Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20F%C3%A9lags%C3%BEj%C3%B3nusta%20og%20h%C3%BAsn%C3%A6%C3%B0ism%C3%A1l

Nr. 365/2018 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 365/2018

Mánudaginn 10. desember 2018

A

gegn

Reykjavíkurborg

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 9. október 2018, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála synjun Reykjavíkurborgar, dags. 5. september 2018, á umsókn hennar um styrk að fjárhæð 150.000 kr. á grundvelli 27. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 20. ágúst 2018, sótti kærandi um styrk hjá Reykjavíkurborg á grundvelli a-liðar 27. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg að fjárhæð 150.000 kr. vegna hækkunar á húsaleigu. Umsókn kæranda var synjað með bréfi þjónustumiðstöðvar, dags. 29. ágúst 2018, með þeim rökum að umsóknin samræmdist ekki reglum Reykjavíkurborgar um fjárhagsaðstoð. Kærandi áfrýjaði niðurstöðunni til velferðarráðs sem tók málið fyrir á fundi þann 5. september 2018 og staðfesti synjunina.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála þann 9. október 2018. Með bréfi, dags. 10. október 2018, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Reykjavíkurborgar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Reykjavíkurborgar barst með bréfi, dags. 24. október 2018, og var hún send kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 26. október 2018. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hún hafi sótt um styrk vegna mikillar hækkunar á húsaleigu eða hækkun upp á 50.000 kr. á mánuði. Hún sé öryrki, óvinnufær og búi ein og því ekki fær um að ráða við húsaleigu að fjárhæð 170.000 kr. á mánuði. Kærandi bendir á að hún sé mikill sjúklingur og með há útgjöld vegna þess. Hún hafi alltaf staðið í skilum með sín fjármál þrátt fyrir þröngan hag vegna örorku en húsaleigan sé að knésetja hana. Kærandi hafi reynt ýmislegt til að láta fjármálin ganga upp um hver mánaðamót en nú sé hún komin í þrot.

III.  Sjónarmið Reykjavíkurborgar

Í greinargerð Reykjavíkurborgar kemur fram að kæranda hafi verið úthlutað félagslegu leiguhúsnæði í janúar 2017 og húsaleigan þá verið 111.186 kr. á mánuði. Kærandi hafi átt rétt á húsnæðisbótum auk sérstaks húsnæðisstuðnings og þá hafi húsnæðiskostnaður hennar verið einungis 50.186 kr. Í byrjun árs 2018 hafi leigan hjá leigjendum Félagsbústaða hf. hækkað og greiði kærandi nú 163.264 kr. í húsaleigu en að frádregnum húsnæðisbótum og sérstökum húsnæðisstuðningi sé húsnæðiskostnaður kæranda 102.264 kr. á mánuði. Í kjölfar hækkunar á húsaleigu hafi fjárhagsstaða kæranda versnað töluvert og sjái hún ekki fram á að geta greitt leiguna mikið lengur.

Tekið er fram að í a-lið 27. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg komi fram að heimilt sé að veita sérstaka aðstoð í málum þar sem verið sé að veita markvissan stuðning. Aðstoðin miði að því að viðhalda árangri sem hafi náðst með stuðningsvinnu. Skilyrði sé að umsækjandi eigi í miklum félagslegum erfiðleikum. Samkvæmt því sé heimilt að veita sérstaka aðstoð í málum þar sem verið sé að veita markvissan stuðning en í þeim tilfellum beri að líta til þeirrar vinnu sem hafi verið í málum umsækjanda undanfarin ár og tilgangur aðstoðarinnar sé að viðhalda þeim árangri sem hafi náðst. Þá sé það skilyrði að viðkomandi hafi átt í miklum félagslegum erfiðleikum. Það hafi verið mat velferðarráðs Reykjavíkurborgar að skilyrði a-liðar 27. gr. reglnanna væru ekki uppfyllt, þ.e. með því að veita styrk til greiðslu húsaleigu til viðbótar við greiðslu sérstaks húsnæðisstuðnings væri ekki verið að veita markvissan stuðning í máli kæranda. Þá sé ekki unnt að líta svo á að um sé að ræða aðstoð sem miði að því að viðhalda árangri sem náðst hafi með stuðningsvinnu. Með vísan til framangreinds hafi það verið mat velferðarráðs Reykjavíkurborgar að ekki væri unnt að veita sérstaka aðstoð vegna stuðningsvinnu og/eða annarra sérstakra aðstæðna og því hafi synjun um styrk verið staðfest.

IV.  Niðurstaða

Í máli þessu er ágreiningur um hvort Reykjavíkurborg hafi borið að samþykkja umsókn kæranda um styrk að fjárhæð 150.000 kr. á grundvelli a-liðar 27. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg.

Fjallað er um rétt til fjárhagsaðstoðar til þeirra sem eigi fá séð fyrir sjálfum sér, maka sínum og börnum yngri en 18 ára í IV. og VI. kafla laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga. Samkvæmt 21. gr. laganna skal sveitarstjórn setja sér reglur um framkvæmd fjárhagsaðstoðar að fengnum tillögum félagsmálanefndar er metur þörf og ákveður fjárhagsaðstoð til einstaklinga í samræmi við reglur sveitarstjórnar, sbr. 2. mgr. sömu greinar. Lög nr. 40/1991 veita þannig sveitarfélögum ákveðið svigrúm til að meta sjálf, miðað við aðstæður á hverjum stað, hvers konar þjónustu þau vilja veita. Í samræmi við þetta og ákvæði stjórnarskrárinnar um sjálfstjórn sveitarfélaga er mat á þeirri nauðsyn að meginstefnu til lagt í hendur þeirrar sveitarstjórnar er þjónustuna veitir. Verður ekki við því mati hróflað af hálfu úrskurðarnefndar velferðarmála, enda byggist það á lögmætum sjónarmiðum og sé í samræmi við lög að öðru leyti.

Í 27. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg er kveðið á um sérstaka aðstoð vegna stuðningsvinnu og/eða annarra sérstakra aðstæðna. Samkvæmt a-lið 27. gr. er heimilt að veita sérstaka aðstoð í málum þar sem verið er að veita markvissan stuðning. Aðstoðin miðar að því að viðhalda árangri sem náðst hefur með stuðningsvinnu. Skilyrði er að umsækjandi eigi í miklum félagslegum erfiðleikum.

Umsókn kæranda var synjað á grundvelli þess að aðstæður hennar hafi ekki fallið að skilyrðum a-liðar 1. mgr. 27. gr. framangreindra reglna. Við meðferð kærumáls þessa hefur komið fram af hálfu Reykjavíkurborgar að ekki sé unnt að líta svo á að með því að veita styrk til greiðslu húsaleigu til viðbótar við greiðslu sérstaks húsnæðisstuðnings væri verið að veita markvissan stuðning í máli kæranda. Þá sé ekki unnt að líta svo á að um sé að ræða aðstoð sem miði að því að viðhalda árangri sem náðst hafi með stuðningsvinnu. 

Samkvæmt gögnum málsins þiggur kærandi ekki fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg en hefur verið í viðtölum vegna húsnæðisvanda og greiðsluvanda vegna leiguhúsnæðis hjá Félagsbústöðum hf. Úrskurðarnefnd velferðarmála telur ljóst að kærandi eigi í fjárhagslegum erfiðleikum. Að mati úrskurðarnefndarinnar benda gögn málsins þó ekki til þess að málefni kæranda hafi talist vera í markvissu ferli, í skilningi 27. gr. reglna Reykjavíkurborgar um fjárhagsaðstoð, þegar hún sótti um styrk til greiðslu húsaleiguskuldar. Að því virtu er það niðurstaða úrskurðarnefndarinnar að kærandi hafi ekki uppfyllt skilyrði a-liðar 1. mgr. 27. gr. reglnanna. Hin kærða ákvörðun er því staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Reykjavíkurborgar, dags. 5. september 2018, um synjun á umsókn A, um styrk að fjárhæð 150.000 kr. á grundvelli a-liðar 27. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum