Hoppa yfir valmynd

Ræða eða grein fyrrum ráðherra

03. nóvember 2008 ForsætisráðuneytiðGeir H. Haarde, forsætisráðherra 2006-2009

Ræða forsætisráðherra Geirs H. Haarde á Alþingi 30. október 2008

Hæstvirtur forseti, góðir landsmenn

Talað orð gildir

Ég hef óskað eftir því að flytja þinginu skýrslu mína í dag um efnahags­mál og aðkomu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins að uppbyggingu hér á landi.

Fáir hefðu trúað því fyrir nokkrum mánuðum síðan að Ísland, ein ríkasta þjóð heims, myndi lenda í svo alvarlegum áföllum að við þyrftum að leita til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Sú djúpa og alvarlega lánsfjárkreppa sem nú ríður yfir heiminn hefur hins vegar í einni hendingu gerbreytt hinni efnahagslegu heimsmynd og horfum í heimshagkerfinu. Í slíkri stöðu hefur engin þjóð efni á að útiloka tilteknar leiðir við að leysa úr sínum vanda eða hafna boði um aðstoð, enda leita nú margar ríkisstjórnir til sjóðsins.

Margar af stöndugustu þjóðum heims róa nú lífróður til að bjarga því sem bjargað verður á sínum fjármálamörkuðum og beita í þeirri baráttu meðölum og aðferðum sem margir töldu fyrir ekki alls löngu að yrðu aldrei notuð aftur. Ástæða þess er einföld – ábyrg stjórnvöld láta ekki bankastarfsemi í sínu landi fara afskiptalaust á hliðina. Mikilvægi hennar fyrir allt efnahagskerfið í hverju landi er slíkt að stjórnvöld verða að grípa inn í og lágmarka það tjón sem af hlýst.

Fáar þjóðir hafa gripið til jafnafgerandi og róttækra aðgerða og Íslendingar. Með því að veita Fjármálaeftirlitinu heimild til þess að taka yfir starfsemi bankanna og skipta upp starfsemi þeirra var tekið af skarið með að innlendur hluti bankastarfseminnar, þjónusta við venjulegt fólk og fyrirtæki, færi ekki úr skorðum. Stjórnvöld hafa síðustu daga og vikur unnið linnulaust að því að tryggja verðmæti og búa svo um hnútana að þeir sem eigi kröfur á hendur bönkunum fái eins mikið í sinn hlut og hægt er.

Engum dylst að þessar aðgerðir eru harkalegar en að sama skapi efast fáir um nauðsyn þeirra. Samstaða var um þær aðgerðir hér á þingi og ég hef fundið það á fjölmörgum samtölum og fundum sem ég hef átt við erlenda þjóðarleiðtoga og ráðamenn á undanförnum dögum og vikum að aðgerðir okkar mæta skilningi og flestir átta sig á að enginn annar kostur verið fyrir hendi í jafnþröngri stöðu og íslenska þjóðin var komin í.

Virðulegi forseti.

Samhliða því að ríkisstjórnin og stjórnvöld unnu að viðbrögðum við falli bankanna var ljóst að við mættum engan tíma missa við að byrja endurreisn íslenska hagkerfisins og uppbyggingu til framtíðar. Ég vil gera stutta grein fyrir þeim helstu verkefnum sem við stöndum frammi fyrir á næstu vikum og mánuðum.

Fyrir það fyrsta hefur verið mikill skortur á erlendum gjaldeyri í landinu vegna þeirra efnahagshremminga sem yfir okkur hafa gengið. Þetta þýðir að gengi íslensku krónunnar er afar veikt með tilheyrandi áhrifum á verðlag og verðbólgu. Ég tel það vera stærsta einstaka verkefni ríkisstjórnarinnar og þjóðarinnar allrar að ná niður verðbólgu á næstu mánuðum og skapa þar með grundvöll til varanlegrar vaxtalækkunar í landinu. Til þess að ná þessu markmiði þurfum við að fá lán erlendis frá og gjaldeyri inn í landið til að styrkja gengið.

Í öðru lagi stöndum við frammi fyrir því að ríkissjóður verður fyrir miklu tekjutapi vegna þeirra áfalla sem dunið hafa á atvinnulífinu. Halli á rekstri ríkissjóðs á næsta ári verður enn meiri en gert hafði verið ráð fyrir og allt útlit er að við verðum nokkur ár að vinna okkur út úr þeim hallarekstri.

Í þriðja lagi verðum við að setja fjármagn inn í Seðlabankann og nýju bankanna sem stofnaðir hafa verið á grunni hinna gömlu og koma þeim af stað. Hagkerfið mun styrkjast mikið þegar þeir verða komnir í fullan gang.

Í þessari stöðu er afar mikilvægt að hafa til reiðu stóran sjóð í erlendri mynt til að lífga við gjaldeyrismarkaðinn, mynda kjölfestu og trúverðugleika fyrir gengisstefnu stjórnvalda og bregðast við óhóflegum sveiflum krónunnar.

Allt þetta krefst þess að við ráðumst í stórar lántökur erlendis. Það er engin óskastaða og engin ríkisstjórn vill skuldsetja sig, komist hún á annað borð hjá því. Reynsla okkar Íslendinga af slíkum lántökum er ekki góð og fyrir um 15 til 20 árum höfðum við safnað upp slíkum skuldastabba að vaxtagreiðslur og afborganir voru einn af stærstu útgjaldaliðum á fjárlögum hvers árs. Sem betur fer höfðum við náð að snúa þeirri þróun við.

Ég lagði á það mikla áherslu sem fjármálaráðherra að greiða niður skuldir ríkissjóðs og sá árangur hafði náðst að íslenska ríkið var í reynd orðið skuldlaust. Það er því þyngra en tárum tekur að við séum í þeirri stöðu að þurfa að skuldsetja ríkissjóð á ný en það er því miður okkar eina leið út úr vandanum. Og þó það sé sérstaklega sárt að horfa á eftir jafngóðri stöðu og ríkissjóður var í, tel ég að einmitt sú áhersla sem lögð var á niðurgreiðslu skulda reynist okkur nú heilladrjúg og augljóst er hve vonlítil og erfið staða okkar hefði verið ef ríkissjóður hefði siglt inn í þennan efnahagslega ólgusjó skuldum hlaðinn.

Hæstvirtur forseti.

Um leið og íslensk stjórnvöld fóru fram á lántökur frá öðrum þjóðum kom alls staðar skýrt fram að aðkoma Alþjóðagjaldeyrissjóðsins var sett sem skilyrði fyrir slíkri aðstoð. Skilaboðin voru einfaldlega þau að kæmi sjóðurinn hingað og ynni með íslenskum stjórnvöldum að koma þjóðinni í gegnum þann vanda sem hún stendur frammi yrði litið á slíkt samstarf sem nauðsynlegt heilbrigðisvottorð og forsendu þess að okkur yrðu veitt lán.

Tilkoma sjóðsins er því ekki einasta mikilvæg ein og sér heldur opnar hún í leiðinni dyr sem ella hefðu staðið lokaðar. Þegar ríkisstjórnin tók afstöðu til þess hvort leita ætti til sjóðsins snerist spurningin því ekki um sjóðinn sjálfan, ágæti hans eða fyrri verk, heldur hitt hvort við ættum yfirhöfuð að leita aðstoðar erlendis frá. Eins og ég fór yfir áðan voru hagsmunirnir af því að fá erlent fé inn í landið svo gríðarlegir að valið var augljóst og ríkisstjórnin og stjórnarflokkarnir stóðu einhuga að baki þeirri ákvörðun.

Þær væntingar sem við höfðum gert okkur varðandi áhrif þess að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn færi í samstarf með okkur hafa ræst. Á Norðurlandaráðsþingi sem fram fór í Helsinki í Finnlandi fyrr í vikunni átti ég fund með forsætisráðherrum hinna Norðurlandanna þar sem fram kom mikil samstaða og góðar líkur eru á að hin Norðurlöndin muni veita okkur aðstoð í formi lánveitingar sem myndi skipta okkur miklu. Sérstakur vinnuhópur á vegum forsætisráðherranna vinnur nú að málinu.

Það var ómetanlegt að finna þann ríka og einlæga stuðning sem við eigum meðal okkar norrænu frændþjóða á þessum erfiðu tímum. Og sérstaklega snerti mig sú samstaða og drengskapur sem frændur okkar Færeyingar sýndu með því að stíga fram og bjóðast til að veita okkur lán. Ég vil leyfa mér fyrir hönd þings og þjóðar að færa þakkir okkar til vina okkar í Færeyjum fyrir þessa aðstoð og þann vinarhug sem hún bar vott um.

Virðulegi forseti.

Á sama tíma og við finnum mikinn stuðning frá Norðurlöndunum stöndum við enn í deilum við bresku ríkisstjórnina. Eins og ég hef greint frá áður hefur íslenska ríkisstjórnin falið breskri lögfræðistofu að kanna hvort grundvöllur sé fyrir málssókn á hendur breska ríkinu vegna þeirrar fráleitu ákvörðunar þarlendra stjórnvalda um að beita hryðjuverkalögum gegn íslenskum hagsmunum í Bretlandi. Ríkin tvö eiga í viðræðum um lausn á uppgjöri í tengslum við svonefnda Icesave-reikninga í Bretlandi. Það er von okkar að sameiginleg lausn finnist en íslensk stjórnvöld hafa verið alveg skýr hvað það varðar að við munum aldrei sætta okkur við skilmála sem leggja okkar efnahag í rúst. Það verða Bretar að skilja.

Hæstvirtur forseti.

Ég mun nú fara nánar yfir viðræður og samkomulag íslenskra stjórnvalda við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn.

Viðræður fulltrúa Íslands og sjóðsins um fyrirkomulag samstarfsins hafa staðið yfir um nokkurt skeið og unnin hefur verið ítarleg efna­hagsáætlun í samráði við fulltrúa sjóðsins með það að markmiði að koma á efna­hags­legum stöðugleika á nýju. Fyrir liggur samkomulag á milli íslenskra stjórnvalda og sendi­nefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem verður borið undir stjórn sjóðsins til endanlegrar af­greiðslu eins fljótt og auðið er og einnig birt opinberlega hér á landi á næstu dögum.

Samstarf Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins felur í sér lánveitingu frá sjóðnum að andvirði rúmlega tveggja milljörðum bandaríkjadala og koma 830 milljónir af þeirri fjárhæð til greiðslu þegar við staðfestingu stjórnar sjóðsins, vonandi strax í næstu viku.

Í kjölfar styrkingar gjaldeyrisforðans verður tekið upp fljótandi gengi og treystum við því að Seðlabanki Íslands muni grípa til nauðsynlegra aðgerða til að ná þeim markmiðum í gengismálum sem stefnt er að.

Meginmarkmið efnahagsáætlunar ríkisstjórnarinnar eru í fyrsta lagi að endurvekja traust á íslenskum efnahag og ná stöðugu gengi krónunnar með mark­viss­um og öflugum aðgerðum, í öðru lagi að undirbúa markvissar aðgerðir til að styrkja stöðu ríkissjóðs og í þriðja lagi að endurreisa íslenskt bankakerfi.

Til að framfylgja þessum markmiðum mun ríkisstjórnin fara í viðamiklar aðgerðir í peninga- og gengismálum og í ríkisfjármálunum.

Hvað varðar stefnu ríkisstjórnarinnar í peninga- og gengismálum þá er brýnasta verkefnið núna að tryggja stöðugleika krónunnar og búa í haginn fyrir gengishækkun með tímanum. Á síðustu dögunum fyrir bankakreppuna lækkaði gengi krónunnar mjög hratt. Þegar bankarnir hrundu leiddi það til þess að innlendi gjaldeyrismarkaðurinn lokaðist og enn frekari lækkun varð á gengi krónunnar. Lækkun gengisins og aukin verðbólga sem leiddi þar af hefur haft alvarleg áhrif á hag heimila og fyrirtækja vegna þess að stór hluti skulda þeirra var gengisbundinn eða vísitölutryggður. Til að koma í veg fyrir öldu gjaldþrota og auka enn á þann samdrátt sem þegar er kominn teljum við það vera forgangsverkefni að koma á stöðugu gengi krónunnar.

Þótt gengið sé nú vissulega langt undir raunvirði, hefur hrun bankanna þriggja rýrt traust á gjaldmiðlinum, og áhættan af verulegu útflæði fjármagns frá landinu er töluverð. Þetta á sérstaklega við vegna þeirra óvissu sem ríkir um lausafjárstöðu hins nýja bankakerfis. Af þessum ástæðum þarf að grípa til sérstakra aðgerða til að mæta þessari skammtímaáhættu.

Hækkun stýrivaxta í 18%, sem Seðlabankinn kynnti í fyrradag, er liður í þessari viðleitni þar sem mjög mikilvægt er að koma í að koma í veg fyrir frekara fjármagnsútflæði við núverandi aðstæður. Þessu til viðbótar verða reglur um lausafjárstýringu hertar og Seðlabankanum verður gert kleift að beita stjórntækjum sínum af meiri festu en hingað til. Öllum er ljóst að stýrivaxtahækkun upp í 18% er afar viðkvæm aðgerð en það er afar brýnt að setja hana í samhengi við þær heildaraðgerðir sem verið er að fara út í, í samstarfi ríkisstjórnarinnar og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Tilgangurinn er sá að festa nýtt gengi í sessi og koma þannig böndum á verðbólguna.

Gripið hefur verið til tímabundinnar takmörkunar á fjármagnsviðskiptum og verður þeim viðhaldið eftir þörfum. Vissulega hafa slíkar takmarkanir ýmiskonar neikvæð áhrif og því verða þau afnumin eins fljótt og auðið er.

Stjórnvöld gera ráð fyrir að traust á gjaldeyrismarkaði með íslensku krónuna verði brátt endurvakið, þannig að vextir geti lækkað fljótlega. Þetta getur gerst um leið og krónan verður stöðugri á gjaldeyrismarkaði og utanríkisviðskipti með vöru og þjónustu fara að skila afgangi. Þetta mun gera kleift að slaka á hömlum á lánveitingum Seðlabankans og smám saman reiða okkur aftur á stýrivexti sem aðalstjórntæki peningamála innan ramma sveigjanlegrar gengisstefnu.

Hvað varðar stefnu í ríkisfjármálum er ljóst að uppgjörið á þrotum bankanna mun leiða til mikillar byrði fyrir opinbera geirann en bráðabirgðamat leiðir líkur að því að sá kostnaður geti numið um 85% af vergri landsframleiðslu

Ofan á þetta bætist aukinn halli af rekstri ríkissjóðs, sem reikna má með að verði um 10% af landsframleiðslu á næsta ári. Í heild má gera ráð fyrir að brúttóskuldir ríkissjóðs muni hækka úr 29% af vergri landsframleiðslu í lok ársins 2007 í vel yfir 100% í lok ársins 2009. Því mun bankakreppan setja opinbera geiranum verulega þrengri mörk og leggja byrðar á almenning á næstu árum.

Ekki verður gripið til sérstakra aðgerða til að hindra sjálfvirka sveiflujöfnun á árinu 2009. Til þess að auka ekki frekar á samdráttinn gera stjórnvöld ráð fyrir því að leyfa fjárlagahallanum að aukast að því marki sem leiðir af auknum útgjöldum og lægri tekjum vegna hagsveiflunnar.

Til að bregðast við aukinni skuldasöfnun hins opinbera verður langtímaáætlun ríkisfjármála mikilvægari. Framkvæmd hennar hefst með fjárlögum ársins 2010 og er áformað að lækka grunnhalla ríkissjóðs um 2–3% á ári yfir tímabilið með það að markmiði að ná fram grunnafgangi árið 2012 og enn meiri árangri 2013.

Með efnahagsáætlun ríkisstjórnarinnar er gert ráð fyrir að þrátt fyrir mikla tímabundna örðugleika sem nú blasa við okkur muni þjóðarbúið fari hægt að bítandi að rétta úr kútnum og að hjól atvinnulífsins fari að snúast að nýjan leik.

Samkvæmt þeirri þjóðhagsspá sem unnin hefur verið í tengslum við viðræður sendinefndar IMF er reiknað með að landsframleiðsla dragist saman um tæplega 10% á næsta ári en standi síðan því sem næst í stað árið 2010. Atvinnuleysi mun að öllum líkindum aukast á allra næstu misserum og ná hámarki á næsta ári en færi síðan nokkuð hratt lækkandi. Verðbólga hefur þegar náð hæstu hæðum og stendur nú í tæplega 16% vegna gríðarlegs falls krónunnar, en með snöggum viðbrögðum stjórnvalda í góðri samvinnu við aðila vinnumarkaðarins er gert ráð fyrir að verðbólga í lok næsta árs verði um 4,5% á ársgrundvelli.

Sem betur fer býr íslenskt efnahagslíf yfir miklum sveigjanleika og líkt og í fyrri efnahagsáföllum má gera ráð fyrir að hröð aðlögun í gengismálum skili sér fljótt í betra jafnvægi í utanríkisviðskiptum sem skapar forsendur fyrir efnahagslegum stöðugleika. Engu að síður er mikilvægt að hafa í huga að traust á hagkerfinu hefur minnkað verulega og er því enn hætta á að mikið fjármagnsflæði úr landi geti leitt til enn frekari lækkunar á gengi krónunnar. Fyrstu verkefni hagstjórnarinnar eru því að koma aftur á starfhæfu bankakerfi og tryggja stöðugleika krónunnar. Þegar til lengri tíma er litið verður að lækka hinar miklu skuldir hins opinbera með ströngu aðhaldi í ríkisfjármálum og auknum hagvexti.

Virðulegi forseti.

Íslenska þjóðin hefur gengið í gegnum ótrúlega erfiðleika á síðustu vikum. Þessi miklu áföll hafa eðlilega vakið angist, ótta og reiði meðal fólks en því má hins vegar ekki gleyma að undirstöður þjóðarinnar eru firnasterkar og á þeim byggjum við til framtíðar. Gjöful fiskimið, gnægð orku, öflugur landbúnaður og vel menntuð þjóð eru sterkir leiðarvísar inn í framtíðina.

Margir spyrja hins vegar hvernig næstu vikur og mánuðir verði og við hverju megi búast. Þetta eru spurningar sem ég skil vel að fólk spyrji en við þeim eru því miður ekki til einföld svör.

Það sem við vitum er að framundan er erfitt tímabil í okkar efnahagslífi á meðan við tökumst á við afleiðingar af falli bankanna en þau markmið sem ríkisstjórnin hefur sett sér eru að ná verðbólgu niður og við gerum okkur góðir vonir um að verulegur árangur hafi náðst þegar á næsta ári eins og ég hef þegar rakið. Ég tel að engin kjarabót sé stærri eða meiri fyrir íslenskan almenning á næstu mánuðunum að hér takist að ná tökum á verðbólgunni hratt og örugglega. Í kjölfarið munu vextir lækka og smám saman munum við undirbúa nýja sókn í okkar efnahagslífi. Þetta er hin stóra mynd sem ríkisstjórnin horfir á.

Hæstvirtur forseti.

Ég gat þess hér á þingi fyrir um tveimur vikum að sett yrði af stað rannsókn á aðdraganda bankahrunsins og dómsmálaráðherra lýsti í ræðu sinna á þingi þann sama dag hvernig staðið yrði að þeirri rannsókn. Sú vinna er nú í fullum gangi á vegum dómsmálaráðuneytisins. Ég ítreka mikilvægi þess að fá allt upp á borðið varðandi aðdraganda hruns bankanna og skorið verði úr um það í eitt skipti fyrir öll hvort saknæmt athæfi hafi átt sér stað.

Margt hefur verið sagt um atburðarásina í kringum fall bankanna og ýmsar þungar ásakanir í garð stjórnvalda hafa fallið í fjölmiðlum. Um þær vil ég það eitt segja að einhliða frásagnir segja sjaldnast allan sannleikann og ummæli manna verður að meta í því ljósi. Undanfarnar vikur hafa ríkisstjórnin, Fjármálaeftirlitið og Seðlabankinn tekið margar stórar ákvarðanir um björgunaraðgerðir í bankakerfinu þar sem tugir og jafnvel hundruð milljarða af almannafé hafa verið undir. Það gefur augaleið að ekki hefur verið unnt að ganga að öllum tillögum sem upp hafa komið þegar slík verðmæti eru í húfi. Ég fullyrði að við sem komið höfum að því borði höfum tekið okkar ákvarðanir af fullum heilindum og ég kvíði ekki dómi sögunnar í þeim efnum.

Góðir Íslendingar.

Á síðustu þremur vikum hafa verið stigin stærri og afdrifaríkari skref í okkar efnahagsmálum en dæmi eru um. Á tímum ótrúlegra áfalla hefur okkur tekist að sameinast um setningu neyðarlaganna og bjarga þannig innlenda hluta bankanna og ennfremur að óska eftir samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn sem mun tryggja okkur viðspyrnu næstu misserin. Þetta eru gríðarlega þýðingarmiklar aðgerðir sem sýna svart á hvítu að íslenska þjóðin hefur ekki setið aðgerðarlaus hjá á meðan efnahagslegt fárviðri hefur gengið yfir landið.

Við sem leiðum ríkisstjórnina höfum einsett okkur að axla þá ábyrgð að leiða þjóðina úr þeim erfiðleikum sem hún glímir nú við og tryggja að hún muni sigla inn í nýtt tímabil jafnvægis og tækifæra. Það verkefni er ekki einangrað við stjórnmálin, heldur er það verkefni okkar allra að herða hugann og sækja fram.

Góðar stundir.

Reykjavík 30. október 2008



Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum