Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 85/2018 Úrskurður 16. október 2018

Mál nr. 85/2018                    Eiginnafn:     Hall (kk.)

 

 

Hinn 16. október 2018 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 85/2018 en erindið barst nefndinni 9. október.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  • Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.

  • Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.

  • Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.

  • Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn.

  • Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

 

Í rökstuðningi kemur fram að gert er ráð fyrir að nafnið sé borið fram eins og þolfallsmynd nafnsins Hallur. Það stríðir gegn íslensku málkerfi að nota slíka mynd í nefnifalli og þess vegna er ekki hægt að fallast á eiginnafnið Hall.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Hall(kk.) er hafnað.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum