Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20Atvinnuleysistryggingar%20og%20vinnumarka%C3%B0sa%C3%B0ger%C3%B0ir

Mál nr. 12/2022 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 12/2022

Fimmtudaginn 28. apríl 2022

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 6. janúar 2022, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 4. janúar 2022, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar og að innheimta ofgreiddar bætur.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 29. mars 2021 og var umsóknin samþykkt með 50% bótarétti. Þann 2. júní 2021 var gerður námssamningur við kæranda vegna 12 ECTS-eininga náms við Háskólann á Akureyri. Við reglubundið eftirlit kom í ljós að kærandi var skráð í 30 ECTS-eininga nám við þann skóla á haustönn 2021. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 8. desember 2021, var óskað eftir að kærandi legði fram skólavottorð og ástæðu þess að hún hafi ekki upplýst stofnunina um nám sitt. Skýringar bárust ekki. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 4. janúar 2022, var kæranda tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta hefðu verið stöðvaðar með vísan til 52. gr. laga nr. 54/2006 og að henni bæri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabilið 1. september til 30. nóvember 2021 að fjárhæð 782.664 kr., að meðtöldu álagi.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 6. janúar 2022. Með bréfi, dags. 11. janúar 2022, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 8. mars 2022, og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 9. mars 2022. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að henni þyki ferli Vinnumálastofnunar algjörlega óskiljanlegt. Í fyrsta lagi skilji hún alls ekki af hverju henni hafi á annað borð verið greiddar bætur ef hún uppfyllti ekki skilyrðin fyrir þeim. Sú yfirsjón geti ekki hvílt á kæranda sem hafi réttmætar væntingar til þess að stjórnvaldið, sem hún sé í samskiptum við, leysi rétt úr hennar málum þegar leitað sé til þess. Í öðru lagi skilji kærandi ekki hvers konar verklag það sé að greiða bætur og athuga svo eftir á hvort fullnægjandi gögn fyrir skilyrðum bótaréttar séu fyrir hendi. Þegar komi í ljós að svo sé ekki komi til endurkröfu umfram greiðslu bóta. Þetta sé með öllu óskiljanlegt og ekki í takt við vandaða stjórnsýsluhætti. Það sé óforsvaranlegt að stjórnvald leysi úr málum með þessum hætti.

Kærandi tekur fram að hún hafi sótt um atvinnuleysisbætur vorið 2021 og þá verið bent á að hún gæti sótt um námssamning, sem hún hafi gert. Hún hafi ekki vitað af því úrræði og hafi því verið þakklát fyrir að það hafi staðið til boða. Fyrir það hafi kærandi sótt um hefðbundnar atvinnuleysisbætur, óháð því að vera í námi, og hún hafi ekki skilið hvort það kæmist til skila. Hún hafi fengið einhver bréf um að samþykktur hefði verið 50% bótaréttur. Kærandi geri sér hins vegar ekki grein fyrir því hvort greiðslurnar sem hafi síðan byrjað að berast mánaðarlega hafi verið út frá námssamningnum eða vegna 50% bótaréttar. Kærandi hafi bara gert ráð fyrir að námssamningurinn væri í gildi og að þetta væri hugsað til að brúa bilið á meðan hún væri að leita sér að vinnu með skólanum. Ekki hafi verið veittar skýrar leiðbeiningar frá Vinnumálastofnun og ágallar á málsmeðferðinni séu ámælisverðir svo vægt sé til orða tekið.

Kærandi minnist þess ekki að það hafi verið sérstaklega tekið fram að hún mætti ekki stunda nema tvo áfanga til að geta átt rétt á þessum námssamningi og þess vegna hafi hún ekki gert sér grein fyrir því að hún mætti ekki skrá sig í fleiri áfanga á haustönninni. Ef hún hefði vitað það hefði hún aldrei tekið áhættu á að lenda í svona veseni og innheimtu upp á 800 þúsund kr. sem hún eigi einfaldlega ekki til. Þá hefði hún frekar tekið námslán á haustönn sem hafi verið möguleiki þá en sé nú of seint að sækja um. Að það sé beðið til 8. desember með að fara fram á þessi gögn og fara yfir stöðu mála sé ekkert annað en vítavert og gefi henni fáa valmöguleika til að greiða úr þessu vandamáli sem Vinnumálastofnun hafi gefið henni þriggja mánaða frest til að gera.

Kærandi óski því eftir að mál hennar verði skoðað aftur í ljósi þeirra upplýsinga sem hún hafi fengið og einnig í ljósi þess að það hefði mátt leiðbeina henni og upplýsa betur um ferlið svo að hún myndi ekki lenda í því að skulda ríkinu 800 þúsund krónur sem hún sjái enga leið til að borga til baka innan þriggja mánaða. Þar að auki hafi kærandi fengið greiddar bætur frá Vinnumálastofnun þann 5. janúar upp á rúmar 30.000 kr. Kærandi skilji ekki af hverju hún sé að fá greiðslu frá Vinnumálastofnun ef hún standi í skuld við stofnunina. Kærandi viti ekki hvort það hafi verið greiðsla vegna námssamningsins eða fyrri umsóknar um 50% bótarétt. Þetta sé frekar misvísandi og geri ferlið enn óskiljanlegra þremur dögum eftir að hún hafi fengið kröfuna um endurgreiðslu. Kærandi telji að brotið hafi verið gegn málsmeðferðarreglum stjórnsýslulaga á margvíslegan hátt í ferlinu.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga hjá Vinnumálastofnun með umsókn, dags. 29. mars 2021, og tilgreint að hún væri skráð í nám. Með erindi, dags. 26. apríl 2021, hafi verið óskað eftir staðfestu skólavottorði þar sem fram kæmi námshlutfall hennar ásamt námstímabili. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að skila umbeðnum gögnum. Þá hafi kæranda jafnframt verið greint frá því að samkvæmt 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar væri sá sem stundar nám ekki tryggður, enda væri námið ekki hluti vinnumarkaðsaðgerða samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar. Með erindi, dags. 25. maí 2021, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar væri hafnað þar sem þau gögn sem óskað hafði verið eftir hefðu ekki enn borist Vinnumálastofnun. Þann 26. maí 2021 hafi kærandi skilað umbeðnu skólavottorði. Þann 1. júní 2021 hafi verið gerður námssamningur við kæranda. Með umræddum námssamningi hafi kæranda verið veitt heimild til þess að stunda nám að hámarki 12 ECTS-einingum samhliða því að fá greiddar atvinnuleysisbætur. Í kjölfar þess að umbeðin gögn hafi borist stofnuninni og gerður hafði verið námssamningur hafi kæranda verið tilkynnt með erindi, dags. 14. júní 2021, að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 50%. Kærandi hafi sjálf skráð á umsókn um atvinnuleysisbætur að hún væri einungis reiðubúin að taka starfi í 50% starfshlutfalli og því hafi bótaréttur hennar verið ákveðinn 50%.

Við reglubundið eftirlit hafi komið í ljós að kærandi væri skráð í 30 ECTS-eininga nám á haustönn 2021 við Háskólann á Akureyri samhliða því að þiggja greiðslu atvinnuleysistrygginga. Með erindi, dags. 8. desember 2021, hafi verið óskað eftir því að kærandi skilaði inn skólavottorði þar sem umfang náms hennar væri tilgreint ásamt skýringum á því hvers vegna hún hafi ekki upplýst Vinnumálastofnun um nám sitt. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að veita stofnuninni umbeðin gögn. Kærandi hafi hvorki skilað skýringum né skólavottorði. Með erindi, dags. 4. janúar 2022, hafi kæranda verið tilkynnt að greiðslum atvinnuleysistrygginga til hennar væri hætt með vísan til 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Þá hafi kæranda jafnframt verið tilkynnt að þar sem hún hefði stundað nám á sama tíma og hún hafi þegið greiðslu atvinnuleysistrygginga hefði hún fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur á tímabilinu 1. september 2021 til 30. nóvember 2021, samtals 782.664 kr., sem yrðu innheimtar samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna og sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verða atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Í c. lið 3. gr. laganna sé að finna eftirfarandi skilgreiningu á námi:

„Samfellt nám, verklegt eða bóklegt, í viðurkenndri menntastofnun innan hins almenna menntakerfis á Íslandi sem stendur yfir í a.m.k. sex mánuði. Enn fremur er átt við nám á háskólastigi og það nám annað sem gerir sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og nám á háskólastigi. Einstök námskeið teljast ekki til náms.“

Í 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé nánar kveðið á um nám. Þar segi í 1. mgr. að hver sá sem stundi nám, sbr. c. lið 3. gr., teljist ekki tryggður samkvæmt lögunum á sama tímabili, enda sé námið ekki hluti vinnumarkaðsaðgerða samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar, sbr. þó 2., 3. og 4. mgr. Ljóst sé af ákvæði 1. mgr. 52. gr. að það sé ekki tilgangur laga um atvinnuleysistryggingar að tryggja námsmönnum framfærslu á meðan þeir stundi nám. Í athugasemdum með 52. gr. í greinargerð með frumvarpi því er varð að lögum um atvinnuleysistryggingar sé tiltekið að það sé meginregla að námsfólk eigi ekki rétt á atvinnuleysisbótum hvort sem um sé að ræða fjarnám, dag- eða kvöldskóla. Í 2. mgr. 52. gr. laganna sé þó að finna heimild til handa atvinnuleitendum til að stunda nám að hámarki 12 ECTS-einingum. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Þrátt fyrir 1. mgr. er hinum tryggða heimilt að stunda nám á framhaldsskólastigi sem nemur að hámarki 12 einingum eða á háskólastigi sem nemur að hámarki 12 ECTS-einingum á námsönn enda sé um svo lágt námshlutfall að ræða að námið telst ekki lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna. Hinn tryggði skal leggja fram staðfestingu frá viðkomandi menntastofnun um námshlutfallið.“

Á grundvelli ákvæðis 2. mgr. 52. gr. hafi verið gerður námssamningur við kæranda sem hafi heimilað henni að stunda nám að hámarki 12 ECTS-einingar samhliða greiðslum atvinnuleysistrygginga. Aftur á móti liggi fyrir að kærandi hafi skráð sig í og stundaði 30 ECTS-eininga nám við Háskólann á Akureyri á sama tíma og hún hafi þegið greiðslur atvinnuleysistrygginga á haustönn 2021. Kærandi hafi ekki tilkynnt Vinnumálastofnun um þessa tilhögun.

Með vísan til 1. mgr. 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé því ljóst að kærandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur á tímabilinu 1. september 2021 til 30. nóvember 2021. Í 39. gr. laganna sé fjallað um endurgreiðslu á ofgreiddum atvinnuleysisbótum. Samkvæmt skýru orðalagi 2. mgr. 39. gr. beri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir það tímabil sem atvinnuleitandi uppfylli ekki skilyrði laganna. Í athugasemdum með 39. gr. í greinargerð með frumvarpi því er varð að lögum um atvinnuleysistryggingar sé sérstaklega áréttað að leiðrétting eigi við í öllum tilvikum sem kunni að valda því að atvinnuleitandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ástæða ofgreiðslunnar hafi með öðrum orðum ekki áhrif á skyldu viðkomandi til að endurgreiða þá fjárhæð sem hafi verið ofgreidd. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. sé því fortakslaust að því er varði skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

Með vísan til framangreinds beri kæranda að endurgreiða þær atvinnuleysisbætur sem hún hafi fengið greiddar fyrir tímabilið 1. september til 30. nóvember 2021, samtals 680.577 kr., enda liggi fyrir að hún hafi ekki uppfyllt skilyrði laganna á umræddu tímabili, sbr. 1. mgr. 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Heildarskuld kæranda standi í 782.664 kr. og þar af sé álag að fjárhæð 102.087 kr. Eins og kveðið sé á um í lokamálslið 2. mgr. 39. gr. skuli fella niður álagið færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er hafi leitt til skuldamyndunar. Í kæru vísi kærandi til þess að hún muni ekki eftir að henni hafi sérstaklega verið greint frá því að óheimilt væri að stunda fullt nám. Kæranda þyki að sér hafi ekki verið veittar fullnægjandi upplýsingar og leiðbeiningar. Þá telji kærandi að sú yfirsjón sem hafi leitt til þess að skuld hafi myndast við Vinnumálastofnun geti ekki hvílt hjá henni sjálfri. Í þessu samhengi vísi Vinnumálastofnun til þess að öllum atvinnuleitendum sé vísað á upplýsingar á vef Vinnumálastofnunar um réttindi og skyldur sínar á meðan þeir þiggi greiðslur atvinnuleysistrygginga. Þar sé meðal annars tiltekið að almennt sé óheimilt að stunda nám samhliða greiðslum atvinnuleysistrygginga en atvinnuleitendum kunni þó mögulega að standa til boða að gera námssamning við stofnunina fyrir allt að 12 ECTS-eininga námi. Að mati Vinnumálastofnunar hafi kæranda því verið veittar viðeigandi upplýsingar og leiðbeiningar. Máli sínu til stuðnings vísi Vinnumálastofnun jafnframt til þess að það sé á ábyrgð þess er fái greiddar atvinnuleysisbætur að tryggja að Vinnumálastofnun berist nauðsynlegar upplýsingar er geti haft áhrif á rétt viðkomandi til greiðslu atvinnuleysisbóta, sbr. úrskurð nefndarinnar í máli nr. 86/2013. Með vísan til framangreinds beri kæranda að greiða umrædda skuld auk álags, enda hafi kærandi að mati Vinnumálastofnunar ekki fært rök fyrir því fella eigi niður álag á skuld hennar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda og að innheimta ofgreiddar bætur.

Í IX. kafla laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar er fjallað um tilvik er leiða til takmörkunar á atvinnuleysistryggingum. Í 52. gr. laganna er fjallað um nám en þar segir:

„Hver sá sem stundar nám, sbr. c-lið 3. gr., telst ekki tryggður samkvæmt lögum þessum á sama tímabili enda er námið ekki hluti vinnumarkaðsaðgerða samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar, sbr. þó 2., 3. og 4. mgr.

Þrátt fyrir 1. mgr. er hinum tryggða heimilt að stunda nám á framhaldsskólastigi sem nemur að hámarki 12 einingum eða á háskólastigi sem nemur að hámarki 12 ECTS-einingum á námsönn enda sé um svo lágt námshlutfall að ræða að námið telst ekki lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna. Hinn tryggði skal leggja fram staðfestingu frá viðkomandi menntastofnun um námshlutfallið.

Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. er Vinnumálastofnun heimilt að meta þegar sérstaklega stendur á hvort sá er stundar nám á framhaldsskólastigi sem nemur allt að 20 einingum eða á háskólastigi sem nemur allt að 20 ECTS-einingum á námsönn uppfylli skilyrði laganna enda sé um svo lágt námshlutfall að ræða að námið telst ekki lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna. Skilyrði er að námið kunni að nýtast hinum tryggða beint við atvinnuleit að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar og skal hinn tryggði leggja fram staðfestingu frá viðkomandi menntastofnun um námshlutfallið. Hinn tryggði á þá rétt til skertra atvinnuleysisbóta fyrir sama tímabil og skal Vinnumálastofnun meta skerðinguna á tryggingahlutfalli sem hann á rétt til skv. 15. eða 19. gr. í samræmi við umfang námsins.

Þrátt fyrir 1.–3. mgr. er hinum tryggða heimilt að stunda nám sem er skipulagt samhliða vinnu af viðkomandi menntastofnun og er ekki lánshæft til framfærslu hjá Menntasjóði námsmanna án þess að komi til skerðingar á rétti hans til atvinnuleysistrygginga, enda hindri námið hvorki virka atvinnuleit viðkomandi né möguleika hans til þátttöku á vinnumarkaði. Hinn tryggði skal leggja fram staðfestingu frá viðkomandi menntastofnun um skipulag námsins.

Þrátt fyrir 1.–4. mgr. skal hinum tryggða ávallt heimilt að ljúka þeirri önn sem er yfirstandandi við starfslok hans eða þegar hann missir starf sitt að hluta, sbr. 17. gr., án þess að komi til skerðingar á rétti hans til atvinnuleysistrygginga.“

Í c-lið 3. gr. laganna er að finna skilgreiningu á námi samkvæmt lögunum en þar segir:

„Nám: Samfellt nám, verklegt eða bóklegt, í viðurkenndri menntastofnun innan hins almenna menntakerfis á Íslandi sem stendur yfir í a.m.k. sex mánuði. Enn fremur er átt við nám á háskólastigi og það nám annað sem gerir sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og nám á háskólastigi. Einstök námskeið teljast ekki til náms.“

Í athugasemdum við ákvæði 52. gr. í frumvarpi því er varð að lögum um atvinnuleysistryggingar kemur fram að ekki séu lagðar til breytingar á þeirri meginreglu að námsmenn eigi ekki rétt á atvinnuleysisbótum. Miðað sé við að það skipti ekki máli hvort um sé að ræða dag- eða kvöldskóla eða fjarnám. Þá kemur fram að það kunni að vera að nám sé nauðsynlegur hluti af starfshæfingu atvinnuleitanda að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar, en í slíkum tilvikum geti atvinnuleitandi talist tryggður samhliða námi.

Þegar sótt er um atvinnuleysisbætur er umsækjandi spurður hvort hann sé skráður í nám á umsóknardegi. Upplýst er að almennt sé ekki heimilt að vera í námi samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta. Þó séu undantekningar á þeirri meginreglu. Tekið er fram að það sé því mjög mikilvægt að hafa samband sem fyrst við ráðgjafa Vinnumálastofnunar til að kanna hvort viðkomandi eigi rétt á námssamningi.

Í máli þessu liggur fyrir að kærandi var skráð í nám við Háskólann á Akureyri þegar hún sótti um atvinnuleysisbætur í lok mars 2021. Þann 2. júní 2021 var gerður námssamningur við kæranda vegna vorannar 2021 en þá stundaði hún 12 ECTS-eininga nám. Óumdeilt er að kærandi var skráð í 30 ECTS-eininga nám við sama skóla á haustönn 2021 og upplýsti Vinnumálastofnun ekki um námið.

Kærandi hefur meðal annars vísað til þess að hún hafi ekki vitað að hún mætti ekki stunda nema tvo áfanga til að eiga rétt á námssamningi. Þá hefur kærandi gert athugasemd við vinnubrögð Vinnumálastofnunar í málinu og skort á leiðbeiningum.

Þann 30. mars 2022 var kæranda tilkynnt að Vinnumálastofnun hefði móttekið umsókn hennar um atvinnuleysisbætur. Kæranda var greint frá því að ítarlegar upplýsingar um réttindi hennar og skyldur væri að finna á heimasíðu Vinnumálastofnunar. Þá var kæranda bent á að hún þyrfti að láta Vinnumálastofnun vita á „Mínum síðum“ um allar breytingar á högum sínum. Undir liðnum „Upplýsingaskylda“ á heimasíðu Vinumálastofnunar kemur fram að atvinnuleitandi skuli upplýsa Vinnumálastofnun tafarlaust um allar breytingar sem verði á högum hans og kunni að hafa áhrif á rétt hans á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur. Tekið er dæmi um slíkar breytingar og er þar meðal annars nefnt þátttaka í námi. Undir liðnum „Hvað þarftu að vita“ er fjallað um nám og atvinnuleysisbætur. Þar kemur fram að almennt sé ekki heimilt að stunda nám samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta. Undir liðnum „Réttur til atvinnuleysisbóta“ á heimasíðu Vinnumálastofnunar er nánar fjallað um námsmenn. Þar kemur meðal annars fram að umsækjanda um atvinnuleysisbætur sé heimilt að stunda nám á háskólastigi sem nemur allt að 12 ECTS-einingum á námsönn. Stundi einstaklingur nám á háskólastigi í meira umfangi en 12 ECTS-einingar á námsönn eða annað nám þá þurfi viðkomandi að hafa samband við ráðgjafa Vinnumálastofnunar til að kanna með rétt til atvinnuleysisbóta samhliða því námi. Aldrei sé heimilt að stunda meira en 20 ECTS-eininga nám samhliða atvinnuleysisbótum. Með hliðsjón af framangreindu telur úrskurðarnefndin að kærandi hefði mátt vita, eða að minnsta kosti haft tilefni til þess að afla sér frekari upplýsinga um skyldu sína til að tilkynna Vinnumálastofnun um að hún stundaði nám á haustönn 2021.

Þar sem kærandi tilkynnti Vinnumálastofnun ekki að hún stundaði nám á haustönn 2021 fékk hún greiddar atvinnuleysisbætur fyrir það tímabil án þess að eiga rétt á þeim.

Í 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 kemur fram að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum, beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildi um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hafi fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Í sömu málsgrein segir einnig að fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Í athugasemdum með frumvarpi því er varð að lögum nr. 54/2006 segir meðal annars svo í skýringum við ákvæðið:

„Efni ákvæðisins felur í sér möguleika á leiðréttingu á fjárhæð tekjutengdra atvinnuleysisbóta eftir að þær hafa verið keyrðar saman við álagningu skattyfirvalda að því er varðar það viðmiðunartímabil sem lagt er til að verði haft til hliðsjónar við útreikningana. Er því gert ráð fyrir að Vinnumálastofnun hafi heimildir til að leiðrétta fjárhæð atvinnuleysisbótanna til samræmis við álagningu skattyfirvalda. Er gert ráð fyrir að leiðréttingin geti átt sér stað nokkru eftir að bæturnar hafa verið greiddar eða þegar endanleg álagning skattyfirvalda liggur fyrir. Á sama hátt er jafnframt gert ráð fyrir að Vinnumálastofnun geti leiðrétt fjárhæð grunnatvinnuleysisbóta. Slíkt getur átt við þegar upplýsingar þær er liggja grunnatvinnuleysisbótum til grundvallar hafa verið rangar eða hinn tryggði ekki tilkynnt til Vinnumálastofnunar um að hann sé ekki lengur í atvinnuleit.

Þannig er gert ráð fyrir að hinn tryggði endurgreiði Atvinnuleysistryggingasjóði þær fjárhæðir sem ofgreiddar eru í þeim tilvikum er hann fékk hærri greiðslur úr sjóðnum en honum bar. Á þetta við um öll tilvik sem kunna að valda því að hinn tryggði hafi fengið ofgreitt úr Atvinnuleysistryggingasjóði.“

Samkvæmt framangreindu er ákvæði 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 fortakslaust að því er varðar skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur fyrir tímabil sem skilyrði laganna er ekki uppfyllt. Aftur á móti skal fella niður 15% álag færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Þar sem kærandi tilkynnti ekki Vinnumálastofnun að hún stundaði nám á haustönn 2021 er það mat úrskurðarnefndarinnar ekki sé tilefni til að fella niður álagið sem lagt var á endurgreiðslukröfuna. Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 4. janúar 2022, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til A, og að innheimta ofgreiddar bætur, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum