Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 102/2020 Úrskurður 19. október 2020

Mál nr. 102/2020                   Eiginnafn:      Lord (kk.)

 

 

Hinn 19. október 2020 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli nr. 102/2020 en erindið barst nefndinni 16. október.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

 

Í þessu máli reynir á annað skilyrðið hér að ofan um að eiginnafn megi ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. Skilningur mannanafnanefndar á íslensku málkerfi er í samræmi við þá túlkun löggjafans sem fram kemur í athugasemdum með frumvarpi til laga um mannanöfn. Þar segir m.a.: „Íslenskt málkerfi er samsafn þeirra reglna sem unnið hafa sér hefð í íslensku máli.“

Eiginnafnið Lord(kvk.) er dregið af enska orðinu lord sem er notað sem ávarpsorð, Lord. Ekki er hefð fyrir því að ávarpsorð eins og frúfröken eða herra séu notuð sem eiginnöfn. Mannanafnanefnd telur ljóst, miðað við hefðir íslensks máls, að eiginnöfn af þessu tagi séu ekki í samræmi við þær reglur sem unnið hafa sér hefð í íslensku máli. Nefndin lítur því svo á að óheimilt sé að fallast á eiginnafnið Lord.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Lord (kk.) er hafnað.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum