Hoppa yfir valmynd
K%C3%A6runefnd%20%C3%BAtlendingam%C3%A1la

Nr. 417/2021 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 9. september 2021 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 417/2021

í stjórnsýslumáli nr. KNU21070030

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

 

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 13. júlí 2021 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Palestínu (hér eftir nefndur kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 24. júní 2021, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Þess er krafist að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnislegrar meðferðar hér á landi, aðallega með vísan til sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, og með vísan til 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, sbr. 1 mgr. 42. gr. sömu laga og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994.

Til vara er gerð krafa um að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og Útlendingastofnun gert að taka málið til meðferðar að nýju með vísan til 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.         Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 18. október 2021. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann 25. október 2020, kom í ljós að fingraför hans höfðu m.a. verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Grikklandi og að kærandi hafi hlotið alþjóðlega vernd þar í landi þann 24. apríl 2019. Við umsókn framvísað kærandi grísku dvalarleyfisskírteini með gildistíma frá 24. apríl 2019 til 23. apríl 2022. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun, dagana 10. og 25. nóvember 2020, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 6. janúar 2021 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Kærandi kærði ákvörðunina þann 3. febrúar 2021 til kærunefndar útlendingamála. Þann 15. apríl 2021 var ákvörðun Útlendingastofnunar felld úr gildi og lagt fyrir stofnunina að taka mál kæranda til meðferðar á ný. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun þann 10. maí 2021. Með ákvörðun, dags. 24. júní 2021, synjaði Útlendingastofnun öðru sinni að taka mál kæranda til efnismeðferðar. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 29. júní 2021. Var sú ákvörðun kærð til kærunefndar þann 13. júlí 2021. Greinargerð kæranda barst kærunefnd þann 22. júlí 2021 ásamt fylgigögnum. Þá bárust viðbótargögn þann 17. ágúst 2021.

III.          Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kæranda hafi verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi. Umsókn hans um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Grikklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Grikklands.

IV.          Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda rekur hann þá málsmeðferð sem hann hefur fengið hjá bæði Útlendingastofnun og kærunefnd útlendingamála. Er varðar málsástæður kæranda vísar hann til greinargerðar sinnar til kærunefndar útlendingamála, dags. 19. febrúar 2021, en kærandi ber fyrir sig sömu málsástæðum og þar er að finna. Þar hafi kærandi byggt á því að taka ætti umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á Íslandi vegna sérstakra ástæðna hans, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi hafi lýst aðstæðum sínum í Grikklandi, heilsufari sínu og fjallað um aðstæður einstaklinga sem hafi hlotið alþjóðlega vernd í Grikklandi auk þess að færa fram rök fyrir því að staða hans yrði mun verri en staða almennings þar í landi. Þá hafi kærandi byggt á því að hann njóti verndar 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga sem mæli fyrir um grundvallarregluna um bann við endursendingum (non-refoulement) og að íslenskum stjórnvöldum beri skylda til þess að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar með vísan til 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, sbr. 42. gr. sömu laga. Kærandi ítrekar framangreindar kröfur í greinargerð sinni til kærunefndar þann 22. júlí 2021.

Í greinargerð kæranda, dags. 22. júlí 2021, leggur hann áherslu á að stjórnvöldum beri að leggja heildstætt mat á einstaklingsbundnar aðstæður umsækjenda og þær afleiðingar sem endursending geti haft í för með sér fyrir þá, bæði líkamlegar og andlegar. Kærandi telji veigamiklar ástæður mæla með því að kærunefnd endurskoði mat Útlendingastofnunar á einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda og leggur í því sambandi áherslu á 6. mgr. 8. gr. og 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga.

Kærunefnd hafi úrskurðað í máli kæranda þann 15. apríl 2021 í máli nr. KNU21020012 og komist að þeirri niðurstöðu að frekari rannsókn á heilsufari kæranda yrði að fara fram, þeirri læknisþjónustu sem hann þarfnist og aðgengi að heilbrigðisþjónustu. Þar sem einnig hafi skort upplýsingar um hvort kærandi hefði kennitölu og skattnúmer í Grikklandi hafi nefndin ekki talið annað tækt en að senda málið til nýrrar meðferðar hjá Útlendingastofnun. Í málinu sé óumdeilt að kærandi sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga, sbr. 25. gr. sömu laga, en framlögð gögn beri með sér að kærandi sé í mikilli þörf fyrir sálfræðiaðstoð og stuðning í nærumhverfi sínu. Í hinni kærðu ákvörðun komi fram að Útlendingastofnun telji að veikindi kæranda séu ekki þess eðlis að hann geti ekki leitað sér aðstoðar vegna andlegrar líðan sinnar. Kærandi gerir í greinargerð sinni athugasemdir við framangreinda niðurstöðu og fjallar um heilsufar kæranda og þá þjónustu sem hann hafi notið hér á landi. Þá komist Útlendingastofnun að þeirri niðurstöðu í hinni kærðu ákvörðun að kærandi þjáist ekki af miklum og alvarlegum veikindum auk þess sem ekkert bendi til þess að meðferð við þeim kvillum sem hrjái hann sé ekki aðgengileg í viðtökuríki. Kærandi andmælir framangreindu mati Útlendingastofnunar og telur augljóst að andleg veikindi kæranda séu mikil og alvarleg og ítrekar það sem komi fram í vottorði sálfræðings sem kærandi hafi lagt fram við meðferð málsins. Þá sé gerð athugasemd við þá niðurstöðu stofnunarinnar að ekkert bendi til þess að meðferð við þeim kvillum sem kærandi þjáist af sé ekki aðgengileg í viðtökuríki.

Í viðtali kæranda hjá Útlendingastofnun, dags. 10. maí 2021, hafi komið fram að hann hefði ekki vitneskju um það hvort hann hefði fengið útgefna kennitölu (AMKA) eða skattnúmer í Grikklandi. Í hinni kærðu ákvörðun sé vísað til þess að Útlendingastofnun hafi óskað eftir upplýsingum frá grískum stjórnvöldum um það hvort kærandi sé handhafi skattnúmers en ekkert svar hafi borist og þá vísi stofnunin til þess að heimildir bendi til þess að kærandi hafi fengið útefna kennitölu þegar umsókn hans um alþjóðlega vernd hafi verið móttekin af grískum stjórnvöldum. Kærandi gerir athugasemd við framangreindar fullyrðingar Útlendingastofnunar og vísar í því samhengi til fyrri úrskurðar kærunefndar, dags. 15. apríl 2021, í máli kæranda. Kærandi telji vinnubrögð Útlendingastofnunar ófullnægjandi og ljóst að stofnunin hafi ekki upplýsingar um það hvort hann hafi kennitölu eða skattnúmer í Grikklandi og þar af leiðandi liggi ekki fyrir hvort kærandi hafi aðgang að heilbrigðisþjónustu þar í landi. Þá andmælir kærandi því mati Útlendingastofnunar að heimildir bendi til þess að ef hann sé ekki handhafi kennitölu þá geti hann fengið kennitölu og skattnúmer leiti hann eftir því og vísar til fyrri umfjöllunar í greinargerð til kærunefndar, dags. 19. febrúar 2021. Kærandi telji að frásögn hans og framlögð gögn um heilsufar varpi ljósi á að honum muni reynast erfitt að leita réttinda sinna í Grikklandi. Þá andmælir kærandi mati Útlendingastofnunar á stöðu Covid-19 faraldursins í Grikklandi. Af lestri úrskurðar kærunefndar frá 15. apríl 2021 í máli kæranda sé ljóst að aðgengi hans að heilbrigðisþjónustu í Grikklandi skipti máli við úrlausn málsins en kærunefnd sé enn ekki fært að úrskurða í málinu þar sem fullnægjandi upplýsingar um raunverulegt aðgengi kæranda að heilbrigðisþjónustu þar í landi liggi ekki fyrir.

Þá vísar kærandi til fyrri greinargerða sinna til bæði Útlendingastofnunar og kærunefndar útlendingamála þar sem fram hafi komið að kærandi hafi greint frá því að hafa sætt pyndingum í heimaríki. Ekki hafi farið fram frekari rannsókn á því hversu alvarlegar afleiðingar það hafi haft á kæranda en þegar umsækjendur um alþjóðlega vernd greini frá því að þeir séu þolendur pyndinga beri Útlendingastofnun að virkja ákveðna verkferla, sbr. úrskurður kærunefndar í máli nr. KNU17090035 frá 5. desember 2017. Í hinni kærðu ákvörðun hafi jafnframt verið komist að því að þau atvik sem kærandi hafi lýst gefi ekki til kynna að hann eigi á hættu að verða fyrir alvarlegri mismunun eða að staða hans komi til með að verða verulega síðri en almennings í landinu, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærandi andmæli þessari niðurstöðu Útlendingastofnunar með vísan til umfjöllunar, heimilda og rökstuðnings í fyrri greinargerðum kæranda. Í ljósi framangreinds verði ekki komist hjá því að taka mál kæranda til efnismeðferðar á grundvelli sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Í úrskurði kærunefndar í máli kæranda þann 15. apríl 2021 hafi nefndin ekki talið sig vera í aðstöðu til að draga nægilega skýrar ályktanir af þeim læknisfræðilegu gögnum sem lágu fyrir í málinu um alvarleika veikinda kæranda og hvaða afleiðingar það hafi fái hann ekki viðeigandi þjónustu. Þá hafi kærunefnd beint því til Útlendingastofnunar að frekari rannsókn yrði að fara fram í máli kæranda. Þar sem Útlendingastofnun hafi ekki fallist á að framkvæma sálfræðimat á kæranda telji hann ástæðu til að kærunefnd hlutist til um að framkvæma mat á kæranda. Með hliðsjón af framangreindu sé það mat kæranda að hin kærða ákvörðun sé byggð á ónægum og þar af leiðandi ófullnægjandi upplýsingum. Jafnframt sé ljóst að ekki hafi farið fram einstaklingsbundið mat á stöðu kæranda sem sé þolandi pyndinga og glími við alvarlega andlega erfiðleika af þeim sökum. Útlendingastofnun hafi því ekki fullnægt rannsóknarskyldu sinni og sé sú krafa gerð að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og Útlendingastofnun gert að taka málið til nýrrar meðferðar með vísan til 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.

V.           Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins var kæranda veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi þann 24. apríl 2019 og hefur hann gilt dvalarleyfi þar í landi til 23. apríl 2022. Að mati kærunefndar telst sú vernd sem kærandi nýtur í Grikklandi virk alþjóðleg vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður í Grikklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2020 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 30. mars 2021);
  • Amnesty International Report 2020/21 – Greece (Amnesty International, 7. apríl 2021);

  • Annual report 2019 – Executive Summary (The Greek Ombudsman Independent Authority, 31. desember 2019);
  • Asylum Information Database, Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, júní 2021);
  • Beneficiaries of international protection in Greece – Access to documents and socio-economic rights (Refugee Support Aegean, 22. mars 2021);
  • Commissioner for Human Rights: Report of the Commissioner for Human Rights of the Council of Europe, Dunja Mijatovic, following her visit to Greece from 25 to 29 June 2018 (Council of Europe, 6. nóvember 2018);
  • EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017);

  • Freedom in the World 2020 – Greece (Freedom House, 5. júní 2020);
  • Greece as a Country of Asylum – UNHCR‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015);
  • Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017);
  • Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017);
  • Report on the Living Conditions of Beneficiaries of International Protection in Greece (Passerell, nóvember 2020);
  • Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017);

  • State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016);
  • Upplýsingar af vefsíðu Doctors of the world (https://mdmgreece.gr/);
  • Upplýsingar af vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal): https://e-justice.europa.eu;
  • Upplýsingasíða Refugee Info Greece (http://refugee.info/greece/, sótt 9. september 2021);
  • Upplýsingasíða Johns Hopkins háskólans (https://coronavirus.jhu.edu/map.html, sótt 9. september 2021);
  • Upplýsingasíða Sóttvarnarstofnunar Evrópu (https://www.ecdc.europa.eu/en/cases-2019-ncov-eueea, sótt 9. september 2021) og
  • World Report 2021 – European Union (Human Rights Watch, 13. janúar 2021).

Af framangreindum gögnum verður ráðið að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur meðal annars bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagsástand í Grikklandi hafi haft á aðstæður einstaklinga sem hlotið hafi vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifa oft á jaðri samfélagsins og búi í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sambærilegan rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst jafnframt aðgangur að vinnumarkaði. Þá veita frjáls félagasamtök einstaklingum með alþjóðlega vernd aðstoð við að kynna sér réttindi sín í Grikklandi.

Samkvæmt skýrslu European Council on Refugees and Exciles (ECRE) frá því í júní 2021 eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu með sömu skilyrðum og grískir ríkisborgarar, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum. Samkvæmt fyrrnefndri skýrslu hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins og hefur kostnaðarþátttaka almennings aukist við kaup á lyfjum og þjónustu. Þannig geti verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu þar í landi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Þetta eigi jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafi rétt til dvalar í ríkinu. Auk þess hafi útgáfa almannatrygginganúmera (AMKA) (áður nefnt kennitölur) falið í sér hindranir fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd við að afla sér heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt upplýsingasíðu Refugee Info Greece fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd og handhafa verndar í Grikklandi og sem veitir upplýsingar á grísku, arabísku, farsi, urdu, frönsku, lingala/bantu, norður-kúrdísku og ensku hafi allir umsækjendur um alþjóðlega vernd fengið svokallað AMKA eða almannatrygginganúmer sem veitti þeim m.a. aðgang að heilbrigðiskerfinu. Í janúar 2020 hafi skilyrði fyrir útgáfu almannatrygginganúmera breyst og fái umsækjendur um alþjóðlega vernd nú útgefin tímabundin almannatrygginga- og heilbrigðisþjónustunúmer (PAAYPA), meðan þeir sem hlotið hafa alþjóðlega vernd fái útgefið varanlegt almannatrygginganúmer. Þegar umsækjanda sé veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi verði almannatrygginga- og heilbrigðisþjónustunúmerið óvirkt mánuði eftir að viðkomandi hljóti dvalarleyfi. Einstaklingar geti þá í kjölfarið sótt um varanlegt almannatrygginganúmer í næstu þjónustumiðstöð. Til að sækja um slíkt númer þurfi einstaklingar að framvísa dvalarleyfi eða ferðaskilríkjum og staðfestingu á heimilisfangi. Til að fá varanlegt almannatrygginganúmer gefið út sé nægilegt að sýna fram á heimilisfang í búðum eða í gistiskýli. Þá segir á upplýsingasíðunni að samkvæmt gildandi löggjöf séu allir aðilar í hinum opinbera heilbrigðisgeira skyldugir til að veita öllum fyrstu hjálp þegar nauðsyn beri til. Eigi allir rétt á að leita til sjúkrahúsa og fá ókeypis læknisþjónustu og lyf sem þeir þarfnist þrátt fyrir að viðkomandi hafi hvorki PAAYPA eða AMKA númer. Á upplýsingasíðunni er unnt að eiga í samskiptum við þjónustufulltrúa á netspjalli í gegnum Facebook á áðurgreindum tungumálum. Á upplýsingasíðunni er einnig hægt að nálgast skjal á grísku sem hlaða má niður þar sem þessi réttur til þjónustu fyrir alla er útskýrður.

Í skýrslu ECRE kemur fram að aðgengi einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi að húsnæði sé háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með heimild til dvalar í Grikklandi. Fá gistiskýli séu í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði sé til staðar sem einungis sé ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt geti reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin sé mikil og dæmi séu um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum og yfirfullum íbúðum við mjög bágar aðstæður. Eigi þetta einnig við um einstaklinga sem hafi verið sendir aftur til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum. Þá hafi í mars 2020 verið gerðar breytingar á útlendingalöggjöfinni í Grikklandi sem kveði á um að þegar ákvörðun um að veita alþjóðlega vernd liggi fyrir skuli draga úr fjár- og húsnæðisstuðningi. Handhöfum alþjóðlegrar verndar sem dvelji í úrræðum innan hins svokallaða ESTIA kerfi eða öðrum úrræðum, þar með talið hótelum og íbúðum, sé skylt að yfirgefa þau innan 30 daga eftir að hafa hlotið alþjóðlega vernd. Þó séu undantekningar frá þessari reglu, sérstaklega þegar um sé að ræða fólk sem glími við alvarlegan heilsubrest. Í skýrslu Passerell frá því í nóvember 2020 kemur fram að félagasamtök bjóði upp á gistiúrræði fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi en langur biðlisti sé eftir plássi þar og barnafjölskyldur og einstaklingar í viðkvæmri stöðu gangi fyrir.

Þá kemur fram í skýrslu ECRE að einstaklingar með alþjóðlega vernd eigi sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar. Erfiðleikar geti þó verið til staðar við að nálgast félagslegar bætur vegna ákveðinna kerfishindrana, m.a. þurfi einstaklingar sem hyggist sækja um félagslegar bætur að leggja fram ákveðin skjöl s.s. fæðingarvottorð, upplýsingar um fjölskyldustöðu og prófskírteini. Þá hafi einstaklingar fengið synjun á umsókn sinni frá opinberum starfsmönnum þvert á reglur um jafnræði í grískum lögum. Þær félagslegu bætur sem í boði séu í Grikklandi séu t.d. bætur fyrir fjölskyldur, en skilyrði fyrir slíkum bótum sé að sýnt sé fram á fimm ára óslitna og varanlega búsetu í Grikklandi. Þá veiti grísk yfirvöld einstaklingum, m.a. handhöfum alþjóðlegrar verndar, sem búi undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna, svokallaðan KEA styrk. Þá séu í reynd engir aðrir framfærslustyrkir en KEA í boði. Jafnframt séu engin sérúrræði til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. þolendur pyndinga. Þá sé félagsleg aðstoð ekki bundin við búsetu á tilteknum stað.

Samkvæmt skýrslu ECRE hafa einstaklingar með alþjóðlega vernd aðgang að atvinnumarkaðnum með sömu skilyrðum og ríkisborgarar Grikklands. Ekki sé þörf á sérstöku atvinnuleyfi. Atvinnuleysi sé hins vegar mikið í landinu og samkeppni við grískumælandi einstaklinga og erfiðleikar við að fá skattnúmer (AFM) útgefið dragi úr atvinnumöguleikum handhafa alþjóðlegrar verndar. Þessir erfiðleikar við að sækja sér atvinnu hafi leitt til þess að einstaklingar reyni að afla sér tekna með óformlegum og jafnvel ólöglegum leiðum sem hindri þar með aðlögun þeirra að samfélaginu. Samkvæmt rannsókn frá árinu 2018 hafi meirihluti þeirra flóttamanna sem þá hafi verið starfandi verið í óskráðu starfi. Þeir einstaklingar sem ekki starfi innan hins hefðbundna atvinnumarkaðar hafi ekki aðgang að almannatryggingakerfinu og vinni sér ekki inn atvinnutengd réttindi, s.s. atvinnuleysisbætur. Mikill meirihluti einstaklinga með alþjóðlega vernd og umsækjendur um vernd reiði sig því á fjárhagsaðstoð og dreifingu matvæla og muna af hálfu stjórnvalda og mannúðarsamtaka til þess að uppfylla grunnþarfir sínar. Í skýrslu ECRE kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafi mætt erfiðleikum við að fá útgefið skattnúmer hjá grískum stjórnvöldum. Útgáfa skattnúmers sé grundvöllur þess að geta lifað og starfað löglega í Grikklandi og þess að einstaklingar geti sótt aðstoð og réttindi hjá grískum stjórnvöldum. Skattnúmerið sé forsenda þess að geta sótt um félagslega aðstoð, til að vinna hvort sem er sem starfsmaður hjá öðrum eða að hefja eigin rekstur, og til þess að gera samninga um leigu á húsnæði. Samkvæmt upplýsingasíðu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd þurfi einstaklingar sem hyggjast sækja um skattnúmer að framvísa ferðaskilríki eða dvalarleyfi og staðfestingu á heimilisfangi eða heimilisleysi. Umsóknarferlið fari einungis fram á grísku en umsækjendur geti leitað eftir aðstoð hjá endurskoðendum eða frjálsum félagasamtökum.

Vegna upplýsinga um þessa erfiðleika varðandi útgáfu skattnúmera sendi kærunefnd útlendingamála árið 2020 fyrirspurn til Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og óskaði eftir upplýsingum um hvort stofnuninni væri kunnugt um hindranir sem einstaklingar með alþjóðlega vernd í Grikklandi kunni að mæta við að verða sér úti um slíkt skattnúmer. Í svari Flóttamannastofnunnar, dags. 10. mars 2020, kemur m.a. fram að almennt þurfi að sækja um skattnúmerið í eigin persónu hjá viðeigandi stjórnvaldi, umsóknina þurfi að fylla út á grísku og sýna þurfi skilríki s.s. dvalarskírteini. Þá sé engin túlkaþjónusta í boði en öll málsmeðferðin, bæði skriflega umsóknin og samskipti við stjórnvöld, þurfi að fara fram á grísku. Starfsmenn grískra yfirvalda séu ekki skyldugir samkvæmt lögum til þess að tala ensku í störfum sínum eða vinna með gögn sem ekki séu skrifuð eða þýdd yfir á grísku. Niðurstaða umsóknar um skattnúmer sé því undir því komin að starfsmaðurinn sé viljugur til samvinnu og að umsækjandi um skattnúmer hafi grunn í ensku eða grísku. Þá kom fram í svari Flóttamannastofnunar að það væri mismunandi og oft misvísandi framkvæmd milli þeirra stjórnvalda sem sjái um útgáfu númeranna. Framkvæmdin færi í raun eftir því hversu vant starfsfólkið væri að þjónusta þennan hóp. Þá geti viðmót og vilji starfsmanna stjórnvaldsins haft áhrif á niðurstöðu varðandi útgáfu skattnúmers og þeir umsækjendur sem njóti aðstoðar frjálsra félagasamtaka eða lögmanna í umsóknarferlinu séu líklegri til þess að fá jákvætt svar við umsókn sinni. Þá hafi komið upp vandamál hjá þessum hópi varðandi það að tengja skattnúmer hjóna saman. Grísk skattayfirvöld hafi árið 2018, gefið út fyrirmæli um ítarlegri skoðun á skilríkjum erlendra umsækjenda um skattnúmer, sem hafi í kjölfarið leitt til þess að biðtími eftir niðurstöðu hafi lengst töluvert hjá þeim hópi. Flóttamannastofnun, gríski umboðsmaðurinn og frjáls félagasamtök hafi í kjölfarið ítrekað lýst yfir áhyggjum vegna þessa og því hafi grísk stjórnvöld brugðist við með breytingu á framkvæmd, en þó sé þörf á frekari aðgerðum til að bæta þetta ferli. Þá sé óvíst hver staðan sé varðandi þann málafjölda sem enn bíði afgreiðslu af þessum sökum.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2020 kemur fram að dæmi séu um að flóttafólk sé beitt ofbeldi, þ. á m. af hendi grísku lögreglunnar. Þá kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggi bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur séu ofbeldisbrot rannsökuð af grísku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsaki meint brot lögreglu. Af framangreindri skýrslu verði ráðið að ýmsir annmarkar séu á dómskerfi landsins en sjálfstæði dómstóla sé tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga. Þá kemur fram í vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að útlendingar í Grikklandi sem séu þolendur glæpa og tali hvorki né skilji grísku eigi rétt á túlkaþjónustu og upplýsingum um mál þeirra á tungumáli sem þeir skilji.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skuli taka hana til efnismeðferðar. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga verður því aðeins beitt ef stjórnvöld telja, á grundvelli hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar eftir því sem við á, að skilyrði þess séu uppfyllt. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. er til viðbótar þeirri vernd sem 3. mgr. 36. gr. veitir umsækjendum um alþjóðlega vernd.

Á grundvelli 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga setti ráðherra reglugerð nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, en með henni bættust tvær greinar, 32. gr. a og 32. gr. b, við reglugerðina. Í 32. gr. a reglugerðarinnar kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í ákvæðinu jafnframt talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar sem tilvikin eru talin upp í dæmaskyni geta aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu alvarleikastigi, haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður séu ekki sérstaklega undanskildar, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar.

Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar skal líta til þess hvort umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, svo sem ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Kærunefnd telur að orðalagið „muni eiga“ feli ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar. Orðalagið gerir þó kröfu um að tilteknar líkur verði að vera á alvarlegri mismunun, þ.e. að sýna verður fram á að kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir en að ekki sé nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og kærandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst kærandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram á að verulegar ástæður séu til að ætla að kærandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og kærandi, verði fyrir slíkri meðferð.

Þá skal líta til þess hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Í reglugerðinni kemur fram að meðferð teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur sé átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en umsækjanda muni ekki standa hún til boða. Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi lítur kærunefnd m.a. til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem hann þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.

Af 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar má jafnframt ráða að heilsufar umsækjanda hafi takmarkað vægi umfram það sem leiðir af 2. mgr. 32. gr. a, nema það teljist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið. Þá tekur 3. mgr. 32. gr. a af tvímæli um það að efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Slíkar aðstæður gætu þó fallið undir 3. mgr. 36. gr. nái þær því alvarleikastigi sem við á, sbr. umfjöllun hér í framhaldinu.

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi [...] ára karlmaður. Í viðtali hjá Útlendingastofnun, dagana 10. og 25. nóvember 2020, greindi kærandi m.a. frá því að hann finni fyrir verk í hnjám, baki, hjarta og höfði. Þá greindi kærandi frá því að hann sé andlega þreyttur, þunglyndur og kvíðinn. Í framhaldsviðtali, dags. 10. maí 2021, greindi kærandi frá því að andlegt ástand sitt hafi versnað frá því að hann hafi mætt í fyrra viðtal sitt hjá Útlendingastofnun. Samkvæmt framlögðum gögnum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 24. nóvember 2020 til 7. júní 2021, kemur fram að kærandi eigi enga sögu um alvarleg veikindi. Kærandi hafi greint frá því að finna fyrir kúlu í hægri síðu sem virðist vera hnútur að mati hjúkrunarfræðings auk þess sem að hann hafi greint frá versnandi mæði. Af samskiptaseðli, dags. 1. febrúar 2021, má sjá að kærandi fór í sálfræðimat þar sem hann hafi greint frá því að andleg líðan hans fari versnandi og að hann sofi illa. Þá hafi kærandi hitt sálfræðing þann 10. maí 2021 á Göngudeild sóttvarna þar sem hann hafi verið fámáll en greint frá því að sofa illa og eiga erfitt með að anda. Af framlögðum gögnum frá heilsugæslu Keflavíkur, dags. 9. nóvember 2020 til 2. febrúar 2021, má sjá að kærandi hafi leitað aðstoðar vegna fituvefsæxlis (e. lipoma), eymsla í brjóstkassa, hnéverkja, svefnvanda og geislungabólgu (e. costochondritis). Þá lagði kærandi fram samskiptaseðil frá heilsugæslunni Sólvangi, dags. 8. mars 2021, þar sem fram kemur að kærandi hafi haft verki í hálsi og höfði síðustu mánuði, sofi illa og líði ekki vel andlega. Í vottorðum frá sálfræðingi, dags. 3. og 19. mars og 13. ágúst 2021, kemur m.a. fram að kærandi þjáist af áfallastreitu, þunglyndi og felmtursröskun auk þess að hafa mjög alvarleg streitueinkenni. Þá kemur fram að það sé mat sálfræðingsins að kærandi sé á þeim aldri og í þeirri stöðu að líkur á að hann taki sitt eigið líf séu mjög miklar.

Kærandi hefur m.a. borið fyrir sig að sérstakar ástæður séu fyrir hendi í máli hans vegna slæmra aðstæðna í Grikklandi. Kærandi hafi ekki haft aðgengi að heilbrigðisþjónustu, félagsaðstoð eða atvinnu í Grikklandi. Þá hafi fullnægjandi rannsókn ekki farið fram af hálfu Útlendingastofnunar á andlegu heilsufari kæranda og þörf hans fyrir frekari meðferð.

Í fyrri úrskurði kærunefndar í máli nr. KNU21020012 frá 15. apríl 2021 í máli kæranda var það rakið að framlögð heilsufarsgögn bentu til þess að kærandi þjáðist m.a. af áfallastreitu, þunglyndi og felmtursröskun auk þess að hafa mjög alvarleg streitueinkenni. Þá hafi það verið mat sálfræðings að líkur á að kærandi tæki sitt eigið líf væru mjög miklar. Það var mat kærunefndar að í ljósi fyrirliggjandi upplýsinga um heilsufar kæranda væri nefndin ekki í aðstöðu til að draga nægilega skýrar ályktanir um alvarleika veikinda kæranda og hvaða afleiðingar það hafi fái hann ekki viðeigandi heilbrigðisþjónustu. Sérstakt tilefni væri þá til að afla upplýsinga um hvort kærandi hefði almannatrygginganúmer (áður nefnd kennitala) og skattnúmer í Grikklandi auk þess sem að fara yrði fram frekari rannsókn á heilsufari kæranda, þeirri læknisþjónustu sem hann kæmi til með að þurfa á að halda og raunverulegu aðgengi hans að heilbrigðisþjónustu í Grikklandi. Var lagt fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til meðferðar á ný.

Í framhaldsviðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 10. maí 2021, greindi kærandi frá því að hann muni ekki eftir því hvort hann hafi fengið almannatrygginganúmer eða sótt um skattnúmer í Grikklandi. Verður framburður kæranda lagður til grundvallar í málinu hvað þetta varðar. Þá rakti Útlendingastofnun þau heilsufarsgögn sem lágu fyrir í málinu en í ákvörðuninni er m.a. vikið að andlegum veikindum kæranda og að hann sé í brýnni þörf fyrir sálfræðiaðstoð og stuðning í nærumhverfi.

Að mati kærunefndar, og í ljósi þeirra gagna sem liggja fyrir um alvarlegar heilsufarlegar aðstæður kæranda, hefur framangreind málsmeðferð Útlendingastofnunar ekki leitt fram frekari upplýsingar um stöðu kæranda hvað varðar andlegt heilsufar hans eða hvort hann sé í þörf fyrir frekari meðferð og hvort að sú meðferð standi honum til boða í Grikklandi. Kærunefnd telur með vísan til þeirra aðgangshindrana sem geta verið til staðar að heilbrigðisþjónustu í Grikklandi og fjallað hefur verið um og þess álags sem Covid-19 faraldurinn hefur haft á heilbrigðiskerfið í Grikklandi, og í ljósi þess að upplýsingar um skattnúmer og almannatrygginganúmer kæranda lágu ekki fyrir, að fara hefði átt fram frekari rannsókn á heilsufari kæranda. Til að mynda hefði verið tilefni til að afla skýrari upplýsinga frá sérfróðum aðila hver þörf hans er fyrir frekari heilbrigðisþjónustu og um afleiðingar þess fyrir kæranda fái hann ekki þá þjónustu eða meðferð eða afleiðingar á töfum á veitingu slíkrar þjónustu.

Samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga skal stjórnvald sjá til þess að mál sé nægjanlega upplýst áður en ákvörðun er tekin í því og afla í því skyni nauðsynlegra gagna og upplýsinga. Mál telst nægilega rannsakað þegar þeirra upplýsinga hefur verið aflað sem nauðsynlegar eru til þess að hægt sé að taka efnislega rétta ákvörðun í því. Markmið rannsóknarreglunnar er að tryggja að stjórnvaldsákvarðanir verði bæði löglegar og réttar.

Með hliðsjón af framangreindu er það mat kærunefndar að Útlendingastofnun hafi ekki fullnægt skyldu sinni samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.

Meginmarkmið stjórnsýslukæru er að tryggja réttaröryggi borgara með því að gera þeim kleift að fá umfjöllun um mál sín á tveimur stjórnsýslustigum. Eins og að framan greinir telur kærunefnd að annmarkar hafi verið á rannsókn Útlendingastofnunar í máli kæranda. Kærunefnd telur jafnframt í ljósi aðstæðna að ekki sé unnt að bæta úr þeim annmörkum á kærustigi og því rétt að mál kæranda hljóti nýja meðferð hjá Útlendingastofnun.

Með vísan til þess sem að framan er rakið er það niðurstaða kærunefndar að fella beri ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til nýrrar meðferðar.

Í ljósi framangreindrar niðurstöðu er, að mati kærunefndar, ekki tilefni til umfjöllunar um aðrar málsástæður kæranda.

 

 

Úrskurðarorð:

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til meðferðar á ný.

 

The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate is instructed to re-examine the case.

 

 

Tómas Hrafn Sveinsson

 

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                                                     Sandra Hlíf Ocares

                                                                                             

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum