Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 74/2015 Úrskurður 5. nóvember 2015

Mál nr. 74/2015                     Eiginnafn:      Bjarkarr

 


Hinn 5. nóvember 2015 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 74/2015 en erindið barst nefndinni 6. september:

Um rétt aðila máls til endurupptöku fer eftir ákvæðum 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 eða óskráðum reglum stjórnsýsluréttar um endurupptöku.

Ekkert er fram komið sem bendir til þess að úrskurður mannanafnanefndar í máli 56/2013 um eiginnafnið Bjarkarr hafi byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik né að hann hafi byggst á atvikum sem hafa breyst verulega frá því að ákvörðun var tekin. Skilyrði til endurupptöku málsins, sbr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 eru því ekki fyrir hendi.

Þegar 24. gr. stjórnsýslulaga sleppir kann mannanafnanefnd eftir atvikum að vera rétt og heimilt að endurupptaka mál á ólögfestum grundvelli. Skylda til slíks veltur þó, að mati nefndarinnar, á því að rökstuddar vísbendingar séu um að á úrskurði hennar séu verulegir annmarkar að lögum. Ekkert er fram komið um að slíkur ágalli hafi verið á fyrri úrskurði nefndarinnar. 

Úrskurðarorð:

Með vísan til þessa er beiðni um endurupptöku máls nr. 56/2015 hafnað.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum