Hoppa yfir valmynd
01. október 2020 Innviðaráðuneytið

Atvinna, atvinna, atvinna

Ræða flutt í umræðum á Alþingi um stefnuræðu forsætisráðherra

Virðulegi forseti.

Upp er runninn fyrsti október: Áttundu mánaðamótin frá því kórónuveirufaraldurinn fór fyrir alvöru að hafa áhrif á líf okkar. Fjöldi fólks sem var með vinnu 1. mars er nú án atvinnu. 

Allar aðgerðir ríkisstjórnarinnar hafa miðað að því að milda þetta mikla högg um leið og heilsa landsmanna er vernduð eftir því sem best er hægt. Og hvað felst í því að milda höggið: jú, það felst fyrst og fremst í því að standa vörð um atvinnu fólks og lifibrauð.

Líklega er stærsta aðgerðin hlutastarfaleiðin. Eftir því sem liðið hefur á faraldurinn þá höfum við framlengt leiðina og auk þess framlengt tekjutengdar atvinnuleysisbætur. 

Þessar aðgerðir hafa það að markmiði að standa vörð um ráðstöfunartekjur heimilanna eftir því sem kostur er. Því mánaðamótin koma með öllum sínum skuldbindingum. 

Við stöndum vörð um störf og sköpum ný störf. Atvinna, atvinna, atvinna.

Sumarið var ólíkt síðustu sumrum þar sem erlendir ferðamenn hafa sett mark sitt á mannlíf landsins. Nú voru það Íslendingar sem nýttu sér þá frábæru ferðaþjónustu sem fólk vítt og breitt um landið hefur byggt upp á síðustu árum. Ég trúi því að öll þessi ferðalög hafi þjappað þjóðinni saman, hafi aukið skilning okkar á aðstæðum hvert annars og hafi skapað sterkari tilfinningar gagnvart landinu okkar fagra.

Ísland er nefnilega ekki bara höfuðborg og landsbyggð; við eigum landsbyggðir, ólíkar en samt með sömu hagsmuni fólks, hagsmuni þar sem atvinna er efst á blaði, það að geta mætt mánaðamótunum án þess að vera með kvíðahnút í maganum.

Um það snýst vinna okkar á Alþingi og í ríkisstjórn- síðustu mánuði - næstu vikur, næstu mánuði: Að standa vörð um störf og skapa ný störf. Atvinna, atvinna, atvinna.

Næstu mánuði leggjum við grunninn að framtíðinni.

Viðamikil mennta- og starfsúrræði eru framundan fyrir þá sem missa vinnuna auk áherslunnar á að skapa ný störf og ný tækifæri.

Það á ekki síst við um á þeim svæðum sem hafa orðið harðast úti vegna frosts í ferðaþjónustu, atvinnugreininni sem hefur auk landbúnaðar og sjávarútvegs verið lífæðin í byggðum landsins.

Við vitum öll að þegar þessar hörmungar hafa gengið yfir þá er framtíðin björt í ferðaþjónustu á Íslandi. Náttúran er enn jafnfögur, innviðir enn til staðar og styrkjast með hverju ári með metnaðarfullri samgönguáætlun – og það sem er mikilvægast:

Þekkingin hjá fólkinu og krafturinn er enn til staðar og mun springa út sem aldrei fyrr þegar veiran gefur eftir og ferðaþráin springur út að nýju.

Nú eiga lítil og meðalstór fyrirtæki allt sitt undir því að fjármagnseigendur séu þolinmóðir og bíði af sér ölduganginn. Þar eru störf fólks og heimili í húfi.

Ég er bjartsýnn að eðlisfari. Og síðustu mánuðir hafa styrkt þann eiginleika minn því ég hef upplifað mikla samstöðu þjóðarinnar við erfiðar aðstæður. Þrátt fyrir þá miklu erfiðleika sem við stöndum frammi fyrir. Þrátt fyrir að við höfum ekki getað lifað eðlilegu lífi.

Þrátt fyrir það að kreppan komi mismunandi við fólk þá hefur ríkt skilningur um að við komumst í gegnum þetta saman, með samvinnu, með skilningi á aðstæðum annarra, umburðarlyndi og bjartsýni. Og verkefnið er, fyrst og fremst, atvinna, atvinna, atvinna.

Og í dag er gleðidagur – eftir margra ára baráttu fyrir bættum samgöngum á sunnanverðum Vestfjörðum hefur sá dómur verið kveðinn upp að framkvæmdir geta loks hafist í gegnum Teigsskóg. Áfram veginn um Teigskóg.

Fullyrða má að aukning í nýframkvæmdum á næstu árum í samgöngum vegi á móti samdrætti næstu ára. Sú sókn grundvallast annars vegar á metnaðarfullri framtíðarsýn í fimmtán ára samgönguáætlun og á viðbótarfjármagni sem lagt var í samgönguframkvæmdir úr fjárfestingaátaki ríkisstjórnarinnar. Samgönguframkvæmdir næstu ára skapa 8.700 störf einar og sér.

Þá er mikilvægt að við séum meðvituð um áhrif okkar sem neytenda því þegar við kaupum íslenskar vörur, hvort heldur er lambakjöt eða súkkulaði eða fatnaður; þannig verjum við störf og sköpum ný. Við höfum val  Íslenskt gjörið svo vel. Láttu það ganga.

Haustið bítur aðeins í nef okkar og veturinn færist nær. Frá því þing var sett haustið 2019 hefur margt gengið á. Ekki aðeins veiran heldur var síðasti vetur mörgum erfiður með vályndum veðrum.

Óveður sem gengu yfir landið síðasta vetur sýndu svo ekki verður um villst aðstöðumun milli landshluta. Ríkisstjórnin brást við af festu og nú myndi óveður af þessari stærðargráðu ekki hafa slík áhrif.

Allir studdu þær aðgerðir. Umræða um byggðamál og byggðastefnu á ekki og má ekki vera útilokandi og ala á úlfúð milli svæða og hópa. Skilningur á aðstæðum annarra er lykilatriði og þar stöndum við betur nú, sameinaðri en fyrir ári síðan.

Ríkisstjórn Framsóknar, Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna - er breið í eðli sínu, þar koma saman ólíkir kraftar sem endurspegla að miklu leyti skoðanir þjóðarinnar. Hún hefur verið einbeitt í því að horfa á sameiginlega hagsmuni þjóðarinnar og vinna að sátt í samfélaginu. Hún er á réttum tíma á réttum stað.

Stærsta hagsmunamálið hefur verið að tryggja frið á vinnumarkaði. Það var mikilvægt þegar var skrifað undir lífskjarasamningana og það var stórt skref að ná að tryggja að samningarnir héldu. Við megum ekki við því nú að láta ófriðinn ná yfirhöndinni því verkefnin eru stór og þau snúast um að komast í gegnum þennan vetur með það að markmiði að vernda störf og skapa störf.

Það er verkefni sem við getum sameinast um. Og þegar fer að vora verðum við tilbúin til að snúa vörn í sókn. Framsókn fyrir íslenskt samfélag. Því framtíðin ræðst á miðjunni.

Fyrsti október 2020 og við erum í miðju stríði við kórónuveiruna. En hver mánaðamót sem renna upp segja okkur líka að það styttist í að lífið færist að nýju í eðlilegt horf. Gleymum því ekki. Og sameinumst um að vernda störf og skapa störf því verkefnið er brýnt og verkefnið er ljóst: atvinna, atvinna, atvinna.

Góðar stundir.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum