Hoppa yfir valmynd

Ræða eða grein fyrrum ráðherra

29. maí 2018 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, HeilbrigðisráðuneytiðSvandís Svavarsdóttir

Sterkari heilsugæsla um allt land

Svandís Svavarsdóttir - myndVelferðarráðuneytið

Hinn 18. maí síðastliðinn kynnti ég ákvörðun mína um stofnun Þróunarmiðstöðvar heilsugæslunnar á landsvísu. Þróunarmiðstöðin mun leiða faglega þróun allrar heilsugæsluþjónustu í landinu og markmiðið með stofnun hennar er meðal annars að jafna aðgengi landsmanna að þessari mikilvægu grunnþjónustu hvar sem fólk býr, efla gæði þjónustunnar og stuðla að nýjungum.

Þróunarmiðstöðin mun starfa innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins en fyrirrennari Þróunarmiðstöðvarinnar nýju er Þróunarstofa Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, sem starfrækt hefur verið innan stofnunarinnar frá árinu 2009. Þróunarmiðstöð heilsugæslunnar á landsvísu mun byggjast á grunni Þróunarstofu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, en fær aukið sjálfstæði, víðtækara hlutverk og mun leiða faglega þróun allrar heilsugæsluþjónustu í landinu, hvort sem hún er veitt af hinu opinbera eða einkarekin. Á Þróunarmiðstöðinni verða um þrettán stöðugildi, með áherslu á breiða fagþekkingu.

Auk þess að stuðla að nýjungum og þróun þjónustuúrræða í samræmi við helstu áskoranir á sviði lýðheilsu mun Þróunarmiðstöðin annast innleiðingu gæðavísa, leiða samstarf á sviði rannsókna og stuðla að því að sérhæfð þekking fagfólks heilsugæslunnar um allt land nýtist sem best. Samræming og samhæfing þjónustu á landsvísu er eitt af meginmarkmiðunum með stofnun miðstöðvarinnar, þannig að betur megi tryggja jafnræði landsmanna og aðgang þeirra að sambærilegri heilsugæsluþjónustu, hvar sem fólk býr. Þróunarmiðstöðin gegnir því mikilvægu hlutverki þegar kemur að því að stuðla að jöfnu aðgengi að heilbrigðisþjónustu.

Von mín er sú að með Þróunarmiðstöð heilsugæslunnar skapist stóraukin tækifæri fyrir fagfólk heilsugæslunnar um allt land til virkrar þátttöku í gæða- og þróunarverkefnum sem torvelt hefur verið að sinna á minni stöðum. Tilvist Þróunarmiðstöðvarinnar muni þannig styrkja faglegt starf innan heilsugæslu á landsbyggðinni og skapa aukin tækifæri til að miðla þekkingu og reynslu milli stofnana og rekstrareininga. Þannig er Þróunarmiðstöð heilsugæslunnar enn eitt skrefið í átt að bættri heilbrigðisþjónustu í landinu.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum