem ekki séu skrifuð eða þýdd yfir á grísku. Niðurstaða umsóknar um skattnúmer sé því undir því komin að starfsmaðurinn sé viljugur til samvinnu og að umsækjandi um skattnúmer hafi grunn í ensku eða grísku. Þá kom fram í svari Flóttamannastofnunar að það væri mismunandi og oft misvísandi framkvæmd milli þeirra stjórnvalda sem sjái um útgáfu númeranna. Framkvæmdin færi í raun eftir því hversu vant starfsfólkið væri að þjónusta þennan hóp. Þá geti viðmót og vilji starfsmanna stjórnvaldsins haft áhrif á niðurstöðu varðandi útgáfu skattnúmers og þeir umsækjendur sem njóti aðstoðar frjálsra félagasamtaka eða lögmanna í umsóknarferlinu séu líklegri til þess að fá jákvætt svar við umsókn sinni. Þá hafi komið upp vandamál hjá þessum hópi varðandi það að tengja skattnúmer hjóna saman. Grísk skattayfirvöld hafi árið 2018, gefið út fyrirmæli um ítarlegri skoðun á skilríkjum erlendra umsækjenda um skattnúmer, sem hafi í kjölfarið leitt til þess að biðtími eftir niðurstöðu hafi lengst töluvert hjá þeim hópi. Flóttamannastofnun, gríski umboðsmaðurinn og frjáls félagasamtök hafi í kjölfarið ítrekað lýst yfir áhyggjum vegna þessa og því hafi grísk stjórnvöld brugðist við með breytingu á framkvæmd, en þó sé þörf á frekari aðgerðum til að bæta þetta ferli. Þá sé óvíst hver staðan sé varðandi þann málafjölda sem enn bíði afgreiðslu af þessum sökum.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2020 kemur fram að dæmi séu um að flóttafólk sé beitt ofbeldi, þ. á m. af hendi grísku lögreglunnar. Þá kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggi bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur séu ofbeldisbrot rannsökuð af grísku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsaki meint brot lögreglu. Af framangreindri skýrslu verði ráðið að ýmsir annmarkar séu á dómskerfi landsins en sjálfstæði dómstóla sé tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga. Þá kemur fram í vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að útlendingar í Grikklandi sem séu þolendur glæpa og tali hvorki né skilji grísku eigi rétt á túlkaþjónustu og upplýsingum um mál þeirra á tungumáli sem þeir skilji.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skuli taka hana til efnismeðferðar. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga verður því aðeins beitt ef stjórnvöld telja, á grundvelli hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar eftir því sem við á, að skilyrði þess séu uppfyllt. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. er til viðbótar þeirri vernd sem 3. mgr. 36. gr. veitir umsækjendum um alþjóðlega vernd.

Á grundvelli 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga setti ráðherra reglugerð nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, en með henni bættust tvær greinar, 32. gr. a og 32. gr. b, við reglugerðina. Í 32. gr. a reglugerðarinnar kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í ákvæðinu jafnframt talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar sem tilvikin eru talin upp í dæmaskyni geta aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu alvarleikastigi, haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður séu ekki sérstaklega undanskildar, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar.

Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar skal líta til þess hvort umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, svo sem ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Kærunefnd telur að orðalagið „muni eiga“ feli ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar. Orðalagið gerir þó kröfu um að tilteknar líkur verði að vera á alvarlegri mismunun, þ.e. að sýna verður fram á að kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir en að ekki sé nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og kærandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst kærandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram á að verulegar ástæður séu til að ætla að kærandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og kærandi, verði fyrir slíkri meðferð.

Þá skal líta til þess hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Í reglugerðinni kemur fram að meðferð teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur sé átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en umsækjanda muni ekki standa hún til boða. Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi lítur kærunefnd m.a. til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem hann þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.

Af 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar má jafnframt ráða að heilsufar umsækjanda hafi takmarkað vægi umfram það sem leiðir af 2. mgr. 32. gr. a, nema það teljist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið. Þá tekur 3. mgr. 32. gr. a af tvímæli um það að efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Slíkar aðstæður gætu þó fallið undir 3. mgr. 36. gr. nái þær því alvarleikastigi sem við á, sbr. umfjöllun hér í framhaldinu.

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi karlmaður á […]. Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindi kærandi m.a. frá því að glíma við andleg vandamál en að líkamleg heilsa hans væri góð fyrir utan svefnleysi. Tilteknir atburðir í heimaríki árið 2009 hafi haft áhrif á andlega heilsu hans. Í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 6. maí 2021, greindi kærandi frá því að andleg líðan hans hafi farið versnandi frá því að fyrri viðtöl voru tekin. Í gögnum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 19. nóvember 2020, kemur fram að kærandi hafi greint frá því að hafa greinst með kvíða og þunglyndi í heimaríki árið 2009. Hann hafi sofið illa frá því að hann kom til landsins. Hann hafi greint frá vanlíðan og sjálfsvígshugsunum. Þá hafi hann hótað að drepa sig fengi hann ekki að tala við geðlækni. Honum hafi verið vísað á bráðamóttöku geðsviðs í kjölfarið. Í gögnum frá sálfræðingi á Göngudeild sóttvarna, dags. 1. desember 2020, kemur fram að kærandi hafi greint frá atburði sem hann hafi lent í fyrir tíu árum sem hafi haft mikil áhrif á hann. Hann sé hræddur um fjölskyldu sína í heimaríki en sé þó ekki í sjálfsvígshættu. Í gögnum frá bráðaþjónustu geðsviðs Landspítalans, dags. 19. nóvember 2020, kemur fram að kærandi hafi leitað á bráðaþjónustu vegna vanlíðan. Í viðtali hafi hann lýst alvarlegum einkennum áfallastreituröskunar, endurupplifunum, martröðum og svefnleysi. Hann hafi ekki verið metinn með geðrofseinkenni og hafi neitað öllum sjálfsvígs- og sjálfskaðahugsunum. Hann hafi þá óskað eftir þunglyndislyfjum. Kærandi hafi fengið lyf og þá hafi verið talið mikilvægt að hann kæmist í viðeigandi þunglyndislyfjameðferð sem hafi reynst honum vel og jafnframt í sálfræðiviðtöl. Enn fremur kemur fram að kærandi hafi verið greindur með streituröskun eftir áfall. Í gögnum frá bráðaþjónustu geðsviðs, dags. 30. nóvember 2020, kemur fram að kærandi hafi greint frá versnandi líðan undanfarið. Hann upplifi söknuð og einmanaleika og hafi óskað eftir því að fá að tala við sálfræðing. Geðrænt ástand hans hafi ekki verið metið brátt m.t.t. sjálfsvígshættu eða geðrofseinkenna, en hann hafi verið metinn í brýnni þörf fyrir sálfræðiaðstoð og stuðning í nærumhverfi. Í gögnum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 17. desember 2020, kemur fram að kærandi sé hraustlegur. Hann hafi greint frá því að lyfin virki vel. Í gögnum frá heilsugæslunni Grafarvogi, dags. 30. desember 2020, kemur m.a. fram að kærandi glími við afleiðingar áfalls. Í gögnum frá sálfræðingi á Göngudeild sóttvarna, dags. 5. og 26. janúar og 2. mars 2021, kemur m.a. fram að farið hafi verið yfir áhrif þeirra áfalla sem kærandi hafi lent í og hvernig best sé að vinna úr þeim. Kærandi sé í ágætis rútínu og taki einn dag í einu. Samkvæmt gögnum frá bráðaþjónustu geðsviðs, dags. 17. maí 2021, hafi kærandi leitað þangað vegna svefnleysis, vanlíðan og hræðslu um að skaða sig. Kærandi hafi greint frá vanlíðan, hausverk og að hafa ekki sofið í 5 daga. Þá hafi kærandi verið með sjálfsvígshugsanir sem séu að aukast. Í gögnum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 1. júní 2021, kemur fram að hann hafi hitt sálfræðing en það hafi ekki verið neitt sérstakt sem hann hafi viljað ræða. Kærandi hafi verið þreyttur og líðan hans eins.

Kærandi hefur m.a. borið fyrir sig að sérstakar ástæður séu fyrir hendi í máli hans vegna slæmra aðstæðna í Grikklandi. Kærandi hafi ekki haft aðgengi að heilbrigðisþjónustu, félagsaðstoð eða atvinnu í Grikklandi. Þá hafi fullnægjandi rannsókn ekki farið fram af hálfu Útlendingastofnunar á heilsufari kæranda og þörf hans fyrir frekari stuðning og heilbrigðisþjónustu.

Í fyrri úrskurði kærunefndar nr. KNU21020043 frá 15. apríl 2021 í máli kæranda var það rakið að kærandi væri að glíma við tiltekin andleg veikindi. Í framlögðum heilsufarsgögnum kæmi m.a. fram að kærandi væri í brýnni þörf fyrir sálfræðiaðstoð og stuðning í nærumhverfi og að mikilvægt væri að hann kæmist í viðeigandi þunglyndislyfjameðferð. Það var mat kærunefndar að í ljósi fyrirliggjandi upplýsinga um heilsufar kæranda væri nefndin ekki í aðstöðu til að draga nægilega skýrar ályktanir um alvarleika veikinda kæranda og hvaða afleiðingar það muni hafa fái hann ekki viðeigandi heilbrigðisþjónustu. Því hefði verið sérstakt tilefni til að afla upplýsinga um hvort kærandi hefði almannatrygginganúmer (áður nefnd kennitala) og skattnúmer í Grikklandi. Var það mat kærunefndar að nægilega skýrar upplýsingar um fyrrgreint hefðu þurft að liggja fyrir áður en ákvörðun var tekin í máli kæranda og taldi kærunefnd rannsókn Útlendingastofnunar áfátt að því leyti. Var lagt fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til meðferðar á ný.

Í framhaldsviðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 6. maí 2021, greindi kærandi frá því að hafa fengið almannatrygginganúmer í Grikklandi en aðspurður nánar út í þetta atriði kvaðst hann ekki vera viss um að það hafi verið almannatrygginganúmer. Þá greindi kærandi frá því að hann hefði ekki verið með skattnúmer í Grikklandi. Verður framburður kæranda lagður til grundvallar í málinu hvað þetta varðar. Þá rakti Útlendingastofnun þau heilsufarsgögn sem lágu fyrir í málinu en í ákvörðuninni er m.a. vikið að andlegum veikindum kæranda og að hann sé í brýnni þörf fyrir sálfræðiaðstoð og stuðning í nærumhverfi auk viðeigandi þunglyndislyfjameðferðar.

Að mati kærunefndar, og í ljósi þeirra gagna sem liggja fyrir um alvarlegar heilsufarlegar aðstæður kæranda, hefur framangreind málsmeðferð Útlendingastofnunar ekki leitt fram frekari upplýsingar um stöðu kæranda hvað varðar andlegt heilsufar hans eða hvort hann sé í þörf fyrir frekari læknisfræðilega meðferð og hvort að sú meðferð standi honum til boða í Grikklandi. Kærunefnd telur með vísan til þeirra aðgangshindrana sem geta verið til staðar að heilbrigðisþjónustu í Grikklandi og fjallað hefur verið um og þess álags sem Covid-19 faraldurinn hefur haft á heilbrigðiskerfið í Grikklandi, og í ljósi þess að upplýsingar um skattnúmer og almannatrygginganúmer kæranda lágu ekki fyrir, að fara hefði átt fram frekari rannsókn á heilsufari kæranda. Til að mynda hefði verið tilefni til að afla skýrari upplýsinga frá sérfróðum aðila hver þörf hans er fyrir frekari heilbrigðisþjónustu og um afleiðingar þess fyrir kæranda fái hann ekki þá þjónustu eða meðferð eða afleiðingar á töfum á veitingu slíkrar þjónustu.

Samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga skal stjórnvald sjá til þess að mál sé nægjanlega upplýst áður en ákvörðun er tekin í því og afla í því skyni nauðsynlegra gagna og upplýsinga. Mál telst nægilega rannsakað þegar þeirra upplýsinga hefur verið aflað sem nauðsynlegar eru til þess að hægt sé að taka efnislega rétta ákvörðun í því. Markmið rannsóknarreglunnar er að tryggja að stjórnvaldsákvarðanir verði bæði löglegar og réttar.

Með hliðsjón af framangreindu er það mat kærunefndar að Útlendingastofnun hafi ekki fullnægt skyldu sinni samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.

Meginmarkmið stjórnsýslukæru er að tryggja réttaröryggi borgara með því að gera þeim kleift að fá umfjöllun um mál sín á tveimur stjórnsýslustigum. Eins og að framan greinir telur kærunefnd að annmarkar hafi verið á rannsókn Útlendingastofnunar í máli kæranda. Kærunefnd telur jafnframt í ljósi aðstæðna að ekki sé unnt að bæta úr þeim annmörkum á kærustigi og því rétt að mál kæranda hljóti nýja meðferð hjá Útlendingastofnun.

Með vísan til þess sem að framan er rakið er það niðurstaða kærunefndar að fella beri ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til nýrrar meðferðar.

Í ljósi framangreindrar niðurstöðu er, að mati kærunefndar, ekki tilefni til umfjöllunar um aðrar málsástæður kæranda.

 

 

Úrskurðarorð:

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til meðferðar á ný.

 

The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate is instructed to re-examine the case.

 

 

Tómas Hrafn Sveinsson

 

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                                                     Sandra Hlíf Ocares

                                                                                             


 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum