Hoppa yfir valmynd

Ræða eða grein fyrrum ráðherra

08. október 1999 HeilbrigðisráðuneytiðIngibjög Pálmadóttir, heilbrigðisráðherra 1995-2001

Fundur Læknafélags Íslands

Ræða á fundi Læknafélags Íslands
Ingibjörg Pálmadóttir
heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra



Ágætu fundargestir.
Ég þakka fyrir þann heiður sem mér er sýndur með því að fá að ávarpa fulltrúafund Læknafélags Íslands, sem nú er á níræðis aldri.

Seinni tíma saga læknasamtaka á Íslandi hófst fyrir rúmum eitt hundrað árum, en þá mistókst að koma á fót Hinu íslenska læknafélagi sem lognaðist út af.

18. október 1909, fyrir réttum níutíu árum, var Læknafélag Reykjavíkur stofnað, nokkrum mánuðum eftir að lög um Háskóla Íslands voru samþykkt. Læknafélag Íslands var svo stofnað á fullveldisárinu 1918. Ég nefni þetta til að minna ykkur á söguna og óska ykkur fyrirfram til hamingju.

Pólitískur veruleiki einkennist af breytingum og sviptivindum. Einstaklingar tapa, eða sigra í pólitískri baráttu, en þegar allt kemur til alls eru það ekki þessir sigrar, eða töp, sem skipta öllu. Mestu varðar það lýðræðislega stjórnmálastarf sem samfélag okkar byggist á. Rétturinn til að hafa skoðun og berjast fyrir henni.
Stjórnmálin eru átök og barátta og í stjórnmálalífinu skiptir miklu að menn séu virkir, og ekki síst að menn séu virtir.

Til þess að svo verði þurfa menn að temja sér heiðarleg vinnubrögð. Íslenskir læknar eru virtir fyrir störf sín og hafa ávalt verið það. Samtök ykkar hafa verið virt og margir tekið þau sér til fyrirmyndar.

Ég vona að svo verði áfram og að afstaða meirihluta stjórnar í einu tilteknu máli eyðileggi ekki fyrir ykkur í augum þeirra sem þið þjónið.

Sumir þeirra, sem tjáð sig hafa fyrir hönd óskilgreinds hóps lækna hafa verið í forystu þeirra sem haldið hafa uppi látlausri gagnrýni á mig sem heilbrigðisráðherra, á ríkisstjórn og Alþingi fyrir að samþykkja lögin um gagnagrunn á heilbrigðissviði. Þetta hefur verið gert innan lands og utan, á vettvangi fjölþjóðlegra stéttarfélaga lækna, á ráðstefnum og í fjölmiðlum. Mér finnst sumir hafa misst sjónar á, að frumvarpið var lögfest á Alþingi í desember síðast liðnum.


Það hefur komið mér á óvart, að menn skuli í röksemdum sínum lenda á valdi tilfinninganna, og hirða minna um staðreyndir.

Heilbrigðisráðuneytið neitaði í morgun, að taka þátt í enn einni uppákomunni um gagnagrunnsmálið, þegar ráðuneytinu var boðið að taka þátt í fundi um lögin, sem haldinn var með fyrirframgefnum niðurstöðum.

Og ég vil segja ykkur það strax: að heilbrigðis-og tryggingamálaráðherra tók þessa ákvörðun, en talar fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.

Efnislega er afstaðan ráðuneytisins rökstudd í bréfi til stjórnar Læknafélagsins í dag og því þarf ekki að hafa um hana fleiri orð. Bréfinu hefur vafalaust verið dreift á borð ykkar.

Ég sagðist undrast að vísindalegt uppeldi margra þeirra sem gagnrýna gagnagrunnsmálið hvað harðast skuli gufa upp eins og döggin á fögrum sumarmorgni þegar lögin eru annars vegar.

Nú er ég ekki læknir eins og þið vitið, heldur heilbrigðisráðherra, en samt þykir mér þetta miður vegna þess að ég lýsti eftir opinni, upplýstri og gagnrýnni umræðu um málið fyrir hálfu öðru ári. Andstæðingar málsins sáu til þess að svo varð ekki. Og ekki vildi Læknafélagið þekkjast boð mitt um sameiginlega kynningarfundi um málið um land allt. Það var mjög miður, en ég vona að þessum leiðindakafla í samskiptum okkar sé lokið.

En frá fortíð til framtíðar.

Menn hafa spurt mig síðustu daga, hvernig bæri að skilja þau orð mín fyrr í vikunni, að haldið yrði áfram á þeirri braut sem mörkuð var í málefnum stóru spítalanna þegar ráðinn var einn forstjóri. Svarið er einfalt: Í kjölfar eins forstjóra kemur ein stjórn.

Hvert sem litið er eru fyrirtæki og stofnanir að sameinast. Röksemdirnar fyrir breytingunum eru augljósar. Margar þeirra eiga ekki hvað síst við í heilbrigðisþjónustunni.

Menn hafa líka spurt: Af hverju ekki einn stóran hátæknispítala á Höfuðborgarsvæðinu?

Spurningin á fullan rétt á sér. Persónulega fyndist mér vel við eigandi að einmitt þessi ríkisstjórn sem nú situr og hefur á margan hátt markað þáttaskil í íslensku þjóðlífi, að einmitt hún markaði stefnu um slíka framkvæmd við árþúsundamót. Það væri glæsileg framtíðarsýn.

Ágætu fulltrúar.

Heilbrigðisráðherra er mikið í mun að vinna með læknum og samtökum þeirra. Ráðuneytið hefur átt gott samstarf við fjölmennan hóp lækna sem kemur að mörgum málum í daglegum störfum ráðuneytisins og vill stuðla að því að þannig megi það verða áfram.

Sú sem hér stendur vill ekki einungis eiga gott samstarf við einstaka lækna heldur líka eiga gott samstarf við samtök þeirra sem byggir á trúnaðartrausti, sjúklingum og samfélaginu öllu til farsældar.

Ég þakka gott hljóð.
(08.10 1999/Talað orð gildir)

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum