Dagskrá forsætisráðherra 17. - 23. desember 2018
Mánudagur 17. desember
Kl. 12:00 Hádegisverðarfundur með Guðmundi Inga Guðbrandssyni, umhverfis- og auðlindaráðherra og Svandísi Svavarsdóttur, heilbrigðisráðherra.
Þriðjudagur 18. desember
Kl. 07:30 Viðtal í Bítinu á Bylgjunni.
Kl. 09:10 Fundur með Bjarna Benediktssyni, fjármála- og efnahagsráðherra og Kristjáni Þór Júlíussyni, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Kl. 09:30 Ríkisstjórnarfundur.
Kl. 11:30 Fundur í ráðherranefnd um efnahagsmál og endurskipulagningu fjármálakerfisins.
Kl. 14:30 Undirbúningsfundur um húsnæðismál fyrir fund með aðilum vinnumarkaðar.
Miðvikudagur 19. desember
Kl. 08:30 Fundur með Eyjólfi Árna Rafnssyni, formanni SA, og Halldóri Benjamín Þorbergssyni, framkvæmdastjóra SA.
Kl. 09:00 Fundur með Gunnari Guðbjörnssyni, skólastjóra Söngskóla Sigurðar Demetz og formanni Samtaka tónlistarskólastjóra í Reykjavík (STÍR).
Kl. 10:00 Fundur með Evu Egesborg Hansen, sendiherra Danmerkur.
Kl. 10:30 Fundur með Salvöru Nordal, umboðsmanni barna.
Kl. 11:00 Fundur með Kolbrúnu Halldórsdóttur.
Kl. 12:00 Fundur með Hugin Frey Þorsteinssyni.
Kl. 13:00 Afhending jólagjafa til starfsfólks forsætisráðuneytisins.
Kl. 13:30 Fundur með Þórunni Sigurðardóttur.
Kl. 14:00 Fundur með Kristrúnu Heimisdóttur.
Kl. 15:00 Fundur stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins.
Fimmtudagur 20. desember
Kl. 13:15 Viktoría Buzukin afhendir teikningu af stjórnarsáttmálanum.
Kl. 14:00 Fundur í ráðherranefnd um jafnréttismál.
Föstudagur 21. desember
Kl. 09:00 Morgunverður með ráðherrum í ríkisstjórn.
Kl. 09:30 Ríkisstjórnarfundur.
Kl. 11:00 Fundur í ráðherranefnd um samræmingu mála.