Hoppa yfir valmynd
15. janúar 2019 Innviðaráðuneytið

Flýtum framkvæmdum - fækkum slysum

Greinin var birt í Fréttablaðinu, þriðjudaginn 15. janúar 2019

Markmiðið með metnaðarfullri samgönguáætlun verður ekki mælt í kílómetrum, heldur mannslífum og lífsgæðum. Til að stuðla að fækkun slysa og auka umferðaröryggi er áhrifaríkast að endurbæta vegakerfið sem lætur víða á sjá í kjölfar aukinnar umferðar og þungaflutninga, m.a. vegna mikillar fjölgunar erlendra ferðamanna. Sambærileg framlög og á undanförnum árum mæta engan veginn uppsafnaðri þörf til að breikka og tvöfalda vegi til að mæta aukinni umferð. Tekjur af ökutækjum og eldsneyti renna að stærstum hluta til vegagerðar en spár gera ráð fyrir með aukinni nýtingu annarra orkugjafa muni þær minnka á næstu árum. Ný leið í fjármögnun er að fólk greiði fyrir notkun sína.

Stóraukið álag á vegakerfinu
Fjöldi ekinna kílómetra á þjóðvegum landsins hefur aldrei verið meiri en nú. Umferðin hefur breyst mikið á undanförnum árum og aukist um 46% á Hringveginum á sl. fimm árum. Vegakerfið annar varla umferðarálaginu enda var það að miklu leyti byggt upp þegar bílar og þungaflutningar voru færri og umferðarhraðinn lægri. Fjölgun ferðamanna hefur ítrekað farið fram úr bjartsýnustu spám og eru ákveðnir staðir vinsælli en aðrir með tilheyrandi álagi á stofnæðar þjóðvegakerfisins til og frá Reykjavík.

Almenningssamgöngur
Aukning í umferð er ekki einungis á vinsælum ferðamannaleiðum og helstu tengingum út úr höfuðborginni. Umferðaraukning hefur einnig verið á höfuðborgarsvæðinu en miðað við óbreytt ástand þá er áætlað að hún aukist um 40% til ársins 2040. Viðræður eru í starfshópi ríkisins og sveitarfélaganna um uppbyggingu samgangna á höfuðborgarsvæðinu.

Fjármögnun samgangna
Fjármagn vegna ökutækja og eldsneytis skila ríkissjóði um 47 milljörðum og er hlutfall þess sem rennur til vegagerðar um 70%. Restin, eða um 30% af fjármagni vegna ökutækja og eldsneytis fer í tengda liði, okkar sameiginlegu sjóði sem deilist út í heilbrigðiskerfið, tollgæslu og löggæslu, meðal annars til að standa undir kostnaði við eftirlit og afleiðingar af notkun ökutækja. Á allra næstu árum munu orkuskipti leiða til þess að þróun skatttekna af ökutækjum fer minnkandi.

Stóra stökkið
Ástand í samgöngum eiga ekki að hefta lífsgæði eða hafa neikvæð áhrif á líf fólks, heldur þvert á móti. Færa þarf vegakerfið upp um umferðaröryggisflokka og ljóst að ákveðnar framkvæmdir á fjölförnum stöðum þurfa að eiga sér stað á skömmum tíma. Umfang áætlaðra flýtiframkvæmda er um 10% af heildar samgönguáætlun, um 60 milljarðar króna. Þær fela í sér alvöru framkvæmdir s.s. breikkun vega, tvöföldun á vegum og aðskildar aksturstefnur. Tvöföldun Reykjanesbrautarinnar og aðskilnaður akstursstefna er gott dæmi um hve miklum árangri má ná með slíkum aðgerðum en verulega hefur dregið úr alvarlegum slysum á þeirri leið eftir framkvæmdina. Bylting verður í umferðaröryggi þegar Vesturlandsvegur og Suðurlandsvegur verða tvöfaldaðir.

Gjaldtöku lýkur
Gert er ráð fyrir að afmarkaðar leiðir verði fjármagnaðar af þeim sem nýta, líkt og þekkt var í Hvalfjarðargöngum. Gjaldtaka hófst og gjaldtöku lauk. Afmörkuðu leiðirnar þurfa að taka mið af stöðu svæða, ferðaþjónustu, öryggissjónarmiðum og vali um aðra leið þar sem því verður við komið. Að loknum framkvæmdum og endurbótum verður innheimt tímabundið gjald og gjaldtöku hætt að lokinni uppgreiðslu láns. Tímalínan gæti verið þessi: Útboð hefjast á þessu ári, framkvæmdir á því næsta og innheimta að þeim loknum, árið 2024. Gjaldtakan myndi þá hefjast á svipuðum tíma og skatttekjur af ökutækjum færu minnkandi.

Sátt um samgönguáætlun
Samgönguáætlun hefur verið til umfjöllunar hjá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, síðan í október. Mikilvægt er að sátt náist um hvaða leiðir á að taka út fyrir sviga og setja í flýtiframkvæmdir. Forsenda þess að farið verði í gjaldtöku er gagnsæi um ráðstöfun fjármagns, að innheimt gjöld fari til afmörkuðu framkvæmdanna.

Jafnræði
Stefnt er að því að leggja fram frumvarp á vorþingi um framtíðarfjármögnun vegakerfisins. Jafnræði þarf að ríkja um greiðslu gjalda. Markmiðið er að sem flestir taki þátt, að gjaldið deilist á sem flesta, t.d. þannig að ferðamenn greiði einnig. Bæði kostnaður flýtiframkvæmda og umferð er mismikil á hverri leið fyrir sig. Þannig þarf umfjöllun að eiga sér stað um annars vegar að sama gjaldið gildi fyrir allar leiðir, óháð umferð eða hins vegar hvort að gjaldið eigi að endurspegla kostnað framkvæmda og umferð á hverjum stað. Mikilvægt er að fá sameiginlega sýn en niðurstöður starfshóps og nánari útfærslur munu liggja fyrir á næstu dögum sem frumvarpið mun byggja á.

Að lokum
Markmiðið með flýtiframkvæmdum er að auka umferðaröryggi, skilvirkni í umferðinni og fækka slysum. Þrátt fyrir allar þessar aðgerðir eru það fyrst og fremst við sjálf sem ráðum því hvaða árangri við náum í umferðaröryggi og slysavörnum. Högum akstri eftir aðstæðum.

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum