Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20Atvinnuleysistryggingar%20og%20vinnumarka%C3%B0sa%C3%B0ger%C3%B0ir

Mál nr. 420/2021 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 420/2021

Fimmtudaginn 18. nóvember 2021

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 17. ágúst 2021, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 17. ágúst 2021, um að fella niður bótarétt hennar í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 29. september 2019 og var umsóknin samþykkt 29. október 2019. Þann 13. júlí 2021 bárust Vinnumálastofnun upplýsingar um að kærandi hefði hafnað fullu starfi hjá B en ferilskrá kæranda hafði verið send til fyrirtækisins þann 6. júní 2021. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 21. júlí 2021, var óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda vegna höfnunar á atvinnutilboði hjá því fyrirtæki. Skýringar bárust frá kæranda þann 30. júlí 2021. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 17. ágúst 2021, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hennar væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 17. ágúst 2021. Með bréfi, dags. 18. ágúst 2021, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 14. september 2021 og var hún send kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 15. september 2021. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hún hafi síðast móttekið greiðslur atvinnuleysisbóta þann 30. júní en hafi þann 17. ágúst móttekið bréf frá Vinnumálastofnun þar sem henni hafi verið tilkynnt um að hún fengi ekki frekari greiðslur. Kærandi telji þetta óréttlátt þar sem ekki hafi verið litið til þess að hún hafi engar greiðslur fengið í júlí. Kærandi kveðst hafa átt í vandræðum með að skilja starfsmann Vinnumálastofnunar sökum tungumálaörðugleika. Hún hafi seinna fengið samband við spænskumælandi starfsmann en helmingur samskiptanna hafi verið gagnslaus.

Kærandi þurfi að annast tveggja ára barn sitt sem hafi ekki enn fengið pláss á leikskóla. Systir kæranda hafi aðstoðað hana með barnið á meðan hún hafi verið á námskeiði í júlí en nú sé systir hennar byrjuð að vinna. Kærandi vilji að tekið sé inn í matið að aðstæður hennar séu ekki góðar. Hún eigi þrjú börn og þurfi á greiðslunum að halda. Fyrir utan að verið sé að refsa henni í meira en tvo mánuði.

Kærandi segi þrjár ástæður fyrir því að hún hafi ekki mætt í umrætt atvinnuviðtal. Í fyrsta lagi að atvinnurekandi hafi hringt seint og hún hafi nánast ekkert skilið. Í öðru lagi að hún hafi talið að Vinnumálastofnun hafi tjáð henni að það yrðu engin vandræði í þetta skiptið. Í þriðja lagi hafi starfsmaður Vinnumálastofnunar sagt henni að fara ekki í viðtal fyrr en námsráðgjafi í skólanum myndi hringja. Þegar hann hafi hringt hafi verið of seint að mæta í viðtalið.

Kærandi vilji að komið sé fram við sig í samræmi við þau réttindi sem hún hafi unnið sér inn. Ekki skuli litið á hana sem innflytjanda, heldur sem borgara sem fullnægi skyldum sínum, borgi skatta og svo framvegis. Kærandi viti um einstaklinga sem hafi ekkert unnið og ekkert lagt af mörkum til samfélagsins en séu að þiggja atvinnuleysisbætur. Hún telji það mjög ósanngjarnt að hún, sem hafi unnið og greitt skatta, sé svipt þessum greiðslum. Hún hafi ekki legið og gert ekki neitt, heldur hafi hún lagt stund á nám og annast börnin sín þrjú.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að þann 13. júlí 2021 hafi Greiðslustofu Vinnumálastofnunar borist þær upplýsingar að kærandi hafi hafnað fullu starfi hjá B. Í skýringum atvinnurekanda hafi komið fram að kærandi hafi hafnað starfi vegna þess að hún hafi ekki getað unnið þar sem hún væri í námi á vegum Vinnumálastofnunar. Ferilskrá kæranda hafi verið send til umrædds fyrirtækis þann 6. júní 2021. Með erindi, dags. 21. júlí 2021, hafi verið óskað eftir afstöðu kæranda til höfnunar á umræddu starfi. Þann 17. ágúst 2021 hafi Vinnumálastofnun borist erindi frá kæranda. Kærandi hafi greint frá því að hún væri í sumarnámi í íslensku í júlí, auk þess sem hún hafi haft hug á að nýta sér vinnumarkaðsúrræðið „Nám er tækifæri“ í september 2021. Af þeim sökum hafi kærandi hafnað starfinu. Þann 17. ágúst 2021 hafi kæranda verið tilkynnt að bótaréttur hennar hafi verið felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Kærandi hafi skilað inn frekari skýringum til Vinnumálastofnunar þann 23. ágúst 2021 en í kjölfar endurupptöku á máli kæranda í samræmi við 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi fyrri ákvörðun stofnunarinnar verið staðfest þann 26. ágúst 2021. Framangreind ákvörðun hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 17. ágúst 2021.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Fyrir liggi að kærandi hafi hafnað atvinnutilboði hjá B. Ágreiningur í máli þessu snúi að því hvort ástæður kæranda vegna umræddrar höfnunar séu gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.

Markmið laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt, tímabundna fjárhagsaðstoð á meðan þeir séu að leita sér að nýju starfi. Með þessu sé verið að tryggja stöðu og öryggi fólks í atvinnuleysi. Því sé gert ráð fyrir að þeir sem teljist tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins séu í virkri atvinnuleit þann tíma og séu jafnframt reiðubúnir að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem þeim standi til boða. Atvinnuleysistryggingar veiti þannig þeim sem tryggðir séu fjárhagslegt úrræði í tímabundnu atvinnuleysi sínu. Ríkar kröfur beri að gera til þeirra sem hafni starfi á innlendum vinnumarkaði að þeir hafi til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi.

Eitt af skilyrðum þess að umsækjandi um atvinnuleysisbætur eigi rétt til greiðslu atvinnuleysistrygginga sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í 14. gr. laganna sé nánar kveðið á um hvað teljist til virkrar atvinnuleitar. Þar sé útlistað að umsækjandi þurfi meðal annars að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, vera reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á Íslandi án sérstaks fyrirvara og hafa til þess vilja og getu. Að öðrum kosti verði ekki litið á hlutaðeigandi í virkri atvinnuleit. 

Í 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um viðurlög vegna höfnunar á starfi eða atvinnuviðtali. Ákvæðið sé svohljóðandi: 

,,Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Þá segi orðrétt í 4. mgr. sömu greinar:

,,Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“

Vinnumálastofnun sé gert að meta skýringar atvinnuleitenda vegna höfnunar á atvinnutilboði með hliðsjón af þeirri ríku skyldu sem hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til að vera reiðubúnir að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, án sérstaks fyrirvara, og hafa til þess vilja og getu.

Í máli þessu liggi fyrir að kærandi hafi hafnað starfstilboði hjá B. Kærandi hafi gefið skýringar á höfnun, bæði fyrir úrskurðarnefnd og til Vinnumálastofnunar. Segi kærandi að hún hafi hafnað starfinu vegna þess að hún sé í sumarnámi í íslensku í júlí á vegum Vinnumálastofnunar, auk þess sem hún hygðist nýta sér vinnumarkaðsúrræðið „Nám er tækifæri“ í september. Í kæru til úrskurðarnefndarinnar komi auk þess fram að kærandi eigi tveggja ára barn sem hafi enn ekki komist inn á leikskóla.

Skýringar kæranda réttlæti ekki höfnun á starfi samkvæmt 57. gr. laganna. Stofnunin telji ekki unnt að fallast á skýringar kæranda þegar komi að höfnun hennar á starfstilboði B. Kærandi sé ekki undanþegin atvinnuleit, þrátt fyrir að vera á íslenskunámskeiði. Sama eigi við þótt kærandi hygðist nýta sér vinnumarkaðsúrræðið „Nám er tækifæri“ í september 2021. Auk þess sé það mat Vinnumálastofnunar að skortur á leikskólaplássi sé ekki gild ástæða fyrir höfnun á starfi.

Líkt og áður hafi verið rakið hvíli rík skylda á atvinnuleitendum að taka því starfi sem þeim bjóðist, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi. Að mati Vinnumálastofnunar séu skýringar kæranda ekki þess eðlis að þær réttlæti höfnun á atvinnutilboði. Það sé því mat Vinnumálastofnunar að þær skýringar sem kærandi hafi fært fram í máli þessu geti ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Telji Vinnumálastofnun því að kærandi skuli sæta viðurlögum á grundvelli 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Með vísan til framangreindra sjónarmiða sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta biðtíma í tvo mánuði frá ákvörðunardegi, sbr. 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta lýtur að þeirri ákvörðun Vinnumálastofnunar að fella niður bótarétt kæranda í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Ákvæði 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 er svohljóðandi:

„Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Þá segir svo í 4. mgr. 57. gr. laganna:

„Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 54/2006 segir meðal annars um 57. gr. að gert sé ráð fyrir að ákvæðið eigi við um þá sem hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttökudegi umsóknar um atvinnuleysisbætur en ekki sé tekið fram hvort líkur séu á að hlutaðeigandi fái vinnu í sinni starfsgrein. Eðlilegt þyki að þeir tryggðu fái fjögurra vikna svigrúm til að leita sér að því starfi sem þeir helst kjósi að sinna. Ekki skipti máli hvort um sé að ræða fullt starf, hlutastarf eða vaktavinnu þar sem mikilvægt sé að hinn tryggði verði aftur virkur á vinnumarkaði. Þá kemur fram að það að hafa ekki barnapössun fyrir ung börn á dagvinnutíma réttlæti ekki höfnun á starfi.

Óumdeilt er að kærandi hafnaði atvinnutilboði hjá B en ágreiningur málsins lýtur að því hvort ástæður kæranda fyrir þeirri höfnun hafi verið réttlætanlegar í skilningi 4. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006. Kærandi hefur gefið þær skýringar að hún hafi verið í sumarnámi í íslensku í júlí, auk þess sem hún hygðist nýta sér vinnumarkaðsúrræðið „Nám er tækifæri“ í september. Þá hefur kærandi vísað til þess að hún eigi tveggja ára barn sem hafi enn ekki fengið leikskólapláss.

Að mati úrskurðarnefndarinnar er ekki réttlætanlegt að hafna tilboði um fullt starf á þeirri forsendu að kærandi hafi verið á íslenskunámskeiði í einn mánuð og stefni að því að nýta sér vinnumarkaðsúrræðið „Nám er tækifæri“ nokkru síðar. Í því samhengi bendir úrskurðarnefndin á að samkvæmt 3. mgr. 14. gr. laga nr. 54/2006 kemur þátttaka í vinnumarkaðsaðgerðum ekki í veg fyrir að hinn tryggði taki starfi sem býðst á þeim tíma. Hvað varðar skort á leikskólaplássi bendir úrskurðarnefndin á að í 1. mgr. 13. gr. laganna er fjallað um almenn skilyrði þess að vera tryggður samkvæmt lögunum. Eitt af þeim skilyrðum er að vera í virkri atvinnuleit samkvæmt 14. gr. en í því felst meðal annars að hafa vilja og getu til að taka starfi án sérstaks fyrirvara, sbr. d. lið 1. mgr. ákvæðisins. Í athugasemdum við þetta ákvæði frumvarpsins segir svo:

„Enn fremur þykir ástæða til að taka fram að umsækjandi teljist vera í virkri atvinnuleit þegar hann, frá því að umsókn um atvinnuleysisbætur barst, hefur bæði vilja og getu til að taka starfi án sérstaks fyrirvara. Að öðrum kosti verður ekki litið á hlutaðeigandi í virkri atvinnuleit. Felur þetta til dæmis í sér að gert er ráð fyrir að foreldrar í virkri atvinnuleit með ung börn hafi barnapössun en reynslan í núverandi kerfi er að ungt fólk ber oft fyrir sig að það geti hvorki mætt í atvinnuviðtöl né tekið þátt í vinnumarkaðsúrræðum þar sem það hefur ekki gæslu fyrir börn sín.“

Þá kemur fram að með umönnunarskyldu vegna ungra barna sé ekki átt við þau tilvik er hinir tryggðu beri fyrir sig að hafa ekki barnapössun fyrir ung börn á dagvinnutíma. Kæranda bar því að gera ráðstafanir varðandi dagvistun fyrir barn sitt og þiggja framkomið atvinnutilboð.

Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 17. ágúst 2021, um að fella niður bótarétt A, í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum