Hoppa yfir valmynd
18. febrúar 2020 Forsætisráðuneytið

Ávarp á 100 ára afmæli Hæstaréttar

Til er mynd af málflutningi í Hæstarétti frá fyrsta starfsári réttarins sem er merkileg samtímaheimild.

Fimm dómarar Hæstaréttar sitja skikkjuklæddir, fjórir með mikilfengleg yfirvaraskegg en forseti réttarins, Kristján Jónsson, fyrrverandi ráðherra Íslands, er hvítur fyrir hærum með voldugt alskegg. Margir dómaranna eru með lonníettur – vafalaust fórnarlömb aldurstengdrar fjarsýni – eins og sú sem hér talar varð líka nýverið.

Við ræðupúltið standa þeir Sveinn Björnsson, fyrsti forseti Íslands, og Eggert Claessen sem fyrstir voru titlaðir því óþjála heiti hæstaréttarmálaflutningsmaður – sem er eitt lengsta orð íslenskrar tungu.

Stofnun Hæstaréttar var stór áfangi í sjálfstæðisbaráttu Íslendinga þar sem í fyrsta sinn frá 13. öld varð endanlegt dómsvald í landinu aftur innlent. Það var mikilvægur hluti af fullveldinu að tryggja landsmönnum öllum réttláta málsmeðferð hér á Íslandi.

Dómasafn Hæstaréttar er mikilvægur aldarspegill. Fyrir utan það hlutverk að vera safn réttarheimilda ber það einnig vitni um sögu þjóðar, ágreining, erfiðleika og um viðhorf, gildismat og réttarvitund hennar.Og um hvað var fjallaði fyrsti dómurinn sem var kveðinn upp af Hæstarétti fyrir einni öld?

Hann fjallaði um tilkall til einnar rekaspýtu að andvirði 65 króna sem ber nokkuð vitni um það samfélag sem Ísland var á árinu 1920.

Ríkisstjórnin var skipuð þremur ráðherrum sem allir sátu í Stjórnarráðshúsinu, Alþingi sat í tæpan mánuð á ári og Hæstiréttur var til húsa á efri hæð Hegningarhússins við Skólavörðustíg.

Allar hafa þessar stofnanir ríkisvaldsins þróast og breyst mikið á síðastliðnum 100 árum í takt við umbyltingu á samfélaginu þar sem viðfangsefni hins opinbera hafa orðið umfangsmeiri og flóknari.

Góðir gestir

Hlutverk dómstóla í lýðræðisríki er að standa vörð um lög og rétt, vera endir allrar þrætu, og veita öðrum handhöfum ríkisvalds aðhald. Hæstiréttur tók sér snemma það vald að meta samræmi löggjafar við stjórnarskrá og þeirri hugmynd hefur verið fleygt að fela eigi réttinum formlegt hlutverk á þessu sviði í framtíðinni.Þótt dómstólar séu þannig öðrum þræði í því hlutverki að hafa hemil á löggjafanum og gæta þess að stjórnsýslan fari að lögum og virði réttindi borgaranna þá starfa þeir ekki einangrað. Greina má í gegnum söguna visst samspil handhafa ríkisvalds við að þróa samfélagið áfram. Stundum ryður löggjafinn nýjum viðhorfum braut en stundum er dómsvaldið í því hlutverki.

Nýlegt dæmi um þetta samspil ólíkra þátta ríkisvaldsins eru lög sem Alþingi samþykkti í vetur um bætur vegna fyrrverandi sakborninga í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu. Hæstiréttur hafði á árinu 2018 sýknað viðkomandi og þar með snúið fyrri dómi frá 1980. Til þess að stuðla að því að unnt væri að greiða út bætur sem fyrst á jafnræðisgrundvelli steig ríkisstjórnin og Alþingi inn í málið og samþykkti fyrrnefnd lög sem nú hafa komið til framkvæmdar. Það mál er auðvitað líka dæmi um afdrifarík mistök sem gerð hafa verið hér á landi við meðferð dómsvalds. Dómstólar munu svo eiga lokaorðið um bótarétt í þessum málum ef svo fer fram sem horfir,

Þær grundvallarbreytingar sem urðu með tilkomu Landsréttar á árinu 2018 léttir af Hæstarétti því hlutverki að vera eini áfrýjunardómstóll landsins og styrkir vafalaust hlutverk hans sem fordæmisgefandi dómstóls sem tryggir réttaröryggi borgaranna. 

Nú er svo komið að drjúgur hluti löggjafar hefur bein eða óbein tengsl við alþjóðlegar skuldbindingar vegna EES-samningsins og Mannréttindasáttmála Evrópu sbr. breytingar á mannréttindakafla stjórnarskrár árið 1995. Við höfum fyrir löngu tekið þá grundvallarafstöðu að vera virkir þátttakendur í alþjóðasamstarfi þar sem við höfum verið talsmenn mannréttinda og framþróunar réttarríkisins. Því fylgir að við erum ekki hafin yfir gagnrýni og eigum að vera fær um að geta brugðist við henni og unnið úr henni í takt við þau grundvallargildi sem alltaf hafa verið okkar leiðarljós. Og í þessum efnum kalla breytingar og þróun á löggjöf og þjóðfélagsháttum á að skera þarf úr nýjum álitaefnum þar með talið tengdum mannréttindum.

Hér má til dæmis nefna að ýmis álitamál kunna að vakna á næstu árum í tengslum við ofhitnun jarðar, stafræna byltingar og þróun gervigreindar.

Ágæta samkoma

Fræg er sagan frá miðri síðustu öld þegar Helga Pedersen borgardómari í Kaupmannahöfn stöðvaði málflutning lögmanns sem vildi útlista vísindalegt gildi nælonsokka með athugasemdinni:  Má ég vekja athygli yðar á því að rétturinn klæðist nælonsokkum! Þótt sannarlega hafi það verið nýmæli í kringum 1950 í Danmörku að kona væri dómari varð þróunin mun hægari hér á landi.

Auður Þorbergsdóttir var fyrst kvenna skipuð dómari á Íslandi árið 1972 og Guðrún Erlendsdóttir var síðan skipuð dómari við Hæstarétt árið 1986. Þótt jöfnuður kynjanna hafi aukist í dómskerfinu – eins og annars staðar í þjóðfélaginu – hallar enn á hlutfallið í Hæstarétti. Við berum öll ábyrgð á því verkefni að reyna að jafna hlut kynjanna – þar með talið í Hæstarétti – og ungar stúlkur eiga að geta séð það fyrir sér sem raunhæft markmið að verða hæstaréttardómarar – alveg eins og þær geta orðið forsætisráðherrar.

Hér vil ég minnast þess að hlutur Hæstaréttar í jafnréttismálum hefur skipt drjúgu máli. Með dómum árin 1978 og 1982 var konum dæmd hlutdeild í eignum sambýlismanns í stað ráðskonulauna, forgangsreglu jafnréttislaga var slegið fastri með dómi árið 1993 og fyrri dómvenju um lægra tekjuviðmið stúlkna heldur en drengja í skaðabótamálum var snúið við með dómi árið 1997.

Ágæta samkoma.

Saga Hæstaréttar er saga þjóðarinnar. Breytingar í löggjöf og þjóðfélagsháttum, viðhorfum og gildismati hafa jafnframt áhrif á störf og fordæmi réttarins. Lýsandi dæmi um þetta er að árið 1924 var maður dæmdur í átta mánuða betrunarhúsvinnu fyrir samkynhneigð – eins fráleitt og það nú hljómar. Í dómasafni Hæstaréttar frá árinu 2012 er að finna mál þar sem rétturinn fjallaði um deilu um eignarhald á ketti við eignaskipti samkynja sambúðarmaka - sem ber vitni um þær breytingar á lögum og viðhorfi sem varð á tæpri öld og endurspeglast meðal annars í lögum um kynrænt sjálfræði sem Alþingi samþykkti á síðasta ári.

Ein öld er drjúgur tími í réttarsögunni. Í tilefni af þessum merku tímamótum samþykkti ríkisstjórn Íslands í júní 2017 að afla fjárheimilda til að unnt væri að rita sögu Hæstaréttar sem er órjúfanlegur hluti af sögu fullveldisins.

Að því sögðu færi ég fyrir hönd ríkisstjórnarinnar Hæstarétti, dómurum réttarins og öðru starfsfólki árnaðaróskir í tilefni þessa merkisafmælis um leið og ég óska Hæstarétti alls velfarnaðar í störfum sínum í framtíðinni.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum