Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20F%C3%A9lags%C3%BEj%C3%B3nusta%20og%20h%C3%BAsn%C3%A6%C3%B0ism%C3%A1l

Mál nr. 456/2022

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 456/2022

Fimmtudaginn 8. desember 2022

A

gegn

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun

Ú R S K U R Ð U R 

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 13. september 2022, kærði A til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 6. september 2022, um innheimtu ofgreiddra húsnæðisbóta.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi þáði húsnæðisbætur á árinu 2021. Með bréfi Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 6. september 2022, var kæranda birt lokauppgjör vegna ársins 2021 þar sem fram kom að hann hefði fengið ofgreiddar húsnæðisbætur, að fjárhæð 143.011 kr.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 13. september 2022. Með bréfi, dags. 15. september 2022, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar ásamt gögnum málsins. Sú beiðni var ítrekuð með erindi úrskurðarnefndar 11. og 26. október 2022. Greinargerð barst 26. október 2022 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 28. október 2022. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að nokkur aðdragandi sé að máli hans. Fyrst hafi hann ekki verið með fyrirliggjandi leigusamning á réttum tíma. Kærandi hafi leitað leiða til að finna hver ætti íbúðina til að biðja um endurnýjun á samningi. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hafi stöðugt beðið um afrit af þessum samningi til þess að kærandi ætti rétt á húsnæðisbótum.

Þann 23. ágúst 2022 hafi kærandi óskað eftir aðstoð eftir að hafa beðið frá fyrstu skilaboðum um að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun væri enn að meta mál hans. Næstu samskipti kæranda við stofnunina hafi verið tilkynning um skuld vegna sjö mánaða aðstoðar á árinu 2021. Kærandi telji það óábyrgt að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hafi ekki tilkynnt honum um skuldina fyrr. Kærandi hafi fengið tilkynningu frá stofnuninni þann 9. nóvember 2021 um að hann gæti ekki fengið áframhaldandi bætur sem hann hafi samþykkt fram í ágúst 2022. Þá hafi hann sett inn nýja umsókn til að kanna hvort stofnunin myndi breyta þeirri ákvörðun.

Kærandi greiði fyrir leigu á íbúðinni með vini sínum og sé í tveimur störfum til að eiga möguleika á að halda því áfram. Á tveggja til þriggja mánaða fresti hækki leigan, án tilkynningar eða útskýringa.

III.  Sjónarmið Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar

Í greinargerð Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) kemur fram að kærandi hafi skilað inn umsókn um húsnæðisbætur þann 19. febrúar 2021 vegna leigu á húsnæðinu B. Umsókn kæranda hafi verið samþykkt þann 19. febrúar 2021. Við lokauppgjör húsnæðisbóta hafi komið í ljós að kærandi hafi fengið ofgreiddar húsnæðisbætur að fjárhæð 143.011 kr. vegna ársins 2021.

Bréf vegna endurreiknings húsnæðisbóta hafi verið send kæranda tvisvar sinnum árið 2021, dags. 21. apríl og 26. júlí. Endurreikningsbréfin geymi uppfærða tekjuáætlun sem sé byggð á nýjustu fyrirliggjandi upplýsingum frá Skattinum og taki mið af heildartekjum, þar með talið fjármagnstekjum, heildareignum, ásamt orlofs- og desemberuppbótum. Kæranda hafi verið veitt færi á því í áðurnefndum bréfum að koma að athugasemdum ef hann teldi þær upplýsingar sem notaðar væru við útreikning húsnæðisbóta ekki endurspegla tekjur og eignir ársins 2021. Engar athugasemdir hafi borist frá kæranda í kjölfar áætlana.

Þann 17. september 2021 hafi kæranda borist bréf þar sem komi fram að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hafi fjallað um rétt kæranda til húsnæðisbóta og fresti afgreiðslu umsóknar þar sem tekjur og/eða eignir skerði húsnæðisbætur að fullu. Engar athugasemdir, upplýsingar eða gögn hafi borist stofnuninni og því hafi umsókn um húsnæðisbætur verið hafnað þar sem tekjur og/eða eignir allra heimilismanna skerði bætur að fullu. Engar athugasemdir hafi borist HMS í kjölfar synjunarinnar. Þann 9. september 2022 hafi ákvörðun HMS verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála.

Í máli þessu sé deilt um lokauppgjör húsnæðisbóta vegna ársins 2021. Samkvæmt niðurstöðu lokauppgjörs hafi kærandi fengið ofgreiddar húsnæðisbætur árið 2021 vegna tekna. Samkvæmt 1. mgr. 25. gr. laga nr. 75/2016 um húsnæðisbætur megi endurskoða rétt til húsnæðisbóta hvenær sem er og endurreikna fjárhæð þeirra þannig að húsnæðisbætur verði í samræmi við þær breytingar sem hafi orðið á aðstæðum umsækjanda eða annarra heimilismanna.

Í 2. mgr. 25. gr. laga um húsnæðisbætur komi skýrt fram að þegar endanlegar upplýsingar um tekjur og eignir næstliðins almanaksárs samkvæmt 17. og 18. gr. laga um húsnæðisbætur liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum skuli framkvæmdaraðili endurreikna fjárhæðir húsnæðisbóta vegna þess almanaksárs á grundvelli þeirra upplýsinga. Í 3. mgr. 25. gr. laga um húsnæðisbætur komi einnig skýrt fram að leiði endurreikningur til breytinga á fjárhæð húsnæðisbóta skuli leiðrétta húsnæðisbætur, sbr. 26. gr., en þar komi fram að hafi umsækjandi fengið hærri húsnæðisbætur en honum bar á umræddu tímabili beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem hafi verið ofgreidd.

Í endurreikningsbréfum sé athygli vakin á því að það sé á ábyrgð umsækjanda að upplýsa stofnunina um allar þær breytingar sem verði á aðstæðum sem kunni að hafa áhrif á rétt til húsnæðisbóta, sbr. 3. mgr. 14. gr. laga nr. 75/2016 um húsnæðisbætur. Í endurreikningsbréfum sé einnig vakin athygli á því að ef í ljós komi að umsækjandi hafi fengið ofgreiddar húsnæðisbætur beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið.

Í 14. gr. reglugerðar nr. 1200/2016 sé fjallað um áhrif tekna á grunnfjárhæðir húsnæðisbóta. Frítekjumörk miðað við árstekjur og tvo heimilismenn hafi verið 5.952.509 kr. árið 2021 fyrir tvo heimilismenn. Fyrir liggi í málinu, miðað við upplýsingar Ríkisskattstjóra, að heildartekjur umsækjanda og annarra heimilismanna hafi verið samtals 10.857.244 kr. fyrir árið 2021.

HMS krefjist þess að hin kærða ákvörðun stofnunarinnar í málinu verði staðfest.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 6. september 2022, um innheimtu ofgreiddra húsnæðisbóta vegna ársins 2021, að fjárhæð 143.011 kr.

Í 8. gr. laga nr. 75/2016 um húsnæðisbætur kemur fram að húsnæðisbætur séu mánaðarlegar greiðslur sem greiðast til umsækjanda, sbr. þó 4. mgr. 21. gr., og skuli ákvarðaðar og reiknaðar út miðað við grunnfjárhæðir sem miðast við fjölda heimilismanna, sbr. 3. tölul. 3. gr., að teknu tilliti til tekna, sbr. 17. gr., eigna, sbr. 18. gr., og greiðsluþátttöku í húsnæðiskostnaði, sbr. 19. gr. Samkvæmt 14. gr. laga nr. 75/2016 er umsækjanda skylt að veita framkvæmdaraðila allar þær upplýsingar og gögn þeim til staðfestingar sem óskað er eftir og nauðsynlegar eru til að staðreyna rétt hans til húsnæðisbóta. Enn fremur er skylt að upplýsa um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans eða heimilismanna eða öðrum þeim atriðum sem kunna að hafa áhrif á rétt viðkomandi til húsnæðisbóta samkvæmt lögunum á þeim tíma sem hann fær greiddar húsnæðisbætur. Af framangreindu verður ráðið að sú skylda hvíli á greiðsluþegum að upplýsa Húsnæðis- og mannvirkjastofnun um meðal annars tekjubreytingar á bótagreiðsluári sem kunna að hafa áhrif á bótarétt.

Í 25. gr. laganna er kveðið á um endurreikning á húsnæðisbótum. Þar segir í 1. mgr. að rétt til húsnæðisbóta megi endurskoða hvenær sem er og endurreikna fjárhæð húsnæðisbóta þannig að húsnæðisbætur verði í samræmi við þær breytingar sem orðið hafa á aðstæðum umsækjanda eða annarra heimilismanna. Í 2. mgr. kemur fram að þegar endanlegar upplýsingar um tekjur og eignir næstliðins almanaksárs samkvæmt 17. og 18. gr. liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum skuli framkvæmdaraðili endurreikna fjárhæðir húsnæðisbóta vegna þess almanaksárs á grundvelli þeirra upplýsinga. Í 3. mgr. kemur fram að leiði endurreikningur samkvæmt 1. og 2. mgr. til breytinga á fjárhæð húsnæðisbóta skuli leiðrétta húsnæðisbæturnar samkvæmt 26. gr. laganna. Þar segir í 1. mgr. að hafi umsækjandi fengið hærri húsnæðisbætur en honum bar á umræddu tímabili beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var.

Kærandi þáði húsnæðisbætur á árinu 2021. Samkvæmt tekjuáætlunum, sem lagðar voru til grundvallar við útreikning húsnæðisbóta á árinu 2021, voru heildartekjur heimilismanna áætlaðar ýmist 643.854 kr., 529.049 kr., 734.498 kr. og 1.270.301 kr. á mánuði. Við lokauppgjör ársins 2021 reyndust tekjur heimilismanna vera hærri en tekjuáætlun gerði ráð fyrir sem leiddi til ofgreiðslu að fjárhæð 143.011 kr. Kæranda ber í samræmi við ákvæði 26. gr. laga nr. 75/2016 að endurgreiða þá fjárhæð. Með vísan til framangreinds er ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um innheimtu ofgreiddra húsnæðisbóta til handa kæranda staðfest.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 6. september 2022, um innheimtu ofgreiddra húsnæðisbóta til handa A, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum