Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 47/2019 úrskurður 11. júní 2019

Mál nr. 47/2019                     Eiginnafn:      Bentley (kk.)

 

Hinn 11. júní 2019 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 47/2019, en erindið barst nefndinni 16. maí. Málið var fyrst tekið fyrir á fundi nefndarinnar 22. maí, en afgreiðslu þess frestað.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn.
  5. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Í þessu máli reynir á skilyrði nr. tvö hér að framan um að nafn megi ekki brjóta í bága við íslenskt málkerfi, en með því er átt við „samsafn þeirra reglna sem unnið hafa sér hefð í íslensku máli“, eins og segir í greinargerð með frumvarpi að núgildandi lögum um mannanöfn. Í íslenskum mannanöfnum er almenna reglan sú að nöfn sem enda á –ey eru kvenmannsnöfn. Þess vegna telst karlmannsnafnið Bentley brjóta í bága við íslenskt málkerfi. Á mannanafnaskrá eru þó tvö karlmannsnöfn sem enda á –ey, en  þau töldust hafa áunnið sér hefð í íslensku. Þetta eru nöfnin Stanley og Huxley.

Rétt er að geta þess að sé ákvæði 5. gr. mannanafnalaga túlkað eftir orðanna hljóðan skal ekki taka á mannanafnaskrá nöfn sem teljast brjóta í bág við íslenskt málkerfi þótt þau geti talist hafa áunnið sér hefð. Samkvæmt þeiri túlkun, sem hefur verið lögð til grundvallar í störfum nefndarinnar síðustu ár, hefði ekki átt að samþykkja áðurgreind nöfn. Mannanafnanefnd hefur þó ekki alltaf túlkað ákvæðið samkvæmt orðanna hljóðan og raunar virðist ljóst af greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum að ekki var ætlun löggjafans, að þau skyldu túlkuð á þennan hátt.

Með hliðsjón af dómafordæmum, þar sem ákvæði mannanafnalaga eru skýrði rúmri skýringu, og með vísan til Stjórnarskrár lýðveldisins Íslands og Mannréttindasáttamála Evrópu, telur nefndin að unnt sé að samþykkja nafnið Bentley ef það getur talist hafa áunnið sér hefð í íslensku máli. Við túlkun mannanafnanefndar á hugtakinu hefð í 5. og 6. gr. laga um mannanöfn er stuðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 19. janúar 2015 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum og eldri vinnulagsreglum:

1.   Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:

 

  1. Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;
  2. Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;
  3. Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;
  4. Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910 eða 1920;
  5. Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1920.

 

2.  Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.

 

3.  Tökunafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

Tekið skal fram að vinnulagsreglurnar eru mannafnanefnd til stuðnings við mat sitt, en ekki ráðandi um niðurstöðuna bendi önnur atriði engu að síður til þess að ritháttur nafns hafi hefðast.

Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá ber enginn karl, sem uppfyllir skilyrði vinnulagsreglna mannanafnanefndar varðandi hefð, nafnið Bentley. Nafnið kemur ekki fyrir í manntölum frá 1703–1920. Þess vegna getur nafnið ekki talist hafa áunnið sér hefð í íslensku máli.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Bentley (kk.) er hafnað.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum