Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20Atvinnuleysistryggingar%20og%20vinnumarka%C3%B0sa%C3%B0ger%C3%B0ir

Mál nr. 10/2023-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 10/2023

Fimmtudaginn 9. mars 2023

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 5. janúar 2023, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 4. janúar 2023, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 25. október 2022 og var umsóknin samþykkt 8. nóvember 2022. Þann 22. desember 2022 var kærandi boðaður í viðtal á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar á Húsavík sem fara átti fram daginn eftir. Kæranda var greint frá því að skyldumæting væri í viðtalið og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Kærandi boðaði forföll þann 23. desember 2022. Þann 29. desember 2022 var kærandi boðaður í viðtal að nýju sem fara átti fram daginn eftir á sama stað. Kærandi boðaði forföll samdægurs og óskaði eftir nýjum viðtalstíma þar sem hann væri staddur í Reykjavík í atvinnuleit. Kæranda var greint frá því 30. desember 2022 að hann yrði að mæta á einhverja af þjónustuskrifstofum Vinnumálastofnunar þann dag. Kærandi sendi Vinnumálastofnun tölvupóst samdægurs og kvaðst vera á leið aftur til Húsavíkur. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 3. janúar 2023, var óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda til þess að hafa ekki mætt í boðað viðtal. Skýringar bárust frá kæranda samdægurs. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 4. janúar 2023, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 5. janúar 2023. Með bréfi, dags. 6. janúar 2023, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 7. febrúar 2023 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 8. febrúar 2022. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar greinir kærandi frá því að hann kæri ákvörðun Vinnumálastofnunar þess efnis að hafa stöðvað greiðslur til hans í tvo mánuði. Ástæða ákvörðunarinnar sé fjarvera hans í tveimur viðtölum stofnunarinnar. Kærandi hafi skilað inn skýringum á fjarveru sinni til  stofnunarinnar sem hafi ekki tekið skýringar hans gildar.

Kærandi hafi ekki mætt í boðuð viðtöl 23. og 30. desember 2022. Þann 23. desember 2022 hafi hann forfallast vegna veikinda og hafi af þeim sökum ekki getað opnað tölvupóstinn sinn. Kærandi hafi tilkynnt Vinnumálastofnun um veikindin og skilji ekki hvernig það geti ekki verið gild ástæða. Þann 30. desember 2022 hafi kærandi verið í Reykjavík að leita sér að starfi. Kærandi hafi boðað forföll til Vinnumálastofnunar þar sem hann hafi ekki getað mætt í viðtalið vegna fjarlægðar á milli Reykjavíkur og Húsavíkur. Í kjölfar þeirra skilaboða hafi stofnunin boðað kæranda í viðtal í Reykjavík. Þar sem hann hafi verið lagður af stað til Húsavíkur að nýju hafi hann ekki getað mætt í viðtalið í Reykjavík. Kærandi hafi því ekki haft tök á því að mæta í viðtölin vegna staðsetningar.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslur atvinnuleysistrygginga þann 25. október 2022 og að umsóknin hafi verið samþykkt þann 8. nóvember 2022. Útreiknaður bótaréttur hafi verið 80%.

Þann 22. desember 2022 hafi kærandi verið boðaður til viðtals hjá ráðgjafa Vinnumálastofnunar á Húsavík klukkan 9:00 þann 23. desember 2022. Kæranda hafi verið tjáð að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll þyrfti að boða án ástæðulausrar tafar. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til þess að greiðslur atvinnuleysistrygginga til hans yrðu stöðvaðar. Boðunin hafi verið send á netfang kæranda en auk þess hafi kærandi fengið tilkynningu með skilaboðum á „Mínum síðum“ og í farsíma. Kærandi hafi ekki mætt í boðað viðtal.

Um hádegisbil þann 23. desember 2022 hafi kærandi sent Vinnumálastofnun tölvupóst. Kærandi hafi greint frá því að hann væri að kljást við veikindi og hafi því ekki séð skilaboð stofnunarinnar varðandi viðtalið. Kærandi hafi óskað eftir nýjum viðtalstíma. Þann 29. desember 2022 hafi erindi kæranda verið svarað og hann verið boðaður til viðtals þann 30. desember 2022 klukkan 9:00 á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar á Húsavík. Kærandi hafi verið áminntur að öll forföll þyrfti að boða án ástæðulausrar tafar því að annars kynnu greiðslur atvinnuleysistrygginga til hans að verða stöðvaðar. Boðunin hafi líkt og áður verið send á netfang kæranda, á „Mínar síður“ og í farsíma hans.

Vinnumálastofnun hafi borist tölvupóstur frá kæranda þann 29. desember 2022 þess efnis að hann gæti ekki mætt til viðtals. Kærandi væri staddur í Reykjavík í atvinnuleit og hefði ekki bíl til umráða. Kærandi hafi óskað eftir því að nýr viðtalstími yrði bókaður fyrir hann. Erindi kæranda hafi verið svarað snemma morguns daginn eftir af starfsmanni Vinnumálastofnunar í tölvupósti og kæranda verið tjáð að hann gæti mætt á þjónustuskrifstofu stofnunarinnar í Reykjavík þann dag á milli klukkan 9:00 og 12:00. Starfsmaður stofnunarinnar hafi jafnframt hringt í kæranda til að árétta framangreindan tölvupóst. Kærandi hafi ætlað að mæta á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar í Reykjavík umræddan dag en hafi ekki mætt.

Þann 30. desember 2022 hafi kærandi sent Vinnumálastofnun tölvupóst. Í svari kæranda hafi komið fram að hann hafi verið á leið aftur til Húsavíkur þegar hann hafi fengið áðurnefnt símtal frá starfsmanni Vinnumálastofnunar. Hann væri á leið til Reykjavíkur svo að ómögulegt væri fyrir hann að mæta á þjónustuskrifstofu stofnunarinnar í Reykjavík á uppgefnum tíma. Kærandi hafi óskað eftir því að nýr viðtalstími yrði fundinn fyrir hann. Starfsmaður Vinnumálastofnunar hafi svarað tölvupóstinum samdægurs og kæranda verið tjáð að hann þyrfti að mæta á einhverja þjónustuskrifstofu stofnunarinnar þann dag. Starfsmaðurinn hafi greint kæranda frá því að ef hann væri á leið aftur til Húsavíkur gæti hann mætt á þjónustuskrifstofu stofnunarinnar þar fyrir klukkan 16:00 þann dag.

Þann 2. janúar 2023 hafi kærandi mætt á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar í Reykjavík. Kærandi hafi greint frá því að hann hafi ætlað sér að mæta föstudaginn 30. desember 2022 en hafi ekki getað mætt fyrir lokun. Hann hafi jafnframt greint frá því að hann hygðist fara til Húsavíkur og að hann myndi koma við á þjónustuskrifstofu þar.

Með erindi Vinnumálastofnunar, dags. 3. janúar 2023, hafi verið óskað eftir skriflegum skýringum kæranda á ástæðum þess að hafa ekki mætt til boðaðs viðtals 23. og 30. desember 2022. Stofnunin hafi áréttað að ef atvinnuleitandi hafi hafnað þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum án gildra ástæðna gæti hann þurft að sæta biðtíma eftir greiðslu atvinnuleysistrygginga. Skýringar kæranda hafi borist Vinnumálastofnun þann 4. janúar 2023. Kærandi hafi skýrt frá því að hann hefði þegar tjáð Vinnumálastofnun um ástæður þess að hann hafi ekki mætt til umræddra viðtala. Þann 23. desember 2022 hafi hann verið veikur og 30. desember 2022 hafi hann verið í Reykjavík í atvinnuleit. Kærandi hafi jafnframt mætt á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar í Reykjavík þann 2. janúar 2023.

Með erindi, dags. 4. janúar 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Ástæða þess hafi verið sú að kærandi hafi ekki mætt til boðaðs viðtals.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Samkvæmt [h-lið] 1. mgr.14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveður. Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Í 1. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar hafi eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum. Ráðgjafar stofnunarinnar skulu boða atvinnuleitendur reglulega í viðtöl eftir þörfum hvers og eins atvinnuleitanda.

Á grundvelli 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar beri atvinnuleitendum að hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Í tilfelli kæranda hafi hann tvívegis verið boðaður til viðtals hjá stofnuninni en samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laganna sé Vinnumálastofnun heimilt að boða atvinnuleitendur til stofnunarinnar með sannanlegum hætti, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum þeirra sem kunni að hafa áhrif á rétt þeirra til atvinnuleysisbóta. Atvinnuleitendur skulu þá vera reiðubúnir að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt til viðtals 23. og 30. desember 2022 en áður hafi kærandi fengið senda tilkynningu í tölvupósti, í farsíma og á „Mínar síðum“ þar sem tilgreind hafi verið tímasetning og staðsetning. Kærandi hafi fengið sólarhringsfyrirvara í bæði skiptin. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistrygginga hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum vegna þessa. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi ef hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi sem hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Jafnframt sé tekið fram í greinargerðinni að ef hinn tryggði bregðist þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitenda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Það sé fortakslaust skilyrði svo að unnt sé að aðstoða umsækjanda um atvinnuleysisbætur við að fá starf við hæfi og gefa honum kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitandi sinni þeim boðunum sem honum séu send. Í skilmálum sem umsækjendur um atvinnuleysisbætur samþykki þegar þeir sæki um komi fram að viðkomandi sé upplýstur um að honum sé skylt að mæta í þau viðtöl, á þá fundi, námskeið og í önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði hann til.

Eins og áður segi hafi kærandi verið boðaður til viðtals þann 23. desember 2022 á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar á Húsavík. Kærandi hafi veitt þær skýringar að hann hafi verið að kljást við veikindi og því hafi hann ekki mætt til umrædds viðtals. Kæranda hafi í kjölfarið verið fundinn annar viðtalstími og hann boðaður til viðtals þann 30. desember á sama stað. Kærandi hafi aftur á móti ekki mætt og gefið þær skýringar að hann væri í atvinnuleit í Reykjavík. Í kjölfar þess að Vinnumálastofnun hafi borist þær upplýsingar hafi kæranda verið boðið að mæta á þjónustuskrifstofu stofnunarinnar í Reykjavík. Aftur á móti hafi kærandi þá sagst vera lagður aftur af stað til Húsavíkur og gæti því ekki mætt. Starfsmaður stofnunarinnar hafi þá ráðlagt kæranda að mæta á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar á Húsavík. Kærandi hafi þá aftur á móti sagst hafa snúið við og væri lagður aftur af stað til Reykjavíkur og gæti því ekki mætt.

Að mati Vinnumálastofnunar geti framangreindar skýringar kæranda ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun bendi á að heimilisfang kæranda sé skráð á Húsavík í kerfum stofnunarinnar. Kærandi hafi sjálfur óskað eftir því að honum yrði fundinn nýr viðtalstími eftir að hann hafi ekki mætt á fund þann 23. desember 2022 sökum veikinda. Í kjölfarið hafi hann verið boðaður til viðtals þann 30. desember 2022 á Húsavík. Að mati Vinnumálastofnunar hefði kærandi mátt búast við því að hann yrði boðaður til viðtals á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar á Húsavík innan skamms tíma. Í staðinn hafi kærandi ferðast til Reykjavíkur, án þess að láta stofnunina vita, þrátt fyrir að honum hlyti að vera ljóst að til stæði að boða hann til viðtals að nýju á Húsavík.

Að auki sé það mat Vinnumálastofnunar að atvinnuleitendur hafi ekki forræði á því hvar og hvenær þeir séu boðaðir til fundar við stofnunina. Það leiði meðal annars af ákvæðum 7. mgr. 9. gr. og 3. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 13. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir. Að öðrum kosti gætu atvinnuleitendur upp á sitt einsdæmi ákveðið hvenær og hvar samskipti við Vinnumálastofnun ættu sér stað og virðist slíkt einmitt vera tilfellið í máli kæranda. Að mati Vinnumálastofnunar verði að gera þær kröfur til atvinnuleitenda að þeir geri ráðstafanir svo að þeir geti orðið við skyldum sínum samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar. Í þessu samhengi vísist jafnframt til niðurlags 3. mgr. 13. gr. laganna þar sem sérstaklega sé kveðið á um að atvinnuleitendur skulu vera reiðubúnir að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara. Ákvæði 3. mgr. 13. gr. hafi komið inn í lög um atvinnuleysistryggingar með 4. gr. laga nr. 134/2009 en í athugasemdum með 4. gr. segi að gert sé ráð fyrir að stofnunin geti boðað atvinnuleitanda með allt að sólarhringsfyrirvara á þá skrifstofu sína sem sé næst lögheimili viðkomandi. Kærandi hafi fengið sólarhringsfyrirvara í báðum tilfellum sem að mati Vinnumálastofnunar sé hæfilegur tími fyrir kæranda til að gera viðeigandi ráðstafanir svo að honum sé kleift að verða við skyldum sínum. Kærandi geti því ekki borið fyrir sig að vegna staðsetningar sinnar hafi hann ekki getað mætt til umrædds viðtals, heldur hafi honum borið að ferðast til þess staðar sem hann hafi sannarlega verið boðaður til viðtals til þess að uppfylla skyldur sínar sem atvinnuleitanda samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar. Að mati Vinnumálastofnunar hafi óviðráðanleg atvik ekki staðið því í vegi að kærandi gæti mætt til umrædds viðtals. Ráðgjafi stofnunarinnar hafi komið til móts við kæranda og leiðbeint honum í þrjú skipti varðandi það hvar hann gæti mætt til viðtals með hliðsjón af staðsetningu hans. Kærandi hafi þó aldrei mætt og hafi í öll skiptin borið fyrir sig að hann gæti ekki mætt vegna staðsetningar sinnar.

Jafnframt sé það mat Vinnumálastofnunar að sú staðreynd að kærandi hafi mætt sjálfur á þjónustuskrifstofu stofnunarinnar í Reykjavík þann 2. janúar 2023 hafi ekki áhrif á niðurstöðu stofnunarinnar. Eins og áður hafi verið vikið að hafi atvinnuleitendur ekki forræði á því hvar og hvenær þeir séu boðaðir til fundar. Þótt kærandi hafi mætt á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar þann dag sé það mat Vinnumálastofnunar að hann hafi ekki uppfyllt skyldur sínar samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar, enda hafi ekki verið um að ræða komu sem hafi verið skipulögð af stofnuninni.

Í ljósi alls framangreinds og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sé það mat Vinnumálastofnunar að skýringar þær sem kærandi hafi fært fram teljist ekki gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Með því að hafa hafnað að mæta í viðtal hafi kærandi brugðist skyldum sínum samkvæmt 7. mgr. 9. gr. og 3. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Það sé því mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði og því beri honum að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:

„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“

Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.

Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.

Í gögnum málsins liggur fyrir að kærandi var boðaður í viðtal hjá Vinnumálastofnun sem fara átti fram þann 23. desember 2022. Kæranda var greint frá því að skyldumæting væri í viðtalið og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Þá var kærandi upplýstur um að óréttmæt forföll gætu valdið stöðvun greiðslna. Kærandi boðaði forföll og kvaðst vera veikur. Kærandi var boðaður að nýju í viðtal sem fara átti fram þann 30. desember 2022. Kærandi boðaði forföll og kvaðst vera á leið til Reykjavíkur.

Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildi þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta að hann hafi ekki mætt í boðað viðtal hjá Vinnumálastofnun.

Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006, staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 4. janúar 2023, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum