Hoppa yfir valmynd
22. mars 2021 Innviðaráðuneytið

Virðingin fyrir náttúrunni

Grein birt á Vísi mánudaginn 22. mars 2021

Náttúran. Alla mína æsku beið ég eftir stóra skjálftanum. Hann var alltaf yfirvofandi, eiginlega hluti af hversdeginum. Þess vegna skil ég vel fólkið á Reykjanesi sem finnur fyrir feginleika nú þegar lítið eldgos hefur fæðst við Fagradalsfjall og það virðist hafa dregið úr spennu á svæðinu. Ég finn líka fyrir þessum feginleika. Hins vegar þykir mér tal um „túristagos“ vera ákveðið virðingarleysi við náttúruna og þann gríðarlega sköpunar- og eyðileggingarmátt sem hún býr yfir.

Maðurinn er hluti af náttúrunni

Maðurinn er ekki aðskotadýr í náttúrunni, hann er hluti af henni og hennar stórkostlega sköpunarverki. Við höfum í gegnum aldir og árþúsundir lært að lifa með krafti náttúrunnar og náð að beisla orku hennar. Skyldur okkar gagnvart náttúrunni eru að ganga ekki á gæði hennar á þann hátt að það hafi í för með sér óafturkræfa eyðileggingu.

Nýting á sjálfbæran hátt

Á síðustu árum hefur orðið almenn viðhorfsbreyting gagnvart náttúrunni sem felst í meiri virðingu fyrir henni. Ég hef áður sagt að ég telji óhugsandi að ráðist verði í stórvirkjanir á borð við Kárahnjúkavirkjun á komandi árum og áratugum. Og um það held ég sé almenn samstaða. Ég tel hins vegar að það sé eðlilegt að nýta krafta náttúrunnar á sjálfbæran hátt til þess að viðhalda og auka lífsgæði á Íslandi.

Vísindi og stjórnmál leika lykilhlutverk

Loftlagsmálin eru brýnasta úrlausnarefni samtímans og mikilvægt að þjóðir heims taki höndum saman við að leysa þau flóknu verkefni sem við stöndum frammi fyrir. Þar leika vísindin og stjórnmálin lykilhlutverk. Og sú samstaða og samvinna sem hefur tekist með þjóðum heims í baráttunni við kórónuveirufaraldurinn vekur bjartsýni um að það takist.

Ísland er mikilvæg fyrirmynd

Við Íslendingar höfum þegar stigið mikilvæg skref sem geta verið öðrum þjóðum fyrirmynd. Þar er mikilvægasta fyrirmyndin að við höfum með hjálp náttúrunnar náð að hita híbýli okkar með heitu vatni og knýja samfélagið með raforku sem er framleidd á loftlagsvænan hátt. Við vorum því komin langt í loftlagsmálum áður en þjóðir heims hittust í Kyoto í Japan í lok síðustu aldar.

Uppspretta nýrra leiða

Við höfum á síðustu mánuðum upplifað þá gríðarlegu auðlind sem felst í þekkingu vísindanna, bæði hvað varðar sjúkdóma og jarðfræði. Sú þekking er uppspretta nýrra leiða til að fást við vanda sem mannkynið hefur tekist á við alla sína tíð. Sú þekking sem vísindin færir okkur er einnig grundvöllurinn að allri þeirri nýsköpun sem verður í lykilhlutverki í baráttunni gegn loftlagsbreytingum.

Umgöngumst náttúruna af virðingu

Náttúran og kraftar hennar eru hluti af daglegu lífi á Íslandi. Hún er uppspretta stórs hluta af lífsgæðum okkar, hvort heldur er matvæli, orka eða ferðaþjónusta, og um leið er hún ógn við lífsgæði okkar með vályndum veðrum, jarðhræringum, flóðum og skriðum. Við verðum að umgangast hana af virðingu.

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknar og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum