Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0ir%20um%20sj%C3%A1var%C3%BAtveg%20og%20fiskeldi

Ákvörðun Fiskistofu um að hafna umsókn kæranda um úthlutun byggðakvóta

Stjórnsýslukæra

Ráðuneytið vísar til stjórnsýslukæru [A slf.], dags. 20. apríl 2021, sem barst ráðuneytinu með tölvubréfi sama dag, þar sem kærð er til ráðuneytisins ákvörðun Fiskistofu, dags. 8. apríl 2021, um að hafna umsókn kæranda um úthlutun byggðakvóta á Bakkafirði í Langanesbyggð fyrir fiskveiðiárið 2020/2021 til bátsins [B].

Kæruheimild er í 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða.

 

 

Kröfur kæranda

Kærandi krefst þess að felld verði úr gildi ákvörðun Fiskistofu, dags. 8. apríl 2021, um skiptingu og úthlutun byggðakvóta Bakkafjarðar fiskveiðiárið 2020/2021, með vísan til 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006.

 

 

Málsatvik

Málsatvik eru þau að með auglýsingu, dags. 16. mars 2021, sem birt var á vefsíðu Fiskistofu: www.fiskistofa.is auglýsti Fiskistofa eftir umsóknum um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2020/2021 í nokkrum byggðarlögum, m.a. Bakkafirði í Langanesbyggð en auglýsingin var byggð á 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, sbr. og 5. gr. reglugerðar nr. 728/2020, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2020/2021. Umsóknarfrestur var til og með 30. mars 2021. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hafði þá úthlutað 257 þorskígildistonnum af byggðakvóta til Langanesbyggðar sem skiptust á byggðarlögin Þórshöfn, 116 þorskígildistonn og Bakkafjörð, 141 þorskígildistonn. Úthlutunin var tilkynnt Langanesbyggð með bréfi, dags. 30. nóvember 2020.

Kærandi sótti um byggðakvóta á Bakkafirði í Langanesbyggð fyrir bátinn [B] með umsókn til Fiskistofu.

Hinn 8. apríl 2021 tilkynnti Fiskistofa eigendum og útgerðaraðilum á Bakkafirði í Langanesbyggð ákvarðanir sínar um úthlutun byggðakvóta til einstakra fiskiskipa eða höfnun umsókna um úthlutun í byggðarlaginu. Kæranda, [A slf.], var tilkynnt að hafnað væri umsókn félagsins um úthlutun byggðakvóta til bátsins [B]. Ákvörðun Fiskistofu var byggð á því að báturinn uppfyllti ekki skilyrði b-liðar 1. mgr. 1. gr. reglugerðar nr. 728/2020, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2020/2021, og auglýsingar nr. 271/2021, um (I.) staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta, um að hafa verið skráður í viðkomandi byggðarlagi 17. september 2020.

Þá kom þar fram að ákvörðunin væri kæranleg til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins og að kærufrestur væri tvær vikur frá framangreindri tilkynningu Fiskistofu um ákvörðunina, sbr. 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006.

Hinn 20. apríl 2021 tilkynnti Fiskistofa eigendum og útgerðaraðilum á Bakkafirði í Langanesbyggð að eldri ákvarðanir stofnunarinnar um úthlutun byggðakvóta á Bakkafirði í Langanesbyggð hefðu verið afturkallaðar og að teknar hefðu verið nýjar ákvarðanir um úthlutun byggðakvóta í byggðarlaginu. Samkvæmt ákvörðun Fiskistofu, dags. 20. apríl 2021, var úthlutað tilteknu magni af byggðakvóta til bátsins [B].

Þá kom þar fram að ákvörðunin væri kæranleg til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins og að kærufrestur væri tvær vikur frá framangreindri tilkynningu Fiskistofu um ákvörðunina, sbr. 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006.

 

 

Málsástæður í stjórnsýslukæru og málsmeðferð

Með stjórnsýslukæru, dags. 20. apríl 2021, sem barst ráðuneytinu með tölvubréfi sama dag, kærði [A slf.] til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins framangreinda ákvörðun Fiskistofu, dags. 8. apríl 2021, um að hafna umsókn kæranda um úthlutun byggðakvóta á Bakkafirði í Langanesbyggð fyrir fiskveiðiárið 2020/2021 til bátsins [B].

Í stjórnsýslukærunni segir m.a. að Fiskistofa hafi auglýst á heimasíðu sinni þann 16. mars 2021 lausan til umsóknar byggðakvóta á Bakkafirði í Langanesbyggð með vísan til auglýsingar nr. 271/2021 þar sem kom fram að ákvæði reglugerðar nr. 728/2020, m.a. Bakkafjarðar, með þeim breytingum sem komu fram í auglýsingunni. Í a-lið sérreglna Langanesbyggðar segi: "Ákvæði b-liðar 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Eru skráð í viðkomandi byggðarlagi 17. september 2020." Kærandi hafi sótt um byggðakvóta fyrir fiskiskipið [B] en umsókninni verið hafnað af Fiskistofu, dags. 8. apríl 2021, vegna þess ekki var talið að [B] hafi verið skráð 17. september 2020 á Bakkafirði. Það hafi verið rangt samkvæmt gögnum frá Samgöngustofu en báturinn hafi samkvæmt gögnum verið skráður á Bakkafirði 17. september 2020.

Eftirtalin gögn fylgdu stjórnsýslukærunni: 1) Útprentun úr skipaskrá Samgöngustofu, dags. 16. apríl 2021.

Með tölvubréfi, dags. 21. apríl 2021, óskaði ráðuneytið eftir umsögn Fiskistofu um málið, staðfestu afriti af hinni kærðu ákvörðun auk annarra gagna sem Fiskistofa kynni að hafa um málið.

Með bréfi, dags. 28. apríl 2021, tilkynnti Fiskistofa ráðuneytinu að hin kærða ákvörðun, dags. 8. apríl 2021, hefði verið afturkölluð og að tekin hefði verið ný ákvörðun um úthlutun byggðakvóta til bátsins. Einnig kom þar fram að með hliðsjón af því að hin kærða ákvörðun hafi verið afturkölluð telji Fiskistofa ekki þörf á að bregðast við erindi ráðuneytisins eins og það var lagt fram og væri málinu lokið.

Með bréfinu fylgdu ljósrit af umræddri afturköllun ásamt nýrri ákvörðun Fiskistofu, dags. 20. apríl 2021.

 

 

Rökstuðningur

Stjórnsýslukæra í máli þessu er byggð á 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, en samkvæmt ákvæðinu er heimilt að kæra til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins ákvarðanir Fiskistofu um úthlutun aflaheimilda samkvæmt greininni. Ákvæðið verður að skýra með hliðsjón af ákvæðum stjórnsýslulaga nr. 37/1993, sem einnig gilda um meðferð þessa máls að því leyti sem ekki eru sérstök ákvæði um það í framangreindum lögum. Kæruheimild í 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006 byggir samkvæmt því á því að kærandi hafi lögvarinna hagsmuna að gæta sem beinlínis reynir á við úrlausn tiltekins máls sem kært er til ráðuneytisins.

Kæruefni í stjórnsýslukæru er byggt á því að með hinni kærðu ákvörðun Fiskistofu, dags. 8. apríl 2021, hafi verið hafnað umsókn [A slf.] um byggðakvóta til bátsins [B] er byggði á röngum upplýsingum Fiskistofu um skráningu [B] þann 17. september 2020.

Með bréfi, dags. 20. apríl 2021, tilkynnti Fiskistofa ráðuneytinu að hin kærða ákvörðun, dags. 8. apríl 2021, hefði verið afturkölluð og að tekin hefði verið ný ákvörðun um úthlutun byggðakvóta til skips kæranda, [B] á grundvelli umsóknar félagsins.

Með vísan til framanritaðs er það niðurstaða ráðuneytisins að kærandi hafi ekki lengur lögvarinna hagsmuna að gæta af úrlausn þessa máls en samkvæmt því verður stjórnsýslukæru í máli þessu vísað frá.

 

 

Úrskurður

Stjórnsýslukæru [A slf.], dags. 20. apríl 2021, er vísað frá.

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum