Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0ir%20um%20sj%C3%A1var%C3%BAtveg%20og%20fiskeldi

Ákvörðun Fiskistofu um úthlutun byggðakvóta

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur kveðið upp svohljóðandi

 

ÚRSKURÐ

 

Stjórnsýslukæra

Ráðuneytið vísar til stjórnsýslukæru frá [A] framkvæmdastjóra [B ehf.], dags. 30. apríl 2021, um úthlutun byggðakvóta á Skagaströnd til útgerða sem ekki eiga heimilisfesti í Sveitarfélaginu Skagaströnd. Segir í kæru að [C ehf.] eigi ekki rétt á byggðakvóta á Skagaströnd.

            [B ehf.]., var úthlutað byggðakvóta á skipið [D] með ákvörðun Fiskistofu, dags. 16. apríl 2021m og hefur því lögvarða hagsmuni í málinu á þeim grundvelli.

            Kæruheimild er í 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.

 

Kröfur kæranda

Ráða má af kæru að kærandi geri þá kröfu að felld verði úr gildi ákvörðun Fiskistofu um úthlutun byggðakvóta á Skagaströnd, dags. 16. apríl 2021, og úthlutað verði að nýju til báts félagsins, þar sem bátar í eigu útgerða sem ekki eiga heimilisfesti í Sveitarfélaginu Skagaströnd fái ekki úthlutað af byggðakvóta sveitarfélagsins.

 

Málsatvik

Málsatvik eru þau að með auglýsingu, dags. 16. mars 2021, sem birt var á vefsíðu Fiskistofu: www.fiskistofa.is, auglýsti Fiskistofa eftir umsóknum um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2020/2021 í nokkrum byggðarlögum, m.a. fyrir Skagaströnd en auglýsingin var byggð á 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, sbr. og 5. gr. reglugerðar nr. 728/2020, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2020/2021. Umsóknarfrestur var til og með 30. mars 2021.

            Kærandi sótti um byggðakvóta á Skagaströnd með umsókn, dags. 16. mars 2021, fyrir bátinn [C]. Hinn 16. apríl 2021 tilkynnti Fiskistofa eigendum og útgerðaraðilum báta á Skagaströnd ákvarðanir sínar um úthlutun byggðakvóta, m.a. til ofangreinds báts.

            Þá kom þar fram að ákvörðunin væri kæranleg til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins og að kærufrestur væri tvær vikur frá framangreindri tilkynningu Fiskistofu um ákvörðunina, sbr. 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006.

            Kæra barst ráðuneytinu, dags. 30. apríl 2021.

 

Málsástæður í stjórnsýslukæru og málsmeðferð

Í stjórnsýslukæru er málsatvikum lýst á þann hátt að kærandi telji að útgerðir sem ekki hafi heimilisfesti í Sveitarfélaginu Skagaströnd eigi ekki rétt á byggðakvóta sveitarfélagsins.

            Með tölvubréfi, dags. 6. maí 2021, óskaði ráðuneytið eftir umsögn Fiskistofu um stjórnsýslukæruna, staðfestu afriti af hinni kærðu ákvörðun auk annarra gagna sem Fiskistofa kynni að hafa um málið.

            Í umsögn Fiskistofu, dags. 25. maí 2021, segir m.a. að í kæru sé haldið fram að Fiskistofa hafi ekki haft heimildir til að úthluta byggðakvóta fyrir Skagaströnd til skipa sem skráð eru á Skagaströnd þar sem útgerðir og eigendur þeirra séu skráðir í öðrum sveitarfélögum, nánar tiltekið virðist vera átt við úthlutun til skips í eigu [B ehf. 9. Segir í umsögn að ákvæði 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða geri ráð fyrir að sveitarstjórnir geti gert tillögu að sérstökum skilyrðum fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum byggðarlögum, en jafnframt er gert ráð fyrir að ráðherra hafi valdið til að fallast á slíkar tillögur eða hafna þeim. Þær tillögur sem ráðherra hafi fallist á séu birtar með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda og skapa grundvöll úthlutunar byggðakvóta ásamt reglugerð nr. 728/2020. Segir í umsögn að ráðherra hafi sett sérstök skilyrði fyrir úthlutun aflaheimilda fyrir Sveitarfélagið Skagaströnd sem hefði vikið frá eða væru til viðbótar hinum almennu skilyrðum fyrir úthlutun byggðakvóta, skv. 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, þ.e. c-lið 1. mgr. 1. gr., 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. og 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðar nr. 728/2020, sbr. auglýsingu nr. 271/2021 sem var breytt með auglýsingu nr. 307/2021 og hafði áhrif á c-lið 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar. Segir í umsögn að í 1. gr. reglugerðarinnar sé fjallað um almenn skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta. Ráðherra hafi sett sérstök skilyrði sem höfðu áhrif á 1. mgr. 1. gr. en ekki á 2. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar. Ákvæði 2. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar eru svohljóðandi:

 

Heimilt er að úthluta aflamarki byggðarlaga til fiskiskipa, sem uppfylla skilyrði a- og b-liðar og eru í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með heimilisfang í öðru byggðarlagi en umsókn um byggðakvóta beinist að, ef þeir stunda einnig útgerð með skip sem skráð eru í því byggðarlagi sem þeir hafa heimilisfang í.

 

Í umsögn Fiskistofu segir ennfremur að ákvörðun Fiskistofu, dags. 16. apríl 2021, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa fyrir Skagaströnd, byggði því á að skilyrði hafi verið uppfyllt fyrir úthlutun byggðakvóta skv. framangreindum stjórnvaldsfyrirmælum. Aflamarki byggðarlagsins hafi því m.a. verið úthlutað til fiskiskipa sem uppfylltu skilyrði a- og b-liðar 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar og hafi verið í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með heimilisfang í öðru byggðarlagi en umsókn um byggðakvóta beindist að, ef þeir stunduðu einnig útgerð með skipi sem skráð væri í því byggðarlagi sem þeir höfðu heimilisfang í, skv. heimild í 2. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar. Framangreint hafi átti við um skip í eigu [C ehf.]. Segir að samkvæmt lögmætisreglu stjórnsýsluréttarins verði ákvarðanir og athafnir Fiskistofu að eiga sér stoð í lögum. Meðalhófsregla stjórnsýsluréttarins feli það m.a. í sér að stjórnvald verði að gæta hófs í meðferð valds síns og það vald verði að eiga sér stoð í lögum. Með hliðsjón af framangreindu telji Fiskistofa að staðfesta beri hina kærðu ákvörðun.

            Eftirtalin gögn fylgdu umsögn Fiskistofu til ráðuneytisins: 1) Ákvörðun Fiskistofu, dags. 16. apríl 2021. 2) Frétt á vefsíðu Fiskistofu, dags. 16. mars 2021. 3)Upplýsingar af vefsíðu Fiskistofu um annað skip í eigu og útgerð [C ehf.].

            Með tölvubréfi, dags. 26. maí 2021, sendi ráðuneytið umsögn Fiskistofu til kæranda og gaf honum kost á að koma fram með frekari athugasemdir. Frekari athugasemdir bárust ekki.

 

Rökstuðningur

I.

Stjórnsýslukæra í máli þessu er byggð á 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, en samkvæmt ákvæðinu er heimilt að kæra til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins ákvarðanir Fiskistofu um úthlutun aflaheimilda samkvæmt greininni. Ákvæðið verður að skýra með hliðsjón af ákvæðum stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

            Stjórnsýslukæra barst ráðuneytinu þann 30. apríl 2021 sem er innan kærufrests sem var tvær vikur frá ákvörðun Fiskistofu, og er málið tekið til efnismeðferðar.

 

II.

Kæruefnið er byggt á því að kærandi telji að bátar útgerða sem ekki eiga heimilisfesti í sveitarfélaginu Skagaströnd eigi ekki að geta fengið úthlutað byggðakvóta fyrir byggðarlagið.

            Um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2020/2021 gilda ákvæði 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða. Í 5. mgr. 10. gr. er ráðherra falið að setja með reglugerð almenn skilyrði fyrir úthlutun aflaheimilda til fiskiskipa innan einstakra byggðarlaga. Á grundvelli framangreinds ákvæðis hefur ráðherra sett reglugerð nr. 728/2020, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2020/2021. Í 1. gr. reglugerðarinnar eru talin upp almenn skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2020/2021.

            Samkvæmt 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006 getur ráðherra heimilað á grundvelli rökstuddra tillagna sveitarstjórnar að sett verði sérstök viðbótarskilyrði fyrir úthlutun aflaheimilda í einstökum byggðarlögum enda séu þau byggð á málefnalegum og staðbundnum ástæðum og í samræmi við hagsmuni viðkomandi byggðarlaga. Sambærilegt ákvæði er í 2. gr. reglugerðar nr. 728/2020. Sett hafa verið sérstök viðbótarskilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta á Skagaströnd með auglýsingu nr. 271/2021, um (1.) staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2020/2021. Þann 18. mars 2021 var gerð breyting á auglýsingunni. Auglýsing nr. 307/2021 um (1.) breytingu á auglýsingu um (1.) staðfestingu reglna sveitartfélaga um úthlutun byggðakvóta, nr. 271/2021 birtist í B-deild Stjórnartíðinda þann 18. mars 2021 og öðlaðist þegar gildi, frá og með 19. mars 2021. Hin sérstöku skilyrði breyttu 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar en ekki 2. mgr. 1. gr.

            Í 2. mgr. 1. gr. reglugerðar nr. 728/2020 segir að heimilt sé að úthluta aflamarki byggðarlaga til fiskiskipa, sem uppfylla skilyrði a- og b-liðar og eru í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með heimilisfang í öðru byggðarlagi en umsókn um byggðakvóta beinist að, ef þeir stunda einnig útgerð með skip sem skráð eru í því byggðarlagi sem þeir hafa heimilisfang í. Sýnt hefur verið fram á með gögnum í málinu að þannig á við um félagið [C ehf.], sem gerir út bátinn [E] á Skagaströnd, sem er skráð með lögheimili í byggðarlaginu Rifi í Snæfellsbæ, þar sem félagið gerir út bátinn [F] sem á heimahöfn í því sama byggðarlagi.

 

III.

Með vísan til framanritaðs er það niðurstaða ráðuneytisins að staðfesta beri ákvörðun Fiskistofu, dags. 16. apríl 2021, um úthlutun byggðakvóta til bátsins [D] enda hafi ákvörðunin verið í samræmi við gildandi lög og reglur sem gilda eiga um úthlutunina.

            Beðist er velvirðingar á þeim töfum sem hafa orðið á uppkvaðningu þessa úrskurðar en þær er að rekja til mikilla anna í ráðuneytinu.

 

Úrskurður

Ráðuneytið staðfestir ákvörðun Fiskistofu, dags. 16. apríl 2021, um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2020/2021 til bátsins [D].


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum