Hoppa yfir valmynd

Ræða eða grein fyrrum ráðherra

29. apríl 2011 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, HeilbrigðisráðuneytiðGuðbjartur Hannesson, félagsmálaráðherra 2010, heilbrigðisráðherra 2010, velferðarráðherra 2011-2013

30 milljónum úthlutað til atvinnumála kvenna

Grein Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra um úthlutun atvinnustyrkja kvenna.
Greinin birtist í Fréttablaðinu 29. apríl 2011.

Árið 1991 var í fyrsta sinn úthlutað sérstökum styrkjum til atvinnumála kvenna að frumkvæði Jóhönnu Sigurðardóttur þáverandi félagsmálaráðherra. Síðan þá hafa þessir styrkir verið veittir árlega af hálfu félagsmálaráðuneytisins, nú velferðarráðuneytisins.

Upphaflega var markmið styrkveitinganna að draga úr atvinnuleysi í röðum kvenna sem þá var töluvert, jafnframt því að efla nýsköpun í atvinnulífinu. Þessi markmið eiga við enn í dag. Sú staðreynd blasir við að konur eiga einungis fjórðung fyrirtækja í landinu og því er styrkjunum einnig ætlað að auka hlut þeirra í fyrirtækjarekstri. Enn fremur hafa rannsóknir sýnt að konur fá aðeins fimmtung styrkja sem í boði eru og því er nauðsynlegt að vega upp á móti þeim mun með sértækum styrkveitingum sem þessum.

Styrkir til atvinnumála kvenna eru ætlaðir konum sem vinna að góðum viðskiptahugmyndum og verkefnum. Skilyrði styrkveitinga eru þau að verkefnin séu í eigu kvenna og feli í sér nýnæmi eða nýsköpun. Ekki er nauðsynlegt að vera með starfandi fyrirtæki til að sækja um styrk og því er heimilt að sækja um vegna verkefna á byrjunarstigi en einnig geta þær konur sótt um styrk sem eru að þróa nýjungar í starfandi fyrirtækjum. Unnt er að sækja um styrki til gerðar viðskiptaáætlunar, vegna markaðssetningar, vöruþróunar og hönnunar en ekki eru veittir styrkir til framkvæmda eða vegna stofnkostnaðar.

Verkefni sem hlotið hafa styrki í gegnum tíðina eru afar fjölbreytt á sviði framleiðslu, hönnunar og þjónustu af ýmsu tagi. Sem dæmi um styrkveitingar síðustu ára má nefna styrki til þróunar á morgunkorni, barnamat og heilsusamlegum birkisafa, markaðssetningar á blásturshljóðfæraviðgerðum, vöruþróunar á heimagerðum ís, baðhúss í Stykkishólmi auk verkefna á sviði hönnunar af ýmsu tagi. Af þessari upptalningu má sjá að fjölbreytnin er mikil enda kraftur í nýsköpun kvenna um þessar mundir.

Í þarfagreiningu sem gerð var í fyrra meðal styrkhafa síðustu ára voru konurnar beðnar um að meta þýðingu styrkjanna fyrir sig. Fyrir utan þann augljósa ávinning að fá fjármuni til að koma verkefnum sínum áfram bar öllum saman um að viðurkenningin sem fólst í styrkveitingu væri þeim afar mikilvæg og hvatning til að halda áfram og vinna enn harðari höndum að því að gera verkefnin að veruleika.

Með styrkjum sem þessum er tvímælalaust stuðlað að aukinni fjölbreytni í atvinnulífinu. Ný fyrirtæki hafa litið dagsins ljós sem skapa störf, samfélaginu til hagsbóta.

Í ár bárust 338 umsóknir hvaðanæva af landinu og hafa aldrei borist fleiri. 30 milljónir króna eru til úthlutunar og hefur ráðgjafarnefnd metið umsóknir á undanförnum vikum. Að þessu sinni hljóta 42 konur styrki og mun afhendingin fara fram í Víkinni – Sjóminjasafninu í Reykjavík kl. 13.00 í dag.

Listi yfir styrkhafa er á heimasíðu verkefnisins www.atvinnumalkvenna.is

 

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum