Hoppa yfir valmynd

Ræða eða grein fyrrum ráðherra

12. maí 2016 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Vinnumálastofnun virkjar hæfileikana – alla hæfileikana

Grein eftir Eygló Harðardóttur, félags- og húsnæðismálaráðherra
Birtist í Morgunblaðinu 12. maí 2016

Ákvörðun um að færa ábyrgð á atvinnumálum fatlaðs fólks til Vinnumálastofnunar um síðustu áramót markaði tímamót. Með þessu var settur lokapunktur við langt ferli og umræður um fyrirkomulag þessara mála. Allir landsmenn ganga nú um sömu dyr þegar óskað er aðstoðar við atvinnuleit.  Þetta er góð niðurstaða í anda jafnræðis og áherslunnar um eitt samfélag fyrir alla.

Vinnumálastofnun og sveitarfélögin deila ábyrgðinni í samræmi við lög um málefni fatlaðs fólks. Vinnumálastofnun tekur við umsóknum um vinnumarkaðsaðgerðir fyrir fatlað fólk, þar með talin er vernduð vinna og hæfing, og sérfræðingar stofnunarinnar leggja mat á vinnufærni og þjónustuþörf umsækjenda. Sveitarfélögin aftur á móti fjármagna og reka vinnumarkaðsúrræðin og bera ábyrgð á áframhaldandi uppbyggingu vinnu- og hæfingarstöðva.

Það er mikilvægt að fjölga tækifærum fyrir fatlað fólk á vinnumarkaði. Til þess þarf útsjónarsemi, víðtækt samráð og aukinn skilning á því að fjölbreytni er styrkur hvers samfélags og það gildir líka um vinnumarkaðinn. Það þarf að horfa á styrkleika hvers og eins og virkja hæfileika allra.

Vinnumálastofnun leggur áherslu á að veita faglega þjónustu í samræmi við þarfir umsækjenda og beita aðferðum sem vel hafa gefist í þjónustu við fatlað fólk samhliða því að skapa og þróa nýjar leiðir og lausnir sem greiða götu fatlaðs fólks út í atvinnulífið. Ég veit að stofnunin axlar þetta verkefni með sóma.

Það eiga allir að fá sjéns!

Árið 2015 var efnt til átaksverkefnisins „Virkjum hæfileikana, alla hæfileikana“ sem skilaði fjölmörgum störfum um allt land, skapaði mikilvæg tengsl milli aðila og jók skilning og þekkingu á þeim starfskröftum og tækifærum sem hægt er að virkja í samfélaginu.

Í dag eru um 1200 fatlaðir einstaklingar í vinnu og virkni hjá vinnu- og hæfingarstöðvum á landinu.  Flestar stöðvanna eru reknar af sveitarfélögum, aðrar af félagasamtökum eða einkaaðilum samkvæmt þjónustusamningum við sveitarfélög eða Vinnumálastofnun.

Um 800 vinnusamningar öryrkja eru í gildi en Vinnumálastofnun tók við umsjón þeirra frá Tryggingastofnun ríkisins um síðustu áramót.  Flest fatlað fólk á vinnumarkaði er með slíkan samning en einnig margt fólk með skerta starfsgetu þótt það sé ekki með fötlunargreiningu.

Ársfundur Vinnumálastofnunar er í dag. Yfirskrift fundarins er „Eiga allir sjéns? Fjölbreytileiki á vinnumarkaði.“ Það er því miður ekki þannig í dag að allir eigi sjéns, en engu að síður stefnum við í rétta átt og augu samfélagsins eru hægt en örugglega að opnast fyrir því að fjölbreytileikinn er styrkur og að víða leynast hæfileikar sem geta blómstrað fái þeir svolítinn áburð og gott atlæti.

Eygló Harðardóttir, félags- og húnæðismálaráðherra.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum