Hoppa yfir valmynd

Ræða eða grein fyrrum ráðherra

12. apríl 2018 HeilbrigðisráðuneytiðSvandís Svavarsdóttir

Hjúkrunarrýmum fjölgar umtalsvert

Grein eftir Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra
Birtist í Fréttablaðinu 12. apríl 2018

Svandís SvavarsdóttirÍ hvert skipti sem stór ákvörðun er tekin í heilbrigðiskerfinu hefur hún áhrif um kerfið allt. Þegar hjúkrunarrýmum fjölgar hefur það áhrif á lífsgæði aldraðra sem eru á biðlistum eftir slíkum rýmum, það hefur áhrif á stöðu Landspítalans sem glímir við verulegan vanda að því er varðar aldraða sem ekki er hægt að útskrifa af deildum spítalans. Þar með léttir á deildum spítalans og þjónusta eflist enn frekar við almenning í landinu, við heilbrigðisstofnanir um allt land og heilsugæsluna.

Biðin allt of löng

Um langt árabil hefur verið skortur á hjúkrunarheimilum í landinu þannig að bið eftir hjúkrunarrýmum hefur verið allt of löng, og í mörgum tilvikum óásættanleg. Í nýrri fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir árin 2019-2023 er tekið með afgerandi hætti á þessu verkefni og um að ræða stórátak í uppbyggingu hjúkrunarrýma. Í fyrri áætlun var gert ráð fyrir uppbyggingu 250 nýrra rýma á tímabili áætlunarinnar en sá fjöldi er nú kominn upp í 550 rými fram til ársins 2023.

Löngu tímabært

Um leið og mikilvægt er að fjölga fjölbreyttum úrræðum fyrir aldraða, bæði í heimahjúkrun, heimaþjónustu og dagdvöl er löngu tímabært að stíga þetta skref sem hér er boðað. Breytt aldurssamsetning þjóðarinnar á næstu árum, hlutfallsleg fjölgun aldraðra og aukin þjónustuþörf er veruleiki sem þarf að bregðast við í tæka tíð.

Stórátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila er mikilvægt skref í þágu aldraðra á Íslandi en endurspeglar líka skýra áherslu á heilbrigðismál í víðum skilningi í nýrri fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. Í áætluninni er stóraukin áhersla á málaflokkinn, bæði á framkvæmdir og rekstur, en mikilvægast þó er að stilla saman strengi til framtíðar, móta stefnu og skýra áherslur í þágu samfélagsins alls. Það er meginmarkmið mitt í embætti heilbrigðisráðherra.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum