Hoppa yfir valmynd
24. febrúar 2022 Forsætisráðuneytið

Yfirlýsing Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra á Alþingi 24. febrúar 2022 vegna innrásar Rússlands í Úkraínu

Herra forseti. Fyrir hönd íslenskra stjórnvalda fordæmi ég harðlega innrás Rússa í Úkraínu. Hér er um að ræða árásarstríð sem er skýrt brot á alþjóðalögum og á sér enga réttlætingu. Þessi innrás, eins og öll önnur stríðsátök, er fyrst og fremst árás á venjulegt fólk, árás á daglegt líf venjulegs fólks, framtíð þess og öryggi. Hugur okkar er hjá þeim og skyldur okkar eru gagnvart þeim. Við krefjumst þess að Rússar stöðvi hernaðaraðgerðir sínar í Úkraínu sem þegar hafa kostað mannslíf og munu leiða til enn frekari stríðshörmunga, fólksflótta og mannréttindabrota. Til að fylgja þeim kröfum eftir styðja íslensk stjórnvöld þær efnahagslegu þvingunaraðgerðir sem gripið hefur verið til gegn Rússlandi. Þá mun Ísland styðja við Úkraínu með aukinni mannúðaraðstoð og má þar nefna að þegar hefur verið tekin ákvörðun um að veita sem svarar einni milljón evra til mannúðaraðstoðar í Úkraínu.

Hernaðaraðgerðir Rússa vega ekki einungis að öryggi venjulegs fólks í Úkraínu og að sjálfstæði Úkraínu heldur einnig að öryggiskerfi Evrópu. Evrópa stendur frammi fyrir einni mestu ógn í öryggismálum í áratugi og nú reynir á samstöðu ríkja heims um að koma á friði, fá Rússa til að hætta hernaði sínum og koma í veg fyrir að þessi átök breiðist út.

Eftir atburði næturinnar liggur fyrir að það sem við óttuðumst mest er að raungerast, stríð, mannfall og þjáning venjulegs fólks. Ísland hefur tekið skýra afstöðu. Við höfnum þessum hernaði. Við krefjumst þess að hann verði stöðvaður og við erum hluti af hinni breiðu alþjóðlegu samstöðu sem þegar hefur myndast um stuðning við Úkraínu og frið í heiminum.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum