Hoppa yfir valmynd
15. mars 2019 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Þín aðstoð við að móta stefnu í málefnum barna

Ásmundur Einar Daðason - mynd

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra skrifar:

Öll getum við verið sammála um að börnin okkar séu besta fjárfesting samfélagsins. Um leið og við sammælumst um þá staðreynd þurfum við sem samfélag að mæta þeirri áskorun af festu að tryggja öllum börnum sem best uppvaxtarskilyrði. Við þurfum að grípa börn í áhættu áður en það er um seinan, bregðast við með viðeigandi hætti og tryggja þeim stuðning og nauðsynlega þjónustu svo þau geti tekið virkan þátt í samfélaginu frá bernsku til fullorðinsára.

Um síðustu áramót varð sú breyting á stjórnskipan að félagsmálaráðuneytið setti aukna og sérstaka áherslu á málefni barna. Mikil vinna er í gangi í tengslum við þessar breytingar og hluti af því er endurskoðun barnaverndarlaga sem og endurskoðun á félagslegri umgjörð og stuðningi við börn á Íslandi. Við vinnuna er lögð áhersla á víðtækt samstarf og samvinnu, hvort sem um ræðir breytingar á lögum, á reglugerðum eða framkvæmd þjónustu.

Ég hef skipað þverpólitíska nefnd þingmanna til að hafa yfirumsjón með mótun þessarar vinnu. Hún starfar með fagfólki og notendum kerfisins víða að. Samhliða því hefur verið settur upp stýrihópur stjórnarráðsins í málefnum barna sem skipaður er fulltrúm sex ráðuneyta enda hafa þessi mál snertifleti víða í samfélaginu og þvert á kerfi.

Með það að markmiði að fá sem flesta að borðinu og ná fram heildarsýn í því hvernig eigi að stuðla að aukinni velferð barna á Íslandi sendi ég út bréf til aðila sem hafa málefni barna með höndum, eða til um 600 viðtakenda. Í bréfinu var óskað eftir athugasemdum, ábendingum og þátttöku viðtakenda og annarra í opnum hliðarhópum sérfræðinga um tiltekin málefni.

Í þeirri vinnu sem fram fer er ekki síst mikilvægt að hlusta á raddir  sem sjaldan fá að heyrast.  Ég vil hvetja alla sem vilja koma skoðunum á framfæri að fara inn á vef félagsmálaráðuneytisins en þar má finna frekari upplýsingar um vinnuna og koma ábendingum á framfæri. Á vormánuðum eru fyrirhugaðir opnir fundir þar sem fyrstu útlínur vinnunnar verða kynntar.

Greinin birtist í Fréttablaðinu 15. mars 2019

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum