Hoppa yfir valmynd
K%EF%BF%BD%EF%BF%BDrunefnd%20%EF%BF%BD%EF%BF%BDtlendingam%EF%BF%BD%EF%BF%BDla

Nr. 429/2022 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 27. október 2022 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 429/2022

í stjórnsýslumáli nr. KNU22090023

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 12. september 2022 kærði […], fd. […], ríkisborgari Kólumbíu (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 30. ágúst 2022, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga.

Kærandi krefst þess aðallega að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að honum verði veitt staða flóttamanns hér á landi með vísan til 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til vara krefst kærandi þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að honum verði veitt viðbótarvernd með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til þrautavara krefst kærandi þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að honum verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða með vísan til 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Til þrautaþrautavara er gerð sú krafa að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka mál hans til meðferðar á ný.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.        Málsmeðferð

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi 19. mars 2022. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun m.a. 25. maí 2022 ásamt talsmanni sínum. Með ákvörðun, dags. 30. ágúst 2022, synjaði Útlendingastofnun kæranda um alþjóðlega vernd ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Var sú ákvörðun kærð til kærunefndar útlendingamála hinn 12. september 2022. Kærunefnd barst greinargerð kæranda ásamt fylgiskjölum 26. september 2022. Þá bárust frekari upplýsingar frá kæranda 13. október 2022 og viðbótargögn 21. október 2022.

III.      Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi byggi umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hann sé í hættu í heimaríki sínu vegna aðildar sinnar að tilteknum þjóðfélagshópi og vegna almenns ástands í landinu.

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar í máli kæranda var sú að kærandi væri ekki flóttamaður og honum skyldi synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi samkvæmt ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.

Kæranda var vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun tilkynnti kæranda jafnframt að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV.      Málsástæður og rök kæranda

Aðalkröfu sína byggir kærandi á því að honum stafi sérstök hætta af hálfu skæruliðahópa og annarra glæpamanna í heimaríki sínu. Útlendingastofnun hafi lagt til grundvallar að kæranda og fjölskyldu hans hafi verið hótað af hálfu skæruliðahópsins ELN (e. The National Liberation Army) er þau hafi búið í bænum […] í héraðinu […]. Kærandi áréttar að hótanir þær og ofsóknir sem hann og fjölskylda hans hafi orðið fyrir hafi verið það slæmar að þau hafi neyðst til þess að skilja eftir allar sínar eigur og flytjast búferlum til þess að bjarga eigin lífum. Þessi lífsreynsla hafi haft mikil áhrif á fjölskylduna og […]. Kærandi fellst ekki á það mat Útlendingastofnunar að umræddur hópur sé ekki áhrifamikill í Bógóta þar sem kærandi hafi búið og þar af leiðandi sé hann ekki í hættu. Þekkt sé að meðlimir skæruliðahópsins fylgist mjög náið með því fólki sem þeir hreki burt og stafi kæranda því gríðarleg hætta af ELN, hvort sem það sé í Bógóta eða annars staðar í landinu. Þrátt fyrir að hópurinn sé umfangsmeiri á öðrum svæðum þýði það ekki að hópurinn láti ekki einnig til sín taka í Bógóta. Þessu til stuðnings vísar kærandi m.a. til frétta um árásir ELN á ýmsa staði í Kólumbíu, m.a. lögreglustöð í Bógóta, ferðamannastaði, markaði og verslunarmiðstöðvar.

Kærandi kveðst einnig eiga á hættu að sæta ofsóknum í Kólumbíu vegna kynhneigðar sinnar. Kærandi sé hvergi óhultur í heimaríki sínu þar sem hann hafi upplifað bæði andlegt og líkamlegt ofbeldi upp á hvern einasta dag, hvort sem það hafi verið heima við, á vinnustað sínum eða meðal almennings. Þegar kærandi hafi búið í Bógóta hafi honum farið að berast hótanir þar sem ítrekað hafi verið hringt í hann úr leyninúmerum og honum send nafnlaus skilaboð. Þar hafi honum verið tilkynnt að það væri verið að fylgjast með honum hvert sem hann færi. Hann hafi fengið skilaboð um að hann ætti að koma sér frá Bógóta hið fyrsta og ákvað kærandi því að flýja land. Fljótlega eftir að kærandi hafi komið til Íslands hafi móður hans farið að berast hótanir gegn lífi kæranda. Á heimili fjölskyldunnar hafi borist pakki með plastdúkku sem máluð hafði verið með rauðri málningu og grafin í mold. Við hliðina á dúkkunni hafi verið miði með nafni kæranda. Móðir kæranda hafi leitað til lögreglu en þar hafi hún ekki fengið aðstoð ekki frekar en kærandi þegar hann hafi leitað til yfirvalda vegna líkamsárásar og hótunar sem hann hafi sætt af hálfu vinnufélaga sinna. Þá gerir kærandi athugasemd við fullyrðingu Útlendingastofnunar um að hann hafi ekki lagt fram gögn til staðfestingar á því að hann hafi orðið fyrir árás af hálfu vinnufélaga sinna. Kærandi hafi leitað til lögreglu í Kólumbíu en ekki fengið aðstoð. Því séu engin ítarleg gögn til um atvikið sökum skeytingarleysis lögreglu. Kæranda hafi þó tekist að senda inn kæru vegna málsins með því að gera það rafrænt í gegnum vefsíðu lögreglunnar og hafi staðfesting á móttöku kæru fylgt greinargerð kæranda til Útlendingastofnunar. Í ákvörðun Útlendingastofnunar komi fram að yfirvöld í Kólumbíu telji hinsegin fólk almennt ekki falla undir hóp sem eigi sérstaklega á hættu að sæta ofsóknum og eigi því ekki rétt á sérstakri vernd af þeim ástæðum. Kærandi hafi lagt fram hjá Útlendingastofnunar nokkrar myndir sem sýni kæranda taka þátt í réttinda- og mótmælagöngum þar sem kallað hafi verið eftir frekari réttindum og vernd fyrir hinsegin einstaklinga. Sú þátttaka setji hann í aukna hættu á ofsóknum og telji kærandi að þær líflátshótanir sem honum hafi borist hafi verið vegna þess að hann sé ötull baráttumaður fyrir mannréttindum hinsegin fólks.

Kærandi kveður kólumbísk yfirvöld hvorki geta né vilja veita honum vernd gegn þeim athöfnum sem hann telji sér stafa hætta af. Samkvæmt skýrslu OHCHR frá 2021 hafi ofbeldi gegn hinsegin einstaklingum, sem og hindranir til að leita réttar síns, aukist til muna meðan á Covid heimsfaraldrinum hafi staðið. Við skoðun umboðsmanns á málinu hafi mátt rekja hindranirnar til fordóma opinberra embættismanna sem og skorts á fjármagni. Tilkynnt hafi verið um a.m.k. þrjú tilvik pyntinga og illa meðferð af hálfu lögreglu og hermanna og hafi eitt fórnarlambanna verið hinsegin. Í skýrslu OHCHR frá 2022 komi fram að umboðsmaður hafi fundið skýr merki um mismunun af hálfu lögreglu í garð hinsegin einstaklinga. Í ljósi alls framangreinds telji kærandi að hann uppfylli skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi telur að með endursendingu hans til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Verði ekki fallist á aðalkröfu málsins krefst kærandi þess til vara að honum verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi hafi raunverulega ástæðu til að óttast um líf sitt og ætla megi að hann muni sæta verulega vanvirðandi og ómannúðlegri meðferð verði hann sendur aftur til Kólumbíu. Varðandi þá ógn sem kæranda og fjölskyldu hans stafi af völdum skæruliðahópsins ELN vísar kærandi til greinargerðar sinnar til Útlendingastofnunar. Þar komi m.a. fram að ástandið í Kólumbíu sé afar slæmt og að almennir borgarar búi við mikið óöryggi vegna vopnaðra skæruliðahópa. Kæranda stafi ekki einungis ógn af ELN heldur hafi hann einnig raunverulega ástæðu til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri meðferð í Kólumbíu sökum kynhneigðar sinnar. Telur kærandi hótun sem honum hafi borist fela það skýrlega í sér að hann verði ráðinn af dögum láti hann sjá sig aftur þar í landi. Kærandi hafi ástæðu til að ætla að hótunum þessum verði fylgt eftir þar sem náinn vinur kæranda hafi verið drepinn eftir að hafa fengið sambærilegar nafnlausar hótanir og kærandi áður en kærandi hafi flúið land. Kærandi hafi verið beittur bæði andlegu og líkamlegu ofbeldi vegna kynhneigðar sinnar auk þess sem honum hafi verið hótað lífláti. Að mati kæranda hafi stjórnvöld í Kólumbíu sýnt fram á að þau muni ekki veita kæranda þá vernd sem þörf sé á. Kærandi telur sig því uppfylla skilyrði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Til þrautavara krefst kærandi þess að honum verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Kærandi hafi ríka þörf fyrir vernd vegna félagslegra aðstæðna í Kólumbíu. Viðvarandi mannréttindabrot eigi sér stað í Kólumbíu og yfirvöld veiti þegnum sínum ekki nægilega vernd gegn ofbeldisbrotum og glæpum. Vopnaðir hópar ógni öryggi almennra borgara og hafi kærandi flúið heimaríki sitt m.a. vegna hótana og ofbeldi slíkra hópa. Þá hafi kærandi þurft að þola alvarlegt ofbeldi í sinn garð sökum kynhneigðar sinnar. Skýrslur bendi til þess að hinsegin einstaklingar sæti miklum hindrunum og fordómum af hálfu yfirvalda, þ. á m. lögreglumanna, er þau reyni að leita réttar síns.

Fallist kærunefnd ekki á að veita kæranda alþjóðlega vernd eða dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða krefst kærandi þess til þrautaþrautavara að kærunefnd feli Útlendingastofnun að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til nýrrar meðferðar á grundvelli 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Vísast þar til þess að ákvörðun Útlendingastofnunar hafi byggt á ófullnægjandi upplýsingum um stöðu íbúa í Kólumbíu, einkum þeirra einstaklinga sem séu hluti af hinsegin samfélaginu.

V.        Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað kólumbísku vegabréfi. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi sé kólumbískur ríkisborgari.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Kólumbíu m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • 2021 Country Reports on Human Rights Practices – Colombia (U.S. Department of State, 12. apríl 2022);
  • Amnesty International Report 2021/2022 – Colombia (Amnesty International, 29. mars 2022);
  • Annual report 2020 – Human Rights Development in the Region (Inter-American Commission on Human Rights, 2. mars 2020);
  • BTI 2022 Country Report: Colombia (Bertelsmann Stiftung, 23. febrúar 2022);
  • Colombia and ELN rebels agree to restart peace talks (https://www.aljazeera.com/news/2022/10/4/colombia-and-eln-rebels-agree-to-restart-peace-talks-next-month, 4. október 2022);
  • Colombia Complex crisis (ACAPS, síðast uppfært 28. júní 2022);
  • Colombia at a Stabilization Crossroads (Center for Strategic and International Studies (CSIS), 5. mars 2021);
  • Colombia: Conflict persists five years after peace deal (Norwegian Refugee Council, 23. nóvember 2021);  
  • Colombia: Risk update (ACAPS, 8. mars 2022);
  • Colombia Travel Advisory (US Department of State, Bureau of Consular Affairs, síðast uppfært 4. október 2022);
  • Colombia: Fact-Finding Mission Report. Conflict Dynamics in the Post-FARC-EP Period and State Protection (Immigration and Refugee Board of Canada, mars 2020);
  • Colombia: Events of 2021 (Human Rights Watch, 2022);
  • Colombia: Egregious Police Abuses Against Protesters: Police Reform Urgently Needed to Prevent Future Violations (Human Rights Watch, 9. júní 2021);
  • Colombia´s Armed Groups Battle for the Spoils of Peace (International Crisis Group, 19. október 2017);
  • Colombia‘s illegal armed groups (maps) (Colombia Reports, 3. október 2021);
  • Colombia: Requirements and procedures to submit a complaint to the police, the Fiscalía General de la Nación, and the Defensoría del Pueblo, including types of complaints; standardization and appearance of documents; requirements and procedures to obtain a copy of the complaint and investigative report for each organization, both from within the country and from abroad (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. maí 2017);
  • Foreign travel advice: Colombia (Gov.uk, síðast uppfært 22. júní 2022);

  • Freedom in the World 2022 – Colombia (Freedom House, 3. febrúar 2022);
  • Gustavo Petro and Francia Márquez: A new era For Colombia (BBC, 20. júní 2022);
  • Gender, Sexuality and Gender Based Violence (Human Rights Watch, 2021);
  • Left Undefended – Killings of Rights Defenders in Colombia´s Remote Communites (Human Rights Watch, 10. febrúar 2021);
  • Los Focos Del Conflicto en Colombia. Informe Sobre Presencia de Grupos Armados (Indepaz, 4. október 2021);
  • Mental Health ATLAS 2017. Member State Profile. Colombia (World Health Organization, 2018);
  • More than 60 LGBT, intersex people killed in Colombia in the first eight months of 2020 (Reuters, 11. mars. 2020);
  • Situation of human rights in Colombia. Report of the United Nations High Commissioner for Human Rights (UN Human Rights Council, 10. febrúar 2021);
  • Social Security Throughout the World, The Americas, 2019 – Colombia (Social Security Administration. Office of Retirement and Disability Policy. Office of Research, Evaluation and Statistics, mars 2020);
  • Stjórnarskrá Kólumbíu (Presidencia De La Republica, 1991)
  • Systemic crimes committed Against LGBT people in the Colonian Armed Conflict (Colombia Diversa, júlí 2020);
  • The Colombia Collaborative Project: Stress, health and wellbeing of LGBT people in Colombia (UCLA School of Law, apríl 2020);
  • The World Factbook: Colombia (CIA, síðast uppfært 22. september 2022);
  • UNHCR Eligibility Guidelines for Assessing the International Protection Needs of Asylum-Seekers from Colombia (UNHCR, september 2015);
  • World Report 2021 – Events of 2020 (Human Rights Watch, 13. janúar 2021);
  • World Report 2022 - Colombia: Events of 2021 (Human Rights Watch, 15. janúar 2022); 
  • Upplýsingar af vefsíðu kólumbíska heilbrigðis- og félagsmálaráðuneytisins (https://www.minsalud.gov.co);
  • Upplýsingar af vefsíðu Colombia Reports (colombiareports.com) og
  • Upplýsingar af vefsíðu Refugees International (https://www.refugeesinternational.org).

Kólumbía er stjórnarskrárbundið lýðveldi með rúmlega 50 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast 79% íbúa kaþólska trú. Hinn 5. nóvember 1945 gerðist Kólumbía aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaralega og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1969. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1982 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1987. Hinn 20. júní 2022 hafi Gustavo Petro verið kjörinn forseti Kólumbíu. Petro hafi verið fyrsti vinstrisinnaði forseti landsins og hafi á yngri árum tilheyrt M-19 skæruliðahreyfingunni áður en hann hafi snúið sér að stjórnmálum. Í kosningabaráttunni hafi hann heitið því að berjast gegn spillingu og skipulagðri glæpastarfsemi í landinu auk þess að beita sér fyrir auknu jafnrétti.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2022 kemur fram að helstu vandamál á sviði mannréttinda í landinu séu m.a. handahófskennd morð, pyndingar, víðtæk spilling, nauðganir og misnotkun kvenna og barna af hálfu ólöglegra vopnaðra hópa í landinu og ofbeldi gegn hinsegin einstaklingum. Spilling sé umtalsverð á meðal stjórnmálamanna og innan lögreglu landsins. Í skýrslunni komi fram að stjórnvöld hafi almennt gert ráðstafanir til að lögsækja og refsa embættismönnum fyrir mannréttindabrot þó sum mál taki langan tíma. Stjórnvöld hafi innleitt lög um að glæpavæða opinbera spillingu. Þá hafi ríkisstjórnin innleitt umbætur hjá lögreglunni sem miði að því að auka ábyrgð og bæta mannréttindavernd og samskipti almennings og lögreglu. Þá hafi refsileysi innan öryggissveita landsins verið vandamál en stjórnvöld hafi á síðustu árum aukið þjálfun liðsmanna öryggissveita landsins hvað varðar mannréttindi ásamt því að rannsaka og sakfella í auknum mæli brot liðsmanna þeirra. Þá hafi dregið úr samstarfi á milli öryggissveita og ólöglegra vopnahópa. Mannréttindasamtök hafi þó gagnrýnt að á sumum svæðum virðist glæpahópar fá að starfa því sem næst óáreittir. Lögregla sé fagmannlegri en í nágrannaríkjum Kólumbíu en skortur sé á fjármagni og mannafla. Enn fremur hafi lögreglan verið sökuð um að vinna með glæpamönnum og að vera ekki til staðar á strjálbýlli svæðum þar sem hættulegir hópar séu virkir.

Af framangreindum heimildum má ráða að glæpa- og morðtíðni sé há og að glæpahópar séu starfandi víðs vegar um landið og séu ráðandi á ákveðnum svæðum, einkum í héruðunum Cauca, Narino, Catatumbo og Norte de Santander. Þeir stærstu og þekktustu hafi verið skæruliðahóparnir FARC-EP (e. Revolutionaty Armed Forces of Colombia -People´s Army) og ELN (e. National Liberation Army). Þá séu einnig starfandi svokallaðir NAG (e. New Armed Groups) sem hafi sprottið út frá hersveitum sem áður hafi starfað í landinu. Fram kemur í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2021 að í kjölfar undirritunar friðarsamkomulags stjórnvalda við skæruliðahópinn FARC, hafi formlegri afvopnun hópsins lokið árið 2017 og það sama ár hafi fyrrum meðlimir myndað stjórnmálaflokk og tekið þátt í þingkosningum í mars árið 2018. Í skýrslunni kemur fram að her landsins hafi áætlað að meðlimir í afsprengihópum FARC væru nú fleiri en 5.200 talsins. Af fyrirliggjandi gögnum, þ. á m. skýrslu Indepaz frá 2021 og kortum Columbia Reports frá 2020, verður ráðið að afsprengihópar FARC hafi að mestu haldið til í suður-, suðvestur- og suðausturhluta Kólumbíu og við landamæri Venesúela. Hóparnir hafi verið virkir utan tilgreindra svæða, þá ýmist með leynilegum aðgerðum eða í gegnum bandalög með öðrum glæpahópum, en séu ekki með mikla viðveru eða sterk ítök í höfuðborg landsins, Bógóta. Í frétt á vef fréttamiðilsins Al Jazeera frá 4. október 2022 kemur fram að kólumbísk yfirvöld og ELN hafi komist að samkomulagi um að hefja friðarviðræður á ný eftir að þeim var slitið árið 2018.

Í skýrslu Human Rights Watch fyrir árið 2021 kemur fram að almennir borgarar hafi verið beittir misnotkun og ofbeldi af hendi framangreindra skæruliða- og glæpahópa. Í skýrslu frá bandaríska utanríkisráðuneytinu um glæpi og öryggi í Kólumbíu frá 13. mars 2020 kemur m.a. fram að lögregluyfirvöld í Kólumbíu séu alla jafna öflug og fagleg. Þrátt fyrir ofangreind vandamál hafi dregið verulega úr ofbeldi í landinu öllu á síðustu 20 árum. Megi rekja þessa fækkun ofbeldisglæpa einkum til friðarsamkomulagsins við FARC og vopnahlés og friðarviðræðna við ELN. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna framlengdi umboð verkefnis sannleiks- og sáttanefndar (e. UN Verification Mission) í Kólumbíu til 2022. Nefndinni var gert að fylgjast með og hafa eftirlit með framfylgd ríkisstjórnar og samningsaðila FARC á friðarsamkomulaginu. Þar með talið pólitíska, efnahagslega og félagslega enduraðlögun FARC og innleiðingu persónulegra og sameiginlegra öryggistrygginga ásamt því að halda utan um yfirgripsmiklar áætlanir um öryggis- og verndarráðstafanir fyrir samfélög og stofnanir á svæðunum. Þá framlengdi stjórnlagadómstóllinn umboð sannleiks- og sáttanefndarinnar til 27. júní 2022.

Í skýrslu Human Rights Watch frá 2021 kemur fram að kólumbíska ríkislögreglan hafi í nóvember árið 2021 ráðist að mótmælendum í landinu, sem hafi mótmælt breytingum á skattalöggjöf og morðum á mannréttindaaðgerðarsinnum. Dregið hafi úr mótmælum í kjölfar Covid-19 faraldursins en hinn 28. apríl 2021 hafi þúsundir manna tekið þátt í mótmælum vegna fyrirhugaðra breytinga á skattalöggjöf. Stjórnvöld hafi dregið umræddar tillögur til baka en mótmæli hafi haldið áfram og tengst óánægju mótmælenda á mörgum sviðum, s.s. atvinnuleysi, versnandi efnahagsástandi í kjölfar Covid-19 heimsfaraldursins, ójöfnuði, glæpatíðni o.fl. Mannréttindasamtökin Human Rights Watch hafi fordæmt alvarleg ofbeldisbrot í landinu. Í skýrslu samtakanna Freedom House frá 2022 kemur fram að mannréttindabrot af hendi lögreglunnar í mótmælum árið 2021 hafi leitt til kerfisbreytinga og í desember 2021 hafi þingið samþykkt umbótapakka (e. reform package) til að styrkja agaviðurlög vegna brota lögreglumanna í starfi. Í skýrslunni kemur fram að lögregluyfirvöld og ríkissaksóknari hafi hafið rannsókn á öllum ásökunum um ofbeldi lögreglu og óhóflegri valdbeitingu.

Í skýrslu Amnesty International frá árinu 2022 kemur fram að þeir sem berjist fyrir mannréttindum og mótmælendur eigi undir högg að sækja í samfélaginu. Kólumbísk stjórnvöld hafi áhyggjur af áreiti og ofbeldi sem baráttufólk og aðgerðarsinnar mæti. Þótt dregið hafi úr fjölda morða, úr 90 á fyrri hluta ársins 2020 í 78 á sama tímabili 2021 þá sé það of mikið, aðallega í tengslum við glæpastarfsemi ólöglegra vopnaðra hópa. Í skýrslu Freedom House fyrir árið 2022 kemur fram að árásir gegn mannréttindafrömuðum og öðrum félagslegum aðgerðasinnum hafi haldið áfram allt árið 2021. Fjöldi aðgerðasinna, sér í lagi meðal jaðarsettra frumbyggja og afró-kólumbískra samfélaga voru myrtir og gerendur slíkra glæpa nutu almennt refsileysis. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2021 kemur fram að stjórnskipuð nefnd sem annist aðgerðaráætlun um forvarnir og vernd fyrir mannréttindaaðgerðarsinna, félags- og samfélagsleiðtoga og fjölmiðlafólk, hafi eflt viðleitni sína til að rannsaka og koma í veg fyrir árásir gegn þeim. Umboðsmaður mannréttinda hafi haldið áfram að vekja athygli á aðstæðum í gegnum herferðina „Lead Life“ og sérstök deild innan lögreglunnar á sviði ríkissaksóknara beri ábyrgð á aðgerðum sem miði að því að vernda mannréttindaaðgerðarsinna fyrir árásum ásamt rannsóknum og ákærum í þessum málum.

Fram kemur í skýrslu Immigration and Refugee Board of Canada frá 2020 að kólumbísk yfirvöld bjóði upp á úrræði sem kallist The National System for Comprehensive Victim Support and Reparation sem veiti fórnarlömbum glæpahópa aðstoð, vernd og bætur fyrir glæpi sem það hafi mátt sæta. Aðstoðin felist m.a. í endurhæfingu þar sem fórnarlömbum sé veitt sálræn aðstoð og félagsaðstoð. Þá fari upphæð skaðabóta eftir eðli brota sem fórnarlömb hafi mátt þola. Í úrræðinu felist m.a. endurreisn húsnæðis fórnarlamba og lánsheimildar þeirra, sem og aðstoð við flutning til þess staðar sem fórnarlambið var flutt frá, flutning til annars ríkis og aðlögun á nýju búsetusvæði. Þá séu ráðstafanir gerðar til að koma í veg fyrir frekari brot á réttindum fórnarlamba, t.a.m. með forvörnum gegn þvingaðri þátttöku í glæpahópum, fræðslu um mannréttindi og með því að tryggja skilvirka framkvæmd þessara aðgerða. Þá sé fórnarlömbum, sem hafi mátt þola nauðungarflutninga og vilji snúa aftur til Kólumbíu og setjast þar að, veitt mannúðaraðstoð. Hægt sé að óska eftir slíkri aðstoð á skrifstofum ræðismanns Kólumbíu eða hjá samtökunum UARIV í Kólumbíu. Þá veiti ríkisstofnunin National Protection Unit einstaklingum sem telji sig þurfa á vernd að halda, m.a. þolendum mannréttindabrota og vopnaðra átaka, vernd. Eðli verndarinnar fari eftir áhættumati sem stofnunin framkvæmi fyrir hvern og einn einstakling. Verndin sem stofnunin veiti sé þó ekki alltaf fullnægjandi eða í samræmi við þá hættu sem viðkomandi sé í.

Í skýrslu kanadíska innflytjendaeftirlitsins kemur fram að skrifstofa umboðsmanns (s. Defensoría del Pueblo), sem sett var á fót árið 1991, sinni margvíslegu hlutverki til að stuðla að bættri mannréttindavernd í Kólumbíu. Skrifstofan beri ábyrgð á að sinna eftirliti og aðhaldi með stjórnvöldum, taki við kvörtunum frá einstaklingum, hópum og lögaðilum og beiti sér fyrir aukinni vernd og fræðslu um mannréttindi.

Í Kólumbíu eru til staðar lög sem eiga að tryggja jafnrétti og bann við mismunun en í desember 2011 voru lög gegn mismunun á grundvelli þjóðernis, kynferðis eða kynhneigðar samþykkt. Við gerð friðarsamkomulagsins FARC var sérstaklega fjallað um ofbeldi sem beinst hafði að hinsegin einstaklingum og kveðið á um sérstakar bætur og aðgerðir til þess að koma til móts við þann hóp við framkvæmd samkomulagsins. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2021 kemur fram að tilkynnt hafi verið um lögregluofbeldi gagnvart einstaklingum vegna kynhneigðar þeirra. Jafnframt hafi verið tilkynnt um mismunun gagnvart hinsegin einstaklingum með tilliti til aðgengis að heilbrigðisþjónustu en ekki hafi verið tilkynnt um mismunun á grundvelli kynhneigðar á vinnumarkaði, fasteignamarkaði eða innan menntakerfisins. Réttindi hinsegin fólks séu tryggð samkvæmt aðgerðaráætlun kólumbískra yfirvalda fyrir árin 2019-2022. Þá hafi stjórnlagadómstóll í landinu samþykkt í ágúst 2020 að ríkið skuli bera kostnað af kynleiðréttingaraðgerðum. Í skýrslunni kemur fram að aðgerðaráætlun sem samþykkt hafi verið árið 2019 fyrir árin á eftir hafi miðað að því að tryggja réttindi hinsegin fólks, m.a. borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, ásamt því að efla menntakerfið, lýðræðislega þátttöku, heilbrigðisþjónustu, atvinnu- og húsnæðismarkaðinn og styðja við íþróttaiðkun og þátttöku í menningarstarfi. Í október árið 2019 sigraði Claudia López kosningar um borgarstjórastólinn í Bógóta og varð þar með fyrsta konan og fyrsti opinberlega hinsegin einstaklingurinn til að vera kjörin í það embætti. Þrátt fyrir framangreint hafa mannréttindafulltrúar og alþjóðleg mannréttindasamtök lýst yfir áhyggjum af fordómum og ofbeldi gegn hinsegin fólki og að vernd laganna sé ekki fylgt eftir í raun. Í framangreindri skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins kemur fram að þrátt fyrir aðgerðir til að auka réttindi og vernd hinsegin fólks hafi verið tilkynnt um ofbeldi og mismunun auk kynferðisofbeldis. Kvartanir hafi verið lagðar fram vegna framgöngu öryggissveita í þessum málum og varðandi aðgengi að heilbrigðisþjónustu. Þá hafi frjálsu félagasamtökin Colombia Diversa tilkynnt að á tímabilinu 1. janúar til 18. ágúst 2021 hafi 39 hinsegin einstaklingar verið myrtir, þar af 26 trans einstaklingar. Þá hafi umboðsmaður rannsakað 185 morð á hinsegin einstaklingum frá árinu 2008 til 31. júlí 2021. Meirihluti fórnarlambanna hafi verið transkonur.

Samkvæmt stjórnarskrá Kólumbíu eiga ríkisborgarar rétt á grunnheilbrigðisþjónustu og félagslegri aðstoð í landinu. Samkvæmt vef Alþjóðabankans var atvinnuleysi í Kólumbíu 14,3% árið 2021 og hefur aukist verulega frá árinu 2019 en minnkað frá árinu 2020. Ráðuneyti heilbrigðis- og félagslegrar verndar (s. Ministerio de Salud y de Protección Social) beri ábyrgð á að hafa eftirlit með og samræma þjónustu á starfssviði sínu á landsvísu. Samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu frá 2015 (s. La Ley Estatutaria de Salud 1751 de 2015) telst heilbrigði til grundvallar mannréttinda og bann er lagt við því að synja sjúklingum um nauðsynlega heilbrigðisþjónustu á grundvelli efnahagslegrar stöðu. Þá kemur fram í skýrslum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (World Health Organization, WHO) og innflytjenda- og flóttamannanefnd Kanada að sérstök löggjöf um geðheilbrigðismál í Kólumbíu hafi verið í gildi frá árinu 2013. Samkvæmt þeirri löggjöf sé ríkisborgurum Kólumbíu tryggt aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu og þurfi meirihluti fólks sem sæki þjónustu hjá geðheilbrigðissérfræðingum ekki að greiða fyrir slíka þjónustu. Biðtími geti verið langur en aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum sé betra í þéttbýli heldur en í dreifbýli, þ. á m. í Bógóta.

Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki, verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kæranda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019) ásamt leiðbeiningum stofnunarinnar nr. 9 er lýtur að umsóknum einstaklinga um alþjóðlega vernd byggða á kynhneigð og kynvitund. Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Kærandi ber fyrir sig að hann eigi á hættu ofsóknir í heimaríki sem rekja megi til þess að hann sé samkynhneigður. Jafnframt hafi kærandi ástæðuríkan ótta við ofsóknir af hálfu skæruliðahópsins ELN en fjölskylda hans hafi verið skráð hjá og fengið aðstoð […] vegna ofsókna af hálfu hópsins.

Mat á trúverðugleika frásagnar kæranda er byggt á endurritum af viðtölum hans hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki kæranda.

Kærandi hefur ekki borið fyrir sig að hafa sætt ofsóknum eða að hann óttist ofsóknir af hálfu kólumbískra yfirvalda sem hafa eða gætu náð því alvarleikastigi sem 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga mælir fyrir um. Þá benda önnur gögn málsins ekki til þess að slíkar ofsóknir hafi átt sér stað eða að kærandi eigi þær á hættu.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hann og fjölskylda hans hafi sætt hótunum af hálfu skæruliðahópsins ELN er þau hafi búið í bænum […] í Kólumbíu. Þau hafi því neyðst til að flytja til Bógóta þegar kærandi hafi verið […] ára gamall. Kvaðst kærandi telja að hann eigi eftir að sæta ofsóknum af hálfu ELN verði honum gert að fara aftur til heimaríkis þar sem þekkt sé að hópurinn fylgist náið með því fólki sem hann hreki burt. Ekki er hægt að útiloka að einstaklingar sem ELN hefur hrakið á flótta séu almennt berskjaldaðri en aðrir fyrir ofsóknum eða ofbeldi af hálfu samtakanna eða að samtökin fylgist með þeim. Skýrslur bera þó ekki með sér að það sé algengt. Samkvæmt framlögðum gögnum neyddust kærandi og fjölskylda hans til að flýja frá bænum […] í […] árið 2014 vegna yfirtöku og hótana af hálfu meðlima ELN. Ráða má af gögnum málsins að kærandi og fjölskylda hans hafi búið á öðrum stað í […] frá þeim tíma án verulegra erfiðleika. Þá hafi kærandi búið í Bógóta frá árinu 2018 og verður ekki séð af frásögn hans að hann hafi orðið fyrir áreiti af hálfu ELN á þeim tíma. Þær heimildir sem kærunefnd hefur skoðað bera með sér að stjórnvöld geti veitt kæranda vernd í Bógóta gegn samtökunum sé ástæða til þess. Þá er það mat kærunefndar, með hliðsjón af framangreindri skýrslu Immigration and Refugee Board of Canada frá 2020, að kæranda standi til boða að nýta sér úrræðið The National System for Comprehensive Victim Support and Reparation sem veiti skráðum fórnarlömbum glæpahópa aðstoð, vernd og bætur fyrir glæpi sem það hafi mátt sæta. Þá sé þeim sem hafi mátt þola nauðungarflutninga og vilji snúa aftur til Kólumbíu veitt mannúðaraðstoð. Þá standi kæranda einnig til boða að leita til stofnunarinnar National Protection Unit telji hann þörf á að óska eftir sérstakri vernd.

Kærandi hefur greint frá því að vera samkynhneigður og hafa sætt hótunum sökum þess. Telur kærunefnd ekki ástæðu til annars en að leggja það til grundvallar við úrlausn málsins. Kærandi kvaðst hafa orðið fyrir ofbeldi og hótunum, m.a. af hendi vinnufélaga sinna, sökum kynhneigðar sinnar og kvaðst óttast um líf sitt. Kærandi telur að þátttaka hans í kröfugöngu fyrir réttindum LGBTQ+ einstaklinga sé ástæða þeirra hótana sem honum hafi borist. Kærandi hefur greint frá því að hann hafi leitað til lögreglu, m.a. vegna hótana sem honum hafi borist, en ekki fengið aðstoð. Þá lagði kærandi fram afrit af móttökukvittun fyrir kæru sem hann hafði lagt fram rafrænt hjá lögreglu. Hægt sé að fylgjast með framgangi málsins á vefnum og þegar kærandi hafi skoðað stöðuna í lok maí 2022 hafi lögregla enn ekki aðhafst í málinu. Sé það að mati kæranda raunin í flestum sambærilegum málum.

Í framangreindum skýrslum og landaupplýsingum kemur fram að samkynhneigðir verði fyrir nokkurri mismunun í heimaríki kæranda s.s. hvað varðar aðgengi að heilbrigðisþjónustu, atvinnu og húsnæði. Það er þó mat kærunefndar að sú mismunun nái ekki því alvarleikastigi að geta talist til ofsókna í skilningi 38. gr. laga um útlendinga. Fær það mat einkum stoð í þeim aðgerðum sem stjórnvöld hafa gripið til til þess að bæta stöðu þessa hóps, m.a. með setningu laga sem banni mismunun á grundvelli kynhneigðar og kynferðis, aðgerðaáætlunum og vitundarvakningarherferðum um réttindi hinsegin einstaklinga. Þá hefur stjórnlagadómstóll landsins ítrekað staðfest réttindi hinsegin einstaklinga, s.s. um rétt til að fá leiðréttingu á skráðu kyni sem og skyldu ríkisins til að greiða kostnað við kynleiðréttingaraðgerðir.

Kærandi hefur ekki lagt fram gögn sem leggja grunn að staðhæfingum hans um að þar til bær yfirvöld í heimaríki hafi fellt niður rannsókn á kæru hans eða gögn sem á annan hátt sýna fram á að yfirvöld hafi ekki vilja til eða muni ekki aðhafast frekar í málinu. Þá verður ekki séð að kærandi sé í aukinni hættu þó hann hafi stutt opinberlega við réttindi LGBTIQ+ enda bendi heimildir til þess að það séu einkum leiðtogar mannréttindasamtaka sem eigi undir högg að sækja og þá sérstaklega á þeim svæðum þar sem ítök glæpahópa eru mikil. Ennfremur verður ráðið af framburði kæranda að hann hafi ekki leitað annarra úrræða sem standi honum til boða í heimaríki, t.a.m. umboðsmanns sem hefur það hlutverk að taka við kvörtunum frá einstaklingum og ber m.a. ábyrgð á að sinna eftirliti og aðhaldi með stjórnvöldum. Það er mat kærunefndar að á öruggari svæðum í Kólumbíu, þ. á m. Bógóta þar sem kærandi kveðst hafa haft búsetu áður en hann yfirgaf heimaríki sitt, geti yfirvöld almennt verndað grundvallarmannréttindi íbúa. Heimildir benda ekki til þess að ítök og áhrif glæpahópa séu slík í Bógóta að ómögulegt sé fyrir kæranda að leita aðstoðar yfirvalda. Þau gögn sem kærunefnd hefur skoðað benda til þess að Bógóta sé talsvert öruggara svæði en önnur í landinu og að lög í heimaríki kæranda kveði á um bann við mismunun á grundvelli kynhneigðar og stjórnvöld hafi almennt framfylgt þeim lögum. Þá séu jafnframt til staðar frjáls félagasamtök, m.a. Colombia Diversa, sem vinni að réttindum hinsegin einstaklinga í landinu. Er það mat kærunefndar að yfirvöld í heimaríki kæranda séu því fær um að veita honum vernd, m.a. með því að ákæra eða refsa fyrir þær athafnir sem feli í sér ofsóknir.

Kærunefnd telur gögn málsins að öðru leyti ekki benda til þess að kærandi eigi á hættu ofsóknir af því alvarleikastigi sem 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga mælir fyrir um af öðrum ástæðum er koma fram í 1. mgr. 37. gr. laganna.

Með vísan til framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki með rökstuddum hætti leitt líkur að því að hann hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. laganna.

Telur kærunefnd því ljóst að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga ber að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997). 

Kærandi vísar til þess að hann eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis, bæði af hálfu glæpasamtakanna ELN og vegna kynhneigðar sinnar. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda til þess að ástandið í Kólumbíu sé víða ótryggt, sumum svæðum sé að mestu leyti stjórnað af glæpa- og skæruliðahópum og að íbúar landsins kunni að eiga á hættu að verða beittir ofbeldi af hálfu slíkra hópa. Að virtum framburði kæranda, gögnum málsins og landaupplýsingum um ástandið í Bógóta, hvar kærandi kvaðst síðast hafa verið búsettur, er það mat kærunefndar að hann eigi ekki á hættu að sæta dauðarefsingum, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði honum gert að snúa aftur til Kólumbíu. Lögregluyfirvöld í Kólumbíu séu að öllu jöfnu öflug og fagleg. Þá hafi kólumbískar öryggissveitir tekið skref í þá átt að rannsaka, ákæra og refsa opinberum starfsmönnum sem hafi gerst sekir um mannréttindabrot. Jafnframt hafi stjórnvöld gripið til aðgerða til að bæta stöðu hinsegin einstaklinga, m.a. með því að lögfesta bann við mismunun á grundvelli kynhneigðar og með vitundarvakningarherferðum um réttindi hinsegin einstaklinga.

Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kæranda telur kærunefndin að aðstæður hans þar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi uppfylli heldur ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Kærandi byggir á því að hann hafi ríka þörf fyrir vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki. Viðvarandi mannréttindabrot eigi sér stað í Kólumbíu og yfirvöld veiti þegnum sínum ekki nægilega vernd gegn ofbeldisbrotum og glæpum. Vopnaðir hópar ógni öryggi almennra borgara og hafi kærandi flúið heimaríki sitt m.a. vegna hótana og ofbeldi slíkra hópa. Þá hafi kærandi þurft að þola alvarlegt ofbeldi í sinn garð sökum kynhneigðar sinnar. Skýrslur bendi til þess að hinsegin einstaklingar sæti mikilli hindrun og fordómum af hálfu yfirvalda, þ. á m. lögreglumanna, er þau reyni að leita réttar síns.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi til alvarlegra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti ekki þegnum sínum vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í athugasemdunum kemur jafnframt fram að erfiðar almennar aðstæður geti tekið til óvenjulegra aðstæðna á borð við náttúruhamfarir eða langvarandi stríðsástand í heimaríki. Með vísan til framangreindrar umfjöllunar um aðstæður í Kólumbíu telur kærunefnd að þrátt fyrir að ótryggt ástand ríki á ákveðnum landsvæðum í heimaríki kæranda þá teljist Bógóta, þar sem kærandi hafði búsetu, öruggt svæði. Þá standi borgurum Kólumbíu almennt til boða skilvirk vernd yfirvalda.

Þá er í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við endurkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli. Í framangreindum skýrslum kemur fram að tilfelli áreitis og ofbeldis gagnvart einstaklingum vegna kynhneigðar og kynvitundar hafi verið skráð í Kólumbíu. Þá kemur fram að mismunun og fordómar séu til staðar í landinu. Hins vegar benda framangreindar skýrslur og gögn til þess að stjórnvöld verndi almennt borgara sína og til staðar sé kerfi sem veiti einstaklingum sem telja að brotið hafi verið á rétti sínum, aðstoð. Einnig eru ýmis frjáls félagasamtök starfandi í heimaríki, þau stærstu Colombia Diversa, kæranda sem berjast fyrir réttindum LGBTI+ einstaklinga og veitir þeim ýmis konar aðstoð í daglegu lífi. Kærandi hefur greint frá því að hafa lært snyrtifræði og hárgreiðslu í heimaríki og starfað á hárgreiðslustofu í Bógóta. Kærandi er ungur og hraustur karlmaður og hefur ekkert komið fram sem bendir til annars en að hann sé vinnufær og fær um að framfleyta sér. Þá hefur kærandi greint frá því að eiga m.a. foreldra og systur í heimaríki og má ráða af myndum og færslum á samfélagsmiðlum kæranda að hann eigi í nánum samböndum við þau öll. Að mati kærunefndar hefur kærandi ekki lýst aðstæðum sem gefa til kynna að hann sé í slíkri stöðu að tilefni sé til að veita honum dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Kærunefnd telur að félagslegar aðstæður kæranda við endurkomu séu ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Með vísan til fyrri umfjöllunar er það mat kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á ríka þörf á vernd á grundvelli félagslegra aðstæðna.

Þegar upplýsingar um heimaríki kæranda og gögn málsins eru virt í heild er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að hann teljist hafa ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til ekki eiga við í máli kæranda. Kærunefnd telur því að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.

Athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa þurft að flýja heimabæ sinn ásamt fjölskyldu sinni vegna yfirtöku ELN á svæðinu og hótana í garð þeirra af hálfu samtakanna. Kvaðst kærandi tilheyra tilteknum hópi fyrir skráð fórnarlömb glæpahópa. Í ákvörðun Útlendingastofnunar var lagt til grundvallar að kærandi hafi orðið fyrir einhvers konar hótunum af hálfu skæruliðahópsins. Ekki verður hins vegar ráðið af ákvörðuninni að fram hafi farið mat á aðstæðum kæranda með hliðsjón af þeim möguleika að hann myndi sæta endurteknum hótunum eða ofsóknum af hálfu samtakanna við endurkomu til Kólumbíu. Að mati kærunefndar hefði verið rétt að fjalla um aðstæður fórnarlamba ELN og rannsaka sérstaklega hvort þau væru almennt útsettari en aðrir fyrir ofsóknum af hálfu samtakanna. Var þessi þáttur ákvörðunarinnar því ekki í samræmi við 10. og 22. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, sbr. 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Með vísan til framangreindrar umfjöllunar kærunefndar um aðstæður fórnarlamba skæruliða- og/eða glæpasamtaka hefur verið bætt úr annmarka þessum á málsmeðferð Útlendingastofnunar á kærustigi. Þá er ljóst að mati kærunefndar að umræddur annmarki hafði ekki áhrif á efnislega niðurstöðu málsins. Kærunefnd hefur endurskoðað alla þætti máls kæranda og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun. Þá er ekki ástæða til að fallast á þrautaþrautavarakröfu kæranda enda ekki aðrir ágallar á meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun.

Frávísun og frestur til að yfirgefa landið

Kærandi kom hingað til lands 19. mars 2022 og sótti um alþjóðlega vernd sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um vernd og dvalarleyfi hér á landi verið synjað og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi er við ágæta heilsu. Að mati kærunefndar og með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur til að yfirgefa landið.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.


 

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Lagt er fyrir kæranda að hverfa af landi brott. Kæranda er veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið sjálfviljugur.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. The appellant is requested to leave the country. The appellant has 15 days to leave the country voluntarily.

 

 

Tómas Hrafn Sveinsson

 

 

 

Sindri M. Stephensen                                                                   Þorbjörg I. Jónsdóttir


 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum