Hoppa yfir valmynd
02. maí 2020 Innviðaráðuneytið

Stöndum með ferðaþjónustunni

Grein birt í Morgunblaðinu 2. maí 2020

Þegar ég horfi upp í himininn á kvöldin á leiðinni úr hesthúsinu þá er hann eins og hann var þegar ég var lítill strákur. Þótt það séu ekki aldir síðan þá voru rákirnar sem þoturnar skildu eftir sig á himninum sjaldgæfari en síðustu ár. Um allan heim eru þoturnar sem fyrir nokkrum vikum fluttu fólk milli landa og heimsálfa í stæðum á jörðu niðri og bíða þess að heimurinn opnist að nýju og fólk láti drauminn um fjarlægari staði rætast.

Mörgum gæti þótt rómantískt að okkar fögru ferðamannastaðir séu fámennir og að einhverju leyti er það heillandi. Afleiðingarnar af þessu fámenni eru þó gríðarlegar fyrir fjölskyldur um allt land. Ferðaþjónustan hefur lengi verið mikilvægur þáttur í íslensku mannlífi en aldrei eins og síðustu árin þegar áhugi heimsins á Íslandi hefur verið mikill og ferðalag til eyjunnar okkar í Atlantshafinu á óskalista margra. Okkur hefur líka lánast það að Ísland er áfangastaður sem fólk vill heimsækja aftur og mælir með við vini sína og fjölskyldur.

Ríkisstjórnin hefur á síðustu vikum komið með fjölmargar aðgerðir sem ætlað er að brúa bilið þangað til aftur er hægt að ferðast um heiminn. Við höfum lagt áherslu á að vernda lífsgæði fólks og það að fyrirtækin geti hafið starfsemi sína að nýju þegar óveðrinu slotar, veitt fólki störf og skapað samfélaginu tekjur.

Ég er bjartsýnn maður að eðlisfari og trúi því að ekki verði grundvallarbreytingar á ferðaþrá fólks og ferðalögum. Það er einfaldlega mjög sterkur þráður í manninum að vilja skoða sig um á ókunnum slóðum. Þess vegna er mikilvægt að við séum viðbúin þegar náðst hefur stjórn á veirunni.

Ferðaþjónustan er gríðarlega mikilvæg fyrir samfélagið og ekki síst er hún stórkostlegt afl úti í hinum dreifðu byggðum. Og þangað til hún endurheimtir kraftinn úr ferðaþrá heimsins þá hef ég lagt ofuráherslu á að ríkisstjórnin skapi ný störf sem geta veitt fólki um allt land tekjur á meðan þetta ástand varir. Margra milljarða aukning í verkefnum tengdum samgöngum um allt land er til þess ætluð að skapa fjölskyldum tekjur til að lifa góðu lífi. Og auk þess eru samgönguframkvæmdir arðsamar fyrir samfélagið.

Framsókn hefur alltaf verið nátengd lífinu í landinu, enda sprettur flokkurinn upp úr bændasamfélagi fyrir rúmri öld síðan. Við höfum stutt við uppbyggingu um allt land og ferðaþjónustan hefur staðið okkur nærri. Við munum áfram berjast fyrir því að hagsmunir fjölskyldna um allt land séu hafðir í öndvegi við ákvarðanatöku við ríkisstjórnarborðið.

Ég hvet alla Íslendinga til að ferðast um okkar fagra land í sumar. Þannig styðjum við það fólk sem hefur haldið uppi mikilvægu starfi fyrir land og þjóð síðustu árin og höldum hjólunum gangandi þangað til rákunum á himninum fjölgar að nýju.

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknar og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum