Hoppa yfir valmynd
K%C3%A6runefnd%20%C3%BAtlendingam%C3%A1la

Nr. 505/2019 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 22. október 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 505/2019

í stjórnsýslumáli nr. KNU19080046

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 28. ágúst 2019 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 6. ágúst 2019, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.Þess er aðallega krafist að hin kærða ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að umsókn kæranda verði vísað aftur til Útlendingastofnunar til nýrrar málsmeðferðar á grundvelli 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Þess er krafist til vara að hin kærða ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að umsókn kæranda verði tekin til efnismeðferðar hér á landi, í fyrsta lagi á grundvelli 3. mgr. 36. gr., sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, og í öðru lagi á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 16. júní 2019. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann 20. júní 2019, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Grikklandi. Þann 26. júní 2019 var beiðni um upplýsingar um stöðu kæranda beint til yfirvalda í Grikklandi. Í svari frá grískum yfirvöldum, dags. 9. júlí 2019, kom fram að honum hefði verið veitt réttarstaða flóttamanns þann 19. desember 2017 og að hann væri með gilt dvalarleyfi þar í landi til 21. desember 2020. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun, m.a. þann 2. júlí 2019, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 6. ágúst 2019 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 13. ágúst 2019 og kærði kærandi ákvörðunina þann 28. ágúst 2019 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 9. september 2019 ásamt fylgigögnum. Með tölvupósti, dags. 9. október 2019, leiðbeindi kærunefnd kæranda um að leggja fram frekari heilsufarsgögn. Engin frekari gögn bárust frá kæranda.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að kæranda hefði verið veitt réttarstaða flóttamanns í Grikklandi. Umsókn hans um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Grikklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá hefði kærandi ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður væru fyrir hendi þannig að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Grikklands.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann hafi í viðtölum hjá Útlendingastofnun greint frá því að hann glími við alvarleg geðræn veikindi og líði almennt mjög illa. Hann hafi stöðugan höfuðverk og glími við fleiri tilgreinda kvilla. Hafi hann fengið ávísað lyfjum vegna þessara veikinda og hitt sálfræðing. Hann hafi verið [...] og orðið fyrir hótunum og ofbeldi í Grikklandi sem hafi aukið mikið á vanlíðan hans og veikindi. Kvaðst kærandi alls ekki vilja fara aftur til Grikklands en þar hafi hann orðið fyrir árásum og hótunum frá tilgreindum aðilum, m.a. vegna [...]. Þegar hann hafi leitað á náðir grísku lögreglunnar hafi hún snúist gegn honum, reynt að hafa af honum pening og hótað honum líkamsmeiðingum og lífláti. Eftir að kæranda hafi verið veitt vernd í Grikklandi hafi honum verið vísað á götuna þrátt fyrir andleg veikindi hans. Jafnframt telur kærandi að honum muni ekki standa til boða fjárhagsaðstoð verði hann sendur aftur til Grikklands.

Í greinargerð sinni gerir kærandi athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar í máli hans. Þegar komi að aðstæðum flóttafólks í Grikklandi hafi íslensk stjórnvöld lagt óeðlilega mikla áherslu á formlega eða lagalega stöðu þeirra sem hlotið hafa vernd í Grikklandi og á þau takmörkuðu úrræði sem ýmis hjálparsamtök bjóða upp á en standi aðeins litlum hluta þessa hóps til boða.

Kærandi gerir grein fyrir aðstæðum, aðbúnaði og réttarstöðu þeirra sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi og vísar í því sambandi til fjölda skýrslna alþjóðlegra stofnana og frjálsra félagasamtaka. Samkvæmt heimildum um aðstæður í Grikklandi sé ljóst að mikill hluti flóttafólks, sem fengið hafi vernd þar í landi, hafist við á götunni við lífshættulegar aðstæður eða leiti til annarra Evrópuríkja í von um lífskjör þar sem ekki gætir sama afskiptaleysis stjórnvalda við jafn alvarlegum skorti og þeim sem þrífist í Grikklandi. Vísar kærandi til þess að íslensk stjórnvöld hafi ekki sent umsækjendur um alþjóðlega vernd til Grikklands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar síðan í október 2010 en að mati kæranda sé staða fólks sem hafi fengið alþjóðlega vernd í Grikklandi engu skárri og beri íslenskum stjórnvöldum að stöðva allar endursendingar til Grikklands.

Flóttafólk verði fyrir ofbeldi í Grikklandi, m.a. af hendi lögreglunnar. Þegar lögreglan og stjórnvöld séu ekki sjálf ábyrg fyrir hatursglæpunum hafi þau ítrekað orðið uppvís að því að veita flóttafólki ekki næga vernd fyrir því mikla ofbeldi og fordómum sem almenningur og ýmsir öfgahópar hafi gagnvart flóttafólki. Hafi Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna fyrir nokkrum árum lýst yfir alvarlegum áhyggjum af kynþáttafordómum, útlendingahatri, ofbeldi og skorti á umburðarlyndi í Grikklandi og talið öryggi umsækjenda um alþjóðlega vernd og viðurkennds flóttafólks vera ógnað vegna þessa. Þegar komi að nauðsynlegri félagslegri aðstoð standi flóttafólk frammi fyrir alvarlegri mismunun í Grikklandi, m.a. þegar komi að húsnæði og atvinnu. Þá geri krafa stjórnvalda um skattnúmer, kennitölur og bankareikninga fyrir alla fjölskyldumeðlimi, ítarlegar sannanir um búsetu o.s.frv. flestu flóttafólki ómögulegt að sækja um framfærslu og félagslega aðstoð. Þá sé raunverulegt aðgengi flóttafólks að heilbrigðiskerfinu þar í landi verulega takmarkað, m.a. vegna gríðarlegs niðurskurðar síðustu ár. Þá kveði kærandi að einstaklingar með alþjóðlega vernd, sem sendir séu aftur til Grikklands, eigi á hættu að dveljast á götunni án þjónustu.

Kærandi byggir aðalkröfu sína á því að Útlendingastofnun hafi brotið gegn rannsóknarreglu stjórnsýsluréttarins sem lögfest sé í 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og með vísan til réttaröryggis hans komist kærunefnd ekki hjá því að senda málið til nýrrar meðferðar þar sem lagt verði fyrir stofnunina að taka afstöðu til framlagðra gagna er varða heilsufar hans. Útlendingastofnun hafi í hinni kærðu ákvörðun ekki tekið til skoðunar fjölmörg gögn sem kærandi hafi lagt fram með greinargerð við meðferð málsins til stofnunarinnar. Fram komi í ákvörðuninni að umfram komunótur frá Göngudeild sóttvarna hafi engin læknisfræðileg gögn verið lögð fram í málinu. Byggir kærandi á því að þetta sé rangt enda hafi hann lagt fram grískt vottorð vegna andlegra veikinda sinna. Hafi framangreindur annmarki haft efnisleg áhrif á niðurstöðu málsins. Þá hafi kærandi lagt fram fjölmörg gögn til Útlendingastofnunar um ofsóknir nafngreindra aðila á hendur sér en stofnunin hafi hvorki reifað þau né tekið afstöðu til þeirra. Þá birtist enginn rökstuðningur í hinni kærðu ákvörðun til þeirrar málsástæðu kæranda að honum stafi ógn af framangreindum einstaklingum í Grikklandi, sem stjórnvöldum beri skylda til skv. 22. gr. stjórnsýslulaga. Með vísan til þeirrar grundvallarforsendu að umsóknir aðila um alþjóðlega vernd fái efnislega úrlausn á tveimur stjórnsýslustigum sé réttaröryggi kæranda aðeins tryggt með því að Útlendingastofnun verði gert að fara yfir öll gögn málsins og taka þau öll til skoðunar.

Fallist kærunefnd ekki á aðalkröfu kæranda byggir hann kröfu sína um efnismeðferð í fyrsta lagi á því að ótækt sé að beita heimild a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þar sem hann njóti verndar 1. mgr. 42.gr., sbr. 3. mgr. 36. gr. laganna. Kærandi vísar til þess að íslenska ríkið sé bundið af grundvallarreglunni um non-refoulement þar sem lagt sé bann við því að senda einstakling þangað sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu. Með 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga hafi verið áréttaður sá vilji löggjafans að við möguleg brot gegn grundvallarreglunni með endursendingu til annars Evrópuríkis skuli taka umsóknir um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar. Kærandi telji að túlkun íslenskra stjórnvalda á dómum Mannréttindadómstóls Evrópu sé röng og að með núverandi framkvæmd firri þau sig ábyrgð skv. framangreindri grundvallarreglu langt umfram efni. Kærandi bendir á nánar tilgreinda dóma Mannréttindadómstólsins, máli sínu til stuðnings, og telur að við endursendingu hans til Grikklands muni íslensk stjórnvöld gerast brotleg við fyrrgreinda grundvallarreglu. Kærandi telur að við endursendingu til Grikklands muni lífsgæði hans ekki aðeins versna verulega heldur muni lífskjör hans ekki ná því lágmarki sem 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu kveði á um. Kærandi kveður að þörf hans fyrir mannúðarvernd hér á landi sé sérstaklega brýn og að fyrir hendi séu sannfærandi mannúðarástæður. Telji kærandi því að íslenskum stjórnvöldum sé skylt að taka mál hans til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kröfu sína um efnismeðferð byggir kærandi í öðru lagi á því að uppi séu sérstakar ástæður í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og vísar í því sambandi til lagaáskilnaðarreglu 2. málsl. 2. mgr. 66. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 sem setji stjórnvöldum afar þröngar skorður við setningu stjórnvaldsfyrirmæla vegna meðferða umsókna um alþjóðlega vernd. Kærandi telji að reglugerð nr. 276/2018, um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, brjóti gegn lögmætisreglunni. Þar sé að finna skilyrði vegna sérstakra ástæðna sem ekki hafi stoð í settum lögum og önnur sem beinlínis gangi gegn ákvæðum laga um útlendinga. Þá vísar kærandi til lögskýringargagna máli sínu til stuðnings og telur að stjórnvöld hér á landi hafi við túlkun sína á hugtakinu sérstakar ástæður horft í of ríkum mæli til mannréttindasáttmála Evrópu og notað dómafordæmi alþjóðadómstóla til að skerða réttindi umsækjenda um alþjóðlega vernd. Í ljósi markmiðs laga um útlendinga hafni kærandi því að við mat á sérstökum ástæðum hafi sjónarmið um skilvirkni umsóknarferilsins og mikilvægi samvinnu aðildarríkja Dyflinnarsamstarfsins nokkurt vægi. Þá vísar kærandi til þess að hvergi í lögskýringargögnum sé að finna kröfur um hátt alvarleikastig erfiðleika, alvarlega mismunun, verulegar og óafturkræfar neikvæðar afleiðingar á andlega eða líkamlega heilsu eða að meðferð sjúkdóms sé aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Þessar kröfur hafi enga stoð í lögum og gangi gegn lögmætisreglunni. Kærandi telur að hann sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga vegna andlegra veikinda sinna. Vísar kærandi til þess að hann hafi nú þegar fullnýtt rétt sinn til búsetu í flóttamannabúðum í Grikklandi, honum standi ekki lengur til boða framfærsla og m.a. sökum tungumálaerfiðleika sé honum gert ómögulegt að vinna fyrir sér löglega. Þá muni kærandi eiga erfitt uppdráttar í Grikklandi, m.a. vegna þeirra alvarlegu fordóma sem þar ríki gagnvart flóttafólki. Með vísan til þessa telji kærandi að hann muni verða fyrir alvarlegri mismunun við endursendingu til Grikklands og verði staða hans verulega síðri en staða almennings þar í landi og íslenskum stjórnvöldum sé því skylt að taka umsókn hans til efnismeðferðar á grundvelli sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins var kæranda veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi þann 19. desember 2017 og hefur gilt dvalarleyfi þar í landi til 21. desember 2020. Að mati kærunefndar felur sú vernd sem kærandi nýtur í Grikklandi í sér virka alþjóðlega vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi [...] karlmaður. Kærandi hefur m.a. greint frá því í viðtölum hjá Útlendingastofnun að hann hafi orðið fyrir pyndingum [...]. Í gögnum um heilsufar kæranda kemur m.a. fram að hann hafi í nokkur skipti leitað sér heilbrigðisþjónustu vegna andlegrar vanlíðanar og fengið ávísað lyfjum vegna svefnerfiðleika og kvíða. Þá hafi kærandi hitt sálfræðing á Göngudeild sóttvarna. Jafnframt kemur fram í framangreindum gögnum að kærandi hafi [...] farið með sjúkrabíl á bráðamóttöku Landspítalans. Þá kemur fram í gögnum frá Göngudeild sóttvarna að hann hafi verið á geðdeild og útskrifast án greiningar. Engin gögn liggja hins vegar fyrir í málinu um veru kæranda á geðdeild Landspítalans en kæranda var leiðbeint af kærunefnd að leggja slík gögn fram.

Það er mat kærunefndar að framangreind gögn beri með sér að kærandi teljist hafa sérþarfir í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga sem taka þurfi tillit til við meðferð málsins.

Í greinargerð kæranda er byggt á því að Útlendingastofnun hafi ekki horft til heilsufarsgagna frá Grikklandi sem kærandi lagði fram við meðferð málsins. Haldi kærandi því fram að sá annmarki hafi haft efnisleg áhrif á niðurstöðu málsins. Við meðferð máls hjá kærunefnd liggja hin sömu gögn fyrir er varða heilsufar kæranda og hjá Útlendingastofnun auk frekari gagna frá íslenskum heilbrigðisstofnunum sem urðu til eftir að ákvörðun var tekin í máli hans hjá Útlendingastofnun. Þá hefur kærunefnd leiðbeint kæranda um frekari framlagningu gagna, en engin frekari gögn voru lögð fram. Það er mat kærunefndar að þau heilsufarsgögn sem liggja fyrir varpi nægjanlega skýru ljósi á andlega heilsu hans, eins og hún er nú, en eins og áður hefur komið fram þá hefur kærandi í nokkur skipti leitað sér heilbrigðisþjónustu hér á landi vegna andlegrar heilsu hans. Því sé mál hans nægilega upplýst að því er varðar heilsufar, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga.

Aðstæður í Grikklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

• 2018 Report on International Religious Freedom – Greece (United States Department of State, 21. júní 2019);

• 2018 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 13. mars 2019);

• Amnesty International Report 2017/18 – Greece (Amnesty International, 22. febrúar 2018);

• Asylum Information Database, National Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, 29. mars 2019);

• Commissioner for Human Rights: Report of the Commissioner for Human Rights of the Council of Europe, Dunja Mijatovic, following her visit to Greece from 25 to 29 June 2018 (Council of Europe, 6. nóvember 2018);

• ECRI Report on Greece (fifth monitoring cycle) (European Commission against Racism and Intolerance, 24. febrúar 2015);

• EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017);

• Freedom in the World 2019 – Greece (Freedom House, 2019);

• Greece as a Country of Asylum – UNHCR‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015);

• Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017);

• Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017);

• Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017);

• State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016);

• Upplýsingar af vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal): https://e-justice.europa.eu, og

• World Report 2019 – European Union (Human Rights Watch, 17. janúar 2019).

Af ofangreindum gögnum verður ráðið að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur m.a. bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagur Grikklands hefur haft á aðstæður einstaklinga sem hafa hlotið alþjóðlega vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifa oft á jaðri samfélagsins og búa í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sambærilegan rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst jafnframt sjálfkrafa aðgangur að vinnumarkaði. Þá veita frjáls félagasamtök einstaklingum með alþjóðlega vernd aðstoð við að kynna sér réttindi sín í Grikklandi.

Einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi eiga rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins og hefur kostnaðarþátttaka almennings aukist við kaup á lyfjum og þjónustu. Þannig geti verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu þar í landi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Á þetta jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafa rétt til dvalar í ríkinu. Sem fyrr segir eiga einstaklingar með alþjóðlega vernd sama rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar en aðgengi þeirra að húsnæði er háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með löglega dvöl í Grikklandi. Fá gistiskýli eru í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði er til staðar sem einungis er ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt getur reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin er mikil og eru dæmi um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum við mjög bágar aðstæður. Á þetta einnig við um einstaklinga sem hafa verið sendir til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum.

Í framangreindum gögnum kemur fram að grísk yfirvöld veiti einstaklingum með alþjóðlega vernd sem búa undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna. Einstaklingar sem hyggjast nýta sér úrræðið þurfa að uppfylla ýmis skilyrði og má sem dæmi nefna að þeir þurfa að hafa kennitölu, skattnúmer, gilt dvalarleyfi og bankareikning. Þá þurfa þeir m.a. að framvísa leigusamningi í þeim tilvikum þegar þeir búa í leiguhúsnæði og í tilviki heimilislausra einstaklinga þurfa þeir að framvísa vottorði um heimilisleysi frá gistiskýlinu eða sveitarfélaginu þar sem þeir búa. Þá kemur fram í fyrrnefndum gögnum að engin sérúrræði eru til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. þolendur pyndinga.

Í framangreindri skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins kemur fram að dæmi séu um að flóttafólk sé beitt ofbeldi, þ. á m. af hendi grísku lögreglunnar. Þá kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggi bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur séu ofbeldisbrot rannsökuð af grísku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsaki meint brot lögreglu. Af framangreindri skýrslu verður ráðið að ýmsir annmarkar séu á dómskerfi landsins en sjálfstæði dómstóla sé tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga. Þá kemur fram á vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að útlendingar í Grikklandi sem séu þolendur glæpa og tali hvorki né skilji grísku eigi rétt á túlkaþjónustu og upplýsingum um mál þeirra á tungumáli sem þeir skilji.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun aðildarríkis um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið byggt á því að sú meðferð sem einstaklingur á von á við brottvísun eða frávísun verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til að ákvörðunin verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars. Við mat á umræddu alvarleikastigi hefur dómstólinn jafnframt litið til annarra þátta, t.d. hvort einstaklingurinn er í viðkvæmri stöðu, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Khlaifia o.fl. gegn Ítalíu (nr. 16483/12) frá 15. desember 2016.

Í ákvörðun í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013 kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við brottvísun eða frávísun frá aðildarríki nái ekki því alvarleikastigi að teljast brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóta alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem standi til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að valda broti á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæli gegn endursendingu.

Að mati kærunefndar eru ekki fyrir hendi sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður sem mæla gegn endursendingu í málinu enda telur nefndin að ekki hafi verið sýnt fram á að horfur kæranda í Grikklandi, að því er varðar efnisleg gæði, líkamlega eða andlega heilsu, séu þess eðlis að raunveruleg og yfirvofandi hætta sé á að hann mæti erfiðleikum sem eru nægilega alvarlegir til að falla innan gildissviðs 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sjá til hliðsjónar t.d. ákvörðun Mannréttindadómstóls Evrópu í máli E.T. og N.T. gegn Sviss og Ítalíu (nr. 79480/13) frá 30. maí 2017. Því er það mat nefndarinnar að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda séu ekki slíkar að endursending hans til Grikklands verði talin ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð. Með vísan til framangreinds og umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem kærandi nýtur alþjóðlegrar verndar í Grikklandi telur kærunefnd að tryggt sé að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Kærandi hefur m.a. borið fyrir sig að sérstakar ástæður eigi við í máli hans þar sem hann verði fyrir mismunun í Grikklandi, skortur sé á viðhlítandi geðheilbrigðisþjónustu og annarri félagslegri þjónustu, þá hafi hann orðið fyrir árásum og hótunum í Grikklandi af hendi tiltekinna aðila, sem hann hefur lagt fram gögn því til stuðnings, og að hann upplifi sig ekki öruggan þar í landi.

Þrátt fyrir aðgangshindranir sem lýst hefur verið hér að framan hefur kærandi heimild til að stunda atvinnu í Grikklandi og á rétt á félagslegri aðstoð til jafns við gríska ríkisborgara. Þá verður ráðið af framangreindum gögnum að kærandi geti leitað ásjár grískra yfirvalda, verði hann fyrir mismunun á grundvelli kynþáttar þar í landi. Má jafnframt ráða af fyrirliggjandi gögnum að óttist kærandi um öryggi sitt í Grikklandi geti hann leitað til lögreglu eða annarra þar til bærra stjórnvalda sökum þess. Að mati kærunefndar bera gögn málsins því ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að hann geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulegra síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Í því sambandi hefur nefndin jafnframt litið til þess sem fram kemur í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga að efnahagslegar ástæður geti ekki talist til sérstakra ástæðna.

Svo sem áður hefur komið fram þá hefur kærandi glímt við andleg veikindi og m.a. fengið ávísað lyfjum vegna þeirra. Af framburði kæranda svo og af gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi, verður ráðið að kærandi eigi rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu og nauðsynlegum lyfjum. Í ljósi fyrirliggjandi upplýsinga, þ.á m. gagna sem kærandi lagði fram við meðferð málsins frá grískum heilbrigðisstofnunum, telur kærunefnd ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi geti fengið viðhlítandi aðstoð í Grikklandi vegna heilsufarsvandamála sinna. Það er mat kærunefndar að gögn málsins bendi ekki til þess að kærandi glími við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð er aðgengileg við hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá er það mat nefndarinnar að ekki sé fyrir hendi ástæða í máli kæranda er varðar heilsufar hans sem sé svo einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði framhjá henni litið, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Það er mat nefndarinnar að aðstæður kæranda er varða andlega heilsu hans séu ekki slíkar að hann muni ekki geta sótt sér þá heilbrigðisþjónustu í Grikklandi sem hann hefur þörf á.

Það er jafnframt mat kærunefndar að málsástæður kæranda að öðru leyti verði ekki taldar til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 2. júlí 2019 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 16. júní 2019.

Athugasemdir kæranda við ákvörðun Útlendingastofnunar

Svo sem fram hefur komið gerir kærandi í greinargerð sinni ýmsar athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar. Meðal annars gerir kærandi athugasemd við það mat stofnunarinnar að kærandi teljist ekki einstaklingur í sérstaklegra viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga, auk þess sem kærandi telur að reglugerð nr. 276/2018 eigi sér ekki lagastoð og gangi gegn lögmætisreglunni.

Eins og að framan greinir hefur kærunefnd lagt einstaklingsbundið mat á umsókn kæranda og komist að niðurstöðu um að synja honum um efnismeðferð með vísan til ákvæða laga um útlendinga eins og þau hafa verið útfærð í reglugerð um útlendinga. Þá hefur kærunefnd í fyrri úrskurðum sínum komist að þeirri niðurstöðu að tilvitnuð reglugerð skorti ekki lagastoð. Er niðurstaða í málinu byggð á túlkun kærunefndar á framangreindum ákvæðum og sjónarmiðum sem nefndin telur málefnaleg eins og að framan hefur verið lýst. Að öðru leyti telur kærunefnd ekki tilefni til umfjöllunar um þau rök sem kærandi hefur fært fram við meðferð málsins hjá nefndinni.

Frávísun

Samkvæmt gögnum málsins kom kærandi hingað til lands þann 15. júní 2019. Hann sótti um alþjóðlega vernd þann 16. júní 2018. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Kæranda er leiðbeint um að með úrskurði kærunefndar nr. 350/2019, dags. 28. ágúst 2019, ákvað nefndin að breyta framkvæmd varðandi afmörkun 12 mánaða tímabilsins sem vísað er til í 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Eins og fram kemur í úrskurðinum eru lok tímabilsins þegar fyrir liggur endanleg ákvörðun á stjórnsýslustigi vegna þess stjórnsýslumáls sem hófst með framlagningu umsóknar um alþjóðlega vernd. Þessi breytta stjórnsýsluframkvæmd leiðir til þess að þótt ekki komi til flutnings kæranda úr landi innan 12 mánaða frá upphafi málsins hefur það ekki þýðingu fyrir þann frest sem 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga tekur til.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Áslaug Magnúsdóttir

Árni Helgason                                                                               Bjarnveig Eiríksdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum