Hoppa yfir valmynd
19. febrúar 2011 ForsætisráðuneytiðJóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra 2009-2013

Hendur fram úr ermum

Vatnaskil hafa nú orðið í þróun efnahags- og atvinnumála frá hruni. Rústabjörguninni er að mestu lokið og uppbyggingin hefur tekið við. Nú þurfa allir sem vettlingi geta valdið að láta hendur standa fram úr ermum og hefja atvinnuuppbyggingu af krafti.

Á viðskiptaþingi sem haldið var í vikunni hvatti ég menn til að standa saman og horfa fram á veginn á þá miklu möguleika sem íslenskt samfélag býður uppá. Í þeim efnum er fullt tilefni til bjartsýni og sóknarhugs enda tækifærin óþrjótandi.

Í fyrsta sinn í áraraðir ríkir sæmilegur stöðugleiki í efnahagslífinu og helstu hagvísar eru hagstæðir. Verðbólga hefur ekki verið lægri síðan árið 2004, gengi krónunnar er stöðugt og vextir hafa ekki verið lægri um langt árabil. Þessi stöðugleiki er frumforsenda þess að fyrirtækin leggi í fjárfestingar.

Góður árangur í efnahagsmálum

Ótvíræður árangur hefur náðst í ríkisfjármálum og halli ríkissjóðs, sem var um 216 milljarðar árið 2008, verður kominn í 36 milljarða árið 2011. Góður afgangur er á utanríkisverslun og svo virðist sem viðskiptajöfnuður hafi skilað afgangi sem nemur 3-4% af landsframleiðslu í fyrra. Fjórðu endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins er nýlokið og stefnt er að þeirri fimmtu strax í næsta mánuði. Öll merki benda til þess að Ísland sé komið yfir erfiðasta hjallann. Hagvöxtur er hafinn og skuldabyrðin minni en reiknað var með. Neikvæð staða þjóðarbúsins í lok árs 2010 er á bilinu 57-82% af landsframleiðslu en var um 210% af landsframleiðslu árið 2008.

Bætt umgjörð atvinnulífs

Gert er ráð fyrir að viðamiklar aðgerðir í skuldamálum 6-7 þúsund lítilla og meðalstórra fyrirtækja ljúki að mestu á komandi sumri. Þessum aðgerðum er ætlað að aðlaga skuldir þessara fyrirtækja að eigna- eða rekstrarvirði þeirra og efla þau til nýrrar sóknar. Breið samstaða hefur nú skapast um lausn Icesave málsins á Alþingi og  vonandi sér nú fyrir endann á þeim erfiðleikum sem málið hefur skapað íslensku efnahags- og atvinnulífi. Lausn þess mun án efa hafa víðtæk áhrif á fjármögnunarmöguleika þjóðarbúsins og stórframkvæmda. Ég fullyrði einnig að nú þegar hafa þúsundir starfa verið varin og ný sköpuð vegna margháttaðra annarra aðgerða stjórnvalda til að styðja við atvinnulífið og hvetja til dáða, m.a. með átaksverkefnum, lagabreytingum, skattaívilnunum, framkvæmdaverkefnum ýmisskonar og fjárfestingasamningum.

Þúsundir starfa í farvatninu

Nýverið var samið um aukna afkastagetu álversins í Straumsvík og framkvæmdir við Búðarhálsvirkjun eru að fara á fulla ferð. Í vikunni var einnig samið um nýtt Kísilver í Helguvík. Samtals eru þetta fjárfestingar fyrir ríflega 100 milljarða króna sem skapa munu 1.500-1.600 ársverk næstu misserin.

Góðar horfur eru einnig varðandi verksmiðju í Grindavík sem framleiðir hreinkísil fyrir sólarrafhlöður, áætlanir eru um byggingu verksmiðju á Grundartanga sem framleiða mun Sodium klorate og með skömmum fyrirvara væri hægt að ráðast í mjög umfangsmiklar framkvæmdir í samgöngumálum ef sátt næðist um fjármögnun þeirra framkvæmda með veggjöldum. Þessi verkefni öll gætu skapað allt að 2.000 ársverk fljótt og um 500 bein varanleg störf við framtíðarrekstur.

Atvinnulífinu ekkert að vanbúnaði

Í ársgamalli könnun Viðskiptaráðs á viðhorfi stjórnenda fyrirtækja kom fram að flest fyrirtæki töldu að óvissa, veiking krónunnar, samdráttur í eftirspurn og hátt vaxtastig ylli mestum erfiðleikum í rekstri.

Það er ánægjulegt að sjá að þessi ársgömlu vandamál virðast ekki lengur vefjast mjög fyrir forystumönnum atvinnulífsis í nýjustu könnun Verslunarráðs. Nú tróna þar efst sem helstu vandamálin stjórnvöldin sem hafa haft forystu um þann árangur sem ég hef hér farið yfir og skattaálögur á íslensk fyrirtæki. Þetta segir ansi margt um þann góða árangur sem við höfum náð enda tala staðreyndirnar um stjórnvaldið og skattana sínu máli. Staðreyndin er sú að skattar á fyrirtæki og arð eru hærri í flestum ef ekki öllum okkar helstu samkeppnislöndum og innan OECD eru aðeins 6 lönd með lægri skatta en Ísland. Atvinnulífinu er því ekkert að vanbúnaði að hefjast handa og nýta tækifærin sem blasa við á Íslandi.

Sameinumst um atvinnuuppbyggingu

Við verðum að skapa 10 til 15 þúsund ný störf á næstu árum. Við verðum að útrýma langtímaatvinnuleysi og tryggja atvinnuleitendum virkniúrræði sem skila árangri. Við verðum að byggja hér upp spennandi atvinnulíf og menntunarmöguleika þannig að okkar unga fólk geri Ísland að heimavelli sínum til framtíðar. Ríkisstjórnin ætlar sér að ná árangri í þessum efnum og hefur m.a. sett af stað víðtækt samráð við aðila vinnumarkaðarins, alla þingflokka og fleiri öfluga aðila um markvissar aðgerðir til að svo megi verða. Ég heiti á okkur öll að leggjast nú saman á árarnar í þessum efnum.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum