Hoppa yfir valmynd

Ræða eða grein fyrrum ráðherra

10. nóvember 2004 InnviðaráðuneytiðSturla Böðvarsson, samgönguráðherra 1999-2007

Frumvarp til laga um rannsóknarnefnd umferðarslysa

Framsöguræða samgönguráðherra, Sturlu Böðvarssonar, á Alþingi.

Frumvarp til laga um rannsóknarnefnd umferðarslysa

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um rannsóknarnefnd umferðarslysa.

Um síðustu áramót voru umferðar-og umferðaröryggismálin flutt til samgönguráðuneytisins frá dóms-og kirkjumálaráðuneytinu, með breytingu á reglugerð um Stjórnarráð Íslands.

Í upphafi þessa árs var hafin vinna í samgönguráðuneytinu við endurskipulagningu þessa málaflokks á tvennan hátt.

Annars vegar er í undirbúningi þingsályktun um umferðaröryggismál fyrir árin 2005 - 2008 sem lögð verður fyrir Alþingi innan tíðar. Til þess að halda utan um það verk var skipaður sérstakur stýrihópur og var honum falið að móta nýja heildarstefnu í umferðaröryggismálum, endurmeta markmið og útbúa framkvæmdaáætlun um umferðaröryggisaðgerðir.

Hins vegar var hafist handa við undirbúning löggjafar um rannsóknarnefnd umferðarslysa. Var farið yfir stjórnsýslu málaflokksins og er árangur þess starfs meðal annars það frumvarp sem hér liggur fyrir. Var m.a. leitað umsagnar rannsóknarnefndar umferðarslysa, Ríkislögreglustjóra, Ríkissaksóknara, Sambands íslenskra tryggingafélaga og Umferðarstofu. Ég vil að gefnu tilefni ítreka það sérstaklega að hlutverk lögreglu við rannsóknir umferðarslysa mun ekki breytast með þessu frumvarpi.

Umferðarslysin hér á Íslandi eru óásættanleg með öllu. Því þarf að leita allra leiða til þess að koma í veg fyrir slysin. Áður en ég geri grein fyrir þessu frumvarpi vil ég fara nokkrum orðum um þau markmið í umferðaröryggismálum sem ég hef sett fram.

Í fyrsta lagi verður einbreiðum brúm á þjóðvegum landsins fækkað skipulega. Þessar slysagildrur eru alltof margar en endurbygging þeirra tekur sinn tíma. Á næstu 12 mánuðum er gert ráð fyrir að 20 einbreiðar brýr verði teknar úr notkun.

Í öðru lagi verður mikið lagt í að ná samkomulagi við sveitastjórnir hringinn í kringum landið og banna lausagöngu búfjár og hrossa - sérstaklega við þjóðveg eitt. Lausagangan skapar mikla hættu.

Í þriðja lagi verða slysarannsóknir efldar, m.a. með lögfestingu þessa frumvarps. Fjárfesting í rannsóknum skilar sér í aukinni þekkingu á slysagildrum og fækkun slysa. Ég kem betur að þessu markmiði síðar.

Í fjórða lagi verða vegamerkingar bættar. Hér er ég sérstaklega að tala um leiðbeinandi hraðamerkingar á erfiðum vegaköflum, t.d. kröppum beygjum. Vegagerðin metur þá ákveðna vegakafla, finnur út æskilegan hámarkshraða á því vegbili og setur upp sérstakar merkingar.

Í fimmta lagi mun Umferðarstofa gefa út sérstakt myndband fyrir erlenda ferðamenn um þær aðstæður sem hér eru og undirbúa þannig erlenda gesti betur en nú er gert. Erlendir ferðamenn lenda í allt of mörgum slysum á þjóðvegum landsins. Við þessu þarf að bregðast.

Í sjötta lagi mun ég, eins og áður sagði, leggja fram endurskoðaða umferðaröryggisáætlun sem verður á ábyrgð Umferðarstofu að fylgja eftir. Ný áætlun verður lögð fram með tímasettum aðgerðum til fjögurra ára, skýrum markmiðum, kostnaður áætlaður og ábyrgð verkefna verður skýr.

Í sjöunda lagi verður hraðaeftirlit eflt í samstarfi við lögregluna. Rannsóknir sýna að öflugt og markvisst hraðaeftirlit er árangursríkasta leiðin til að vinna gegn hraðakstri, sem er meginorsök alvarlegra umferðarslysa.

Í áttunda lagi vil ég nefna að þær miklu framkvæmdir, sem eru á vegakerfinu um allt land, eru allar til þess fallnar að auka öryggi. Nokkrar stórframkvæmdir Vegagerðarinnar vil ég nefna sérstaklega en þær munu hafa mikil áhrif til bætts umferðaröryggis. Ég vil nefna fernt sérstaklega. Fyrsta áfanga við tvöföldun Reykjanesbrautar sem nýlega er lokið, breikkun Vesturlandsvegar í Mosfellsbæ, lagður verður nýr vegur um Stafholtstungur í Borgarfirði, vegurinn um Norðurárdal í Skagafirði verður endurbættur, nýr vegur um Svínahraun og framkvæmdir við jarðgöng í Almannaskarði eru hafnar. Allt eru þetta tímamótaframkvæmdir. Og fleira mætti nefna.

Í níunda lagi viljum við breyta viðhorfi almennings til hraðaksturs. Það er staðreynd að of mörgum finnst það sjálfsagt að aka á ólöglegum hraða. Á sama tíma er hraðakstur algengasta orsök alvarlegra slysa.

Í tíunda lagi eru sérfræðingar ráðuneytisins og Umferðarstofu að leggja mat á fýsileika þess að svokölluðum ökugerðum, eða æfingaaksturssvæðum verði komið upp.

Á fundi samgönguráðherra Norðurlandanna nýverið voru kynntar tillögur Svía um nýjar aðgerðir til að koma í veg fyrir umferðarslys með því að draga úr hraðakstri og ölvunarakstri. Er ástæða til þess að læra af reyslu nágranna okkar í Evrópu.

Ekki er að finna ákvæði um rannsóknir umferðarslysa í formi sérstakra laga. Í 115. gr.a. umferðarlaga nr. 50/ 1987, með síðari breytingum, er þó að finna ákvæði um að ráðherra geti skipað sérstaka rannsóknarnefnd umferðarslysa. Gert er ráð fyrir að nefndarmenn skuli hafa sérfræðiþekkingu, svo sem að því er varðar umferðarlöggjöf, löggæslu, slysalækningar, umferðarskipulag, bifreiðatækni eða vátryggingar.

Í reglugerð nr. 681/1998 er fjallað um hlutverk og skipulag rannsóknarnefndar umferðarslysa. Þar er m.a. ákvæði þess efnis að nefndin skuli starfa sjálfstætt og óháð öðrum stjórnvöldum og rannsóknaraðilum. Nefndarmenn skulu vera þrír og skipaðir af ráðherra.

Það frumvarp sem hér er lagt fram er ætlað að skjóta styrkari stoðum undir starfsemi rannsóknarnefndar umferðarslysa og skapa nefndinni þannig réttarstöðu til samræmis við aðrar rannsóknarnefndir á sviði slysa og ófara, svo sem flugslysa og sjóslysa. Ljóst er þó að ekki er hér um sambærilegar rannsóknir að ræða að öllu leyti, og er í frumvarpinu að nokkru vikið frá því fyrirkomulagi sem t.d. er mælt fyrir um í lögum nr. 35/2004, um rannsókn flugslysa, auk þess sem skilgreining verkefna nefndanna er með nokkuð ólíkum hætti. Markmiðið er hins vegar það sama. Að koma í veg fyrir slys með því auka skilning á orsökum þeirra.

Meginatriði frumvarpsins lúta einkum að eftirfarandi atriðum; hlutverki og markmiðum rannsóknarnefndarinnar, skipulagi og nefndarskipan, framkvæmd rannsókna af hálfu nefndarinnar, samningu skýrslna í tengslum við störf nefndarinnar og að aðgangi að gögnum hjá nefndinni.

Samkvæmt frumvarpinu er markmiðið með störfum rannsóknarnefndar umferðarslysa að leiða í ljós orsakir umferðarslysa til að koma í veg fyrir að sams konar umferðarslys verði aftur og stuðla með því að auknu öryggi í umferðinni hér á landi. Rannsóknir umferðarslysa skulu bæði ná til rannsókna einstakra umferðarslysa svo og til flokka umferðarslysa eða umferðarslysa sem teljast af sama tagi. Með flokki umferðarslysa er átt við afmarkaðar tegundir umferðarslysa, sem hafa tiltekin einkenni, svo sem banaslys. Með slysum af sama tagi er hins vegar til dæmis átt við öll slys sem verða á einhverjum tilteknum gatnamótum eða tiltekinni tegund gatnamóta á ákveðnu tímabili. Áhersla skal lögð á að ekki er ætlunin með frumvarpi þessu að hagga því fyrirkomulagi sem nú er á rannsókn lögreglu á umferðarslysum.

Skipulag rannsóknarnefndar umferðarslysa er með nokkuð áþekkum hætti og hjá rannsóknarnefnd flugslysa. Í rannsóknarnefnd umferðarslysa skulu eiga sæti þrír menn sem samgönguráðherra skipar til fimm ára og skal einn skipaður formaður. Jafnframt skulu skipaðir varamenn til sama tíma.

Samgönguráðherra skipar nefndinni forstöðumann til fimm ára í senn. Forstöðumaðurinn skal jafnframt vera rannsóknarstjóri nefndarinnar og stýra rannsóknarverkefnum á vegum hennar. Ennfremur er gert ráð fyrir að rannsóknarnefndin geti tilnefnt staðgengil forstöðumanns, svo sem vegna forfalla, leyfa eða sambærilegra atvika.

Lagt er til að nefndin gefi út heildarskýrslu um störf sín ár hvert þar sem meðal annars skal vera yfirlit yfir helstu störf nefndarinnar á yfirstandandi starfsári, tölfræðilegar samantektir auk tillagna um öryggisúrbætur á sviði umferðarmála. Nefndin getur líka, telji hún tilefni til, samið sérstaka skýrslu um niðurstöður rannsóknar einstaks slyss. Í slíkri skýrslu skal gerð grein fyrir orsök eða sennilegri orsök slyssins auk þess sem þar skulu gerðar tillögur um þær varúðarráðstafanir sem gera má til þess að afstýra frekari slysum af sömu eða líkum orsökum, eða draga úr afleiðingum þeirra. Skýrslur nefndarinnar skulu gerðar opinberar. Jafnframt er gert ráð fyrir að nefndin geti beint tilmælum til viðeigandi aðila um úrbætur í umferðaröryggismálum eftir því sem rannsóknir hennar gefa tilefni til og skulu þeir, sem tillögum er beint til, taka tilhlýðilegt tillit til þeirra og hrinda þeim í framkvæmd ef við á. Þetta er mjög mikilvægt nýmæli.

Hæstvirti forseti: Ég hef í stuttu máli rakið meginatriði frumvarps til laga um rannsóknarnefnd umferðarslysa. Ég legg til að frumvarpið verði að lokinni umræðu vísað til 2. umræðu og háttvirtrar samgöngunefndar.



Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum