Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20F%C3%A6%C3%B0ingar-%20og%20foreldraorlof

Mál nr. 41/2022 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 41/2022

Fimmtudaginn 28. apríl 2022

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 18. janúar 2022, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 11. janúar 2022, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 7. september 2021 og var umsóknin samþykkt 7. október 2021. Þann 10. desember 2021 var ferilskrá kæranda send til B vegna starfs hjá fyrirtækinu. Þann 28. desember 2021 bárust Vinnumálastofnun upplýsingar frá fyrirtækinu um að kærandi hefði hafnað starfinu. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 6. janúar 2022, var óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda vegna höfnunar á atvinnutilboði hjá umræddu fyrirtæki. Skýringar bárust frá kæranda samdægurs. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 11. janúar 2022, var kæranda tilkynnt að skýringar hennar hefðu ekki verið metnar gildar og að bótaréttur hennar væri felldur niður í þrjá mánuði á grundvelli 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Frekari skýringar bárust frá kæranda þann 12. janúar 2022. Í kjölfar endurupptöku Vinnumálastofnunar á máli kæranda í samræmi við 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 var fyrri ákvörðun stofnunarinnar staðfest þann 18. janúar 2022.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 18. janúar 2022. Með bréfi, dags. 20. janúar 2022, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 8. mars 2022 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 9. mars 2022. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru kemur fram að kærandi geri ráð fyrir að tapa málinu en vilji engu að síður skjóta því til úrskurðarnefndarinnar þar sem hún telji Vinnumálastofnun ekki vera að standa sig og horfi frekar á blað heldur en fólkið sem þeir séu að þjónusta. Vinnumálastofnun sé ekki að finna besta fólkið sem henti í störfin heldur sé verið að neyða fólk til að taka störf sem henti því ekki.

Eftir að hafa haft samband við þjónustuver Vinnumálastofnunar og skoðað málið hafi komið í ljós að kærandi hafi ekki fengið neina tilkynningu um að stofnunin hefði sent ferilskrá hennar á umrætt fyrirtæki. Hún hafi hvorki fengið smáskilaboð né tölvupóst þar sem hún hafi verið látin vita af slíku, þrátt fyrir að starfsmenn þjónustuvers hafi sagt að það ætti að gera. Kæranda gruni að eitthvað hafi orðið þess valdandi að hún hafi ekki fengið slíka tilkynningu.

Þegar B hafi hringt í kæranda hafi hún komið af fjöllum, enda hafi hún ekki sótt um starfið. Þar sem þau hafi ekki alveg skilið hvort annað hafi það mögulega misskilist en hún hafi skilið atvinnurekanda þannig að hann hefði fengið ferilskrá kæranda frá Vinnumálastofnun en ekki að hún hafi verið send til fyrirtækisins. Hún hafi neitað starfi vegna þess að hún hafi ekki haft hugmynd um að Vinnumálastofnun hefði sent ferilskrá til atvinnurekanda þar sem henni hafi aldrei borist tilkynning um slíkt í skilaboðum eða tölvupósti. Það hafi aðeins sést á „Mínum síðum“ sem hún sé ekki að skoða öllum stundum og þar af leiðandi hafi þetta farið fram hjá henni.

Kærandi óski eftir að þetta verði endurskoðað og athugað af hverju hún hafi ekki fengið tilkynningu þar sem þetta sé að valda henni miklum kvíða og stressi, enda gríðarlegt áfall. Hún sé nú þegar skráð í starfstengt nám hjá C og sé að bíða eftir að það byrji.

Kærandi spyrji hvort það sé virkilega hægt að neyða fólk til að taka hvaða starfi sem er, án þess að horft sé til þess hvort manneskjan henti í starfið. Hún hefði sjálf sótt um ef henni hefði þótt starfið forvitnilegt.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 7. september 2021. Með erindi, dags. 7. október 2021, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og bótaréttur ákveðinn 100%. Vegna starfsloka hafi kæranda verið gert að sæta tveggja mánaða biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta. Í byrjun desember hafi ferilskrá kæranda verið send á B. Starfið hafi falist í afgreiðslu á matsölustað í Leifsstöð. Greiðslustofu Vinnumálastofnunar hafi í kjölfarið borist upplýsingar um að kærandi hefði hafnað starfi hjá fyrirtækinu. Með erindi, dags. 6. janúar 2022, hafi verið óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda til ástæðna höfnunar á atvinnutilboði. Í erindi til kæranda hafi verið vakin athygli á hugsanlegum viðurlögum. Skýringar hafi borist frá kæranda samdægurs. Í skýringum frá kæranda segi að hún hafi aldrei sótt um starf hjá umræddum atvinnurekanda en að Vinnumálastofnun hafi óumbeðið gert það fyrir hennar hönd. Þá segi kærandi að hún henti ekki í þá vinnu sem í boði hafi verið.

Með erindi, dags. 11. janúar 2022, hafi kæranda verið tilkynnt að skýringar hennar á höfnun atvinnutilboðs hafi ekki verið metnar gildar og að bótaréttur hennar hafi verið felldur niður í þrjá mánuði. Ákvörðunin hafi verið tekin á grundvelli 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Þann 12. janúar 2022 hafi frekari skýringar borist frá kæranda. Þar hafi kærandi greint frá því að hún hafi enga tilkynningu fengið frá Vinnumálastofnun um atvinnutilboð. Þegar atvinnurekandi hafi hringt í kæranda hafi hún því ekki vitað af miðlun stofnunarinnar á ferilskrá hennar. Þá segi kærandi að hún hafi hafnað atvinnutilboði hjá vinnuveitanda því hún hafi ekki vitað að Vinnumálastofnun hefði miðlað upplýsingum um ferilskrá hennar til vinnuveitanda. Mál kæranda hafi verið tekið fyrir að nýju eftir að viðbótarskýringar hennar höfðu borist stofnuninni. Þann 18. janúar 2022 hafi kæranda verið tilkynnt að stofnunin teldi ekki ástæðu til að fella niður fyrri ákvörðun í máli hennar, enda hafi ekki verið séð að ákvörðunin hefði verið byggð á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstkalinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Markmið laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt tímabundna fjárhagsaðstoð á meðan þeir séu að leita sér að nýju starfi. Með þessu sé verið að tryggja stöðu og öryggi fólks í atvinnuleysi. Því sé gert ráð fyrir að þeir sem teljist tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins séu í virkri atvinnuleit þann tíma og séu jafnframt reiðubúnir að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem þeim standi til boða. Atvinnuleysistryggingar veiti þannig þeim sem tryggðir séu fjárhagslegt úrræði í tímabundnu atvinnuleysi sínu. Ríkar kröfur beri að gera til þeirra sem hafni starfi á innlendum vinnumarkaði um að þeir hafi til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi.

Eitt af skilyrðum þess að umsækjandi um atvinnuleysisbætur eigi rétt til greiðslna atvinnuleysistrygginga sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í 14. gr. laganna sé nánar kveðið á um hvað teljist til virkrar atvinnuleitar. Þar sé útlistað að umsækjandi þurfi meðal annars að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, vera reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á Íslandi, án sérstaks fyrirvara, og hafa til þess vilja og getu. Að öðrum kosti verði ekki litið á hlutaðeigandi í virkri atvinnuleit. 

Í 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um viðurlög vegna höfnunar á starfi eða atvinnuviðtali. Ákvæðið sé svohljóðandi: 

,,Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Ágreiningur í máli þessu snúi meðal annars að því hvort kærandi hafi hafnað starfi í skilningi 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Samkvæmt 4. mgr. 57. gr. skuli Vinnumálastofnun meta við ákvörðun um viðurlög samkvæmt 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg, en í 4. mgr. segi orðrétt:

,,Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“

Vinnumálastofnun sé gert að meta skýringar atvinnuleitenda vegna höfnunar á atvinnutilboði með hliðsjón af þeirri ríku skyldu sem hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til að vera reiðubúnir að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, án sérstaks fyrirvara, og hafa til þess vilja og getu. Gert sé ráð fyrir því að Vinnumálastofnun sé heimilt að líta til aldurs hins tryggða, félagslegra aðstæðna tengdum skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima við ákvörðun um hvort hinn tryggði skuli sæta viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 57. gr. laganna. Enn fremur sé Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar í boði sé starf fjarri heimili hans sem geri kröfur um að hlutaðeigandi flytji búferlum.

Fyrir liggi að kæranda hafi verið boðið starf hjá B. Skýringar kæranda snúi að því að starfið hafi ekki hentað henni og að hún hafi ekki verið meðvituð um það að Vinnumálastofnun hafi miðlað upplýsingum um ferilskrá kæranda til vinnuveitanda.

Líkt og áður segi hvíli rík skylda á atvinnuleitendum til að taka því starfi sem þeim bjóðist, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi. Þá þurfi atvinnuleitendur jafnframt að vera reiðbúnir að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, án sérstaks fyrirvara, og hafa til þess vilja og getu, sbr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Atvinnuleitendur geti því ekki hafnað störfum á þeim forsendum að reynsla þeirra og áhugasvið liggi í annarri atvinnugrein. Enn fremur telji Vinnumálastofnun að atvinnuleitendur geti ekki hafnað störfum á þeirri forsendu að starfið henti þeim ekki.

Hvað varði athugasemdir kæranda er lúti að miðlun á ferilskrá hennar til atvinnurekanda þá hafi upplýsingar um miðlun á ferilskrá verið birtar á „Mínum síðum“ kæranda. Þó telji Vinnumálastofnun það máli þessu óviðkomandi hvort kæranda hafi verið kunnugt um miðlun á ferilskrá hennar eða ekki til vinnuveitanda. Óumdeilt sé að kæranda hafi verið boðið starf hjá B. Þá sé óumdeilt að kærandi hafi hafnað að taka því starfi. Beiting viðurlaga samkvæmt 57. gr. sé ekki háð því að atvinnutilboð eigi sér stað með aðkomu Vinnumálastofnunar heldur eigi ákvæðið við í öllum tilfellum sem atvinnuleitandi hafni starfi. Samkvæmt 1. tölul. 1. mgr. 13. gr. og 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar geti atvinnuleitendur almennt ekki ákveðið í hvaða störf þeim sé miðlað. Atvinnuleitendum sé þó gefinn kostur á því við umsókn um atvinnuleysisbætur að greina frá þeim störfum sem þeir óski eftir að starfa við. Slíkt feli hins vegar ekki í sér takmarkanir á því í hvaða störf stofnunin geti miðlað atvinnuleitendum. Við móttöku umsóknar um atvinnuleysistryggingar veiti Vinnumálastofnun öllum atvinnuleitendum leiðbeiningar um hvar megi finna upplýsingar um réttindi og skyldur atvinnuleitenda. Öllum atvinnuleitendum sé þannig vísað á heimasíðu Vinnumálastofnunar þar sem meðal annars sé að finna skýrar upplýsingar um afleiðingar þess að hafna starfi án gildra ástæðna. Ákvæði laga um atvinnuleysistryggingar séu skýr hvað varði skyldu atvinnuleitenda til að taka störfum sem í boði séu og um höfnun á atvinnutilboðum. Sú skylda sé ekki háð því að atvinnutilboð séu gerð að tilstuðlan Vinnumálastofnunar. Vitneskja kæranda um að Vinnumálastofnun hafi miðlað upplýsingum úr ferilskrá til vinnuveitanda hafi því engin áhrif á niðurstöðu í máli þessu.

Með vísan til framangreinds sé það ljóst að kærandi hafi hafnað starfi í skilningi 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Að mati Vinnumálastofnunar séu skýringar kæranda því ekki þess eðlis að þær réttlæti höfnun á atvinnutilboði, sbr. 4. mgr. ákvæðisins. Kæranda beri því að sæta viðurlögum á grundvelli laganna.

Þann 7. október 2021 hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi hafi nú jafnframt verið beitt viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 57. gr. á sama tímabili samkvæmt 29. gr. laganna. Því komi til ítrekunaráhrifa fyrri viðurlaga og eigi kærandi því ekki rétt til greiðslna atvinnuleysisbóta fyrr en að þremur mánuðum liðnum, sbr. 1. mgr. 61. gr. sömu laga.

Með vísan til framangreinds sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi hafnað starfi í skilningi 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Kæranda beri því að sæta viðurlögum á grundvelli laganna í formi þriggja mánaða biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Ákvæði 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 er svohljóðandi:

„Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Þá segir svo í 4. mgr. 57. gr. laganna:

„Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“

Óumdeilt er að kærandi hafnaði atvinnutilboði hjá B en ágreiningur málsins lýtur að því hvort ástæður kæranda fyrir þeirri höfnun hafi verið réttlætanlegar í skilningi 4. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006. Kærandi hefur gefið þær skýringar að hún hafi ekki verið meðvituð um miðlun stofnunarinnar á ferilskrá hennar. Þá hefur kærandi einnig vísað til þess að starfið hafi ekki hentað henni.

Það er mat úrskurðarnefndarinnar að þær ástæður og skýringar sem kærandi hefur gefið séu ekki þess eðlis að þær réttlæti því að hafna umræddu starfi, sbr. 4. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006.

Úrskurðarnefndin bendir á að í 1. mgr. 13. gr. laganna er fjallað um almenn skilyrði þess að vera tryggður samkvæmt lögunum. Eitt af þeim skilyrðum er að vera í virkri atvinnuleit samkvæmt 14. gr. en í því felst meðal annars að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt er fyrir, sbr. c. lið 1. mgr. ákvæðisins.

Í 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um ítrekunaráhrif fyrri viðurlagaákvarðana. Ákvæðið er svohljóðandi:

„Sá sem hefur sætt viðurlögum skv. 57.–59. gr. eða biðtíma skv. 54. eða 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greinir á sér stað að nýju á sama tímabili skv. 29. gr. skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggur fyrir enda hafi hann fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili skv. 29. gr. Hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili skv. 29. gr. þegar atvik sem lýst er í 1. málsl. á sér stað skal hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.“

Samkvæmt gögnum málsins var  bótaréttur kæranda felldur niður í tvo mánuði þann 7. október 2021 á grundvelli 54. gr. laga nr. 54/2006. Þar sem um sama bótatímabil er að ræða, sbr. 29. gr. laganna, bar Vinnumálastofnun að láta kæranda sæta viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 61. gr. laganna. Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr., sbr. 1. mgr. 61. laga nr. 54/2006, staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 11. janúar 2022, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum