Hoppa yfir valmynd

Ræða eða grein fyrrum ráðherra

1. nóvember 2002 InnviðaráðuneytiðSturla Böðvarsson, samgönguráðherra 1999-2007

Opnun Reykjavíkurflugvallar 1. nóvember 2002

Reykjavíkurflugvöllur var opnaður eftir umfangsmiklar endurbætur 1. nóvember 2002 og flutti samgönguráðherra Sturla Böðvarsson ávarp við það tækifæri.


Borgarstjóri, ráðherrar, þingmenn og ágætu gestir.

Við erum hér saman komin í vöggu flugsins og miðstöð innanlandsflugs á Íslandi.

Endurbygging Reykjavíkurflugvallar er mesta framkvæmd á sviði flugöryggismála, sem ráðist hefur verið í á síðustu árum. Eftir umfangsmiklar endurbætur er Reykjavíkurflugvöllur í fremstu röð flugvalla hvað varðar öryggi. Því ber að fagna og um leið hljótum við að gera þá kröfu til þeirra, sem stunda flugrekstur, að hvergi verði slakað á kröfum um fyllsta öryggi þegar löggjöf og öll mannvirki eru nú í samræmi við það sem best gerist í veröldinni.

Ég vil, sem samgönguráðherra, þakka öllum þeim sem komið hafa að framkvæmdum við flugvöllinn. Þar vil ég fyrst nefna Flugráð, flugmálastjóra og annað starfsfólk Flugmálstjórnar, hönnuði, verktaka og þá sem komið hafa að skipulagi flugvallar svæðisins.

Í áratugi hafði Reykjavíkurflugvöllur setið á hakanum um nauðsynlegar fjárveitingar til endurbóta og frágangs á flugvallarsvæðinu. Nú hefur verið úr því bætt og við okkur blasir gjörbreyttur flugvöllur sem fellur betur inn í umhverfið og verður ekki lengur sem kaun í landinu heldur vel frá gengið athafna svæði, vinnustaður hundruða manna, sem sinna fluginu og flugtengdri starfsemi sem og hverskonar ferðaþjónustu.
Með samþykkt Alþingis á flugmálaáætlun, þar sem gert var ráð fyrir nýjum flugbrautum og fullkomnum aðflugsbúnaði Reykjavíkurflugvallar og með samþykkt Alþingis á fjárveitingum til framkvæmda, var tekin ákvörðun um að Reykjavíkurflugvöllur yrði um ókomin ár miðstöð innanlandsflugs á Íslandi.

Þessari ákvörðun Alþingis var fylgt eftir með samkomulagi milli mín, sem samgönguráðherra, og borgarstjóra þar sem staðfest voru áform um framkvæmdir og skipulag á flugvallarsvæðinu. Það mikilvæga samkomulag var síðan staðfest af borgarstjórn með því að veitt var heimild til framkvæmda.

Allar þessar ákvarðanir vörðuðu flugið á Íslandi miklu og eru staðfesting á því hversu miklu máli það skiptir í almenningssamgöngukerfi okkar Íslendinga.

Ég hef lagt áherslu á það að allt skipulag og framkvæmdir skuli miðast við að taka tillit til óska borgaryfirvalda um að flugvallar svæðið yrði dregið saman sem mest mætti verða og að umferð mætti takmarka sem mest við áætlunarflugið svo ónæði frá fluginu yrði sem minnst.
Eftir að flugvallarsvæðið hefur verið girt af verður borginni skilað aftur umtalsverðu landsvæði, sem nýta má til bygginga og opinna svæða, í samræmi við skipulagáætlanir borgarinnar.

Það er von mín að nú þegar framkvæmdum er lokið við flugbrautir og umhverfi vallarins megi verða friður um þá umfangsmiklu starfsemi, sem hér fer fram og skilningur megi aukast á því að innan flugvallarsvæðisins eru margir stærstu atvinnuveitendur borgarinnar, sem leggja til mikla virðisaukandi starfsemi í þágu allra landsmanna.
En hér má ekki láta staðar numið. Næstu skrefin hljóta vera að byggja nýja þjónustu og samgöngumiðstöð hér að austanverðu á vallarsvæðinu, svo sem skipulag gerir rjáð fyrir, sem sinnir öllum þáttum almenningssamgangna að og frá borginni. Um er að ræða í raun sjálfan miðpunktinn í samgöngukerfi þjóðarinnar. Þetta verður tengipunktur innanlandsflugsins, millilandaflugsins, áætlunarbifreiða til og frá landsbyggðinni og strætisvagnakerfis höfuðborgarsvæðisins. Lokaákvörðun um byggingu samgöngumiðstöðvarinnar verður tekin af Alþingi eftir umfjöllun þess um tillögu að samgönguáætlun 2003-2014, sem ég mun leggja fram í þessum mánuði. Samhliða er nauðsynlegt að flugvallarsvæðið verði tengt stofnbrautum höfuðborgarsvæðisins með nýjum afkasta miklum vegi meðfram Öskjuhlíðinni.
Annað skref þarf einnig að stíga á næstunni. Nauðsynlegt er að taka ákvörðun um framtíðarstaðsetningu kennslu- og æfingaflugsins. Sú ákvörðun er óhjákvæmilega mjög tengd ákvörðun um framtíð og þróun flugsá Íslandi sem vaxandi atvinnugreinar. Í þessu sambandi hef ég ákveðið að óska eftir viðræðum við borgaryfirvöld um framkvæmd og nánari útfærslu á áðurnefndu samkomulagi okkar um snertilendingar og kennsluflug frá því 1999.

Ágætu gestir.

Umræður um flugvöllinn og innanlandsflugið hafa verið stríðar síðustu misserin. Nú blasir við betri tíð. Nýr og fullkominn flugvöllur og stórbættur hagur flugfélaganna, sem sinna áætlunarflugi innanlands. Það eru ánægjuleg tíðindi sem berast um bætta afkomu flugfélaganna í kjölfar þess að innanlandsflugið hefur verið endurskipulagt með útboði á sjúkraflugi og flugi til jaðarbyggða, sem hafa þurft styrki úr sameiginlegum sjóðum. Þessi breytta staða í fluginu og mikill vöxtur í ferðaþjónustunni hlýtur að skapa ný við horf til innanlandsflugsins og endurbyggingar Reykjavíkurflugvallar.

Megi Guð og gæfan fylgja öllum þeim sem um flugvöllinn fara.


Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum