Hoppa yfir valmynd
K%C3%A6runefnd%20%C3%BAtlendingam%C3%A1la

Nr. 47/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 25. janúar 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 47/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU22120042

 

Beiðni [...] um endurupptöku

 

I.       Málsatvik

Hinn 15. ágúst 2022 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 9. maí 2022, um að taka umsókn einstaklings er kveðst heita [...], vera fæddur [...]og vera ríkisborgari Sýrlands (hér eftir kærandi), um alþjóðlega vernd á Íslandi ekki til efnismeðferðar og vísa honum frá landinu. Niðurstaða kærunefndar var birt kæranda 18. ágúst 2022.

Hinn 12. desember 2022 barst kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku. Upplýsingar um málsmeðferð í máli kæranda bárust kærunefnd frá Útlendingastofnun og stoðdeild ríkislögreglustjóra 12. og 20. desember 2022.

Af beiðni kæranda um endurupptöku má ráða að hún byggi á 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

II.        Málsástæður og rök kæranda

Af beiðni kæranda um endurupptöku málsins má ráða að hún byggi efnislega á því að meira en 12 mánuðir séu nú liðnir frá því að hann lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi og er vísað til reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Þá er vísað til þess að kærandi óttist endursendingu til Grikklands þar sem hann hafi sætt ofsóknum og ómannúðlegri meðferð. Jafnframt að hann óttist að verða vísað til Tyrklands frá Grikklandi.

Telur kærunefnd rétt að líta svo á að beiðni kæranda, með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, skuli umsókn kæranda því tekin til efnismeðferðar hér á landi en rétt er að árétta að mál kæranda fellur ekki undir Dyflinnarreglugerðina þar sem hann hefur þegar hlotið alþjóðlega vernd í Grikklandi.

III.      Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 á aðili máls rétt á því að mál sé tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Í 1. mgr. 40. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga kemur fram að flóttamaður skv. 37. gr. laganna, sem er hér á landi eða kemur hér að landi, hefur samkvæmt umsókn rétt á að fá hér alþjóðlega vernd. Stjórnvöldum er þó heimilt, á grundvelli a-, b- og c-liðar 1. mgr. 36. gr. laganna, að taka umsókn ekki til efnismeðferðar við þær aðstæður sem tilgreindar eru í umræddum stafliðum.

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Af orðalagi 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga leiðir að umrætt 12 mánaða tímabil hefst þegar umsækjandi leggur fyrst fram umsókn um alþjóðlega vernd hjá stjórnvöldum. Þá hefur í úrskurðum kærunefndar verið lagt til grundvallar að tímabilinu ljúki þegar endanleg niðurstaða stjórnvalda er framkvæmd með flutningi umsækjanda til viðtökuríkis eða þegar kærandi fer úr landi sjálfviljugur eftir að ákvörðun í máli hans hefur verið tekin.

Kærunefnd telur að túlka beri 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga á þann hátt að þó að 12 mánaða fresturinn sé liðinn verði umsókn ekki tekin til efnismeðferðar af þeim sökum ef tafir á málsmeðferð eða flutningi verði fyrst og fremst raktar til athafna eða athafnaleysis umsækjanda sem hann ber sjálfur ábyrgð á, nema þær tafir hafi verið óverulegar og ljóst er að hægt hefði verið að flytja kæranda áður en 12 mánaða fresturinn var liðinn.

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi 30. nóvember 2021 og rann því umræddur 12 mánaða frestur út á miðnætti 30. nóvember 2022. Kemur því til skoðunar hvort tafir á afgreiðslu umsóknar kæranda séu á ábyrgð hans sjálfs, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Hinn 12. desember 2022 óskaði kærunefnd útlendingamála eftir upplýsingum frá Útlendingastofnun og stoðdeild. Sneri fyrirspurn nefndarinnar að því hvort tafir hefðu orðið á meðferð umsóknar kæranda og ef svo væri, hvort tafir væru á ábyrgð kæranda, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Svar Útlendingastofnunar barst kærunefnd þann sama dag. Þar kom fram að Útlendingastofnun teldi að kærandi hefði ekki tafið mál sitt en vísaði á stoðdeild um frekari svör varðandi framkvæmd. Þá barst svar stoðdeildar 20. desember 2022. Þar kom m.a. fram að stoðdeild hafi farið í búsetuúrræði kæranda 14. september 2022. Herbergisfélagi kæranda hafi komið til dyra og greint frá því að kærandi væri í Keflavík hjá vini eða kærustu. Hinn 20. september 2022 hafi stoðdeild bankað á herbergi kæranda en enginn hafi verið í herberginu. Hinn 21. september 2022 hafi stoðdeild komið aftur en kærandi ekki verið í herberginu. Herbergisfélagi kæranda hafi greint frá því að kærandi hafi farið til kærustu sinnar um morguninn en hann vissi ekki hvar hún byggi. Hinn 22. september 2022 hafi stoðdeild komið í búsetuúrræði kæranda og bankað á tveimur herbergjum sem kærandi hefði haldið sig í. Kærandi hafi ekki verið í herbergjunum en þeir aðilar sem þar hafi verið hafi tjáð stoðdeild að þeir vissu ekki hvar kærandi héldi til. Hinn 26. september 2022 hafi stoðdeild farið í búsetuúrræði kæranda og bankað á dyr í þeim herbergjum sem kærandi hafi haldið til. Kærandi hafi ekki verið þar en í framhaldinu hafi verið hringt í kæranda en hann ekki svarað símanum. Hinn 28. september 2022 hafi stoðdeild bankað hjá kæranda. Herbergisfélagi kæranda hafi greint frá því að hann hafi ekki dvalið í herberginu síðastliðna þrjá daga.

Með tölvubréfi kærunefndar, dags. 4. janúar 2022, var kærandi upplýstur um afstöðu Útlendingastofnunar og stoðdeildar og gefinn frestur til að koma að andmælum í samræmi við 13. gr. stjórnsýslulaga. Talsmaður kæranda staðfesti móttöku tölvubréfsins en engin andmæli bárust innan veitts frests.

Kærunefnd tekur fram að flutningur umsækjenda um alþjóðlega vernd sem fengið hafa synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd hér á landi er íþyngjandi ákvörðun og því eðlilegt að umsækjendur séu mótfallnir slíkum flutningi. Líkt og að framan greinir leið 12 mánaða fresturinn í máli kæranda 30. nóvember 2022. Ljóst er að kærandi var ekki heima í þau sex skipti sem stoðdeild kom í búsetuúrræði kæranda á tveggja vikna tímabili í þeim tilgangi að ræða við kæranda um flutning hans úr landi til Grikklands. Með því að vera ekki í búsetuúrræði sínu þegar stoðdeild reyndi að hitta kæranda fyrir og svara ekki síma þegar stoðdeild gerði tilraun til að hringja í kæranda telur kærunefnd að kærandi hafi komið í veg fyrir flutning sinn úr landi og tafið málsmeðferðina. Með háttsemi sinni gerði kærandi framkvæmd endanlegrar ákvörðunar á stjórnsýslustigi ómögulega innan tilgreindra tímamarka.

Með hliðsjón af framangreindu telur kærunefnd að tafir á afgreiðslu umsóknar kæranda hafi verið á hans ábyrgð, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Af framangreindu leiðir að skilyrði 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er ekki uppfyllt.

Hvað varðar aðrar málsástæður kæranda tekur kærunefnd fram að um þær hafi verið fjallað í úrskurði nefndarinnar sem óskað er endurupptöku á.

Í ljósi framangreinds er því ekki fallist á að atvik hafi breyst verulega í máli kæranda á þann hátt að hann eigi rétt á endurupptöku á máli sínu, sbr. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga. Endurupptöku á máli hans er þar með hafnað.


 

Úrskurðarorð:

Kröfu kæranda er hafnað.

The appellant‘s request is denied.

 

 

Þorsteinn Gunnarsson

 

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                Sandra Hlíf Ocares


 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum