Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20Atvinnuleysistryggingar%20og%20vinnumarka%C3%B0sa%C3%B0ger%C3%B0ir

Mál nr. 22/2021 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 22/2021

Fimmtudaginn 26. ágúst 2021

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 18. janúar 2021, kærði A til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 16. desember 2020, um að synja umsókn hans um atvinnuleysisbætur.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 18. nóvember 2020. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 16. desember 2020, var kæranda tilkynnt að umsókn hans hefði verið synjað þar sem umbeðin gögn hefðu ekki borist stofnuninni.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 18. janúar 2021. Með bréfi, dags. 21. janúar 2021, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar vegna kærunnar. Með bréfi, dags. 19. febrúar 2021, barst greinargerð Vinnumálastofnunar þar sem fram kom að hin kærða ákvörðun hefði verið tekin til endurumfjöllunar með tilliti til nýrra gagna og umsókn kæranda samþykkt. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 22. febrúar 2021, var óskað eftir afstöðu kæranda vegna greinargerðar Vinnumálastofnunar. Sú beiðni var ítrekuð þann 29. apríl 2021. Svar barst ekki. 

II.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 16. desember 2020, um að synja umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur. Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndarinnar var vísað til þess að stofnunin hefði tekið mál kæranda til endurumfjöllunar með tilliti til nýrra gagna. Umsókn kæranda um greiðslur atvinnuleysisbóta var því samþykkt og bótaréttur ákvarðaður 100%. Úrskurðarnefndin óskaði eftir afstöðu kæranda til greinargerðar Vinnumálastofnunar en svar barst ekki.

Úrskurðarnefnd velferðarmála kveður upp úrskurði um ágreiningsefni sem kunna að rísa á grundvelli laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar, sbr. 11. gr. laganna. Af gögnum málsins verður ekki ráðið að ágreiningur sé til staðar á milli kæranda og Vinnumálastofnunar. Þar sem enginn ágreiningur er til staðar í máli þessu er kæru vísað frá úrskurðarnefndinni.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum