Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20Almannatryggingar

Nr. 51/2019 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 51/2019

Miðvikudaginn 20. febrúar 2019

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eggert Óskarsson lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 29. janúar 2019, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 9. ágúst 2018 þar sem umsókn kæranda um örorkulífeyri og tengdar greiðslur var synjað. 

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með örorkumati, dags. 9. ágúst 2018, var umsókn kæranda um um örorkulífeyri og tengdar greiðslur synjað. Með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 1. október 2018, var ákvörðun stofnunarinnar rökstudd samkvæmt beiðni kæranda.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 29. janúar 2019.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi óskar eftir að úrskurðarnefnd velferðarmála endurskoði ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um 50% örorku.

Í kæru biðst kærandi velvirðingar á því að hafa ekki sent inn kæru fyrr vegna ákvörðunar Tryggingastofnunar, dags. 1. október 2018. Henni hafi yfirsést þriggja mánaða kærufrestur vegna ákvörðunarinnar.

Ástæða kæru sé sú að B [læknir] og C sálfræðingur hafi greint kæranda með ódæmigerða einhverfu og athyglisbrest. Þessir erfiðleikar valdi því meðal annars að hún hafi verið óvinnufær um langt skeið og þá hafi hún þurft að reiða sig á framfærslu frá félagsþjónustu D fyrir sig [...]. Ákvörðun Tryggingastofnunar hafi því komið henni verulega á óvart. Þá segir að B og C séu reiðubúnir að veita frekari upplýsingar verði þess óskað.

III.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um örorkulífeyri og tengdar greiðslur.

Samkvæmt 2. mgr. 13. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, sbr. 5. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála, skal kæra til úrskurðarnefndar vera skrifleg og skal hún borin fram innan þriggja mánaða frá því að aðila var tilkynnt um ákvörðun.

Í 5. mgr. 7. gr. laga um úrskurðarnefnd velferðarmála er vísað til þess að um málsmeðferð, sem ekki er kveðið á um í lögunum, fari samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga og ákvæðum laga sem málskotsréttur til nefndarinnar byggist á hverju sinni.

Í 3. mgr. 27. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 segir að þegar aðili máls fari fram á rökstuðning hefjist kærufrestur ekki fyrr en rökstuðningur hafi verið tilkynntur honum.

Samkvæmt gögnum málsins liðu tæpir fjórir mánuðir frá því að kæranda var birtur rökstuðningur fyrir hinni kærðu ákvörðun með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 1. október 2018, þar til kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 29. janúar 2018. Kærufrestur samkvæmt 2. mgr. 13. gr. laga um almannatryggingar, sbr. 3. mgr. 27. gr. stjórnsýslulaga, var því liðinn þegar kæran barst nefndinni.

Í 28. gr. stjórnsýslulaga segir:

„Hafi kæra borist að liðnum kærufresti skal vísa henni frá nema:

1. afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, eða

2. veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar.

Kæru skal þó ekki sinnt ef meira en ár er liðið frá því að ákvörðun var tilkynnt aðila.“

Með vísan til þessa er nauðsynlegt að taka til skoðunar hvort fyrir hendi séu atriði sem hafa þýðingu við mat á því hvort afsakanlegt verði talið að kæran hafi borist að liðnum kærufresti eða hvort veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin til meðferðar, sbr. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga, en ákvæðið mælir fyrir um skyldubundið mat stjórnvalds á því hvort atvik séu með þeim hætti að rétt sé að taka stjórnsýslukæru til efnislegrar meðferðar, þrátt fyrir að lögbundinn kærufrestur sé liðinn.

Fyrir liggur að í hinni kærðu ákvörðun frá 9. ágúst 2018 og í rökstuðningi fyrir ákvörðuninni frá 1. október 2018 var kæranda leiðbeint um kæruheimild til úrskurðarnefndar velferðarmála og um tímalengd kærufrests. Í kæru kemur fram að kæranda hafi yfirsést framangreindur kærufrestur vegna ákvörðunarinnar. Með vísan til framangreindrar skýringar kæranda er það mat úrskurðarnefndar velferðarmála að ekki sé afsakanlegt að kæra hafi ekki borist fyrr. Þá verður ekki heldur séð að veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin til meðferðar, enda virðist ekkert vera því til fyrirstöðu að kærandi geti sótt um örorkulífeyri á ný.

Með hliðsjón af framangreindu er kærunni vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála, sbr. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru B, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum