Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 55/2022 Úrskurður 26. apríl 2022

Mál nr. 55/2022                    Eiginnafn:     Adríanna (kvk.)

 

 

Hinn 26. apríl 2022 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 55/2022 en erindið barst nefndinni sama dag. Nefndina skipa í máli þessu Auður Björg Jónsdóttir, formaður, Finnur Ágúst Ingimundarson og Jóhannes Bjarni Sigtryggsson en fundur fer fram í gegnum fjarfundabúnað.

 

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

 

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Eiginnafnið Adríanna (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Adríönnu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Adríanna (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum