Hoppa yfir valmynd
Endurupptökunefnd

Mál nr. 7/2016

Hinn 12. maí 2019 var á fundi endurupptökunefndar tekið fyrir mál nr. 7/2016:

 

Beiðni um endurupptöku

vegna hæstaréttarmáls nr. 456/2014

Ákæruvaldið

gegn

Sigurjóni Þorvaldi Árnasyni,

Sigríði Elínu Sigfúsdóttur

og

Steinþóri Gunnarssyni

 

og kveðinn upp svohljóðandi

 

ÚRSKURÐUR:

I. Beiðni um endurupptöku

  1. Með erindi, dagsettu 19. september 2016, fór Sigurjón Þorvaldur Árnason þess á leit að hæstaréttarmál nr. 456/2014, sem dæmt var í Hæstarétti Íslands 8. október 2015, yrði endurupptekið hvað hann varðar.
  2. Að beiðni endurupptökubeiðanda var Sigurði G. Guðjónssyni hrl. veitt umboð til að gæta hagsmuna hans.
  3. Með vísan til 54. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla fjallar endurupptökunefnd um endurupptökubeiðni þessa. Nefndina skipa Björn Jóhannesson, Haukur Örn Birgisson og Þórdís Ingadóttir.

    II. Málsatvik

  4. Í hæstaréttarmáli nr. 456/2014 voru endurupptökubeiðandi, sem bankastjóri Landsbanka Íslands hf., og Sigríður Elín Sigfúsdóttir (SES), sem framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Landsbanka Íslands hf., bæði í lánanefnd bankans, ákærð fyrir umboðssvik samkvæmt 249. gr. almennra hegningarlaganr. 19/1940. Voru þau ákærð fyrir að hafa þann 30. september 2008 farið út fyrir heimildir til lánveitinga er þau í sameiningu veittu Imon ehf. lán að fjárhæð 5.163.000.000 kr. til að fjármagna að fullu kaup félagsins á 250.000.000 hlutum í Landsbanka Íslands hf. án fullnægjandi trygginga fyrir endurgreiðslu lánsins. Þá voru þau jafnframt ákærð fyrir markaðsmisnotkun samkvæmt 117. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007 fyrir að hafa ranglega látið líta svo út að fjárfestir hafi lagt fé til framangreindra hlutabréfakaupa og borið af þeim fulla markaðsáhættu.
  5. Þá var endurupptökubeiðanda og Steinþóri Gunnarssyni (SG), forstöðumanni verðbréfamiðlunar hjá Landsbanka Íslands hf., gefin að sök markaðsmisnotkun samkvæmt 117. gr. laga um verðbréfaviðskipti við sölu Landsbanka Íslands hf. á annars vegar 200.000.000 hlutum í bankanum, sem voru í eigu hans, til Imon ehf. 3. október 2008 og hins vegar 199.000.000 hlutum í bankanum, sem einnig voru í eigu hans, til Azalea Resources Ltd. sama dag og þannig gefið eftirspurn hlutabréfa í Landsbanka Íslands hf. ranglega og misvísandi til kynna.
  6. Í dómi Hæstaréttar Íslands í máli nr. 456/2014 var talið að endurupptökubeiðandi og SES hefðu átt að gera sér grein fyrir því að með því að veita Imon ehf. lán gegn tryggingum, sem metnar höfðu verið til verðs á alls ónothæfum grunni og voru að auki langt frá því sem almennt skyldi miða við samkvæmt útlánareglum Landsbanka Íslands hf., væru þau, við þær aðstæður sem ríktu á fjármála- og verðbréfamörkuðum, að víkja á freklegan hátt frá því sem af þeim var krafist í störfum þeirra fyrir Landsbanka Íslands hf. Þau hefðu því misnotað aðstöðu sína, sem hefði valdið því að félagið varð bundið við þær ráðstafanir fjármuna sem áttu sér stað þann 30. september 2008 og hafi leitt til verulegrar fjártjónshættu fyrir Landsbanka Íslands hf. Voru þau því sakfelld fyrir brot gegn 249. gr. almennra hegningarlaga. Þá var endurupptökubeiðandi sakfelldur fyrir brot gegn a-lið 1. töluliðar 1.mgr. 117. gr. laga um verðbréfaviðskipti vegna framangreindra viðskipta þar sem hann hafði, sem annar af bankastjórum Landsbanka Íslands hf., yfirsýn yfir hin umfangsmiklu kaup bankans á eigin hlutabréfum, auk þess sem hann tók ásamt SES ákvörðunina um að veita Imon ehf. fyrrgreint lán 30. september 2008. Endurupptökubeiðandi var jafnframt sakfelldur fyrir þátt sinn við sölu hlutabréfanna til Imon ehf. 3. október 2008, en sýknaður vegna viðskiptanna við Azalea Resources Ltd. sama dag.
  7. Í dómi Hæstaréttar Íslands í máli nr. 456/2014 var hafnað að vísa málinu frá héraðsdómi af þeim sökum að þáverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins hafi verið vanhæfur til að fara með mál endurupptökubeiðanda og að við rannsókn málsins hafi ekki verið viðhaft vinnulag sem samrýmdist fyrirmælum 70. og 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 um réttláta málsmeðferð og friðhelgi einkalífs. Þá var ekki fallistá með enduruppökubeiðanda og SG að Fjármálaeftirlitið hafi ekki kært eða vísað ætluðum framangreindum brotum þeirra 3. október 2008 til sérstaks saksóknara.
  8. Endurupptökubeiðandi var dæmdur til fangelsisvistar í þrjú ár og sex mánuði, en til frádráttar refsingunni kom gæsluvarðhald sem hann sætti frá 14. til 21. janúar 2011. Jafnframt var endurupptökubeiðandi dæmdur til greiðslu sakarkostnaðar, samtals 19.847.512 kr.
  9. Með dómi Hæstaréttar Íslands í máli nr. 456/2014 var snúið við að hluta niðurstöðu fjölskipaðs dóms Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. S-553/2013 frá 5. júní 2014. Í þeim dómi var endurupptökubeiðandi sýknaður of öllum kröfum ákæruvaldsins.

    III. Grundvöllur beiðni um endurupptöku

  10. Endurupptökubeiðandi byggir beiðni sína á því að uppfyllt séu skilyrði núgildandi 1 mgr. 228. gr. laga um meðferð sakamála nr. 80/2008 um endurupptöku máls sem dæmt hefur verið í Hæstarétti Íslands, sbr. 1. mgr. 232. gr. sömu laga.
  11. Fram kemur í beiðni endurupptökubeiðanda, dags. 19. september 2016, að hann byggi beiðni um endurupptöku einkum á þágildandi a og c-lið 1. mgr. 211. gr. laga um meðferð sakamála, nú samhljóða a og c-lið 1. mgr. 228. gr. laganna. Í fyrsta lagi séu komin fram ný gögn sem hrindi niðurstöðu Hæstaréttar Íslands um sekt endurupptökubeiðanda og í öðru lagi að við rannsókn málsins hafi ekki verið gætt þeirrar hlutlægni sem rannsakendum og ákærendum bar samkvæmt lögum um meðferð sakamála. Í þriðja lagi hafi dómstólar brotið gegn grunnreglu sakamálaréttarfars um að sérhver maður skuli talinn saklaus uns sekt hans sé sönnuð þannig að hafið sé yfir skynsamlegan vafa. Í fjórða lagi hafi verið búin til ný og áður óþekkt viðmið í refsirétti varðandi það hvenær aðili misnoti aðstöðu sína eða umboð í skilningi 249. gr. almennra hegningarlaga og í fimmta lagi hafi ekki verið lögð fram nein gögn sem hafi sannað auðgunarásetning endurupptökubeiðanda sem sé sjálfstætt viðbótar refsiskilyrði auðgunarbrota. Með bréfi endurupptökubeiðanda, dags. 9. febrúar 2017, með vísan til nýrra upplýsinga, er beiðni um endurupptöku jafnframt byggð á því að verulegir gallar hafi verið á meðferð málsins þannig að áhrif hafi haft á niðurstöðu þess, sbr. þágildandi d-lið 1. mgr. 211. gr. laga um meðferð sakamála, nú samhljóða d-lið 1. mgr. 228. gr. laganna. Endurupptökubeiðandi telji að tveir af dómurum málsins í Hæstarétti Íslands, þeir Viðar Már Matthíasson og Eiríkur Tómasson, hafi verið vanhæfir til þess að dæma í málinu vegna hlutafjáreignar í Landsbanka Íslands hf. á tímabilinu 2007-2008.
  12. Í beiðni um endurupptöku er vísað til þess að með dómi Hæstaréttar Íslands í máli nr. 456/2014 hafi verið snúið við sýknudómi endurupptökubeiðanda og vikið frá mati Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. S-553/2013 sem skipaður hafi verið sérfróðum meðdómanda. Héraðsdómur hafi talið sannað að viðbótarveð í stofnfjárhlutum í Byr sparisjóði hf. hafi verið allt að 1,5 milljarður kr. og miðaði þá við verðmat sem lánasérfræðingur bankans, Árni Maríasson (ÁM), hafði lagt fyrir SES og endurupptökubeiðanda. Dómur Hæstaréttar Íslands byggi meðal annars á því að engin verðmæti hafi verið í viðbótarveðinu í Byr sparisjóði hf. umfram þær skuldir sem þegar hvíldu á þeim bréfum. Fram komi í dómi Hæstaréttar Íslands að endurupptökubeiðandi og SES hafi reist ákvörðun sína frá 30. september 2008 um að lána Imon ehf. fé „á alls ónothæfum grunni“ en ekki hafi verið lögð fram ný gögn sem hnekktu mati héraðsdóms á verðmati ÁM. Endurupptökubeiðandi telji túlkun Hæstaréttar Íslands vera ranga og rökstyður beiðni sína um endurupptöku á nýjum gögnum, alls 26 fylgiskjölum sem aflað var og til voru þegar rannsókn á sakargiftum á hendur endurupptökubeiðanda fór fram frá júlí 2009 og fram á árið 2012. Umrædd gögn hafi átt að vera aðgengileg Fjármálaeftirlitinu og mögulega til í fórum þess þegar stofnunin bar fyrstu sakir á endurupptökubeiðanda með bréfi til sérstaks saksóknara þann 20. maí 2009. Endurupptökubeiðandi telji líklegt að gögnin hafi verið til hjá stofnuninni þegar stofnunin kærði hann til embætti sérstaks saksóknara 19. október og 2. desember 2010. Umrædd gögn hefðu í síðasta lagi átt að vera hluti af rannsókn Imon málsins hjá embætti sérstaks saksóknara. Hin nýju gögn varpi ljósi á samningaviðræður á milli stjórnar Byrs sparisjóðs hf. og stjórnar Glitnis banka hf. á tímabilinu 19. september til 24. september 2008, þar sem tekist var á um verðmæti Byrs sparisjóðs hf. Gögnin sýni að aðilar voru að meta og höfðu látið meta fyrir sig verðmæti Byrs sparisjóðs hf. og að það mat hafi verið í samræmi við matið sem unnið hafi verið af ÁM sem lá til grundvallar ákvörðunar endurupptökubeiðanda og SES. Jafnframt liggi fyrir að þessir aðilar hafi komið sér saman um verð á Byr sparisjóði hf. sem samþykkt hafi verið af báðum stjórnum bankanna. Endurupptökubeiðandi byggi á því að það liggi því fyrir nýjar upplýsingar sem ekki voru inni í málinu fyrir dómi sem sýni samtímamat á verðmætum Byrs sparisjóðs hf. Annars vegar verðmat sem varð til í samningum milli stjórna fyrirtækjanna og hins vegar innanhúsmat Glitnis banka hf., unnið af sérfræðingum bankans í verðmati fyrirtækja. Glitnir banki hf., sem væntanlegur kaupandi Byrs sparisjóðs hf., hafi ekki haft neina hagsmuni af því að ofmeta verðmæti Byrs sparisjóðs hf. og því skipti þeirra mat miklu máli. Framangreind gögn skipti veigamiklu máli við mat á sakleysi eða sekt endurupptökubeiðanda í ljósi þess að eftirfarandi komi fram í dómi Hæstaréttar Íslands: „Ekkert liggur fyrir um raunverulegt verðmæti stofnfjárbréfa í Byr sparisjóði 30. september 2008.“
  13. Endurupptökubeiðandi telur að hinum nýju upplýsingum megi skipta í nokkra þætti:
    1. Í fyrsta lagi liggi nú fyrir gögn sem sýni að stjórnir Byrs sparisjóðs hf. og Glitnis banka hf. sömdu um og samþykktu, á formlegum stjórnarfundum í vikunni fyrir lánveitinguna, hvert verðmæti Byrs sparisjóðs hf. ætti að vera í skiptum fyrir bréf í Glitni banka hf. Það liggi því fyrir verðmat sem varð til við samning tveggja aðila á félaginu. Jafnframt liggi fyrir ítarleg verðmatsskýrsla dagsett 24. september 2008 eða sex dögum fyrir lánveitinguna um verðmæti Byrs sparisjóðs hf. Þessi gögn sýni að mat ÁM var langt í frá byggt á ónothæfum grunni heldur komi í ljós að efri mörk ÁM á verðmætum Byrs sparisjóðs hf. voru undir báðum þessum mötum sem ekki voru nema sex daga gömul þegar ÁM lagði sitt mat fram.
    2. Í öðru lagi liggi nú fyrir skrifleg sönnun þess að Glitnir banki hf. mat það svo á þeim tíma sem ákvörðun um lánið var tekin að verðmæti Byrs sparisjóðs hf. ætti ekki að breytast mikið við sveiflur á verðmætum hlutabréfa. Þessi niðurstaða skipti miklu þar sem í dómi Hæstaréttar Íslands segi: „að þar sem verðmæti fjármálafyrirtækja hafi almennt rýrnað á markaði hér á landi, eftir að ráðagerð um yfirtöku ríkisins á Glitni banka hf. var kunngerð daginn áður, sé þó hafið yfir skynsamlegan vafa að heildarvirði þeirra stofnfjárbréfa, sem voru í eigu Imon ehf., hafi þá verið lægra en skuld félagsins við Landsbanka Íslands hf. vegna lánanna sem því höfðu áður verið veitt á árunum 2007 og 2008“. Miðað við framangreint sé ljóst að þessi fullyrðing sé í andstöðu við samtímahugmyndir um næmni verðmæta Byrs sparisjóðs hf. fyrir breytingum á hlutabréfaverði.
    3. Í þriðja lagi hafi nú verið lögð fram gögn sem sýni að hlutabréf í innlendum fjármálafyrirtækjum lækkuðu að meðaltali um 10% á tímabilinu 26. september 2008 til 30. september 2008, þ.e. frá því fyrir tilkynningu um ráðagerð ríkisins um yfirtöku á Glitni banka hf. til dagsloka 30. september 2008. 10% lækkun á verðmætum Byr sparisjóðs hf. bréfanna, sem metin voru á 4.211 til 5.269 milljónir kr. samkvæmt mati ÁM, sé minni lækkun en svo að fullyrðing Hæstaréttar Íslands um að eigið fé Imons ehf. verði við það uppurið. Hið rétta sé að eigið fé Imon ehf., eftir 10% lækkun á verðmætum Byr sparisjóðs hf., var allt að 982 milljónir kr.
    4. Í fjórða lagi séu lagðar fram upplýsingar um fjölda annarra samþykktra lánamála í Landsbanka Íslands hf. frá árunum 2003 til 2008 sem, hvað verðhlutföll varði, séu það lík veðhlutföllum Imon málsins að ljóst megi vera að Imon málið sé ekki eins einstakt og það að ákæra fyrir það og dæma gefi í skyn.
    5. Í fimmta lagi sé útskýrt hvers vegna skipt hafi máli fyrir hagsmuni Landsbanka Íslands hf. að salan til Imon ehf. gengi eftir því við það hafi eiginfjárhlutfall bankans hækkað miðað við 30. september 2008 um rúma fimm milljarða kr. Öfugt við skilning Hæstaréttar Íslands hafi því verið skynsamlegt að lána Imon ehf. við þær aðstæður sem voru þann 30. september 2008 og styrkja við það eiginfjárhlutfall bankans. Hugmyndum Hæstaréttar Íslands um að horfa eigi til þess að bankinn hefði allt eins getað selt bréfin þriðja aðila sé hafnað og lýst sem óraunhæfum í ljósi tímarammans sem unnið var eftir. Vel megi vera að fram hefði getað komið kaupandi sem óskað hefði eftir kaupum á umræddum bréfum án allrar fyrirgreiðslu af hálfu bankans á næstu vikum og mánuðum. En svo hafi allavega ekki verið þann 30. september 2008 og því tómt mál að tala um slíkt. Það að bréfin séu seld fyrir 30. september 2008 og komi þannig inn í eiginfé bankans miðað við 30. september 2008 sé ekki það sama og að selja bréfin miðað við t.d. 1. október 2008. Bankinn hafi því haft töluverða hagsmuni af því að bréfin væru seld fyrir 30. september 2008 og því ljóst að endurupptökubeiðandi og SES voru að vinna að hagsmunum bankans þegar þau samþykktu umrædda lánveitingu til Imon ehf.
    6. Í sjötta lagi megi nefna, að þrátt fyrir að aðalástæða þess að Hæstiréttur Íslands taldi markaðsmisnotkunina sannaða vera þá að ekkert viðbótarveð sem verðmæti var í hafi verið lagt undir við kaupin, þá hafi Hæstiréttur Íslands einnig minnst á að yfirsýn endurupptökubeiðanda hafi skipt máli í því sambandi. Til að skýra betur í hverju hin meinta yfirsýn fólst séu lögð fram sem ný gögn, afrit þeirra gagna sem endurupptökubeiðandi fékk afhent vegna vinnu sinnar sem bankastjóri, og skýrt hvers vegna rangt sé að endurupptökubeiðandi eigi vegna þeirra að teljast hafa haft þá yfirsýn yfir viðskipti Landsbanka Íslands hf. með eigin bréf að til markaðsmisnotkunar geti talist.
    7. Í sjöunda lagi er útskýrt að óásættanlegt sé að Hæstiréttur Íslands taki því sem gefnu að endurupptökubeiðandi hafi ákveðið svokölluð seinni viðskipti við Imon ehf. út frá niðurstöðu héraðsdóms um að endurupptökubeiðandi hefði getað hringt í ÁM vegna viðskiptanna úr öðrum síma en sínum eigin. Hvað þennan hlut varði sé orð gegn orði milli tveggja sakborninga, þar sem ÁM fékk síðar stöðu vitnis. Endurupptökubeiðandi kannast ekki við umrætt símtal sem ÁM heldur fram að hafi átt sér stað. Símtalarannsóknir embættis sérstaks saksóknara sýndu engin samskipti á milli ÁM og endurupptökubeiðanda á umræddum tíma. Rangt sé að láta vafann falla sakborningi í óhag eins og gert var í héraðsdómi með vísan til þess að endurupptökubeiðandi hefði getað hringt í ÁM úr öðrum síma. Mat Hæstaréttar Íslands að endurskoða ekki þessa niðurstöðu héraðsdóms sé ekki í samræmi við hefðbundin viðmið í sakamálaréttarfari þar sem vafaatriði eigi að túlka sakborningi í hag en ekki óhag og allir skuli vera saklausir uns sekt sé sönnuð.
  14. Að mati endurupptökubeiðanda falli rannsakendur, ákærendur og Hæstiréttur Íslands í þá gryfju við rannsókn og dómsmeðferð hæstaréttarmáls nr. 456/2014 að meta gerðir endurupptökubeiðanda og atvik máls á forsendum efnahags- og bankahrunsins, sem varð 6. október 2008. Með því að telja sök sannaða á grundvelli atvika, sem gerðust eftir að ákvörðun um lánveitingu til Imon ehf. hafi verið tekin, atvika sem verði ekki rakin til háttsemi endurupptökubeiðanda, hafi verið brotið gróflega gegn mannréttindum hans og hann saklaus dæmdur til langrar fangelsisvistar, sem nú blasi við að hann þurfi að afplána. Endurupptökubeiðandi telji að brotið hafi verið gegn hlutlægnisskyldu rannsakanda við rannsókn málsins. Að mati endurupptökubeiðanda hefði ákæruvaldið getað aflað matsgerðar eða annarra sönnunargagna sem hnekktu verðmati ÁM en kaus að gera það ekki. Hæstiréttur Íslands geti ekki leyst ákæruvaldið undan sönnunarfærslu um sekt sakborninga. Það hafi verið ákæruvaldsins að sanna að raunverulegt verðmæti stofnfjárbréfa í Byr sparisjóðihf. þann 30. september 2008 hafi verið annað og minna en ÁM gekk út frá þegar hann vann að því að meta eigna- og greiðslustöðu Imon ehf. Hæstiréttur hafi hafnað mati ÁM án þess að ákæruvaldið sannaði að það mat væri rangt með matsgerð óvilhalls aðila og hafi þ.a.l. ekki haft nein gögn um verðmæti Byr sparisjóðs hf. þann 30. september 2008, sem gátu hnekkt mati ÁM. Allan vafa um verðmæti Byrs sparisjóðs hf. hafi átt að meta endurupptökubeiðanda í hag. Endurupptökubeiðandi vísar einnig til þess að á meðan rannsókn málsins hafi staðið hafi ÁM gegnt stöðu sakbornings í umræddu máli. Hann hafi borið við yfirheyrsluna að endurupptökubeiðandi hafi hringt í hann heim að kvöldi fimmtudagsins 2. október 2008 til að ræða möguleika Imon ehf. á enn frekari kaupum á hlutum í Landsbanka Íslands hf. af bankanum sjálfum gegn því að bankinn veitti lán til þeirra kaupa einnig. Ítarleg rannsókn á símtalaskrá endurupptökubeiðanda var heimiluð með dómsúrskurði, sú rannsókn hafi sýnt að hann hafði ekki átt neitt símtal við ÁM. Héraðsdómur hafi gefið lítið fyrir þá niðurstöðu og ályktað sem svo að endurupptökubeiðandi gæti hafa notað annað símtæki en þau sem rannsóknin beindist að sem Hæstiréttur Íslands taki svo undir í dómi sínum. Endurupptökubeiðandi byggi á að ályktun bæði héraðsdóms sem og Hæstaréttar Íslands brjóti gegn 1. mgr. 109. gr. laga um meðferð sakamála, sem og þeim stjórnarskrárvarða rétti hans til þess að teljast saklaus uns sekt hans sé sönnuð. Framangreint sönnunargagn, þ.e. skrá yfir símtöl endurupptökubeiðanda, hafi verið rangt metið sem leiddi til sakfellingar hans.
  15. Að mati endurupptökubeiðanda styðst Hæstiréttur Íslands við ný og áður óþekkt viðmið í refsirétti varðandi það hvenær aðili misnoti aðstöðu sína eða umboð í skilningi 249. gr. almennra hegningarlaga. Þar að auki hafi ekki verið lögð fram nein gögn sem sanni auðgunarásetning endurupptökubeiðanda. Í dómi Hæstaréttar Íslands segi að endurupptökubeiðandi og SES hafi ekki farið út fyrir umboð sitt til lánveitinga og telur endurupptökubeiðandi að í ljósi þessa ætti að sýkna hann sem og SES af umboðssvikum. Í beinu framhaldi segi Hæstiréttur Íslands að endurupptökubeiðandi og SES hefðu einnig átt að líta til annarra regla, skráðra sem óskráða við ákvörðun sem þessa. Að mati endurupptökubeiðanda fáist framangreind röksemdafærsla Hæstaréttar Íslands illa staðist í ljósi þess að manni verði ekki gerð refsing nema að hafa gerst sekur um háttsemi sem refsing sé lögð við í lögum eða öldungis megi jafna til hegðunar, sem þar er afbrot talin, sbr. 1. gr. almennra hegningarlaga. Þar að auki sýni dómaframkvæmd Hæstaréttar Íslands, að ef eitthvað hafi skort á skýrleika inntaks umboðs í skilningi 249. gr. almennra hegningarlaga, verði að sýkna, sbr. hæstaréttarmál nr. 435/1997. Endurupptökubeiðandi byggi einnig á því að engin gögn hafi verið lögð fram sem sanni auðgunarásetning. Eftirfarandi komi fram í dómi Hæstaréttar Íslands: „Í samræmi við það hlutu bankastjórar Landsbanka Íslands hf. og þeir, sem komu í þeirra stað, að gera sér grein fyrir að hin víðtæka heimild þeirra til að taka ákvörðun um lán hafi eðli máls samkvæmt verið takmörkunum háð.“ Bankastjórn Landsbanka Íslands hf. hafi starfað eftir skýrum og ótvíræðum útlána- og áhættureglum sem endurupptökubeiðandi og SES fóru í hvívetna eftir og lágu fyrir í málinu. Að sama skapi hafi legið fyrir yfirlýsing endurupptökubeiðanda um að öllum útlánum væru takmörk sett vegna hagsmuna bankans. Ákvörðun endurupptökubeiðanda um lánveitingu til Imon ehf. þann 30. september 2008 hafi verið innan þeirra heimilda sem hann hafði sameiginlega með öðrum samkvæmt útlánareglum Landsbanka Íslands hf. með hagsmuni bankans að leiðarljósi. Í huga endurupptökubeiðanda var ákvörðun um lánveitingu til Imon ehf. tekin með mið af hagsmunum Landsbanka Íslands hf. líkt og kom fram við fyrstu yfirheyrslu yfir honum þann 10. júlí 2009. Endurupptökubeiðandi hafi fengið fyrstu upplýsingar um mögulega lánveitingu til Imon ehf. nokkrum vikum áður en endanleg viðskipti áttu sér stað. Leyfi fyrir viðskiptunum hafi ekki verið veitt við fyrstu umræðu um málið enda vildi endurupptökubeiðandi fá að hugsa málið. Ásetningur endurupptökubeiðanda hafi aldrei verið til þess að skaða hagsmuni Landsbanka Íslands hf., hvað þá afla öðrum fjárvinnings á kostnað bankans í skilningi 243. gr. almennra hegningarlaga.

    IV. Viðhorf gagnaðila

  16. Í umsögn ríkissaksóknara, dagsettri 8. desember 2016, telur hann að ekkert skilyrða í þágildandi a-d lið 1. mgr. 211. gr. laga um meðferð sakamála vera uppfyllt og því beri að hafna beiðninni.
  17. Hvað varði framlagningu nýrra gagna sem hrindi niðurstöðu Hæstaréttar Íslands um sekt endurupptökubeiðanda telur ríkissaksóknari að þau gögn breyti engu fyrir niðurstöðu Hæstaréttar. Hin nýju gögn sýni fram á að tryggingargildi eignarhluta Imon ehf. á stofnfjárhlutum í Byr sparisjóði hf. hafi verið að tilteknu verðgildi, þegar lánasamningur var gerður. Hæstiréttur Íslands byggi á því að sameining Byrs sparisjóðs hf. og Glitnis banka hf. og verðhugmyndir tengdar henni hafi verið út úr myndinni þegar lánveitingar til Imon ehf. hafi verið gerðar og eru forsendur þess raktar í dóminum. Að mati ríkissaksóknara breyti því engu að bæta við nýjum gögnum um þessi sameiningaráform.
  18. Hvað varði málsástæðu endurupptökubeiðanda um að rannsakendur og ákærendur hafi ekki við rannsókn málsins gætt þeirrar hlutlægni sem þeim bar samkvæmt lögum um meðferð sakamála, þá fái ríkissaksóknari ekki séð að framangreind málsástæða fái stoð í neinum tilgreindum ástæðum til endurupptöku, sem taldar séu upp í þágildandi a-d liðum 1. mgr. 211. gr. laga um meðferð sakamála, nema ef vera skyldi í b-lið. Krafa sé gerð um refsiverða háttsemi og skortur á hlutlægni verði að vera á mjög háu stigi til að mögulegt sé að slíkt teljist refsivert. Ríkissaksóknari vísi til þess að mat rannsakenda og ákæruvalds á sönnunargögnum lúti endurmati dómstóla og sönnunarbyrðina beri ákæruvaldið og sönnunarfærslan fari fram fyrir dómi. Tilvísanir endurupptökubeiðanda til meints skorts á hlutlægni rannsakanda breyti engu um þetta og geti í því máli sem vísað sé til í endurupptökubeiðninni ekki talist refsinæm háttsemi.
  19. Að því er snúi að málsástæðu endurupptökubeiðanda um að dómstólar hafi brotið gegn grunnreglu sakamálaréttarfars um að sérhver maður skuli talinn saklaus uns sekt hans sé sönnuð þannig að hafið sé yfir skynsamlegan vafa, fái ríkissaksóknari ekki séð hvað styðji þá málsástæðu og sjái ekki ástæðu til að fjalla um hana frekar.
  20. Ríkissaksóknari telji heldur ekki ástæðu til þess að fjalla um þá málsástæðu endurupptökubeiðanda þess efnis að búin hafi verið til ný og áður óþekkt viðmið í refsirétti varðandi það hvenær aðili misnoti aðstöðu sína eða umboð í skilningi 249. gr. almennra hegningarlaga. Bendi ríkissaksóknari á að óánægja endurupptökubeiðanda með túlkun dómstóla á lagareglum geti aldrei verið grundvöllur endurupptöku og því ekki hægt að fella þá málsástæðu að skilyrðum þágildandi a-d liða 1. mgr. 211. gr. laga um meðferð sakamála.
  21. Hvað varði málsástæðu endurupptökubeiðanda um að engin gögn hafi verið lögð fram sem sanni auðgunarásetning vísi ríkissaksóknari til rökstuðnings Hæstaréttar Íslands um að sannað sé að endurupptökubeiðandi og SES hafi af ásetningi valdið Landsbanka Íslands hf. verulegri fjártjónshættu þegar þau ákváðu að veita Imon ehf. lánið með þeim hætti sem gert var. Ríkissaksóknari fái ekki séð hvaða gögn geti hrundið röksemdum Hæstaréttar Íslands og telji að krafa um endurupptöku með heimild væntanlega í þágildandi a-lið 1. mgr. 211. gr. laga um meðferð sakamála fái ekki staðist. Hæstiréttur Íslands hafi metið það svo að hann þyrfti ekki frekari gagna við til stuðnings þessum ályktunum og hafi því mati ekki verið hnekkt. Þá hafi ekki verið sýnt fram á gögn sem þýðingu hafi um þetta.
  22. Ríkissaksóknari fái ekki séð að tilvísanir endurupptökubeiðanda vísi til afmarkaðra heimilda þágildandi 1. mgr. 211. gr. laga um meðferð sakamála til endurupptöku dæmdra mála og því beri að hafna beiðni um endurupptöku.

    V. Athugasemdir endurupptökubeiðanda

  23. Í athugasemdum endurupptökubeiðanda, dagsettum 6. febrúar 2017, ítrekar hann að hin nýju framlögðu gögn staðfesti meðal annars að útreikningar ÁM á veðhæfi stofnfjárhluta í Byr sparisjóði hf. hafi verið byggðir á traustum heimildum um Byr sparisjóð hf. og verðmæti sjóðsins, eins og það var talið vera í lok september 2008. Gögn þessi hafi öll verið aðgengileg Fjármálaeftirlitinu og öðrum aðilum sem komu að rannsókn málsins. Það hafi myndast verðmat á Byr sparisjóð hf. upp á 70,2 milljarða kr. í samningum tveggja óháðra aðila, þ.e. stjórnum Glitnis banka hf. og Byrs sparisjóðs hf. nokkrum dögum áður en lánið var veitt. Endurupptökubeiðandi bendi á, að það að hætt sé við samruna félaganna eftir tilkynningu ríkisins á yfirtöku á Glitni banka hf. 28. september 2008, og það að hlutabréf í Glitni banka hf. falli við það, breyti ekki verðmatinu á Byr sparisjóði hf. Í nýju gögnunum komi fram hið almenna viðhorf um áhættustig eignasafns Byrs sparisjóðs hf., að mati starfsmanna Glitnis banka hf. sem höfðu unnið skoðunina á Byr sparisjóði hf., að: „ólíkt mörgum öðrum íslenskum sparisjóðum hefur Byr óverulega áhættu af þróun hlutabréfamarkaða“. Af því leiði að verðmatið á Byr sparisjóði hf. helst þótt sviptingar verði á verðmætum Glitnis banka hf. eða fjármálafyrirtækja almennt vegna óróa á hlutabréfamarkaði. Ítrekað hafi komið fram í yfirheyrslum yfir endurupptökubeiðanda að hluti af ástæðu þess að hann taldi skynsamlegt að veita umrætt lán hafi verið að það myndi auðvelda mögulegan samruna Byrs sparisjóðs hf. og Landsbanka Íslands hf. Bókað hafi verið um slíkar hugmyndir á fundi bankaráðs 29. september 2008. Sú hugmynd hafi komið upp ef að einhverjum sökum ekki yrði úr samruna Glitnis banka hf. og Byrs sparisjóðs hf. Það að samrunafyrirætlun Byrs sparisjóðs hf. og Glitnis banka hf. falli niður breyti m.ö.o. alls ekki verðmatinu á Byr sparisjóði hf. Verðmatið standi því eðli máls óbreytt. Hin nýju gögn setji verðmat ÁM á Byr sparisjóði hf. í skýrara samhengi og staðfesti að það var rétt. Þar af leiðandi sé ekki hægt að fullyrða að endurupptökubeiðandi og SES hafi átt að gera sér grein fyrir að viðbótarveðið í Byr sparisjóði bréfunum hafi verið metið á alls ónothæfum grunni eins og Hæstiréttur Íslands fullyrði í dómi sínum. Áætlað kaupverð 70,2 milljarðar kr. var hærra en það mat sem lánasérfræðingurinn ÁM var með á sínu ákvörðunarblaði. Mat hans var að hámarki 68,3 milljarðar kr. Að mati endurupptökubeiðanda sé skilyrðum þágildandi a og c-liða 1. mgr. 211. gr. laga um meðferð sakamála uppfyllt.
  24. Endurupptökubeiðandi ítrekar málsástæðu sína um endurupptöku vegna óhlutdrægni rannsakenda sem og að brotið hafi verið gegn þeirri meginreglu sakamálaréttarfars að sérhver maður skuli talin saklaus uns sekt hans sé sönnuð. Hæpin sönnun sé fyrir aðkoma hans að málinu og því hefði átt að sýkna hann. Endurupptökubeiðandi ítrekar að hin nýju gögn hafi öll verið til staðar þegar rannsókn á sakargiftum fór fram og jafnvel mögulega til í fórum Fjármálaeftirlitsins þegar það kærði hann til embættis sérstaks saksóknara, auk þess sem þau hefðu í síðasta lagi átt að vera hluti af rannsókn Imon málsins. Endurupptökubeiðandi bendi á að af augljósum ástæðum sé erfitt að sanna framangreint og að gögnunum hafi viljandi verið haldið eftir en slík háttsemi teljist refsiverð og mætti fella undir þágildandi b-lið 1. mgr. 211. gr. laga um meðferð sakamála. Jafnframt liggi fyrir að forstjóri Fjármálaeftirlitsins, á þeim tíma sem kæran í Imon málinu var send til embættis sérstaks saksóknara, Gunnar Andersen, hraktist úr embætti fyrir alvarleg brot í starfi og hlaut dóm fyrir. Í því máli kærði Gunnar endurupptökubeiðanda til embættis sérstaks saksóknara. Af þeirri hegðun megi ráða hvaða hug hann bar til endurupptökubeiðanda og því enn frekari ástæða til að efast um heilindi eftirlitsins í málinu.
  25. Gagnaðili hafi ekki talið ástæðu til að fjalla um málsástæðu endurupptökubeiðandi að ný og áður óþekkt viðmið hafi verið búin til í refsirétti varðandi túlkun á 249. gr. almennra hegningarlaga þar sem óánægju hans með túlkun lagareglu geti ekki verið grundvöllur endurupptöku. Endurupptökubeiðandi gagnrýni hve langt var til seilst í að túlka staðreyndir þannig að hægt væri að flokka lánveitinguna til Imon ehf. sem umboðssvik og þá um leið markaðsmisnotkun. Að mati endurupptökubeiðanda er því eðli máls samkvæmt stutt í rangtúlkun, sbr. þágildandi c-lið 1. mgr. 211. gr. laga um meðferð sakamála. Endurupptökubeiðandi og SES hafi talið sig vera vinna bankanum heilt með umræddu láni í ljósi aðstæðna í viðleitni sinni til að auka eigið fé bankans. Það hafi ekki myndast fjártjónshætta í umræddu máli umfram þá áhættu sem þegar var fyrir hendi þar sem veð var tekið í hinum seldu bréfum þannig það hafi ekki farið nein verðmæti út úr bankanum og Imon ehf. gat ekki selt Landsbankabréfin án þess að greiða upp lánið. Bankinn gat aldrei verið verr settur en það að gera ekki neitt. Gagnrýni um ný og óþekkt viðmið í refsirétti varðandi það hvenær aðili misnoti aðstöðu sína eða umboð í skilningi 249. gr. almennra hegningarlaga sé því með öðrum þræði gagnrýni á ranga túlkun sönnunargagna sem hafi haft þau áhrif að niðurstaða dómsins reyndist röng.
  26. Endurupptökubeiðandi vísi til þess að engin gögn hafi verið lögð fram sem sanni auðgunarásetning. Að mati gagnaðila sé talið óljóst hvaða gögn geti hrundið röksemdum Hæstaréttar Íslands sem mat það svo að hann þurfti ekki frekari gögn til stuðnings ályktunum sínum. Endurupptökubeiðandi segi að dómur Hæstaréttar Íslands sé mótsögn við það sem fyrr segi í dóminum um að ljóst sé að verði bréfa Landsbanka Íslands hf. hafi verið haldið uppi. Í sama dómi séu þetta talin verðmæt bréf en annars staðar sé talið ljóst að þau hlytu að hafa fallið of lítið í verði því viðskipti eigin fjárfestinga Landsbanka Íslands hf. með bréfin hafi haldið verðinu uppi og bréfin þar af leiðandi væntanlega seld Imon ehf. á yfirverði með óeðlilegum ávinningi fyrir bankann. Endurupptökubeiðandi telji að annað hvort séu bréfin rétt verðlögð eða ekki. Ef umrædd markaðsmisnotkun sé búin að eiga sér stað sé klárlega verið að selja bréfin á of háu verði til Imon ehf. og því hæpið að tala um markaðsmisnotkun í þeim viðskiptum á þann hátt sem hér sé gert, hvað þá umboðssvik gagnvart bankanum. Hvaða veð liggi að baki lánveitingu sem og hver verðmæti þeirra verði, sé úrslitaatriði við mat á því hvort um möguleg umboðsvik og markaðsmisnotkun hafi verið að ræða. Tekið hafi verið veð í hinum seldu bréfum þannig að engin verðmæti fóru út úr bankanum og kaupandi, þ.e. Imon ehf., gat ekki selt Landsbankabréfin án þess að greiða upp lánið. Það að telja að fjártjónshætta hafi verið í málinu vegna þess að hægt hefði verið að selja einhverjum öðrum aðila bréfin án lánsfjármögnunar eða með einhverri ótilgreindri minni lánsfjármögnun sé ekki sá valkostur sem hin dæmdu stóðu frammi fyrir. Æskilegt var talið að auka við eigið fé bankans eins og bókfært hafði verið á bankaráðsfundi deginum áður. Engir peningar fóru út úr bankanum og viðbótarveð sem talið var gott var lagt undir til viðbótar við hin keyptu bréf. Líta verði til hins huglæga viðhorfs við mat á því hvort um auðgunarásetning hafi verið að ræða við lánveitinguna. Í gögnum málsins, yfirheyrslum og framburði vitna hafi komið ítrekað fram að endurupptökubeiðandi og SES töldu sig vera að vinna að heilindum fyrir bankann og vitni staðfestu fyrir dómi að þau töldu að bankinn hefði verið betur settur eftir lánveitinguna en fyrir. Fullyrðingar um að endurupptökubeiðandi og SES hefðu átt að vita að meiri líkur væru á því en minni að verðmæti trygginga fyrir lánum bankans til Imon ehf. myndi rýrna og þannig ekki hrökkva til greiðslu lánanna, ef að þeim yrði gengið, sé ekki sanngjörn. Slíkar fullyrðingar verði að vera rökstuddar en ekki byggðar á eftiráspeki. Ef satt væri að endurupptökubeiðandi og SES hefðu vitað að bréfin væri að fara lækka enn frekar, hefði einmitt verið rétt að veita umrætt lán. Var þá a.m.k. verið að selja bréf sem voru í eigu bankans fyrir þessa meintu fyrirsjáanlegu lækkun án þess að missa hald í þeim auk þess sem viðbótarveð var sett undir. Til viðbótar við mat og huglæga afstöðu endurupptökubeiðanda og SES á lánveitingunni og skynsemi hennar er tekið fram að bréf bankans höfðu lækkað umtalsvert síðastliðna 11 mánuði en bréf bankans voru í hámarki í október 2007. Lækkun bréfa í fortíð segi ekkert til um að bréfin eigi eftir að halda áfram að lækka í framtíð.
  27. Endurupptökubeiðandi kom ekki að útgreiðslu lánsins, hann undirritaði ákvörðunarblöð um að lánveiting yrði heimiluð miðað við þau skilyrði sem þar komi fram. Það sé hlutverk lánavinnsludeildar að bera ábyrgð á að skilyrði lánveitingar, sem fram komi í lánaskjali, og ákvörðunarblöð væru uppfyllt áður en lánveiting væri greidd út. Miðað við hin nýju framlögðu gögn telji endurupptökubeiðandi að nauðsynlegt sé að taka málið upp enda hægt að sýna fram á að hann og SES höfðu mátt gera ráð fyrir að matið sem lagt var fyrir þau og sýndi að umtalsverð verðmæti væru lögð undir í viðskiptunum auk hinna keyptu bréfa var skynsamlega unnið af lánsérfræðingi bankans miðað við þær aðstæður og upplýsingar sem lágu fyrir þegar ákvörðunin var tekin.

    VI. Ný málsástæða endurupptökubeiðanda

  28. Með bréfi, dagsettu 9. febrúar 2017, kom endurupptökubeiðandi á framfæri nýrri málsástæðu fyrir endurupptöku. Endurupptökubeiðandi byggi á því að verulegir gallar hafi verið á meðferð máls þannig að áhrif hafi haft á niðurstöðu þess, sbr. þágildandi d-liður 1. mgr. 211. gr. laga um meðferð sakamála.
  29. Endurupptökubeiðandi byggi á því að tveir dómarar við Hæstarétt Íslands, þeir Eiríkur Tómasson og Viðar Már Matthíasson, sem báðir dæmdu í máli endurupptökubeiðanda hafi verið vanhæfir til að dæma í málinu.
  30. Endurupptökubeiðandi vísi til þess að í dómi Hæstaréttar Íslands í málinu nr. 465/2014 segi: „Óvarlegar ákvarðanir þeirra um lánveitingar gátu því valdið hluthöfum í Landsbanka Íslands hf. stórum sem smáum, svo og öllum almenningi fjártjóni.“ Eftir að dómur gekk hafi komið fram upplýsingar í fjölmiðlum um hlutabréfaeign dómara við Hæstarétt Íslands í viðskiptabönkunum þremur og mögulegt tjón dómaranna vegna greiðsluþrots bankanna. Þann 9. desember 2016 hafi komið fram í fjölmiðlum að Eiríkur Tómasson og Viðar Már Matthíasson hefðu átt hluti í Landsbanka Íslands hf. Eiríkur hafi átt hluti að verðmæti 3,8 milljónir kr. og Viðar rúmlega 19 milljónir kr. Endurupptökubeiðandi fór fram á að endurupptökunefnd aflaði upplýsinga um framangreindar fréttir og óskaði eftir skýrum upplýsingum af fjármálaumsvifum dómara við Hæstarétt Íslands.
  31. Endurupptökubeiðandi telji að við mat á því hvað teljist há eða lág fjárhæð tjóns, sem dómari kann að hafa orðið fyrir svo hann teljist ekki vanhæfur, skipti mat dómarans sjálfs engu máli. Í fyrsta lagi verði að meta það út frá reglum sem dómurum hafi verið gert að fylgja varðandi eigin hagsmunaskráningu og í öðru lagi með hliðsjón af launakjörum þeirra sem dómara. Samkvæmt lögum um dómstóla nr. 15/1998 og 2. mgr. 7. gr. reglna nr. 463/2000 hafi sú skylda verið lögð á dómara að tilkynna nefnd um dómarastörf um eignarhlut dómara í félagi, sem hafi skráð gengi í verðbréfaviðskiptum, sé hluturinn að verðmæti allt að 3.000.000 kr. Eignarhlutur dómara í skráðu félagi, sem er að markaðsvirði yfir þrjár milljónir teljist því há fjárhæð samkvæmt þessum reglum. Þá verði að líta til þess hver launakjör dómara við Hæstarétt Íslands hafi verið á þeim tíma sem tjónið varð, og eins eftir að Eiríkur Tómasson og Viðar Már Matthíasson voru skipaðir dómarar. Heildartjón Eiríks kunni að hafa svarað til áttfaldra mánaðarlauna hæstaréttardómara á þessum tíma, en tjón Viðars til nítjánfaldra mánaðarlauna á sama mælikvarða.
  32. Það leiði af viðurkenndri túlkun og beitingu á ákvæði g-liðar 1. mgr. 6. gr. laga um meðferð sakamála að viðhorf dómarans til hæfis skiptir ekki máli heldur hvernig atvik og aðstæður horfi við þeim sem utan standa. Við skýringu og beitingu g-liðar 1. mgr. 6. gr. laga um meðferð sakamála verði auk þess að horfa til 70. gr. stjórnarskrárinnar og 6. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Í framangreindum ákvæðum komi fram að öllum beri réttur til að fá úrlausn um ákæru á hendur sér um refsiverða háttsemi með réttlátri málsmeðferð innan hæfilegs tíma fyrir óháðum og óhlutdrægum dómstóli. Um túlkun á framangreindum ákvæðum vísi endurupptökubeiðandi meðal annars til rits Bjargar Thorarensen, Stjórnskipunarréttur Mannréttindi, sem segi eftirfarandi: „Því nægir að leiða í ljós að tiltekin sýnileg atvik séu þannig vaxin að draga megi hlutleysi dómara í efa, án þess að sanna þurfi hvort persónuleg afstaða hans eða skoðanir hafi í reynd haft áhrif á afstöðu hans“. Þá er vísað til eftirfarandi umfjöllunar Bjargar um dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Péturs Þórs Sigurðssonar gegn Íslandi frá 10. apríl 2003: „Niðurstaða Mannréttindadómstólsins var að þáttur dómarans í skuldaskilasamningnum, það hagræði sem maki hennar naut og tengsl þess við Landsbankann væru þannig að eðli og umfangi og það nálægt meðferð málsins fyrir Hæstarétti í tíma að kærandi gat með réttu óttast að Hæstarétt skorti þá óhlutdrægni sem krafist væri. Var því talið brotið gegn 1. mgr. 6 gr. MSE“. Þá sé bent á að í dómi Hæstaréttar Íslands í máli nr. 604/2008, bótamáli Péturs Þ. Sigurðssonar gegn íslenska ríkinu, segi: „Þátttaka vanhæfs dómara í meðferð hæstaréttarmáls nr. 210/1996 fól því í sér gagnvart áfrýjanda brot á mikilvægum grundvallarréttindum. Er stefndi ábyrgur fyrir fjártjóni áfrýjanda sem af þessu kann að hafa hlotist.“ Til viðbótar bendi endurupptökubeiðandi á dóm Hæstaréttar Íslands í máli nr. 400/2006, sem kveðinn var upp þann 7. júní 2007. Málið var tilkomið vegna þess að rétturinn tók ákvörðun um að heimila endurupptöku þess þann 24. apríl 2007 vegna vanhæfis eins dómara, sem dæmt hafði í því þann 1. mars 2007. Loks tiltaki endurupptökubeiðandi hæstaréttardóm í máli nr. 511/2014, en í dóminum segi: „Þegar lagt er mat á hæfi dómara eftir g. lið 1. mgr. 6. gr. laga nr. 88/2008 til að fara með mál verður að gæta að því að tilgangur hæfnisregla í réttarfarslögum er ekki einungis að tryggja að dómari sitji ekki í máli nema hann sé óhlutdrægur gagnvart bæði aðilum þess og efni, heldur einnig að tryggja traust aðilanna jafnt sem almennings til dómstóla með því að koma í veg fyrir að dómari standi að úrlausn máls í tilviki, þar sem réttmæt tortryggni gæti risið um óhlutdrægni hans“. Að framangreindu virtu telji endurupptökubeiðandi að Hæstiréttur Íslands hafi verið skipaður vanhæfum dómurum þegar hann dæmdi í máli nr. 456/2014. Loks ítreki endurupptökubeiðandi rökstuðning sinn fyrir endurupptöku á grundvelli þágildandi 1. mgr. 211. gr. laga um meðferð sakamála og telur að a.m.k. þrjú af skilyrðum a-d liðar vera uppfyllt.

    VII. Athugasemdir gagnaðila vegna nýrrar málsástæðu endurupptökubeiðanda

  33. Þann 30. mars 2017 bárust athugasemdir ríkissaksóknara vegna nýrrar málsástæðu endurupptökubeiðanda. Í þeim athugasemdum er greint frá að ríkissaksóknari telji að samkvæmt 1. mgr. 7. gr. laga um meðferð sakamála þá gæti dómari sjálfur að hæfi sínu. Þá hafi umræddir dómarar, áður en þeir tóku sæti í málinu, metið hæfi sitt til að taka sæti í dómi. Að mati ríkissaksóknara hafi ekki komið fram neinar nýjar upplýsingar sem raski mati dómaranna og skipti skoðun endurupptökunefndar engu máli um það viðfangsefni þar sem endurskoðun á matskenndri ákvörðun dómaranna sé ekki á færi nefndarinnar.
  34. Við skýringu á gildissviði þágildandi d-liðar 1. mgr. 211. gr. laga um meðferð sakamála telji ríkissaksóknari að endurupptaka komi eingöngu til greina þar sem leiddir væru í ljós annmarkar á hæfi sem dómari hafi ekki vitað um eða að það atriði hafi ekki fengið umfjöllun fyrir héraðsdómi vegna þess að sakflytjendum hafi ekki gefist kostur á að hafa uppi kröfu fyrir héraðsdómi eða Hæstarétti um vanhæfi héraðsdómara. Það skipti engu máli hver vitneskja sakflytjenda sé um hæfi hæstaréttardómara, ef dómaranum hefur sjálfum verið kunnugt um það atriði sem gætu haft áhrif á hæfið og hann hafi metið sig hæfan til að taka sæti í dómi. Þá verði að hafa í huga hvernig álitamál um hæfi dómara Hæstaréttar Íslands sé meðhöndlað af dóminum. Sakflytjendur geti ekki krafist úrskurðar Hæstaréttar Íslands um hæfi einstaka dómara, þeir geti bent á álitaefni sem þeir telji að geti haft áhrif á hæfið, það sé svo dómarinn sem meti hæfi sitt sjálfur og slíkum ákvörðunum verði ekki skotið til æðra dóms. Þar af leiðandi verði þetta álitaefni ekki endurskoðað af endurupptökunefnd.
  35. Þá telji ríkissaksóknari hagsmuni dómaranna hafa verið óbeina og óverulega af niðurstöðu málsins. Eignarhlutir þeir sem ætlað er að umræddir dómarar Viðar Már Matthíasson og Eiríkur Tómasson hafi átt í Landsbanka Íslands hf. hafi án efa ekki orðið fyrir miklum áhrifum af lánveitingum endurupptökubeiðanda til Imon ehf. í því máli sem námu rúmum 5 milljörðum kr. enda einungis um lítið brot af efnahag bankans að ræða. Hagsmunir þessir séu að mati ríkissaksóknara óverulegir og óbeinir, ekki ólíkt því þegar dómarar dæma í málum sem varða fjárhagslega hagsmuni íslenska ríkisins. Almennt hafi ekki verið talið að það að dómarar, sem íslenskir ríkisborgarar og skattgreiðendur, séu vanhæfir til að dæma í málum er varða hagsmuni ríkissjóðs. Með líku móti sé um hagsmuni þeirra af hlut sínum í Landsbanka Íslands hf., að mati ríkissaksóknara.

    VIII. Frekari athugasemdir endurupptökubeiðanda

  36. Með bréfi, dagsettu 17. apríl 2017, mótmælti endurupptökubeiðandi túlkun ríkissaksóknara á gildissviði þágildandi d-lið 1. mgr. 211. gr. laga um meðferð sakamála.
  37. Endurupptökubeiðandi bendi á að með lögum nr. 15/2013 hafi verið komið á nýrri skipan varðandi endurupptöku allra dómsmála og valdið til að ákvarða endurupptöku dæmdra hæstaréttarmála fært frá Hæstarétti Íslands til endurupptökunefndar. Það sé endurupptökunefndar að meta sjálfstætt hæfi einstakra dómara Hæstaréttar Íslands og horfa til grundvallarmannréttinda, svo sem 70. gr. stjórnarskrárinnar og 6. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu.
  38. Endurupptökubeiðandi vísi til þess að sú skylda liggi á dómara að tilkynna nefnd um dómarastörf um eignarhlut í félagi, sem hafi skráð gengi í verðbréfaviðskiptum, sé hluturinn að verðmæti allt að 3.000.000 kr. Hlutir Eiríks Tómassonar og Viðar Más Matthíassonar í Landsbanka Íslands hf. hafi verið yfir 3.000.000 kr. og því hafi þeir orðið fyrir verulegu fjárhagstjóni vegna greiðsluþrots bankans þann 7. október 2008.
  39. Meðan á málarekstri stóð hafi upplýsingar um hlutafjáreign þeirra ekki legið fyrir og í ljósi nýrra gagna telji endurupptökubeiðandi að dómararnir hafi verið vanhæfir til að dæma í refsimálum á hendur stjórnendum bankans vegna starfa þeirra í þágu bankans.

    IX. Upplýsingar um hlutabréfaeign dómara

  40. Með bréfi ríkissaksóknara, dags. 15. desember 2017, til endurupptökunefndar upplýsti ríkissaksóknari nefndina um að dómararnir Eiríkur Tómasson og Viðar Már Matthíasson hefðu óskað eftir því að koma á framfæri athugasemdum við beiðni endurupptökubeiðanda. Var þess óskað að afstaða yrði tekin til þess hvort dómararnir fengju að koma athugasemdum sínum á framfæri og ef svo væri, að þeim yrði gefinn frestur til að skila inn athugasemdum sínum til nefndarinnar.
  41. Endurupptökunefnd óskaði þann 17. apríl 2018 eftir því við ríkissaksóknara, að hann hlutaðist til um að rannsaka, með vísan til 4. mgr. 230. gr. laga um meðferð sakamála, hvort dómarar við Hæstarétt Íslands, sem dæmdu í hæstaréttarmáli nr. 456/2014, og makar þeirra hafi átt:
    1. eignarhluti í Landsbanka Íslands hf. á árunum 2007-2008;
    2. hvort þau hafi átt hlutdeildarskírteini í verðbréfa- og fjárfestingarsjóðum sem áttu eignarhluti í Landsbanka Íslands hf. á árunum 2007-2008;
    3. hvort þau hafi átt eignarhluti í félögum sem áttu eignarhluti í Landsbanka Íslands hf. á árunum 2007-2008.

      Þá var óskað eftir upplýsingum um fjölda hluta, nafnverð þeirra og sölu á tímabilinu auk þess sem óskað var upplýsinga um það hvort umræddir dómarar hefðu tilkynnt um eignarhluti sína til nefndar um dómarastörf, sbr. þágildandi 3. mgr. 26. gr. laga um dómstóla. Með bréfi sama dag, var með vísan til bréfs ríkissaksóknara frá 15. desember 2017, greint frá að telji dómararnir Eiríkur Tómasson og Viðar Már Matthíasson ástæðu til að senda nefndinni frekari upplýsingar, væri þess farið á leit að embætti ríkissaksóknara hlutaðist til um að afla þeirra upplýsinga, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

  42. Ríkissaksóknari ritaði endurupptökunefnd bréf, dags. 26. apríl 2018, þar sem með fylgdu athugasemdir dómaranna Eiríks Tómassonar og Viðars Más Matthíassonar, sem þeir settu fram að eigin ósk. Þá kom fram í bréfi ríkissaksóknara að embættið myndi rita dómurum Hæstaréttar Íslands bréf þar sem óskað yrði eftir þeim gögnum sem nefndin leitaðist við að fá, að undanskildum upplýsingum um hlutdeildarskírteini og öðrum réttindum í hvers konar verðbréfa- og fjárfestingarsjóðum. Vísaði ríkissaksóknari til þess að Hæstiréttur Íslands hefði sjálfur hafnað að veita slíkar upplýsingar til verjanda dómfelldu SES á fyrri stigum, meðal annars vegna þess að nefnd um dómarastörf hafi ekki litið á þessi hlutdeildarskírteini og réttindi sem tilkynningarskyld.
  43. Í bréfum dómaranna Eiríks Tómassonar og Viðars Más Matthíassonar, dags. 23. og 24. apríl 2018, komu dómararnir á framfæri athugasemdum sínum og upplýsingum vegna hlutabréfaeigna þeirra í Landsbanka Íslands hf., sem fóru forgörðum við fall bankans 7. október 2008.
  44. Í bréfi Eiríks Tómassonar kom fram að hann átti hluti í Landsbanka Íslands hf. að nafnverði 87.383 kr. en hluti að nafnverði 85.041 kr. eignaðist hann á tímabilinu 2003 til 2005, auk þess sem hlutaféð hækkaði um 2.342 kr. á árinu 2008 vegna hækkunar hlutafjár í bankanum. Kaupverð hlutanna í Landsbanka Íslands hf., sem hann festi kaup á, nam samtals 374.112 kr. Miðað við skráð gengi 3. október 2008, sem var 19,9 kr. á hlut, var verðmæti hlutafjáreignar hans 1.738.922 kr.
  45. Í bréfi Viðars Más Matthíassonar kom fram að hann átti hluti í Landsbanka Íslands hf. að nafnverði 428.075 kr. en þessa hluti eignaðist hann í sex tilvikum á tímabilinu frá 8. mars til 26. september 2007. Samanlagt verðmæti þessara hluta á þeim dögum sem hann eignaðist þá var 14.753.256 kr. Miðað við skráð gengi bréfanna 3. október 2008, sem var 19,9 kr. á hlut, var verðmæti hlutafjáreignar hans, 8.518.692 kr.
  46. Í bréfum sínum fjalla Eiríkur og Viðar Már báðir um embættisskyldu dómara til að taka sæti í máli og dæma í því og að dómari geti ekki vikist undan þeirri skyldu þyki honum mál óþægilegt. Undantekning frá þeirri reglu sé ef dómari er vanhæfur. Í 1. mgr. 7. gr. laga um meðferð sakamála segi að dómari gæti að sjálfsdáðum að hæfi sínu til að fara með mál. Til athugunar komi hvort ákvæði g-liðar 1. mgr. 6. gr. laga um meðferð sakamála hafi leitt til vanhæfis þeirra. Þeir telja sig ekki hafa haft fjárhagslega hagsmuni af úrslitum umrædds máls í ljósi þess að eignarhlutir þeirra fóru forgörðum 7. október 2008. Hvorugur þeirra segist hafa borið óvildarhug til endurupptökubeiðanda sem gæti hafa haft áhrif á afstöðu þeirra.
  47. Eiríkur vildi koma því á framfæri við endurupptökunefnd, að fengnu samþykki eiginkonu sinnar, að hún hafi ekki átt eignarhlut í Landsbanka Íslands hf. á árunum 2007-2008. Jafnframt að í ársbyrjun 2007 hafi hann átt hlut í Glitni banka hf. að nafnverði 283.354 kr. og eftir að hafa keypt viðbótarhluti að nafnverði 3.770 kr. á því ári hafi hann átt hlut í félaginu að nafnverði 287.124 kr. í lok ársins og hafi sá eignarhluti haldist óbreyttur á árinu 2008. Kaupverð umræddra hluta í Glitni banka hf. hafi numið samtals 772.817 kr.
  48. Viðar Már vildi koma því á framfæri við endurupptökunefnd, að fengnu samþykki eiginkonu sinnar,að hún hafi ekki átti eignarhlut í Landsbanka Íslands hf. á árunum 2007-2008.
  49. Við mat á sérstöku hæfi komi, að mati Eiríks og Viðars Más, til álita hversu langur tími hafi verið liðinn frá atvikum, sem leitt gætu til vanhæfis. Viðar Már vísar í því sambandi sérstaklega til umfjöllunar Páls Hreinssonar í ritinu Hæfisreglur stjórnsýslulaga og framkvæmdar. Þá telji dómararnir að einnig verði að horfa til umfang tjóns og áhrif á fjárhag þeirra. Þeir telji báðir að tapið hafi ekki íþyngt þeim og hafi haft lítil sem engin áhrif á fjárhagsstöðu þeirra m.t.t. launatekna, eignarstöðu, skulda og annarra tekna. Að framangreindu virtu telji þeir báðir að þeir hafi ekki verið vanhæfir til að dæma í máli nr. 456/2014.
  50. Ríkissaksóknari ritaði endurupptökunefnd bréf, dags. 15. maí 2018, þar sem fram kom að embættið hefði endurskoðað fyrri afstöðu sína til beiðni endurupptökunefndar frá 17. apríl 2018. Taldi ríkissaksóknari að beiðni endurupptökunefndar, sem beindist að fjárhagsmálefnum dómara málsins og mökum þeirra, yrði ekki gerð á grundvelli laga um meðferð sakamála heldur yrði nefndin sjálf að hlutast til um að upplýsa málið að þessu leyti. Var því beiðni nefndarinnar um frekari gagnaöflun hafnað.
  51. Í ljósi afstöðu ríkissaksóknara, sendi endurupptökunefnd bréf til Hæstaréttar Íslands, dags. 5. júní 2018, þar sem farið var fram á að nefndinni yrðu veittar áður nefndar upplýsingar. Þá óskaði nefndin, sama dag, eftir því við nefnd um dómarastörf að hún myndi senda endurupptökunefnd afrit þeirra tilkynninga sem nefndinni hefðu borist vegna hlutafjáreignar dómara við Hæstarétt Íslands í Landsbanka Íslands hf. á árunum 2007-2008.
  52. Í bréfi nefndar um dómarastörf, dags. 21. júní 2018, kom fram að tilkynningarskylda dómara nái til eigna dómara meðan þeir gegni embætti. Dómarinn Viðar Már Matthíasson hafi verið skipaður dómari við Hæstarétt Íslands þann 10. september 2010 en Eiríkur Tómasson og Þorgeir Örlygsson þann 1. september 2011. Taki fyrirspurn endurupptökunefndar því ekki til þeirra. Samkvæmt upplýsingum nefndarinnar hafi hvorki Helgi I. Jónsson né Markús Sigurbjörnsson átt eignarhlut í Landsbanka Íslands hf. á umræddu tímabili.
  53. Hæstiréttur Íslands svaraði endurupptökunefnd með bréfi, dags. 27. júní 2018. Með bréfinu fylgdu viðbótarathugasemdir dómaranna Eiríks Tómassonar og Viðars Más Matthíassonar, þar sem fram kom að makar þeirra hefðu ekki verið hluthafar í Landsbanka Íslands hf. á umræddu tímabili. Þá vísaði Hæstiréttur Íslands til skriflegra svara til verjenda endurupptökubeiðenda í málum nr. 456/2014, 478/2014 og 842/2014, og hefði endurupptökunefnd þær upplýsingar undir höndum. Þá kom fram að dómararnir Helgi I. Jónsson, Þorgeir Örlygsson og Markús Sigurbjörnsson hefðu ekki átt eignarhluti í Landsbanka Íslands hf. Það sama ætti við um maka þessara dómara. Hæstiréttur Íslands tók fram að ekki yrðu veittar upplýsingar um eignarhald dómara í félögum sem kynnu að hafa átt hluti í Landsbanka Íslands hf., svo og hlutdeildarskírteinum í verðbréfa- og fjárfestingarsjóðum sem kynnu að hafa átt eignarhlut í bankanum. Byggðist synjunin í fyrsta lagi á því að endurupptökubeiðandi hefði ekki lögvarða hagsmuni af því að fá slíkar upplýsingar, í öðru lagi á því að eign í hlutabréfasjóðum eða hliðstæðum sjóðum væri eðlisólík hlutabréfaeign að því leyti að hlutabréfum fylgdi ákvörðunarvald í málefnum félags en það gerði hlutdeild í slíkum sjóðum ekki. Þá hefðu hlutdeildarsjóðshafar ekki ákvörðunarvald um í hvaða verðbréfum væri fjárfest hverju sinni. Þá var þess getið að ákvæði 26. gr. laga um dómstóla og reglna nr. 463/2000 tækju ekki til eigna í verðbréfasjóðum, sem nefnd um dómarastörf tók af skarið um á fundi sínum 15. desember 2016. Þá vísaði Hæstiréttur Íslands til dóms í hæstaréttarmáli nr. 705/2017, sem hann taldi vera beint fordæmi um þau atriði í fyrirspurn endurupptökunefndar sem að framan greini. Loks vísaði Hæstiréttur Íslands til þess að Mannréttindadómstóll Evrópu hefði nýlega borið upp spurningar til íslenska ríkisins í tengslum við kvörtun sem einn endurupptökubeiðandi hefði beint þangað vegna máls síns en spurningar dómstólsins lutu meðal annars að því hvort tilteknir dómarar sem sátu í dómi í málinu hefðu átt eignarhlut í Glitni banka hf., Kaupþingi banka hf. eða Landsbanka Íslands hf. Spurningar mannréttindadómstólsins varði úrlausn um sama álitaefni og endurupptökunefnd hefði til meðferðar og lutu þær hvorki að eignarhlutum í öðrum félögum en þessum fjármálafyrirtækjum né hlutdeildarskírteinum í verðbréfasjóðum. Af því yrði að draga þá ályktun að mannréttindadómstóllinn teldi atriði sem þessi ekki skipta máli. Að þessu virtu taldi Hæstiréttur Íslands ekki efni til að veita frekari svör um þessi atriði.

    X. Enn frekari athugasemdir endurupptökubeiðanda

  54. Með bréfi, dags. 18. september 2018, vildi endurupptökubeiðandi koma á framfæri athugasemdum sínum við framangreind gögn sem varði upplýsingar um eignarhluti dómaranna.
  55. Endurupptökubeiðandi telji að eignarhlutur dómaranna Eiríks Tómassonar og Viðars Más Matthíassonar hafi alls ekki verið óverulegir, ef þeir séu bornir saman við laun dómaranna líkt og gert var í bréfi endurupptökubeiðanda til endurupptökunefndar þann 9. febrúar 2017 né ef eignarhlutirnir séu bornir saman við eignarhlut annarra hluthafa bankans. Þá liggi fyrir að verðmæti eignarhluta Viðars Más hafi verið langt umfram viðmið reglna nr. 463/2000.
  56. Þar að auki nefnir endurupptökubeiðandi að hann hafi leitað leiða við að sannreyna upplýsingarnar sem lagðar hafa verið fram í málinu af hálfu dómaranna. Hann hafi undir höndum hluthafaskrár Landsbanka Íslands hf. sem sýni hlutafjáreign þann 31. desember 2007, annars vegar, og 3. október 2008, hins vegar. Á grundvelli hluthafaskránna stillti endurupptökubeiðandi upp yfirliti yfir eignarhluti dómara og náinna ættingja þeirra í Landsbanka Íslands hf., en endurupptökubeiðandi byggi jafnframt á því að hlutafjáreign nákominna ættingja geti einnig hafa valdið vanhæfi dómaranna.
  57. Endurupptökubeiðandi byggir í fyrsta lagi á því að samkvæmt upplýsingum úr hluthafaskrám komi í ljós að þrjú ólögráða börn hæstaréttardómarans Markúsar Sigurbjörnssonar hafi átt hlutafé í Landsbanka Íslands hf. þann 3. október 2008, eða samtals 14.538 hluti. Markaðsverð hlutanna hafi verið samtals 884.079 kr. á þeim degi. Þá komi í ljós við skoðun skránna að eignarhlutur Viðars Más hafi aukist um 11,01% á árinu 2008. Gögn sýni að hann hafi aukið við eignarhlut sinn á því tímabili sem ákæruatriðin í hæstaréttarmálunum nr. 456/2014 og 842/2014 tóku til. Bendi endurupptökubeiðandi á að samkvæmt mati dómarans sjálfs geti þetta haft þýðingu við mat á því hvort hann hafi verið hæfur til að dæma í málinu, enda hafi dómarinn lagt mikla áherslu á það í bréfi sínu til endurupptökunefndar þann 24. apríl 2017 að hann hafi aðeins eignast hluti í bankanum á tímabilinu 8. mars til 26. september 2007, á tímabili sem hin refsiverða háttsemi endurupptökubeiðanda gat ekki haft áhrif á ákvörðun dómarans um að kaupa frekari hluti í bankanum á hærra verði en efni stóðu til. Ljóst sé að dómarinn veitti ekki þessar upplýsingar þegar hann svaraði fyrirspurn skrifstofustjóra Hæstaréttar Íslands, í tilefni af fyrirspurn endurupptökunefndar þann 5. júní 2018. Endurupptökubeiðandi telji fyrri ummæli hæstaréttardómarans gefa til kynna að dómarinn telji sjálfur að hugsanlegt sé að gera athugasemdir við hæfi hans ef hann hefði eignast hluti í bankanum á því tímabili sem ákæra tók til, en þar sem hann hefði eignast alla hluti sína í bankanum fyrir þann tíma væri ekki ástæða til að gera athugasemdir við hæfi hans til setu í málinu. Endurupptökubeiðandi byggi á því að ekki aðeins hafi umræddur dómari keypt hlutabréf í Landsbanka Íslands hf. fyrir um 15 milljónir kr. á árinu 2007, bréf sem urðu verðlaus við fall bankans, heldur sýni hluthafaskráin að hann hafi keypt frekari bréf á árinu 2008 sem einnig hafi tapast. Það sé alvarlegt að dómarinn hafi ekki veitt þessar upplýsingar þegar hann svaraði fyrirspurn skrifstofustjóra Hæstaréttar Íslands um eignarhluti hans í íslensku bönkunum. Þá sé það alvarlegt að upplýsingarnar hafi heldur ekki verið veittar í athugasemdum dómarans sem hann beindi til ríkissaksóknara, sem áframsendi þær svo til endurupptökunefndar að beiðni dómarans.
  58. Þá mótmæli endurupptökubeiðandi þeim sjónarmiðum sem fram komi í bréfum dómaranna Viðars Más Matthíassonar og Eiríks Tómassonar. Endurupptökubeiðandi bendi á að engin heimild sé til þess í lögum sem veiti dómurum leyfi til að koma á framfæri athugasemdum sínum þegar metið er hvort þeir hafi verið hæfir til að dæma í máli. Dómararnir eigi enga aðild að endurupptökumálinu og því ætti að virða bréf dómaranna að vettugi við meðferð málsins og fjarlægja þau úr málsskjölum.
  59. Endurupptökubeiðandi geri auk þess efnislegar athugasemdir við rökstuðning dómaranna. Hann hafni þeim sjónarmiðum þeirra að aðeins í undantekningartilvikum sé dómurum heimilt að víkjast undan þeirri skyldu sinni að taka sæti í dómi, þ.e.a.s. vegna vanhæfis. Endurupptökubeiðandi bendi á að dómara sé beinlínis óheimilt að fara með mál í þeim tilvikum þar sem hann sé vanhæfur, skv. 6. gr. laga um meðferð sakamála, en reglur um vanhæfi séu settar til að tryggja sakborningi réttláta málsmeðferð. Það verði því að taka alvarlega öll atvik eða aðstæður sem gefi sakborningi tilefni til að draga það í efa að dómari sé óhlutdrægur og eigi alls ekki að skýra regluna þrengjandi lögskýringu. Mat á vanhæfi eigi að fara fram á hlutlægum grunni, þ.e.a.s. matið verði að miðast við það hvort aðrir en dómarinn geti með réttu dregið óhlutdrægni dómarans í efa, algjörlega óháð raunverulegri afstöðu dómarans sjálfs.
  60. Endurupptökubeiðandi bendi á að dómararnir hafi viðurkennt að hafa orðið fyrir fjárhagstjóni af því að eignarhlutur þeirra í Landsbanka Íslands hf. fór forgörðum. Við mat á hæfi geti engu máli skipt hve langur tími leið frá tjóninu þar til þeir dæmdu í umræddu máli.
  61. Þá bendi endurupptökubeiðandi á að engu máli skipti hvort dómararnir hafi borið óvildarhug til endurupptökubeiðanda. Það sem skipti máli sé hvort uppi hafi verið atvik eða aðstæður sem fallnar voru til þess að draga óhlutdrægni dómaranna með réttu í efa. Að mati endurupptökubeiðanda voru slíkar aðstæður uppi. Þá bendi endurupptökubeiðandi á að varla hefðu fjölmiðlar sýnt hlutabréfaeign dómaranna eins mikla athygli og raun bar vitni ef ekki væru til staðar aðstæður til að draga óhlutdrægni þeirra í efa.
  62. Endurupptökubeiðandi hafni þeim sjónarmiðum dómaranna að þar sem þeir hafi ekki eignast hlutabréf sín á því tímabili sem ákæra tók til þá hafi endurupptökubeiðandi ekki valdið því að dómararnir hafi keypt hluti sína á hærra verði en efni stóðu til. Bendi endurupptökubeiðandi á að með gagnályktun þá megi þá telja dómarana vanhæfa ef þeir hefðu keypt hlutabréf á tímabili sem ákæran tók til. Í því samhengi bendi endurupptökubeiðandi á að dómarinn Viðar Már Matthíasson eignaðist um 35.000 hluti í bankanum á árinu 2008, samkvæmt áður nefndum gögnum, og hafi það því gefið endurupptökubeiðanda tilefni til að draga óhlutdrægni hans með réttu í efa.
  63. Endurupptökubeiðandi hafni því sjónarmiði dómaranna að það geti einhverja þýðingu haft við mat á hæfi ef langur tími er liðinn frá atvikum sem gætu leitt til vanhæfis. Bendi endurupptökubeiðandi á að það sé ekkert líkt með því að taka ekki þátt í meðferð mála sem varði hagsmuni fyrrverandi vinnuveitanda og að taka ekki þátt í meðferð máls sem varði atvik sem á endanum leiddu til persónulegs tjóns fyrir dómarann. Fyrir liggi í málinu að dómararnir urðu fyrir fjártjóni og sú staðreynd breytist ekki, sama hversu langur tími líði.
  64. Endurupptökubeiðandi bendi á að dómararnir tveir miði við ólíkar dagsetningar þegar þeir fjalli um fjárhagslegt tap sitt vegna hlutabréfanna og virðist sem hentugleiki ráði för við útreikning dómaranna. Engu að síður sé sama hvaða verðmæti hlutabréfanna sé lagt til grundvallar, þ.e. við hvaða ólíku dagsetningar gengi hlutabréfanna miðist, það breyti því ekki að tjón þeirra hafi verið umtalsvert, sérstaklega þegar það sé sett í samhengi við laun hæstaréttardómara og viðmið í tengslum við hagsmunaskráningu þeirra. Þannig hafi kaupverð hlutabréfa Viðars Más Matthíassonar á árinu 2007 verið 14.753.256 kr., eða 87,6% af árstekjum hans fyrir skatta á sama ári. Að teknu tilliti til staðgreiðslu opinberra gjalda hafi laun dómarans verið u.þ.b. 10,8 milljónir kr. og hafi kaupverð hlutabréfanna því numið hartnær fjórum milljónum umfram laun dómarans á árinu. Endurupptökubeiðandi byggi á því að mörkin, sem sett séu í reglum um hagsmunaskráningu dómara, gefi skýrt til kynna hvað megi líta á sem verulega hagsmuni dómara, enda væri lítil þörf á því að óska samþykkis nefndar um dómarastörf ef litið væri svo á að um minniháttar hagsmuni væri að ræða.
  65. Að lokum hafni endurupptökubeiðandi því sjónarmiði dómaranna að hlutafjáreign hafi verið svo almenn á Íslandi og því séu ekki fyrir atvik eða aðstæður sem gefi tilefni til að draga óhlutdrægni dómaranna í efa. Tilvísanir dómaranna til hæstaréttardóma nr. 266/2014 og 705/2017 séu því haldlausar. Bendi endurupptökubeiðandi á að eignarhlutur dómaranna hafi verið umtalsvert umfram það sem almennt gerðist á markaði. Í því samhengi nefni endurupptökubeiðandi að Viðar Már Matthíasson hafi verið í hópi 1% af þeim sem áttu stærstan eignarhlut í bankanum og Eiríkur Tómasson hafi verið í hópi 3% af stærstu eigendum bankans. Hafi eignarhlutir dómaranna því ekki verið smávægilegir og þannig í samræmi við það sem almennt gerðist. Fullyrði endurupptökubeiðandi að mjög lítill hluti Íslendinga hafi nokkurn tímann keypt hlutabréf í einu félagi sem sé skráð á markaði fyrir 15 milljónir kr., hvað þá á einu ári.
  66. Á grundvelli framangreindra athugasemda telji endurupptökubeiðandi að rökstuðningur dómaranna fyrir meintu hæfi sínu fái ekki staðist og sé í raun eftir á tilbúningur til að verja stöðu sem sé í raun óverjandi.
  67. Þann 26. október 2018 var ríkissaksóknara gefinn frekari kostur á að koma á framfæri athugasemdum sínum í málinu. Engar frekari athugasemdir bárust og var málið því næst tekið til úrskurðar.

    XI. Niðurstaða

  68. Af hálfu endurupptökunefndar er mál þetta tekið til úrlausnar á grundvelli XXXV. kafla laga um meðferð sakamála. Í 232. gr. laganna er kveðið á um að endurupptökunefnd geti leyft samkvæmt beiðni að mál sem dæmt hefur verið í Hæstarétti Íslands verði tekið þar til meðferðar og dómsuppsögu að nýju ef fullnægt er þeim skilyrðum sem greinir í 1. mgr. 228. gr. laganna. Í þeirri grein er kveðið á um að endurupptökunefnd geti orðið við beiðni manns um endurupptöku, sem telur sig ranglega sakfelldan eða sakfelldan fyrir mun meira brot en það sem hann hefur framið, ef einhverju skilyrða í stafliðum a til d 1. mgr. 228. gr. laganna er fullnægt.
  69. Skilyrði stafliða a-d 1. mgr. 228. gr. laga um meðferð sakamála eru svohljóðandi:

    a.  fram eru komin ný gögn sem ætla má að hefðu verulega miklu skipt fyrir niðurstöðu málsins ef þau hefðu komið fram áður en dómur gekk,

    b.  ætla má að lögregla, ákærandi, dómari eða aðrir hafi haft í frammi refsiverða háttsemi í því skyni að fá fram þau málalok sem orðin eru, svo sem ef vitni eða aðrir hafa vísvitandi borið ranglega fyrir dómi eða fölsuð skjöl verið lögð fram og það hefur valdið rangri niðurstöðu málsins,

    c.  verulegar líkur eru leiddar að því að sönnunargögn sem færð voru fram í máli hafi verið rangt metin svo að áhrif hafi haft á niðurstöðu þess,

    d.  verulegir gallar hafa verið á meðferð máls þannig að áhrif hafi haft á niðurstöðu þess.

  70. Til að fallist verði á endurupptöku nægir að eitt af framangreindum skilyrðum sé uppfyllt.
  71. Fyrir liggur í máli þessu að endurupptökubeiðandi var með dómi Hæstaréttar Íslands í máli nr. 456/2014 sakfelldur fyrirumboðssvik, sbr. a. lið II. kafla ákæru, og markaðsmisnotkun, sbr. b. lið II. kafla og III. kafla ákærunnar. Var hann dæmdur til refsingar og greiðslu sakarkostnaðar.
  72. Endurupptökubeiðandi starfaði sem bankastjóri Landsbanka Íslands hf. þegar bankinn féll og hafði hann sinnt því starfi frá árinu 2003. Samkvæmt samþykktum bankans á þeim tíma, bar hann, sem bankastjóri, ábyrgð á daglegum rekstri bankans og fór með ákvörðunarvald í öllum málefnum hans, sem ekki voru falin öðrum með lögum, reglugerðum eða samþykktum. Þá bar bankastjóra að sjá til þess að rekstur bankans hafi verið í öllum atriðum samkvæmt lögum, reglugerðum, samþykktum og ákvörðunum bankaráðs. Er því óhætt að segja að ábyrgð endurupptökubeiðanda á störfum bankans hafi verið mjög rík.
  73. Í málinu dæmdu hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Eiríkur Tómasson, Helgi I. Jónsson, Viðar Már Matthíasson og Þorgeir Örlygsson.
  74. Endurupptökubeiðandi byggir á því að skilyrði a-d liðar 1. mgr. 228. gr. laga um meðferð sakamála séu fyrir hendi svo endurupptaka eigi málið. Reisir hann kröfu sína á því að ný gögn hafi komið fram sem sanni að ákvörðun endurupptökubeiðanda um að lána Imon ehf. fé hafi verið eðlileg, að rannsakendur og ákærendur hafi ekki gætt þeirrar hlutlægni sem þeim bar samkvæmt lögum um meðferð sakamála, að dómstólar hafi brotið gegn rétti endurupptökubeiðanda til að vera talinn saklaus uns sekt hann sé sönnuð þannig að hafið sé yfir skynsamlegan vafa, að í umræddu hæstaréttarmáli hafi verið búin til ný og áður óþekkt viðmið við túlkun á 249. gr. almennra hegningarlaga, að engin gögn hafi legið fyrir sem sönnuðu auðgunarásetning endurupptökubeiðanda og að endingu að dómarar sem hafi dæmt í téðu hæstaréttarmáli hafi verið vanhæfir og því hafi verulegir gallar verið á meðferð málsins þannig að áhrif hafi haft á niðurstöðu þess.
  75. Hvað varðar síðastnefndu málsástæðu endurupptökubeiðanda, þá telst rétturinn til réttlátrar málsmeðferðar fyrir óháðum og óhlutdrægum dómstól til grundvallarmannréttinda sakaðra manna. Er rétturinn varinn í 70. gr. stjórnarskrárinnar og 1. mgr. 6. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Samkvæmt 45. gr. laga um dómstóla þá skulu dómarar vera sjálfstæðir í störfum sínum, sbr. einnig samhljóða ákvæði eldri laga um dómstóla nr. 15/1998. Sérstaklega er fjallað um hæfi dómara til setu í dómsmáli í 1. mgr. 6. gr. laga um meðferð sakamála. Í g-lið ákvæðisins segir að dómari sé vanhæfur til að fara með mál ef fyrir hendi eru önnur atvik eða aðstæður, heldur en taldar eru upp í fyrri stafliðum ákvæðisins, sem eru fallnar til þess að draga óhlutdrægni hans með réttu í efa. Í 1. mgr. 7. gr. laganna segir að dómari gæti að hæfi sínu til að fara með mál af sjálfsdáðum, en aðili getur einnig krafist að hann víki sæti. Umrædd ákvæði varða rétt manna til að vera dæmdir af óháðum og óhlutdrægum dómstólum.
  76. Lög um meðferð sakamála heimila endurupptöku vegna verulegra galla á málsmeðferð, sbr. d-liður 1. mgr. 228. gr. laganna. Vanhæfi dómara getur talist til slíkra galla enda telst málsmeðferð fyrir óháðum og óhlutdrægum dómstóli til grundvallarmannréttinda sakaðra manna. Má í því sambandi vísa til þess að ígreinargerð með frumvarpi að lögumum meðferð sakamála, er varð að lögum nr. 88/2008, segir: „Að einu leyti eru þó ráðgerð nýmæli með því að í d-lið 1. mgr. er ákvæði um heimild dómfellds manns til að leita endurupptöku ef sýnt er fram á að verulegir gallar hafi verið á meðferð máls og þeir haft áhrif á niðurstöðu þess. Um þessa aðstöðu eru engin fyrirmæli í gildandi lögum, en undir þetta gæti meðal annars átt tilvik, þar sem leiddir væru í ljós annmarkar á hæfi dómarans, sem með málið fór, og ekki hafi áður verið um þá kunnugt. Þykir eðlilegt að taka upp reglu af þessum toga til að tryggja rétta meðferð máls.“
  77. Með stofnun endurupptökunefndar tók nefndin við því hlutverki af Hæstarétti Íslands að úrskurða um endurupptökubeiðnir dómsmála sem dæmd hafa verið í héraði eða Hæstarétti og síðar Landsrétti. Fyrir liggur að Hæstiréttur Íslands endurmat efnislegt mat dómara á eigin hæfi þegar álitaefnið kom á borð réttarins í fyrri tíð. Með lögum nr. 15/2013 var gerð sú breyting að ákvörðunarvald um endurupptöku dómsmála var fengið sérstakri stjórnsýslunefnd, endurupptökunefnd, sbr. 34. gr. þágildandi laga um dómstóla. Í greinargerð með frumvarpi til þeirra laga er áréttað að ekki sé „hróflað við skilyrðum endurupptöku frá því sem verið hafði.“ Þessi framkvæmd er áréttuð enn frekar í greinargerð með frumvarpi til laga um breytingu á lögum á dómstólum, meðferð einkamála og meðferð sakamála, sem nú liggur fyrir Alþingi (Endurupptökudómur). Þá liggur einnig fyrir að endurupptökunefnd hefur áður lagt mat á hæfi dómara, sbr. t.d. úrskurðir endurupptökunefndar nr. 8, 9, 10 og 14/2015. Með vísan til framangreinds er því ekki fallist á þá röksemd gagnaðila að það sé ekki á færi nefndarinnar að endurmeta efnislegt mat dómara á eigin hæfi.
  78. Réttur sakbornings til réttlátrar málsmeðferðar fyrir óháðum og óhlutdrægum dómstól er varinn í 70. gr. stjórnarskrárinnar og 1. mgr. 6. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, og telst rétturinn til grundvallarmannréttinda sakaðra manna. Við túlkun á ákvæðum Mannréttindasáttmála Evrópu hefur verið litið til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu. Frumvarp til laga nr. 62/1994 áréttar um slíka framkvæmd og þá hefur löggjafi, framkvæmdavald og dómstólar hér á landi gert slíkt í framkvæmd.
  79. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur í dómaframkvæmd sinni fjallað um hæfi dómara með tilliti til skilyrða 1. mgr. 6. gr. mannréttindasáttmálans um að málsaðili fái réttláta málsmeðferð fyrir sjálfstæðum og óvilhöllum dómstól. Hefur mannréttindadómstóllinn talið að dómstóll þurfi að uppfylla bæði huglægt og hlutlægt mat svo að framangreindum skilyrðum sé fullnægt, sbr. t.d. Piersack gegn Belgíu og Hauschildt gegn Danmörku.
  80. Spurningunni um hvort óhlutdrægni samkvæmt 1. mgr. 6. gr. sáttamálans sé fyrir hendi ber bæði að svara á huglægum grundvelli, þ.e. á persónulegri sannfæringu dómara í tilteknu máli, og á hlutlægum grundvelli, þ.e. með athugun á hvort aðstæður hafi verið þannig að útiloka megi að óhlutdrægni dómarans verði með réttu dregin í efa. Hið hlutlæga mat byggir á ásýnd dómstóls og þeirri kennisetningu að ekki sé nægilegt að dómari hafi í raun verið óvilhallur þegar hann leysti úr máli, heldur verður hann jafnframt að líta út fyrir að vera það í augum hins almenna borgara. Leiðir það af því trausti sem dómstólar í lýðræðisþjóðfélagi verða að njóta. Hæstiréttur Íslands hefur orðað þetta sem svo að réttur manna til að fá úrlausn um réttindi sín og skyldur fyrir óháðum og óhlutdrægum dómstól sé meðal þeirra hornsteina sem lýðfrjáls ríki byggja réttarskipan sína á, sbr. Hrd. 604/2008.
  81. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur ítrekað lýst hlutlæga matinu sem eftirfarandi, sbr. t.d. dómur í máli Péturs Sigurðssonar gegn íslenska ríkinu:

    „Samkvæmt hinu hlutlæga viðmiði verður að ákvarða, án nokkurs tillits til gerða dómarans, hvort fyrir hendi séu atvik sem kunna að vekja vafa um óhlutdrægni hans. Í þessu efni kann ásýndin ein jafnvel að öðlast nokkuð mikilvægi. Það sem hér er í húfi er það traust, sem dómstólar í lýðræðisþjóðfélagi verða að vekja meðal almennings. Þess vegna verður hver sá dómari, sem með réttu er unnt að óttast að ekki sé óhlutdrægur, að víkja sæti. Þetta felur í sér að afstaða viðkomandi málsaðila er mikilvæg við ákvörðun á því hvort með réttu megi óttast um óhlutdrægni ákveðins dómara í ákveðnu máli, þótt ekki sé hún afgerandi. Hið afgerandi atriði er hvort telja megi þann ótta hlutlægt séð réttmætan“.

  82. Þetta felur meðal annars í sér að hinn hlutlægi mælikvarði er ólíkur hinum huglæga að því leyti að þegar honum er beitt þarf aðili máls ekki að færa sérstaklega sönnur á að dómstóll hafi verið óvilhallur.
  83. Við túlkun 1. mgr. 6. gr. mannréttindasáttmálans hefur mannréttindadómstóllinn fjallað um fjárhagslega hagsmuni dómara í tengslum við aðila máls. Í máli Péturs Sigurðssonar gegn íslenska ríkinu taldi dómurinn ekkert benda til þess að persónulegir hagsmunir dómara við Hæstarétt Íslands eða eiginmanns hennar hafi verið í húfi í málaferlunum milli kæranda og tiltekinnar fjármálastofnunar, sem kærandi átti í málaferlum við. Hins vegar var þáttur dómarans í skuldaskilum eiginmanns hennar við viðkomandi fjármálastofnun, það hagræði sem eiginmaður hennar naut og tengsl hans við fjármálastofnunina þannig að eðli og umfangi, og það nálægt athugun Hæstaréttar Íslands á máli kæranda í tíma, að kærandi gat með réttu óttast að Hæstarétt skorti þá óhlutdrægni sem krafist er.
  84. Við mat á beitingu g-liðar 1. mgr. 6. gr. laga um meðferð sakamála er rétt að líta til dóms Hæstaréttar Íslands í máli nr. 511/2014, en þar segir:

    „Þegar lagt er mat á hæfi dómara eftir g. lið 1. mgr. 6. gr. laga nr. 88/2008 til að fara með mál verður að gæta að því að tilgangur hæfisreglna í réttarfarslögum er ekki einungis að tryggja að dómari sitji ekki í máli nema hann sé óhlutdrægur gagnvart bæði aðilum þess og efni, heldur einnig að tryggja traust aðilanna jafnt sem almennings til dómstóla með því að koma í veg fyrir að dómari standi að úrlausn máls í tilviki, þar sem réttmæt tortryggni gæti risið um óhlutdrægni hans. Þá er hæfisreglum ekki ætlað það eitt að vernda rétt sakaðs manns samkvæmt 1. mgr. 70. gr. stjórnarskrárinnar til að fá úrlausn um ákæru á hendur sér fyrir óhlutdrægum dómstóli, heldur einnig að girða fyrir að hlutdrægni gæti gagnvart ákæruvaldinu við rækslu á því lögbundna hlutverki þess að halda uppi refsivörslu ríkisins í þágu almannahagsmuna. Sé með réttu vafi um óhlutdrægni dómara er óhjákvæmilegt að hann víki sæti í máli eða ómerkt verði eftir atvikum fyrir æðra dómi úrlausn, sem hann hefur staðið að, þótt af því geti hlotist röskun á rétti aðila til að fá leyst úr máli sínu innan hæfilegs tíma.“

  85. Þegar skoðað er hvort hægt sé að draga með réttu í efa óhlutdrægni dómstóls er óhjákvæmilegt að líta til atvika sem og aðstæðna sem liggja til grundvallar í því máli sem er til skoðunar. Slíkt mat getur verið víðtækt en eitt af þeim atriðum sem koma til skoðunar eru tengsl dómara við efni og aðila máls. Í því samhengi geta fjárhagsleg tengsl dómara, sem og aðila nátengdum dómurum, komið til skoðunar líkt og í máli því sem hér er til umfjöllunar.
  86. Í málinu er ágreiningslaust að tveir af dómurunum sem dæmdu í máli endurupptökubeiðanda, Eiríkur Tómasson og Viðar Már Matthíasson, áttu hlutabréf í Landsbanka Íslands hf., bæði á því tímabili þegar hin refsiverða háttsemi átti sér stað og einnig þann 7. október 2008 þegar íslenska ríkið tók yfir bankann og hlutabréfin urðu verðlaus. Þá er ágreiningslaust að þeir urðu fyrir fjárhagslegu tjóni vegna þessa.
  87. Við mat á hæfi umræddra dómara til setu í dóminum kemur meðal annars til skoðunar hvort það fjárhagslega tjón sem þeir urðu fyrir sé til þess fallið að draga hafi mátt óhlutdrægni þeirra með réttu í efa, sbr. g-liður 1. mgr. 6. gr. laga um meðferð sakamála, og með því valdið því að verulegur galli var á meðferð málsins, sbr. d-liður 1. mgr. 228. gr. sömu laga.
  88. Óumdeilt er að dómarinn Viðar Már Matthíasson keypti hlutabréf í Landsbanka Íslands hf. á tímabilinu 8. mars til 26. september 2007 og nam verðmæti þeirra, á þeim dögum sem hann eignaðist bréfin, 14.753.256. kr. Verðmæti bréfanna tóku breytingum allt fram til þess tíma þegar bankinn var yfirtekinn af íslenska ríkinu, er þau urðu verðlaus. Miðað við síðasta skráða gengi bréfanna þann 3. október 2008 nam verðmæti fyrrgreindra hluta 8.518.692 kr. Ljóst er samkvæmt framansögðu að fjárhagslegt tjón dómarans vegna kaupa hans á hlutafé í bankanum var því verulegt. Telja verður að þeir fjármunir sem fóru forgörðum hjá dómaranum hafi verið slíkir að atvik eða aðstæður voru til að draga óhlutdrægni dómstólsins með réttu í efa, sbr. g-liður 1. mgr. 6. gr. laga um meðferð sakamála. Breytir þá engu þótt nokkur tími hafi liðið frá því tjón dómarans varð og þar til hann dæmdi í málinu. Hvað varðar tjón dómarans má í þessu sambandi einnig líta til orðalags Hæstaréttar Íslands í máli endurupptökubeiðanda. Í forsendum sínum kemst rétturinn svo að orði: „Óvarlegar ákvarðanir [ákærðu] um lánveitingar gátu því valdið hluthöfum í Landsbanka Íslands hf., stórum sem smáum, svo og öllum almenningi fjártjóni“. Enn fremur er til þess að líta að framangreindar upplýsingar um kaup og eignarhald dómarans lágu ekki fyrir við meðferð málsins í Hæstarétti Íslands og voru þær því endurupptökubeiðanda ókunnar.
  89. Samkvæmt framangreindu eru því fram komnir gallar á meðferð málsins fyrir Hæstarétti Íslands. Við mat á skilyrðum d-liðar 1. mgr. 228. gr. laga um meðferð sakamála verður að líta til þess að endurupptökuheimild samkvæmt þeim staflið kom fyrst inn í lögin með nýjum lögum um meðferð sakamála. Í greinargerð með frumvarpi til þeirra laga er sérstaklega tekið fram að með stafliðnum gætu meðal annars átt við tilvik þar sem leiddir væru í ljós annmarkar á hæfi dómara sem með málið fór og ekki hafi áður verið um þá kunnugt. Nákvæmlega það tilvik er uppi í þessu máli. Þá segir jafnframt í frumvarpinu að þessi tiltekna heimild hafi verið sett í lögin í því skyni að tryggja rétta meðferð máls. Með hliðsjón af framansögðu og þeirrar grundvallarreglu sem fram kemur í 70. gr. stjórnarskrárinnar um rétt sakbornings til réttlátrar málsmeðferðar fyrir óháðum og óhlutdrægum dómstól verður að telja uppfyllt skilyrði d-liðar 1. mgr. 228. gr. laga um meðferð sakamála.
  90. Þar sem skilyrði d-liðar 1. mgr. 228. gr. laga um meðferð sakamála telst uppfyllt gerist ekki þörf á að fjalla um meint vanhæfi annarra dómara málsins eða aðrar málsástæður endurupptökubeiðanda. Samkvæmt því er beiðni endurupptökubeiðanda samþykkt.
  91. Lögmaður endurupptökubeiðanda, Sigurður G. Guðjónsson hrl., var skipaður til að gæta réttar hans, sbr. 1. mgr. 230. gr. laga um meðferð sakamála. Kostnaður endurupptökubeiðanda samtals 1.240.000 kr. að meðtöldum virðisaukaskatti verður felldur á ríkissjóð með vísan til 4. mgr. 231. gr. sömu laga.
  92. Uppkvaðning úrskurðar þessa hefur dregist. Ástæðu þess má fyrst og fremst rekja til þess að endanleg skipun nefndarmanna í endurupptökunefnd í máli þessu lá ekki fyrir fyrr en þann 8. mars 2018.

 

Úrskurðarorð

Beiðni Sigurjóns Þorvalds Árnasonar um endurupptöku hæstaréttarmáls nr. 456/2014, sem dæmt var í Hæstarétti Íslands þann 8. október 2015, er samþykkt að því er hann varðar.

Kostnaður endurupptökubeiðanda 1.240.000 kr. greiðist úr ríkissjóði.

 

Haukur Örn Birgisson, formaður

Björn Jóhannesson

Þórdís Ingadóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum