Hoppa yfir valmynd

Ræða eða grein fyrrum ráðherra

25. október 2010 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, HeilbrigðisráðuneytiðVEL Jafnréttismál-Frettir

Áfram stelpur og strákar

Grein Guðbjarts Hannessonar, félags- og tryggingamálaráðherra, í Fréttablaðinu í tilefni kvennafrídagsins 24. október.

 


Íslenskar konur, til hamingju með kvennafrídaginn 2010.

Í fjórða sinn boða íslenskar kvennahreyfingar til fjöldasamstöðu kvenna til að minna á launamisréttið sem enn ríkir í landinu og brýna landsmenn til baráttu gegn kynbundnu ofbeldi. Þegar fyrst var efnt til útifundar kvenna á degi Sameinuðu þjóðanna kvennaárið 1975 vakti gríðarleg þátttaka og mikil stemning heimsathygli. Tilgangurinn var þá eins og nú að sýna fram á mikilvægi vinnuframlags kvenna til samfélagsins og krefjast þess að það verði metið að verðleikum. Áhrifin urðu mikil og ekki fór milli mála hve margar atvinnugreinar eru háðar vinnu kvenna.

Staða íslenskra kvenna hefur batnað mikið frá árinu 1975 enda mælumst við nú í efsta sæti á jafnréttislista World Economic Forum. Árið 1975 var atvinnuþátttaka kvenna 60% en er nú 78% sem er með því mesta sem þekkist innan OECD. Sífellt fleiri konur sinna fullu starfi. Launabilið hefur minnkað en er þó samt allt of breitt. Könnun sem Félagsvísindastofnun vann fyrir félags- og tryggingamálaráðuneytið vorið 2008 sýndi 16,3% kynbundinn launamun á landsvísu.

Hlutur kvenna hefur aukist hvað mest í áhrifa- og valdastöðum samfélagsins. Árið 1975 voru konur 5% þingmanna og 4% sveitarstjórnarmanna. Nú eru konur eru 43% þingmanna og 40% sveitarstjórnarmanna. Kona leiðir ríkisstjórnina og kynjahlutfall ráðherra er 40% en var raunar jafnt til skamms tíma. Það er enginn vafi að fjölgun kvenna meðal þeirra sem taka ákvarðanir og móta stefnu hefur leitt af sér hugarfarsbreytingu sem sést ekki síst á lagabreytingum sem beinast að baráttu gegn kynbundnu ofbeldi.

Árið 2006 var samþykkt aðgerðaáætlun gegn kynbundnu ofbeldi fyrir árin 2007–2011. Áætlunin fól í sér fjölda verkefna sem hrundið hefur verið í framkvæmd í áföngum. Eitt það stærsta er rannsókn á umfangi ofbeldis í nánum samböndum. Rannsókninni er að ljúka og munu niðurstöður hennar verða leiðarljós í þeirri vinnu sem þegar er hafin við að semja næstu áætlun. Þar verður sjónum einnig beint að réttarkerfinu og mið tekið af nýjum samningi Evrópuráðsins gegn kynbundnu ofbeldi. Alþingi hefur samþykkt lög um bann við vændiskaupum, bann við súlustöðum og staðfest aðgerðaáætlun gegn vændi og mansali sem verulega hefur reynt á undanfarið ár. Ísland er þriðja ríkið í heiminum sem bannar kaup á vændi. Í lagasetningunni felast afdráttarlaus skilaboð til samfélagsins um að kaup á líkama annarrar manneskju til eigin afnota er ósæmilegt athæfi sem ekki verður liðið. Með banni er sjónum beint að eftirspurninni og þeim sem bera raunverulega ábyrgð – kaupendunum.

Ríkisstjórnin leggur ríka áherslu á jafnrétti kynjanna og að kynjasjónarhorni sé beitt við alla ákvarðanatöku og stefnumótun. Framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum fyrir árin 2011–2014 verður fljótlega lögð fram á Alþingi. Þetta er metnaðarfull áætlun sem vonandi mun fleyta okkur áfram í átt til jafnari tækifæra og jafnari stöðu kynjanna. Enn verður leitað leiða til að útrýma kynbundnum launamun sem hefur reynst svo þrautseigur. Að þessu sinni er lögð mun meiri áhersla en áður á þátttöku karla í jafnréttisbaráttunni, enda varðar málefnið bæði kynin og þjóðfélagsins alls. Reynsla okkar af fæðingarorlofi feðra sýnir að aukið kynjajafnrétti færir ekki síst körlum aukin lífsgæði og það er margt sem þarf að vinna að til að karlar fái notið hæfileika sinna enn betur rétt eins og konur.

Það eru erfið ár framundan vegna efnahagshrunsins. Það er þó er engin ástæða til vonleysis því við munum finna leið út úr vandanum eins og jafnan áður. Aðgerðir kvenna á kvennafrídeginum sýna hve mikill kraftur er í grasrótinni, ekki síst meðal þeirra sem berjast fyrir samfélagi jafnréttis og samfélagi án ofbeldis. Látum kraft kvennahreyfinganna verða okkur hvatning til uppbyggingar og sóknar, segjum barlóminum stríð á hendur. Framtíðin verður björt ef við stöndum saman. Jöfn áhrif og jöfn staða kynjanna er forsenda fyrir því framtíðarþjóðfélagi sem við ætlum okkur að skapa.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum