Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20Atvinnuleysistryggingar%20og%20vinnumarka%C3%B0sa%C3%B0ger%C3%B0ir

Mál nr. 550/2021 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 550/2021

Fimmtudaginn 3. febrúar 2022

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 25. október 2021, kærði A til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 13. október 2021, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslu atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 13. september 2021. Í kjölfarið barst Vinnumálastofnun vottorð vinnuveitanda þar sem fram kom að kærandi hefði sagt upp/hætt störfum. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 28. september 2021, var óskað eftir afstöðu kæranda til ástæðna uppsagnar hans. Skýringar bárust stofnuninni samdægurs. Með ákvörðun, dags. 13. október 2021, var kæranda tilkynnt að umsókn hans um atvinnuleysisbætur hefði verið samþykkt en með vísan til starfsloka hans hjá fyrrum vinnuveitanda væri bótaréttur hins vegar felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 25. október 2021. Með bréfi, dags. 28. október 2021, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 14. desember 2021, og með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 16. desember 2021, var greinargerðin send kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að honum hafi verið tilkynnt að hann fengi ekki atvinnuleysisbætur frá þeim degi sem hann hafi sótt um og þyrfti að bíða í tvo mánuði vegna þess að hann hafi sagt upp vegna búferlaflutninga. Kærandi hafi sagt upp starfi sínu á B þar sem hann hafi viljað flytja aftur til C þaðan sem hann sé. Starfið hafi ekki staðið undir væntingum og hann hafi viljað flytja aftur til C til að vera nær börnum og ættingjum. Kærandi hafi alltaf búið í C en þegar honum hafi verið sagt upp hjá D eftir 18 ár í vinnu vegna samdráttar af völdum Covid-19 hafi ekki verið auðvelt að fá aðra vinnu. Þess vegna hafi hann flutt [...]. Þegar ástandið hafi farið að lagast í C hafi hann langað aftur heim. Kærandi sé búinn að vera duglegur í atvinnuleit og hafi ekki neitað neinu starfi. Honum finnist mjög ósanngjarnt að fá ekki atvinnuleysisbætur frá þeim degi sem hann hafi sótt um atvinnuleysisbætur. Kærandi hafi aldrei þegið atvinnuleysisbætur fyrir utan þegar D hafi minnkað starfshlutfall hans niður í 25% á tímabilinu 23. mars 2020 til 30. apríl 2020.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 13. September 2021. Samkvæmt staðfestingu á starfstímabili frá fyrrum vinnuveitanda kæranda, sem hafi borist stofnuninni 17. September 2021, hafi kærandi sjálfur sagt upp störfum hjá atvinnurekanda. Þann 28. september hafi kærandi veitt Vinnumálastofnun skýringar á starfslokum sínum. Þar hafi komið fram að kærandi hafi hætt störfum hjá fyrirtækinu vegna búferlaflutninga. Skýringar kæranda í kæru séu samhljóða þeim skýringum sem hann hafi veitt Vinnumálastofnun. Þá beri kærandi einnig fyrir sig að starfið hafi ekki staðið undir væntingum en hann sé frá C og hafi viljað flytja til baka til að vera nær fjölskyldu og vinum. Hann hafi verið virkur í atvinnuleit og hafi ekki hafnað starfi.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna og sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Tilgangur laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt tímabundna fjárhagsaðstoð í þrengingum sínum. Lögin veiti þeim fjárhagslegt úrræði og beri að gera ríkar kröfur til þeirra sem segi upp störfum sínum um að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi.

Í 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar nr. 54/2006 segi að sá sem teljist tryggður samkvæmt lögunum en hafi sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildi um þann sem missi starf sitt af ástæðum sem hann sjálfur eigi sök á.

Orðalagið „gildar ástæður“ hafi verið túlkað þröngt og fá tilvik hafi verið talin falla þar undir. Í athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. í greinargerð með frumvarpi því sem hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar komi fram að með ákvæðinu sé verið að undirstrika það markmið vinnumarkaðskerfisins að stuðla að virkri atvinnuþátttöku fólks. Í ljósi þess væri ekki gefinn kostur á að fólk segði upp starfi sínu til að fá greiddar atvinnuleysisbætur án þess að sérstakar ástæður lægju að baki uppsögninni í tilvikum þar sem annað starf væri ekki í boði. Þar sé jafnframt sérstaklega tekið fram að það væri erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega í lögum og reglugerðum hvaða ástæður sem liggi að baki uppsögn séu gildar þar sem þær ástæður geti verið af margvíslegum toga. Þó sé í athugasemdum sérstaklega fjallað um tvenns konar tilvik sem séu talin heyra til gildra ástæðna fyrir starfslokum. Annars vegar þegar um sé að ræða þau tilvik er maki hins tryggða hafi hafið störf í öðrum landshluta og fjölskyldan hafi af þeim sökum þurft að flytja búferlum. Hins vegar þau tilvik þegar uppsögn megi rekja til þess að atvinnuleitandi hafi sagt upp störfum af heilsufarsástæðum en sé að öðru leyti vinnufær. Í athugasemdum sé þó sérstaklega áréttað að við þær aðstæður sé gert að skilyrði að vinnuveitanda hans hafi mátt vera kunnugt um þessar ástæður áður en launamaðurinn hafi látið af störfum. Í ljósi þess að um matskennda ákvörðun sé að ræða sé Vinnumálastofnun falið að meta hvernig atvik og aðstæður þess máls er fyrir henni liggi falli að umræddri reglu. Vinnumálastofnun beri að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Fyrir liggi að kærandi hafi sagt starfi sínu lausu en ágreiningur snúi að því hvort ástæður kæranda fyrir uppsögn í starfi teljist gildar í skilningi framangreinds ákvæðis 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Úrskurðarnefnd velferðarmála hafi í fyrri úrskurðum sínum talið að almennt beri að gera nokkuð ríkar kröfur til atvinnuleitanda þegar metið sé hvort ástæður fyrir uppsögn séu gildar samkvæmt 1. mgr. 54. gr. laganna. Þær skýringar sem kærandi hafi gefið sem ástæðu fyrir uppsögn lúti einkum að búferlaflutningum og að hann hafi viljað flytja aftur á heimaslóðir til að vera nær ættingjum og börnum. Þá greini hann frá því að starfið hafi ekki staðið undir væntingum. Líkt og áður hafi komið fram segi í athugasemdum með ákvæði 54. gr. laganna að gildar ástæður kunni að vera fyrir uppsögn í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Sérstaklega sé tilgreint að tilvik þegar maki hins tryggða hefji störf í öðrum landshluta og fjölskyldan þurfi af þeim sökum að flytja búferlum. Í máli þessu liggi fyrir að flutningur kæranda hafi ekki komið til vegna starfa maka hans. Kærandi hafi ráðið sig til starfa hjá atvinnurekanda en síðar ákveðið að flytja aftur til heimaslóða sinna.

Með hliðsjón af framangreindum sjónarmiðum sé það mat Vinnumálastofnunar að skýringar kæranda vegna starfsloka geti ekki talist gildar í skilningi laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar og að kærandi skuli sæta biðtíma á grundvelli 54. gr. laganna.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Ákvæði 1. mgr. 54. gr. laganna er svohljóðandi:

„Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir um þann sem missir starf af ástæðum sem hann á sjálfur sök á.“

Óumdeilt er að kærandi sagði upp starfi sínu en ágreiningur málsins lýtur að því hvort ástæður kæranda fyrir uppsögninni hafi verið gildar í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006. Í athugasemdum við ákvæðið í frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar kemur fram að það sé erfiðleikum bundið að takmarka þau tilvik sem geti talist til gildra ástæðna í lögum og reglugerðum þar sem ástæður þess að fólk segi störfum sínum lausum eða missi þau geti verið af margvíslegum toga. Því sé lagt til að lagareglan verði áfram matskennd og Vinnumálastofnun falið að meta atvik og aðstæður hverju sinni. Stofnuninni beri að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Jafnframt er bent á að um íþyngjandi ákvörðun sé að ræða. Úrskurðarnefnd velferðarmála telur að ráða megi af framangreindu að almennt beri að gera nokkuð ríkar kröfur til atvinnuleitanda þegar metið er hvort ástæður fyrir uppsögn séu gildar samkvæmt 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006.

Þær skýringar sem kærandi hefur gefið sem ástæðu fyrir uppsögn lúta einkum að búferlaflutningum á heimaslóðir til að vera nær börnum sínum og ættingjum. Einnig hefur kærandi vísað til þess að starfið hafi ekki staðið undir væntingum. Að mati úrskurðarnefndarinnar eru tilgreindar ástæður kæranda fyrir starfslokum hans ekki gildar í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006. Að því virtu bar kæranda að sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum og er hin kærða ákvörðun því staðfest.

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 13. október 2021, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum