Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 12/2022 Úrskurður 26. janúar 2022

Mál nr. 12/2022                    Eiginnafn:     Ragn (kynhlutlaust)

 

 

Hinn 26. janúar 2022 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli nr. 12/2022 en erindið barst nefndinni 13. janúar.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  • Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  • Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  • Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  • Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Eiginnafnið Ragn tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Ragns, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Ragn er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá á lista yfir kynhlutlaus nöfn.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum