Hoppa yfir valmynd

Ræða eða grein fyrrum ráðherra

15. október 2012 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, HeilbrigðisráðuneytiðGuðbjartur Hannesson, félagsmálaráðherra 2010, heilbrigðisráðherra 2010, velferðarráðherra 2011-2013

Minningardagur um missi á meðgöngu og barnsmissi

Grein eftir Guðbjart Hannesson velferðarráðherra
Fréttablaðinu 15. október 2012

Í dag, 15. október, stendur stuðningshópurinn Englarnir okkar fyrir minningarathöfn um missi á meðgöngu og barnsmissi í Hallgrímskirkju. Athöfnin hefst kl. 19.30. Það er von hópsins að dagurinn verði eftirleiðis helgaður hinni hljóðu sorg sem slíkum missi fylgir. Þegar barn er í vændum er tilhlökkunin venjulega mikil, allar væntingar standa til þess að í heiminn verði borinn einstaklingur sem foreldrar og aðrir aðstandendur eiga eftir að njóta framtíðarinnar með.

Á hverju ári verður þó fjöldi fólks fyrir þeirri djúpu sorg að framtíð þessa litla einstaklings verður að engu, þegar barnið fæðist andvana, of snemma til að eiga sér líf, eða deyr eftir fæðingu. Eftir sitja foreldrarnir með brostnar vonir, tóma vöggu og þunga sorg sem engin orð duga til að lýsa. Þó eigum við orð sem lýsa börnum án foreldra, mökum án maka en ekkert orð yfir það að vera foreldri sem misst hefur barn.

Sorgin vegna framtíðarinnar sem ekki varð er þó ekki einungis foreldranna. Hún er líka sorg ömmu og afa, systkina, frænda, frænku og vinanna. Allt þetta fólk upplifir sorgina með ástvinum sínum.

Viðbrögð og viðmót gagnvart þeim sem verða fyrir þessari sáru reynslu hefur á undanförnum árum og áratugum breyst mikið til batnaðar. Áður fyrr var reynt að ?hlífa? fólki við sorginni með því að láta sem ekkert hefði gerst og því eru margir sem ekki hafa fengið tækifæri til að vinna úr missi sínum og sorg. Eins eiga margir erfitt með að sýna hluttekningu sína, finna ekki orðin eða vita ekki hvað er viðeigandi í þessum erfiðu aðstæðum. Framtak stuðningshópsins Englanna okkar er mikilvægt, því með opinni umræðu vill hópurinn styðja við aðstandendur þeirra sem missa með því að sýna hluttekningu í sorginni. Orð eru oft óþörf, nærvera, faðmlag eða hlýtt handtak segir svo margt.

Um leið og ég þakka samtökunum Englunum okkar þetta þarfa framtak, vil ég á þessum degi hvetja þá sem um sárt eiga að binda eftir missi á meðgöngu eða barnsmissi að sækja athöfnina í Hallgrímskirkju eða nýta daginn með þeim hætti sem hverjum þykir best hæfa tilfinningum sínum við þessar aðstæður.

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum