Hoppa yfir valmynd
19. júní 2012 ForsætisráðuneytiðJóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra 2009-2013

Nýir sigrar jafnréttisbaráttunnar

Kvenréttindadagurinn er greyptur í sögu jafnréttis kynjanna og mannréttinda hér á landi. Sjaldan eða aldrei sem í dag getum við fagnað jafn stórum áföngum á jafn stuttum tíma. Í dag þökkum við líka fyrir baráttu undangenginna kynslóða og ríka getu íslenskra kvenna til samstöðu og samvinnu um að stefna enn hærra. Við fögnum því að hafa þrjú ár í röð skipað efsta sætið á lista Alþjóðaefnahagsráðsins yfir stöðu jafnréttismála á heimsvísu og ætlum að halda þessu forystusæti með því að sækja stöðugt fram.

Í fyrsta skipti í Íslandssögunni eru konur í meirihluta æðstu embætta stjórnsýslunnar. Af níu ráðherrum eru fimm konur, af tíu ráðuneytisstjórum eru fimm konur. Í fyrsta skipti hafa konur náð hinu 40% nú lögbundna lágmarki í nefndum og ráðum Stjórnarráðsins. Kynjakvótinn sem núverandi stjórnarmeirihluti innleiddi hefur þegar leitt til fjölgunar kvenna í stjórnum lífeyrissjóða og fyrirtækja en hann kemst að fullu til framkvæmda 2013. Hert barátta gegn kynbundnu ofbeldi dylst engum, svo sem lögleiðing austurrísku leiðarinnar, bann við kaupum á vændi, aðgerðaáætlun gegn mansali og ný aðgerðaáætlun gegn kynbundnu ofbeldi sem er í smíðum.

Vert er að minna á nýja greiningu Þjóðmálastofnunar á þróun launamunar kynjanna fyrir hrun annars vegar og í tíð þessarar ríkisstjórnar hins vegar. Greiningin byggir á gögnum Hagstofunnar og sýnir minnkandi mun, úr 30-35% í 13-20%, eftir því við hvaða launahugtak er miðað.

En þessi árangur nægir mér ekki, ekki núverandi ríkisstjórn og ekki konum þessa lands. Launajafnrétti kynjanna er það svið jafnréttisbaráttunnar þar sem stöðugt þarf að sækja fram, móta einarðan pólitískan vilja og finna ný og beittari verkfæri til að hrinda honum í framkvæmd. Í dag verður kynnt frumvarp að staðli um launajafnrétti kynja. Með honum hafa aðilar vinnumarkaðarins í samvinnu við stjórnvöld og Staðlaráð unnið algert frumkvöðla- og brautryðjendastarf. Ég bind miklar vonir við að atvinnulífið allt taki honum fagnandi og nýti þá möguleika sem hann skapar til að ná enn frekari árangri í baráttunni gegn launamisrétti kynjanna.

Til hamingju með daginn!

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum